Morgunblaðið - 28.11.1995, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 28.11.1995, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1995 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Argentínuför Díönu prinsessu lokið og „friðarviðræðna“ beðið Reuter BÖRNIN í bænum Gaiman í Suður-Argentínu tóku vel á móti Díönu á laugardag en síðan steig hún á skipsfjöl og fór i hvala- skoðunarferð. „Lafðin hefur öll trompin á hendi“ DÍ ANA prinsessa af Wales hélt í gær til Lundúna frá Argentínu þar sem hún hefur verið í opin- berri heimsókn undanfarna daga. Bretar bíða þess nú spenntir að sjá hvaða hlutverk konungsfjölskyldan er tilbúin til að bjóða prinsessunni, sem braut allar venjur og hefðir í fyrri viku er hún ræddi einka- líf sitt og hjónaband þeirra Karls prins í sjónvarpsþætti. Talsmaður konungsfjöl- skyldunnar kvaðst í gær ekki vera tilbúinn að láta uppi hvar og hvenær viðræður prinsess- unnar og fulltrúa konungdæm- isins hæfust. „Hér er ekki um leiðtogafund að ræða og því munum við ekki skýra fyrst frá dagsetningunni og birta síðan fréttatilkynningu," sagði hann. Almennt er gengið út frá því að prinsessan verði í eins konar sendiherrahlutverki og að það verði í hennar verkahring að draga athygli að Bretlandi og breskri framleiðslu. „Friðarviðræður" Konungsfjölskyldan bauð Dí- önu til viðræðna um framtíðar- hlutverk hennar í bresku sam- félagi sólarhring eftir að sýnt hafði verið við hana sjónvarps- viðtal þar sem hún upplýsti m.a. að hún hefði verið eigin- manni sínum ótrú eftir að hjónaband þeirra var farið út um þúfur og ræddi um „svik- ara“ í höllu Bretadrottningar. Viðtal þetta vakti mikla athygli um allan heiip og breskir fjöl- miðlar hafa nefnt samtöl þau sem konungsfjölskyldan hefur boðið „friðarviðræður". 1 Bretlandi telja margir áhugamenn og sérfræðingar um konungsfjölskylduna að Díana hafi sýnt mikla dirfsku er hún féllst á sjónvarpsviðtalið og að staða hennar hafi styrkst mjög. Skoðanakannanir gefa til kynna að rúm 80% landsmanna hafi samúð með sjónarmiðum Díönu prinsessu. Onefndir starfsmenn hirðarinnar munu hafa látið sömu skoðun í Ijós í samtölum við fréttamenn. Dag- blaðið The Sun sagði í frétt í gær að konungsfjölskyldan vildi fyrir alla muni ná sam- komulagi við prinsessuna. „Lafðin hefur öll tromp á hendi sér“ hafði blaðið eftir heimild- armanni einum. Ónýtt jólateiti? Fram kom og að Díönu hefði verið boðið að dveljast með konungsfjölskyldunni um jólin og sagði í frétt blaðsins The Guardian að þar með yrðu áform Karls um að bjóða fyrr- um ástkonu sinni Camillu Park- er Bowles til síðdegisteitis á annan dag jóla að engu. Taleban-hreyfingin sækir að Kabul 37 falla í árásum á íbúða- hverfi Kabul. Reuter. 37 MANNS biðu bana og rúmlega 140 særðust í loftárásum uppreisn- armanna á íbúðahverfi í Kabúl á sunnudag. Þetta eru mannskæð- ustu loftárásir á afgönsku höfuð- borgina í rúmt ár. Tveir til viðbót- ar féllu vegna flugskeyta sem lentu nálægt forsetahöllinni í Kabul í gær. Talsmaður afganska varnar- málaráðuneytisins sakaði upp- reisnarhreyfinguna Taleban um árásirnar. Hreyfingin sækir að höfuðborginni frá að minnsta kosti fjórum stöðum og krefst þess að Burhanuddin Rabbani forseti segi af sér. Taleban hefur hafnað tillög- um Sameinuðu þjóðanna um að þjóðstjórn taki við af stjórn Rabb- anis. Vestrænn fréttaskýrandi sagði erfítt að sjá hvaða hernaðarlega tilgangi slíkar loftárásir ættu að þjóna en kvað hugsanlegt að þær væru svar við gagnárásum stjómarhersins að undanförnu. Notaðar voru þijár sprengjuvél- ar af gerðinni SU-22 og að minnsta kosti níu sprengjum var varpað á borgina. Taleban náði flugvélunum í ágúst og varnarmálaráðuneytið sakaði stjórnvöld í Pakistan um að hafa veitt hreyfingunni tækni- lega og fjárhagslega aðstoð til að gera við þær. Utanríkisráðuneyti Pakistans vísaði því á bug sem algjörum tilbúningi. Sprengjurnar voru með fallhllfar og sprungu um 30 metrum yfir jörðu, þannig að sprengjuflísar dreifðust yfir stórt svæði. -„Þetta er villimennska," sagði Kabúl-búi sem fylgdist með björg- unarmönnum draga lík tveggja ára barns úr rústunum. „Taleban- hreyfíngin er grimmari en Djengis Khan. Jafnvel Rússar voru ekki jafn slæmir og þessir menn.“ Nálgast hreinan meirihluta SPÆNSKA Þjóðarflokkinn myndi einungis skorta fjögur þingsæti til að ná hreinum meirihluta ef nú yrði gengið til kosninga, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Samkvæmt skoðanakönnuninni fengi Sós- íalistaflokkur Felipe Gonzalez forsætisráðherra 127 sæti af 350 og missti þar með 32 þing- menn. tjóðarflokkurinn myndi fá 172 sæti en hefur nú 141. Sameinaði vinstriflokkurinn fengi 25 þingmenn og flokkur Katalóna myndi missa þijú þingsæti og fá 14 menn kjöma. Arás á Israel ARABÍSKIR skæruliðar í Suð- ur-Líbanon skutu í gær nokkr- um eldflaugum yfir landamær- in til ísrael. Talsmaður ísra- elska hersins sagði að ekkert manntjón hefði orðið í árásinni. Heimildir herma að ísraelski herinn hafi svarað fyrir árásina með því að hefja fallbyssuskot- hríð á stöðvar Hizbollah-sam- takanna í Bekaa-dalnum. Tugir farast FARÞEGABÁT hvolfdi í gær á ánni Ganges í ríkinu Bihar á Indlandi. Fréttastofur sögðu að á bilinu 20-80 manns hefðu drukknað en lögreglumaður á svæðinu s£gði í símaviðtali við Reuters að enginn hefði drukknað. Báturinn var byggð- ur fyrir 40 farþega en farþegar voru 80 er bátnum hvolfdi. Verða að breyta sátt- mála SHIMON Peres, forsætisráð- herra ísraels, sagði í gær að Frelsissamtök Palestínu yrðu að breyta stofnsáttmála sínum þar sem hvatt er til að ísraels- ríki verði tortímt. Ef þessu yrði ekki breytt yrði framkvæmd friðarsamkomulagsins við Pa- lestínumenn stöðvuð. Sáttmá- Ianum hefur aldrei verið breytt frá því hann var ritaður 1964 og til að breyta honum verða allar ellefu fylkingar PLO að vera því samþykkar. Hassmet í Hollandi HOLLENSKA lögreglan gerði í gær upptæk 27 tonn af kannabis og er það mesta magn er nokkum tímann hefur verið gert upptækt. Eiturlyfin fund- ust um borð í flutningaskipinu Bethel Geuse sem var að koma frá Panama en sigldi undir brasilískum fána. Tveir Hol- lendingar voru handteknir í tengslum við málið en talið er að selja hafí átt eiturlyfín í Hollandi. Sirivudh póli- tískur fangi AMNESTY International lýsti því yfir í gær að það teldi Noro- dom Sirivudh Kambódíuprins vera pólitískan fanga og kröfð- ust samtökin þess að hann fengi réttlát réttarhöld. Sirivudh er hálfbróðir Sihano- uks konungs og hefur verið í haldi frá 21. nóvember. Er hann sakaður um aðild að samsæri til að myrða Hun Sen forsætis- ráðherra. Fróðleikur um landið þitt ! Landshagir 1995, ársrit Hagstofunnar, hafa að geyma fjölda upplýsinga um flest svið þjóðfélagsins svo sem um mannfjölda, vinnumarkað, verðlag, laun, tekjur, þjóðarbúskap, framleiðslu, heilbrigðismál, menntamál, kosningar o.fl. Ritið veitir m.a. svör við eftiítöldum spurningum: Hver er meðalævilengd íslendinga? Hvað reykja margir íslendingar daglega? Hverjar eru helstu dánarorsakir íslendinga? Hvað er atvinnuleysið mikið á Suðurnesjum? Hvað hefur sauðfé fækkað mikið á undanförnum árum? Hvert flytja íslendingar útflutningsafurðir sínar? Hvað hefur verðbólgan verið mikil undanfarin ár? þetta er aðeins brot af þeim fróðleik sem Landshagir 1995 geyma. Atriðisorðaskrá auðveldar leitina að svörum við þessum og ótal fleiri spumingum Viljir þú vita meira um Island þá eru Landshagir 1995 þitt rit! Verð 2.200 kr. 313 bls. Verð á disklingum 4.400 kr. Hagstofa íslands Skuggasundi 3 150Reykjavík Sími 560 9860 Bréfasími 562 3312 4/t Ilagstofa íslands
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.