Morgunblaðið - 29.11.1995, Blaðsíða 3
2 B MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1995 B 3
MANIMVIRKI
ÍÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKUR
Yfirbyggðir knattspyrnuvellir njóta æ meiri vinsælda í Noregi
Betra að bíða
enfara
fjórðung leiðar
FYRIR 15 árum var fyrsta fjöl-
nota íþróttahúsið reist í Lahti
í Finnlandi. Þar er m.a. knatt-
spyrnuvöllur í fullri stærð og að-
staða fyrir 4.000 áhorfendur. Fram-
kvæmdum lauk í febrúar 1991 og
var kostnaður 24 millj. finnskra
marka (um 370 millj. kr.) en á
núverandi verðgildi um 40 millj.
finnskra marka (um 675 millj. kr.).
Norðmenn og Svíar fóru fljótlega
að dæmi Finna og sérstaklega hafa
Norðmenn verið áhugasamir um
byggingu yfirbyggðra valla fyrir
knattspyrnu. Þeir hafa byggt á sér-
fræðikunnáttu og rannsóknum og
lært mikið af fyrri mistökum, að
sögn arkitektsins Teije Rörby sem
m.a. teiknaði „Víkingaskipið" í
Hamar vegna Vetrarólympíuleik-
anna í Lillehammer 1994.
Terje, sem hefur verið í Mann-
virkjanefnd Knattspyrnusambands
Noregs í áratug, flutti erindi um
byggingu og rekstur fjöinota
íþróttahúsa á ráðstefnu sem Mann-
virkjanefnd ISI, menntamálaráðu-
neytið og Samband íslenskra sveit-
arfélaga efndu til um efnið á Akur-
eyri. Hann sagði við Morgunblaðið
um yfirbyggða knattspyrnuvelli að
aðstaða fyrir knattspyrnumenn
væri fyrst og fremst höfð í huga,
hvað verður að vera og hvað má
missa sín, og síðan fjármagns- og
rekstrarkostnaður. Hann sagði að
Norðmenn hefðu dregið mikinn íær-
dóm af höllinni í Tromsö, sem var
tilbúin 1989, og nú væri markviss
uppbygging í gangi. Annars vegar
yfirbyggðir knattspymuvellir af
fullri stærð í stærri borgum, bygg-
ingar sem kosta um 320 millj. kr.,
og hins vegar hús með 64x40 m
æfingavelli sem kosta um 10,5 til
11 millj. nkr. (um 105 til 110 millj.
kr.) með 3,5 til 4 millj. kr. árlegum
rekstrarkostnaði.
Bylting í sandgrasi
Teije sagði að bylting í gerð
gervigrass hefði haft mikið að
segja, en yfírlag á knattspyrnuvöll
kostaði um átta milljónir króna.
Fyrst hefði verið boðið upp á ámóta
teppi og hefðu verið á svölum og
við sundlaugar en tækninni hefði
fleygt fram og með auknum tilraun-
um og rannsóknum hefði tekist að
framleiða gervigras sem væri nán-
ast eins og náttúrulegt gras.
„Knattspyrnumenn eru mjög
ánægðir með sandgrasið sem nú
er á boðstólum og er notað á yfir-
byggðu vellina. Þetta gerir mönnum
kleift að æfa við bestu skilyrði allan
ársins hring.“
Er ekki alveg eins gott að byggja
yfir malarvöll?
„Nei, við gerum það ekki. I fyrsta
lagi verður óhjákvæmilega mikið
í kvöld
Handknattleikur
Evrópukeppni landsliða:
Kaplakriki: ísland - Pólland.20.30
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild:
Akureyri: Þór-ÍA.............kl. 20
Leiðrétting
Sigmundur Már Herbertsson var annar
dómari leiks Grindavíkur og Þórs í úrvals-
deildinni í körfuknattleik um helgina en
nafn hans misritaðist í blaðinu í gær og
er beðist velvirðingar á mistökunum.
Norski arkitektinn Terje Rörby sagði á
mannvirkjaráðstefnu um helgina að kostnað-
artölur vegna byggingar og rekstrar yfir-
byggðs knattspymuvallar séu mun lægri en
talað hefur verið um til þessa. í samtali við
Steinþór Guðbjartsson kom fram að yfír-
byggður knattspymuvöllur ætti ekki að
kosta meira á íslandi en í Noregi.
Morgunblaðið/Kristján
TERJE RÖRBY
ryk í loftinu sem er ekki gott fyrir
heilsu manna og í öðru lagi þarf
stöðugt að vera að vökva mölina.“
Fyrir utan „Víkingaskipið“ í
Lillehammer, sem Teije hannaði,
eru sex yfirbyggðir knattspyrnu-
vellir af fullri stærð í Noregi og á
áætlun er að byggja 12 til 14 til
viðbótar, að sögn hans. Fyrirhugað
er að reisa 10 minni yfírbyggða
æfingavelli í Norður-Noregi og var
sá fyrsti vígður í liðinni viku. „Það
er mjög mikill áhugi á þessum Iitlu
húsum og eftir vígslu þess fyrsta
óskuðu margir staðir eftir að fá hús
og þá er ég að tala um staði sem
ekki hafa verið á dagskrá í fyrirhug-
aðri áætlun.“
Minni völlur nægir flestum
Teije sagði að Norðmenn væru
almennt sammála um að knatt-
spyrnumönnum hefði farið mikið
fram með tilkomu yfirbyggðu vall-
anna. Betri árangur landsliðsins
hefði líka skilað meiri peningum í
kassann og fyrir vikið gæti Knatt-
spyrnusamband Noregs tekið þátt
í kostnaði vegna byggingar yfir-
byggðra valia og gerði það ásamt
ríkisvaldinu og viðkomandi sveitar-
félögum. „Veðurfarið í Norður-Nor-
egi er svipað og á íslandi og það
segir sig sjálft að ekki er hægt að
æfa í-stöðugri úrkomu og roki með
framfarir í huga. Því kemur mér
ekki á óvart að Akureyri eigi ekki
lið í 1. deild í knattspyrnu en sér-
staklega skiptir það krakkana miklu
máli að geta æft tækniæfingar við
bestu aðstæður allan ársins hring
og í því sambandi horfum við ekki
eingöngu á skipulagðar æfingar
félaganna heldur leggjum áherslu
á að hafa þessi mannvirki opin á
ákveðnum tíma dags fyrir almenn-
ing. Því má taka undir það sem
sagt hefur verið að þessi hús komi
að nokkru leyti í staðinn fyrir götu-
boltann."
Hann sagði að staðsetning hús-
anna væri yfírleitt í tengslum við
skóla og íþróttahús. „Við vitum
hvað er nauðsynlegt og hvað ekki
og komum þekkingunni á fram-
færi. Það er allra hagur að þessi
mannvirki séu sem ódýrust og
reksturinn sem hagkvæmastur og
því skiptir máli að geta notað að:
stöðu sem þegar er fyrir hendi. í
því sambandi má nefna búnings-
klefa og bílastæði og gott er að
þurfa ekki að bæta við starfsliði.
Hins vegar er ljóst að minni völlur
hæfir flestum en keppnisvöllur í
fullri stærð gæti verið æskilegur í
stærri borgum. Eg veit að sumir
íslendingar hafa einblínt á stærri
gerðina en ég held að nóg væri að
hafa slíkan völl í Reykjavík og síðan
minni velli annars staðar.“
Frekar hús en skýli
Knattspyrnumenn á íslandi eru
orðnir óþolinmóðir eftir úrbótum en
leggja fyrst og fremst áherslu á að
komast í skjól fyrir veðri og vind-
um. Teije sagði að í Noregi hefði
mikið verið talað á sömu nótum án
skynsamlegrar niðurstöðu og árétt-
aði að bygging yfirbyggðs knatt-
spyrnuvallar ætti ekki að vera dýr-
ari á íslandi en í Noregi.
„Það er alveg ljóst að lítið bæjar-
félag hefur fulla þörf fyrir lítinn
yfírbyggðan knattspyrnuvöll því
þessi hús má nota í svo margt ann-
að, svo sem aðrar íþróttagreinar,
sýningar og veislur, og þá þarf
meiri hita. Þó þessi hús séu þrisvar
sinnum stærri en þessi hefðbundnu
íþróttahús er verðið svipað og ég
er viss um að það er ekki dýrara
að byggja þessi hús hér en í Norð-
ur-Noregi. Sjálfsagt má réttlæta
einhvers konar skýli fyrir knatt-
spymumenn en það er eins og að
tjalda til einnar nætur, eins og að
byggja íshokkívöll án þaks. Ef
kostnaðurinn vefst fyrir mönnum
er betra að bíða þar til íjármagn
er tryggt en að fara fjórðung leið-
ar.“
Sllllils
'< •' 'r |
Morgunblaðið/Þorkell
RÓBERT Sighvatsson er kominn á ný í landsliðiö. Hér sést
hann glíma viö Gunnar Beinteinsson og Einar Gunnar Sig-
urðsson á æfingu í gær, Patrekur Jóhannesson er í baksýn.
til IMoregs
AFTURELDING fær norska iið-
ið HK Drammen í átta liða úr-
slitum í Borgarkeppni Evrópu,
en dregið var í gær. Það má
segja að Mosfellingar hafi ver-
ið heppnir því þegar svona
langt er komið í keppninni eru
flest liðin sterk.
Einar Þorvarðarson, þjálfari Aft-
ureldingar, sagðist mjög
ánægður með mótheijana frá Nor-
egi. „Þetta var besti kosturinn að
mínu mati, bæði peningalega og eins
eru raunhæfir möguleikar á að kom-
umst áfram. Ég tel svona fyrirfram,
án þess að vita mikið um þetta
norska lið, að möguleikar okkar séu
jafnir. Við eigum síðari leikinn heima
og það er betra og ætti að geta
komið okkur til góða. Ef við leikum
skynsamlega í útileiknum og höldum
haus er aldrei að vita hvað gerist,"
sagði Einar.
Drammen sló út franska liðið PSG
í 16-liða úrslitum, gerði jafntefli í
fyrri leiknum í Frakklandi en sigraði
FELAGSLIF
Adalfundur hjá Val
Aðalfundur knattspyrnudeildar Vals
verður haldinn að Hlíðarenda þriðju-
daginn 5. desember kl. 20.30.
Jólagledi Víkings
Knattspymufélagið Víkingur verður
með jólagleði í Víkinni á laugardag-
inn, 2. desember, og hefst skemmtun-
in kl. 19. M.a. verður boðið upp á di-
skótek, skemmtiatriði og happdrætti.
Miðar seldir hjá fulltrúaráði.
Hátíð hjá Fram
Handknattleiksdeild Fram heldur upp
á 55 ára afmæli sitt í íþróttahúsi Fram
á laugardaginn. Hátíðin hefst kl.
20.00. Boðið er upp á skemmtiatriði
og verður Sverrir Stormsker ræðu-
maður kvöldsins. Hljómsveitin 66 leik-
ur fyrir dansi og mun Pétur W. Krist-
jánsson stíga á stokk með hljómsveit-
inni. Aðgangur er kr. 1.000.
síðan með tveimur mörkum í Nor-
egi. Liðið er ungt og að sögn Matthí-
asar Matthíassonar, sem leikur með
Elverum í Noregi, hefur því gengið
vel að undanförnu og náði mjög
góðum leikjum gegn PSG.
„Þeir byijuðu illa í haust en hafa
verið að ná sér á strik og léku mjög
vel á móti PSG. Við sigruðum þá á
útivelli í þriðju umferðinni en liðið
er í 5. sæti núna með 8 stig eftir
sex leiki, hafa tapað tveimur leikjum.
Drammen er'spáð fyrsta eða öðru
sæti í deildinni og í liðinu er stjörnu-
mannskapur og ef til vill gekk því
svona illa framan af þess vegna.
Leikmenn liðsins léku ekki sem lið
en það er allt að koma hjá því og
ef liðið leikur eins gegn Aftureldingu
og það gerði gegn PSG gæti þetta
orðið erfitt fyrir Mosfellinga. Það
er landsliðsmaður í hverri stöðu og
sænskur þjálfari sem þykir mjög
góður. Heimavöllurinn þeirra er erf-
iður því þar rúmast um 2.500 áhorf-
endur sem eru alltaf vel með á nótun-
um,“ sagði Matthías í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hann bætti því
við að Drammen hefði komið mjög
á óvart í fyrra en þá var liðið á fyrsta
ári í úrvalsdeildinni.
Mótheijar KA í 16-liða úrslitun-
um, Kosice frá Slóvakíu, lenti á
móti Lemgo frá Þýskalandi í Evrópu-
keppni bikarhafa.
Atta lið eru eftir í Evrópukeppni
meistaraliða sem nú er skipt í tvo
riðla þar sem allir leika við alla heima
og að heiman. í A-riðli eru Kiel frá
Þýskalandi, Didasoa frá Spáni,
Veszprem frá Ungveijalandi og
Braga frá Portúgal, en Portúgalir
slóu Valsemenn út úr keppninni. í
B-riðli leika Zagreb frá Króatíu,
Barcelona frá Spáni, Winterthur frá
Sviss og GOG frá Danmörku.
Þess má til gamans geta að í
meistaradeildinni verður fyrsta um-
ferðin leikin 16. til 18. janúar og
síðan næstu helgi þar á eftir. Þá
kemur ein fríhelgi áður en næstu
tvær umferðir eru leiknar og síðan
líða þijár vikur þar til síðasta um-
ferðin er leikinn.
Valdimar hefur
skorað mest
FJÓRIR leikmenn hafa leikið alla tólf
leiki íslands í Evrópukeppni landsliða
- Valdimar Grimsson, Guðmundur
Hrafnkelsson, Gunnar Beinteinsson og
Dagur Sigurðsson, síðan kemur Pat-
rekur Jóhannesson með ellefu leiki,
Bergsveinn Bergsveinsson, Geir
Sveinsson og Július Jónasson með níu,
Einar Gunnar Sigurðsson átta og Ólaf-
ur Stefánsson sjö.
Valdimar hefur skorað flest Evrópu-
mörkin, eða 64, að meðaltali 5,33 mörk
í leik. Hann hefur skorað nær einn
fjórða af Evrópumörkum íslands, sem
eru 277. Júlíus hefur skorað 36 mörk,
Patrekur 27, Geir 26, Gunnar Bein-
teinsson 24. Héðinn Gilsson hefur skor-
að 22 mörk í fimm leikjum og Sigurður
Sveinsson 19 mörk í þremur leikjum,
eða að meðaltaii 6,33 mörk í leik.
Ekki unnið á úti
ÍSLENSKA landsliðið hefur unnið sjö
leiki - alla á heimavelli, tapað fjórum
og gert eitt jafntefli í Evrópukeppni
landsliða. Liðið hefur ekki náð sigri í
fjórum leikjum á útivelli - gerði jafn-
tefli 23:23 gegn Finnlandi í Kaijá, tap-
aði fyrir Króatíu í Zagreb 18:26, fyrir
Rúmeníu í Vilcea 19:21 og fyrir Rússum
íMoskvu 14:22.
Sjö leikir undir
stjórn Þorbjörns
ÞORBJÖRN Jensson hefur sijórnað
landsliðinu i sjö leikjum - fimm sigur-
■eikjum ogtveimur tapleikjum. Sigur-
Ieikirnir eru gegn Noregi 27:23, Aust-
urríki 29:19 og Italíu 23:20 í Voitsberg
í Austurríki, gegn Rúmeníu 24:23 og
Rússlandi 20:18 í Kaplakrika. Tapleik-
irnir voru gegn Rúmeníu 19:21 í Vilcea
og Rússum 14:22 í Moskvu.
Pólverjar léku síð-
ast hér 1993
PÓLVERJAR léku síðast hér á landi
undir sljórn Bogdans 1993. Þá unnu
íslendingar 30:15 og 28:24. Sex leik-
menn sem nú eru í landsliðshópnum
léku þá - Bergsveinn Bergsveinsson,
Guðmundur Hrafnkelsson, Bjarki Sig-
urðsson, Geir Sveinsson, Einar Gunnar
Sigurðsson og Gunnar Beinteinsson.
Þeir sem léku þá, en eru ekki í hópn-
um, eru: Gunnar Gunnarsson, Sigurður
Bjarnason, Konráð Olavson, Gústaf
Bjarnason, Júlíus Jónasson, Sigurður
Sveinsson og Héðinn Gilsson.
Þorbjöm Jensson vonast eftir góðum stuðningi áhorfenda
Ofterþörf en
nú er nauðsyn
„VIÐ verðum að vinna báða leikina gegn Pólverjum, eða að
ná minnst þremur stigum úr báðum leikjunum. Stuðningur
áhorfenda er mikilvægur eins og kom berlega í ijós í heimaleikn
um gegn Rússum. Ef við fáum svipaðan stuðning og síðasta
stundarfjórðunginn í leiknum gegn Rússum þá get ég lofað því
að við vinnum. Oft höfum við haft þörf fyrir stuðning áhorfenda
en nú er hann nauðsyn," sagði Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálf
ari, um leikinn gegn Pólverjum í Kaplakrika íkvöld kl. 20:30.
að er nánast lífsspursmál fyrir
íslenskan handbolta að komast
í úrslitakeppni Evrópumótsins á
Spáni og til þess
þurfa strákarnir
tónatansson okkar að legaa Po1;
skrifar verja að velli 1 kvold
og helst með nokkr-
um mun til að eiga gott veganesti
í síðari leikinn sem fram fer í Pól-
landi á laugardaginn. Það hefur oft
reynst þrautin þyngri að leika á úti-
velli og það er ekkert gefið í Pól-
landi. Það er því afar mikilvægt að
áhorfendur styðji nú vel við bakið á
íslenska liðinu og mæti til leiks í
Kaplakrika í kvöld, það gæti ráðið
úrslitum.
Þorbjörn segist trúa því að ís-
lenska liðið komist til Spánar. „Ég
er alltént ekki farinn að spá í neitt
annað á þessari stundu. En auðvitað
getur sú staða komið upp að við
komumst ekki áfram og þá verðum
við ekki með í þessum stórmótum
næstu árin. Þá verður að setjast nið-
ur og sjá hvaða stefnu á að marka
fyrir framtíðina. Þetta er síðasti
möguleikinn sem við fáum á að kom-
ast áfram. Við fengum möguleika á
HM hér heima í vor, en þessi mögu-
leiki er sá síðasti í stöðunni og við
ætlum að nýta hann.“
Þjálfarinn segist ekki óttast það
að Rússar tapi fyrir Rúmenum miðað
við hvernig þeir hafa verið að leika
að undanförnu. „Það lofar góðu fyr-
ir okkur að Rússar sigruðu í „Super-
Cup“ í Þýskalandi um síðustu helgi
- unnu alla leiki sína í keppninni
nokkuð örugglega á meðan Rúmenar
töpuðu öllum. Eg á því frekar von
á því að Rússar klári Rúmena í báð-
um leikjunum. En við verðum ein-
göngu að hugsa um okkar leiki því
við megum ekki klúðra neinu í leikj-
um okkar gegn Pólverjum og verðum
helst að vinna þá báða,“ sagði Þor-
björn.
„Ég hef verið að skoða leiki með
pólska landsliðinu á myndbandi og
eftir þá yfirlegu er ég sannfærður
um að við eigum að vinna Pólveija
á eðlilegum degi. Þeir eru ekki með
eins sterkt lið og Rússar og Rúmen-
ar, en það er ljóst að það er rík
hefð fyrir handbolta í Póllandi og
það þýðir ekkert að fara í þessa leiki
nema alveg á fullu. Þeir gefa ekki
neitt og eru engir aular. Við þurfum
helst að vinna þá með nokkrum
mörkum hér heima því það eflir
sjálfstraustið fyrir síðari leikinn. Það
er alltaf verra að mæta þeim á úti-
velli, sem sannast best á því að
Rúmenar voru í basli með þá í Pól-
landi og unnu með aðeins tveimur
mörkum, 29:27, en unnu sannfær-
andi í Rúmeníu, 30:22. Það er alltaf
erfitt að fara á útivöll því þar eru
allt aðrar aðstæður og aðbúnaður
sem við erum óvanir.“
Landsliðið kom saman í gær og
æfði tvisvar. Liðið er skipað sömu
leikmönnum og léku heimaleikinn
gegn Rússum nema að Róbert Sig-
hvatsson úr Aftureldingu kemur inn
fyrir Júlíus Jónasson sem er hand-
arbrotinn. „Strákarnir eru ailir heil-
ir og tilbúnir í slaginn. Við höfum
verið að þjappa okkur saman fyrir
stóru stundina. Við höfum farið
yfir sóknarleikinn sem hefur ekki
verið nægilega góður að undan-
förnu og ég held að þetta sé allt á
réttri leið. Ég reikna með að Pól-
veijar leiki vörnina framarlega og
við ætlum að gera það líka, en höf-
um síðan fleiri varnarafbrigði upp
á að hlaupa ef svo ber undir,“ sagði
þjálfarinn.
Pólverjar kalla á einn
leikmann frá Þýskalandi
EINN landsliðsmaður Póllands, sem leikur í Þýskalandi, er í lands-
liðshópi Pólveija, sem leikur hér. Það er Piotr Badowski, sem
leikur með utandeildarliðinu TSG Gross-Bieberau. Þess má geta
að níu fyrrverandi landsliðsmenn frá Póllandi eru hjá 1. deildar-
liðum í Þýskalandi — þrír með Essen, tveir með Bad Schwartau,
tveir með Nettelstedt, einn með Niederwiirzbach og einn með
Magdeburg. Níu landsliðsmenn leika með þýskum 2. deildarliðum,
þannig að átján Pólverjar eru hjá liðum í 1. og 2. deild. Það er
greinilegt að Pólverjar byggja lið sitt upp á heimamönnum.
Landsliðsmenn í handknattleik á ferd og flugi
■ * I M * 1 ■ I
ti Pollands
áiidi fyrír 15 árum
Póílands frá 1966
aldrei fyrr akandi
Undankeppni HM' 66: ■
Pólland-ísland 27:19
Vináttuleikir 1980: I
Pólland-ísland 28:19 Pólland-ísland 21:13
Landsleikur Póllands 09 íslands hefst í Poznan kl. 16.25 laugar-
daginn 2. des. Að leik loknum verður ekið til Hamborgar að nóttu til.
Áætlaður komutími þangað er um kl. 06, flogið um kl. 08.40 og lent
á Keflavíkurflugvelli um kl. 13.05 á sunnudag 3. des.
500 km
J -''111
Sex sigurleikir í röð í Kaplakrika
ÍSLENDINGAR hafa leikið níu
landsleiki í Kaplakrika, unnið sjö
en tapað tveimur - gegn Noregi
og Danmörku 1990. Landsliðið
hefur leikið sex leiki í röð í Kapla-
krika án þess að tapa - Egyptar
voru lagðir þar að velli 24:23 1992,
síðan kom sigur gegn Króatíu-
mönnum í Evrópukeppni landsliða
1993, 24:22, þá sigur 22:19 gegn
Spáni 1994 og nú í ár hafa þrír
leikir farið þar fram; sigur gegn
Austurríki 25:24, gegn Rúmeníu
24:23 og gegn Rússlandi 20:18.
DAGUR Sigurðsson hefur leikið
alla sigurleikina sex, hann var
nýliði í landsliðshópnum gegn
Egyptum 1992 ásamt Ólafi Stef-
ánssyni, sem hefur heldur ekki
tapað leik í Kaplakrika eins og
Patrekur Jóhannesson, Einar
Gunnar Sigurðsson_ og Jón Krist-
jánsson. Patrekur, Ólafur og Einar
Gunnar hafa leikið fimm sigurleiki
þar, en Jón fjóra. Patrekur hefur
náð að skora í öllum fimm leikjum
sínum í Kaplakrika.
Mættust fyrst
í Gdansk
ÍSLENDINGAR og Pólveijar
mættust fyrst á handknattleik-
svellinum 1966 - í Gdansk í
Póllandi í undankeppni HM í
Svíþjóð 1967. Pólveijar unnu
þá 27:19.
Guðjón hetja
íslands
ÞEGAR Pólyetjar léku sinn
fyrsta leik á íslandi, 1966 í
undankeppni HM, fögnuðu ís-
lendingar sigri 23:21. Pólveij-
ar voru yfir 18:21 þegar átta
mín. voru til leiksloka, en með
mikilli baráttu náðu íslending-
ar að jafna og Guðjón Jónsson
úr Fram átti lokaorðið - skor-
aði tvö síðustu mörkin með
lúmskum langskotum.
Æfðu klukkan
5:30 á
morgnana
ÍSLENSKA landsliðið fór í
æfingabúðir til Póllands 1977
æfði í sjö daga í Gdansk og
lék tvo landsleiki gegn Pól-
verjum f Varsjá. Liðið lék þá
tvisvar á dag og voru fyrri
æfingamar kl. 5:30 á morgn-
ana. Astæðan fyrir því var að
liðið varð að æfa áður en Jan-
us Czerwinsky, fyrrum landsl-
iðsþjálfari, fór að kenna við
íþróttaháskólann í Gdansk.
Þorbjöm í
þriðja sinn til
Póllands
LANDSLIÐIÐ fór í þriðju ferð
sína tU Póllands 1980 og lék
þá tvo vináttuleiki í ferð sinni.
Aðeins einn í landsliðshópnum
nú, hefur farið með landsliðinu
tU Póllands - þjálfarinn Þor-
björa Jensson, sem fór þangað
1977 og 1980.
Alfreð enn
leikmaður
AF ÞEIM leikmönnum sem
léku í Póllandi 1980 er aðeins
einn enn að leika - Alfreð
Gíslason, þjálfari og leikmaður
með KA, en þrír leikmenn eru
þjálfarar; Þorbjöra Jensson,
Kristján Arason hjá Dormagen
og Þorbergur Aðaisteinsson
hjá ÍBV.
Fertugasti
leikurinn
LEIKUR íslands og Póllands
í Kaplakrika er fertugasti
landsleikur þjóðanna. Af þeim
39 leikjum sem þjóðimar hafa
leikið, hafa Pólveijar unnið 22,
íslendingar 16, en einum lauk
með jafntefli.
Pólverjar
unnu síðast í
Bratislava
ÍSLENDINGAR og Pólveijar
hafa ieikið fimmtán leiki síð-
ustu tíu ár - íslendingar hafa
unnið ellefu leiki, en Pólverjar
fjóra. Pólveijar unnu síðast í
HM í Tékkóslóvakíu - 25:27 í
Bratislava. Síðasti leikur þjóð-
anna var í Danmörku í byijun
árs 1995, þá unnu íslendingar
23:21. Sögulegasti sigur ís-
lands á PóUandi er án efa úr-
slitaleikur B-keppninnar í
Frakklandi 1989, þegar sigur
vannst í París 29:26.