Morgunblaðið - 28.11.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
Reuter
FULLTRÚAR Evrópusambandsins og Miðjarðarhafsríkja stilla
sér upp við upphaf ráðstefnunnar í Barcelona. Fyrir miðju eru
Juan Carlos Spánarkonungur og Sofía drottning.
Ráðstefna ESB og Miðjarðarhafsríkja
Stefnt að undir-
ritun sam-
starfssáttmála
RÁÐHERRAR ríkja Evrópusam-
bandsins og tólf nágrannaríkja
þeirra við Miðjarðarhafið hófu í
gær tveggja daga fund í Barcel-
ona. Er stefnt að því að undirrita
í dag sögulegan samstarfssáttmála
ríkjanna og unnu embættismenn
að því í gær að ryðja síðustu hindr-
ununum úr vegi.
Þetta er í fyrsta skipti sem fund-
ur af þessu tagi er haldinn og er
hann talinn til marks um að Evr-
ópusambandið hyggist í framtíð-
inni einbeita sér í auknum mæli
að samskiptum við nágrannaríkin
í suðri.
Margar ástæður eru fyrir þess-
ari stefnubreytingu en ekki síst
ótti við aukna hættu af uppgangi
íslamskra heittrúarmanna í Norð-
ur-Afríku. Þá hefur ólöglegum
flóttamönnum frá þessum ríkjum
stöðugt ijölgað.
Ríkin tólf sem taka þátt í ráð-
stefnunni með Evrópusambandinu
eru Alsír, Kýpur, Egyptaland, ísra-
el, Jórdanía, Líbanon, Malta, Mar-
okkó, sjálfstjórnarsvæði Palestínu-
manna, Sýrland, Túnis og Tyrk-
land. Hefur þessum ríkjum verið
boðin aðstoð sem nemur sex millj-
örðum dollara, tæpum 390 millj-
örðum króna, á næstu fimm árum
til að bæta menntun og byggja upp
samgöngukerfi og fjarskipti.
í staðinn fer Evrópusambandið
fram á að að viðskiptahindranir
verði afnumdar og að stefnt verði
að því að árið 2010 verði búið að
afnema öll höft á viðskiptum með
iðnaðarvörur.
Deilt um orðalag
og efnisatriði
ESB vill að ríkin skuldbindi sig
til að fylgja ákveðnum pólitískum
grundvallarlögmálum svo sem að
ekki megi fara með hernaði gagn-
vart nágrannaríkjum. Þá vill sam-
bandið að ríkin hafni og fordæmi
hryðjuverkastarfsemi.
í drögum að samkomulaginu eru
ríkin hvatt til aukinnar samvinnu
í baráttunni gegn hryðjuverkum
og eiturlyfjasmygli og að reynt
verði að hefta straum ólöglegra
flóttamanna.
Var enn deilt í gær um hvernig
ætti að orða málsgreinar sam-
komulagsins um þessi mál.
ísraelar, sem búa yfir kjarn-
orkuvopnum, voru til dæmis and-
vígir því að skráð yrði í samkomu-
lagið að aðildarríki þess ættu að
gerast aðilar að samningnum gegn
útbreiðslu gereyðingarvopna.
Tvíhliða viðræður
við Sviss ganga illa
TVÍHLIÐA viðræður Evrópusam-
bandsins við Sviss hafa gengið illa
og eru líkur á að samningar takist
fyrir áramót, eins og stefnt var
að, að því er segir í European
Voice. í samningaviðræðunum er
fjallað um samstarf í rannsóknum,
opinber útboð, verzlun með land-
búnaðarvörur, réttindi flugfélaga,
flutninga vörubíla frá ESB í gegn-
um Sviss og réttindi ESB-borgara
á svissneskum vinnumarkaði.
Deilt um atvinnuréttindi
og þyngd vörubíla
Það eru einkum tvö síðastnefndu
atriðin, sem viðræðurnar stranda
á. Evrópusambandið hefur krafizt
þess að Svisslendingar hækki nú-
verandi 28 tonna hámark, sem
þeir setja á vörubíla sem þeir leyfa
að aka í gegnum landið. I Evrópu-
sambandinu mega vörubílar vera
allt að 40 tonn fullhlaðnir. Sviss-
lendingar þvertaka hins vegar fyrir
að breyta hámarkinu.
Þá vill Evrópusambandið að
ESB-borgarar fái sömu atvinnu-
réttindi í Sviss og í EFTA-ríkjun-
um, sem gerzt hafa aðilar að
samningnum um Evrópska efna-
hagssvæðið, en Svisslendingar
höfnuðu honum í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Svisslendingar hafa
sagzt tilbúnir að bæta stöðu ESB-
borgara, sem þegar starfa í land-
inu, en halda að öðru leyti fast
við árlegan kvóta atvinnuleyfa,
sem skiptist bæði eftir starfsgrein-
um og þjóðerni erlendra launþega.
Þrátt fyrir fundi svissneskra
ráðherra og framkvæmdastjórnar-
manna Evrópusambandsins hefur
lítið þokazt áleiðis í viðræðunum.
Umræður um þær áttu að vera á
dagskrá fundar ráðherraráðs ESB
20. nóvember, en þeim var frestað
fram í næsta mánuð þar sem
Spánn, sem situr i forsæti ráðherr-
aráðsins, taldi að enginn árangur
hefði náðst, sem hægt væri að
tala um.
ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1995 21
- kjarni málsins!
- - Hvítt
Grátt
s Blátt
□ Fílabein
Klæðningin j
sem þolir
íslenska
veðróttu
Leitið tilboða
ÁVALLT TIL Á LAGER
ÞÞ
&co
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRIiÚLA 29 • 108 REYKJAVfK
SÍMAR 553 8640/568 6IOO,fax S88 87SS.
- s v , s .
' •>
%
TILKYNNING UM UTBOÐ MARKAÐSVERÐBRÉFA
HLUTABRÉF í
ÍSLENSKA FJÁRSJÓÐNUM HF.
Heildarnafnverð nýs hlutafjár: ÍOO.OOO.OOO.- kr.
Sölugengi á útgáfudegi: 1,05
Fyrsti söludagur: 28. nóvember 1995
Umsjón með útboði: Landsbréfhf.
Utboðslýsing vegna ofangreindra hlutabréfa liggur frammi hjá Landsbréfum hf.
og umboðsmönnum Landsbréfa hf. í útibúum Landsbanka Islands um allt land.
If
ISLENSKI FJARSJOÐURINN HF.
x LANDSBRÉF HF.
/
' Ph - /f .
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 588 9200, bréfasími 588 8598.
LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, AÐILIAÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS.
Enginn hægindastóll í heimi jafnast á við Lazy-boy.
Með einu handtaki er skemiil dreginn út og maður
Ifður þægilega aftur -auðveldara getur það ekki verið.
Lazy-boy er tilvalin jólagjöf fyrir allar
mömmur og ömmur, afa og pabba.
Lazy-boy stóllinn fæst í mörgum
gerðum og áklæðalitum.
Einnig er hann fáanlegur í leðri.
Lazy-boy kostar frá
kr. 31.900,- stgr. í áklæði.
LAZY-BOY fæst aðeins í
HÚSGAGNAHÖLLINNI
Greiðslukjör til margra mánaða
HÚSGAGNAHÖLUN
Bildshöfði 20 -112 Rvik - S:587 1199