Morgunblaðið - 30.11.1995, Page 1

Morgunblaðið - 30.11.1995, Page 1
h KNATTSPYRIMA: NEWCASTLE SLÓ LIVERPOOL ÚT ÚR DEILDARBIKARKEPPNINNI / D8 P«jr0Mí#líií»íí> 1995 FIMMTUDAGUR 30. NOVEMBER BLAD HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN Klukkan tifar Morgunblaðið/Sverrir ÞORBJÖRN Jensson, landsliAsþjálfari, lítur á klukku sína eftlr slgurlnn gegn Pólverjum í Kaplakrika og hið sama gerir Marlnó NJálsson, sem sætl á í dómarnefnd HSÍ. SíAasti leikur Islands í riðlakeppnl Evrópumótsins verAur í Póllandi á laugardag og á sunnudaginn mætast Rússar og Rúmenar í Moskvu. Hætt er við að Þorbjörn og lærisveinar hans eigi oft eftlr að líta á klukkuna eftir leiklnn í Póllandi þar til úrslit llggja fyrlr í Moskvu um það bil sólarhring síðar því nái ísland að sigra veltur framtíð landsliðsins næstu tvö ár á leiknum í Moskvu. Þráinn hættur ÞRAINN Hafsteinsson er hættur sem landsliðs- þjálfari íslands í fijálsíþróttum eftir tæplega þriggja ára starf. Samningur hans rann út fyrir skömmu og var Þráinn tilbúinn að halda áfram með því skilyrði að Frjálsíþróttasambandið setti meiri pening í verkefni varðandi landsliðsmál, unglingamál og FRÍ 2000 sem hann hefur haft með höndum auk þess sem starfið yrði metið meira en hálft starf. Hvorugt var tekið til greina á ársþingi FRI11. nóvember sl. og þar sem samn- ingar tókust ekki eftir þingið varð úr að Þráinn hætti. „Ég sé heilmikið eftir þessu starfi en ég var ekki tilbúinn að halda áfram að óbreyttu," sagði Þráinn við Morgunblaðið í gær. „Ríkjandi ástand þýðir kyrrstaða og það þarf meiri fjárniuni í starfið." Knútur Óskarsson, framkvæmdastjóri FRÍ, sagði að þingið hefði samþykkt Qárhagsáætlun sem gerði ráð fyrir svipaðri upphæð og áður í störf Þráins og hann hefði þvi ekki treyst sér til að halda áfram. Staða sambandsins leyfði ekki aukinn kostnað og verið væri að skoða næsta skref. Eins væri beðið eftir svörum frá Ólympíunefnd Islands um það hvað hún ætlaði að gera varðandi undirbúning fijálsíþrótta- manna vegna Ólympíuleikanna í Atlanta næsta sumar en engir peningar hefðu komið frá nefnd- inni á þessu ári. Knútur sagði ennfremur að til greina kæmi að skipta landsliðsþjálfarastarfinu á milli nokkurra manna en ekkert hefði enn verið ákveðið í þvi efni. Stefán og Rögn- vald í áttunda skiptiá HM STEFÁN Arnaldsson og Rögnvald Erlingsson, handknattleiksdómarar, halda í dag áleiðis til Austurríkis, þar sem þeir dæma á heimsmeistara- keppni kvenna. Þeir félagarnir koma reyndar við í Noregi, þar sem þeir dæma tvo landsleiki þar sem kvennalið Noregs og Kóreu eigast, í kvöld og á morgun en fara á sunnudag til Austurríkis. Leik- ir á HM verða bæði þar í landi og handan landa- mæranna í Ungveijalandi, og hefst keppni á þriðjudáginn, 5. desember. Stefán og Rögnvald taka nú þátt í áttundu heimsmeistarakeppninni saman síðan 1989 er þeir hófu samstarf; tvisvar hafa þeir verið á HM karla, í Svíþjóð 1993 og hér heima í vor, þetta er þriðja A-keppni kvenna, einu sinni hafa þeir verið á 6-heimsmeistarakeppni karla og tvisvar á HM unglinga. Þess má reyndar geta að þetta verður tíunda heimsmeistarakeppni Rögnvalds. Aðeins fimm dómarapör eru þau sömu á HM kvenna nú og á HM karla hér á landi í maí síð- astliðnum. HM í Austurríki lýkur 17. desember og þeir Stefán og Rögnvald koma heim mánudaginn 18., eftir 19 daga útiveru. * Þorbjöm Jensson eftir að Islendingar sigruðu Pólverja og Rúmenar lögðu Rússa Úrslitin í Rúmeníu óedlileg ÞORBJORN Jensson, landsliðsþjálfari, sagði að það hafi verið erfitt að ná upp stemmningu í liðinu fyrir leikinn gegn Pólverjum í gærkvöldi, eftir að Rúmenar sigruðu Rússa í riðlinum fyrr um daginn, en úrslitin úr þeim leik bárust leikmönnum í íþróttahús í Kaplakrika skömmu fyrir leik. „Þegar ég kom í íþróttahúsið var það fyrsta sem blasti við mér í búningsklefanum, að leikmenn sátu þar hvítir íframan með hangandi haus. Ég hélt bara að það hefði komið eitthvað alvarlegt fyrir. Það var þó ekki meira áfall en að Rúmenar hefðu unnið Rússana, þó svo að það sé vissu- lega sæmilegt áfall,“ sagði Þorbjörn. J%jálfarinn sagði að alla baráttu hefði vantað í íslenska liðið í gærkvöldi og skýringin væri óvæntu úrslitin í Rúmeníu. Það hafí slegið íslensku leikmennina út af laginu. „Það var eingöngu í lok- in sem mér fannst að það kæmi upp smá neisti og barátta sem var nóg til þess að við náðum að hala inn þennan sigur. Við spiluðum vörnina illa en sóknarleikurinn var skárri en hann hefur oft verið áð- ur. Við vorum þó að gera mörg óþarfa mistök. Pólska liðið er ekki eins lélegt og menn bjuggust við og það verður erfitt að vinna þá í Póllandi." - Trúir þú því að Rússar hafi tap- að viljandi með fjórum mörkum í Rúmem'u? „Það er aldrei hægt að fullyrða neitt um það. En mér finnst skíta- lykt af málinu. Rússar unnu öll bestu liðin í heiminum í „Super Cup“ [sem var í Þýskalandi um sl. helgi] en Rúmenar töpuðu þar fyrir öllum þessum liðum. Síðan mætast þau nokkrum dögum seinna og þá er það lið sem vann orðið það lé- legt að það tapar með fjórum mörk- um fyrir hinu. Ég trúi því ekki að það geti verið svona miklar sveiflur hjá bestu liðum í heiminum á milli leikja. Þetta eru óeðlileg úrslit. Ég er hins vegar ekki búinn að leggja árar í bát. Ég spái því að Rúmenar vinni Rússa 23:22 í Moskvu og við vinnum Pólveija og Rússar komi til með að sitja eftir.“ - Ef þú spólar tii baka eru það þá ekki úrslitin gegn Rúmeníu sem hugsanlega ráða úrslitum? „Ef við skoðum dæmið þá er ég mest svekktur yfir því að hafa ekki unnið Rúmena í Rúmeníu'eða náð öðru stiginu þar. Mér fannst við eiga meiri möguleika á móti Rúm- enum í Rúmeníu heldur en hér í Kaplakrika." - Ef við gefum okkur það að ís- lenska liðið komist ekki til Spánar, hvað er þá framundan hjá liðinu? „Það er ljóst að það þarf þá að marka einhveija stefnu í framhald- inu. Við þurfum að setjast niður og skoða hvað hægt er að gera. Það þarf að skapa liðinu verkefni. Við erum með tiltölulega ungt lið og það á vissulega framtíðina fyrir sér, flestir leikmanna liðsins eiga tíu ár eftir í boltanum." Leíkurinn / D4 Staðan ísland - Pólland.........31:26 Rúmenía - Rússland.......22:18 Rúmenía...5 4 0 1 125:110 8 Rússland...5 3 0 2 120:100 6 ísland.....5 3 0 2 108:110 6 Pólland....5 0 0 5 119:152 0 •Leikir sem eftir eru: Pólland - ísland í Poznan á laugardag, Rússland - Rúmenía í Moskvu á sunnudag. •Til að íslendingar komist í úrslitakeppni Evrópumótsins í vor verður hvort tveggja að ger- ast — að þeir sigri í Póllandi og Rússar fái í mesta lagi annað stigið í heimaleiknum gegn Rúmenum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.