Morgunblaðið - 29.11.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 29.11.1995, Síða 1
80 SÍÐUR B/C/D/E 273. TBL. 83. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bosníu-Serbar venda sínu kvæði í kross Styðja komu bandarískra hermanna Sarcyevo, Brussel, Washington. Reuter. LEIÐTOGAR Bosníu-Serba sneru við blaðinu í gær og segjast nú styðja þá áætlun Bills 'Clintons, forseta Bandaríkjánna, að senda bandaríska hermenn til Bosníu. Áður höfðu þeir varað við, að það gæti leitt til nýs blóðbaðs í landinu. Samningar tókust í gær um þátttöku Rússa í friðar- gæslu í Bosníu Radovan Kardzic, forseti Bosníu- Serba, sagði í viðtali við CNN-sjón- varpsstöðina, að kæmu bandarískir hermenn til Bosníu staðráðnir í að gera engum einum hærra undir höfði en öðrum, myndu Serbar taka þeim sem vinum. „Ég hef fallið frá öllum hugmyndum um hernaðarlega lausn og styð Dayton-samkomulagið. Við viljum frið,“ sagði Karadzic. í fyrradag og um helgina hótaði Karadzic nýjum átökum og sagði, að hætta væri á að Sarajevo yrði að „Beirut“ Evrópu. Nú kveðst hann vona, að friðsamleg lausn finnist á kröfu Serba unrað hluti borgarinnar verði undir þeirra stjóm. Samið við Rússa William Perry, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, og Pavel Gratsjov, starfsbróðir hans rússnesk- ur, náðu samningum í gær um þátt- töku rússneskra hermanna í friðar- gæslunni í Bosníu. Verður yfírstjórn- in í höndum NATO eins og áður var ætlað en þátttaka Rússa verður þó skilgreind þannig, að hún falli ekki beint undir hana. Perry sagði í gær, að um 700 bandarískir hermenn yrðu sendir til Bosníu eftir viku til að búa í haginn fyrir komu gæsluliðsins, 60.000 manna. í gær samþykkti þýska stjómin að senda 4.000 hermenn til landsins og er búist við, að það verði samþykkt á þingi. Sáttatónn á Bandaríkjaþingi Clinton Bandaríkjaforseti flutti ávarp til þjóðarinnar í fyrrakvöld og skoraði á hana og þingið að styðja áætlun sína um að senda 20.000 her- menn til Bosníu. Virðist það hafa mælst vel fýrir samkvæmt skoðana- könnunum og Bob Dole, leiðtogi repú- blikana í öldungadeildinni, gaf til kynna, að hann vildi ná sáttum um málið. ■ Færri andvígir/18 Reuter Eldflaugaárás svarað ÍSRAELSKAR herflugvélar gerðu þrívegis árás á skæruliða Hizbollah-hreyfíngarinnar í Líb- anon í gær. Höfðu þeir áður skot- ið mörgum Katusha-eldfíaugum á ísrael en ekki er vitað um manntjón í þessum átökum. Reykinn leggur upp frá bænum Nabatiyeh en ísraelsku landa- mærin eru uppi í hæðunum. # # Reuter Ongþveiti í París VERKFALL franskra lesta- starfsmanna, sem staðið hefur í fimm daga, veldur æ meiri vand- ræðum, en til þess var efnt til að mótmæla fyrirhuguðum nið- urskurði og breytingum á vel- ferðarkerfinu. I París og víðar var gífurlegt umferðaröngþveiti í gær og voru bílalestirnar sums staðar 30 km langar eða lengri. Lamaðist ýmiss konar starfsemi vegna þess, að fólk komst ekki til vinnu sinnar. Talsmaður ríkis- stjórnarinnar sagði i gær, að i engu yrði hvikað, óhjákvæmilegt væri að ráðast gegn gífurlegum hallarekstri velferðarkerfisins. Myndin var tekin í París í gær- morgun þegar fólk streymdi til vinnu á einkabilunum. ESB og Miðjarðar- hafsríki Virða mann- réttindi Barcclona. Reuter. RÁÐHERRAR 27 ríkja, Evrópusam- bandsins og Miðjarðarhafsríkja, undirrituðu í Barcelona í gær sam- komulag um friðsamlega sambúð og frjálsari viðskipti. Tveggja daga fundi ríkjanna lauk þremur klukku- stundum síðar en áformað hafði ver- ið vegna deilna um hryðjuverk, kjarnorkuvopn og sjálfsákvörðunar- rétt Palestínumanna. Salah Dembri, utanríkisráðherra Aisírs, ávarpaði fundinn í lokin fyrir hönd arabaríkja og sagði samkomu- lagið vera mikilvægan áfanga á leið- inni til bættra samskipta ríkra landa fyrir norðan Miðjarðarhaf og fá- tækra ríkja í suðri. Þrátt fyrir að utanríkisráðherra Sýrlands, Farouq al-Shara, hafi á mánudag tekið vel í friðarumleitanir Ehoud Baraks, utanríkisráðherra ísraels, neituðu Sýrlendingar lengi vel að gefa eftir í viðræðunum í gær. Þeir töldu rétt að gera greinar- mun á hryðjuverkum og „réttmætri frelsisbaráttu“. Felipe Gonzalez, forsætisráðherra Spánar, tók hins vegar fram að fund- inum hefði ekki verið ætlað að leysa deilur fyrir botni Miðjarðarhafs og Javier Solana, utanríkisráðherra Spánar, neitaði að gera breytingar á þeirri málamiðlun er náðist að lok- um. Er frammistaða hans á fundin- um talin geta haft jákvæð áhrif á framboð hans í embætti fram- kvæmdastjóra NATO. í samkomulaginu skuldbinda ríkin sig til að virða landamæri hvers annars, ólík trúarbrögð og mannrétt- indi og beijast gegn hryðjuverkum. Þá er stefnt að því að hindrunum vegna viðskipta með iðnaðarvörur hafi verið rutt úr vegi fyrir árið 2010. Á móti skuldbindur Evrópu- sambandið sig til að veija sex millj- örðum dollara eða sem nemur tæp- um 390 milljörðum króna til að efla menntakerfi og samgöngur í Mið- jarðarhafsríkjunum. Sænska lögreglan kom upplýsingum til Þjóðveija í stríðinu Njósnaði um Dani Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. SÆNSKA og fínnska öryggislög- reglan unnu saman á stríðsárunum og finnska lögreglan kom sænsk- um upplýsingum á framfæri við Þjóðvetja. Meðal annars veitti sænska lögreglan Þjóðveijum á þennan hátt upplýsingar um dönsku andspyrnuhreyfínguna. Þetta kemur fram í frétt Dagens Nyheter um upplýsingar, sem fundist hafa í fínnskum skjalasöfn- um. Samkvæmt fínnsku upplýsing- unum sendi sænska öryggislög- reglan njósnara yfir til Danmerk- ur, sem safnaði upplýsingum um Dani en einnig um Svía, Hollend- inga og Breta. Nöfnin fékk hann á fölskum forsendum frá danska kommúnistaflokknum. Á þeim bæ var álitið að njósnarinn væri fulltrúi sænska kommúnistaflokksins, þar sem hann hafði fölsuð skjöl þaðan. Efast um hlutleysið Sænska lögreglan lét þessar upplýsingar og fleiri ganga áfram til finnsku öryggislögreglunnar, sem starfaði með Þjóðveijum 1941-1945. Málið þykir enn eitt dæmi um að Svíar hafi ekki verið jafn hlutlausir og þeir vildu vera láta í síðari heimsstyijöldinni. í Finnlandi gildir skjalaleynd að öllu jöfnu í hálfa öld og nýlega voru opnaðir pakkar frá stríðslok- um, þar sem þessar upplýsingar koma fram. í Svíþjóð eru allar upplýsingar varðandi öryggislög- regluna lokaðar um aldur og ævi og ekki einu sinni fræðimenn eiga aðgang að þeim, sem þó er víða annars staðar. Þetta vekur einnig upp tor- tryggni í Svíþjóð um að með þessu sé komið í veg fyrir rannsóknir og þá meðal annars á stríðsárunum í Svíþjóð og hugsanlegu samstarfi við Þjóðveija. Bent hefur verið á að barátta sænskra stjórnvalda fyrir opnara upplýsingaflæði innan Evrópusambandsins sé ekki trú- verðug meðan upplýsingum sé haldið leyndum heima fýrir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.