Morgunblaðið - 01.12.1995, Qupperneq 1
I
KÖRFUKNATTLEIKUR: BREIÐABLIK SIGRAÐIKEFLAVÍK í ÚRVALSDEILDINNI / C3
pló rgunfitat' ií>
1995
FOSTUDAGUR 1. DESEMBER
BLAD
BOLTON, enska úrvalsdeildarlidið sem Guðni
Bergsson, landsliðsfyrirliði leikur með, sem hef-
ur fjóra erlenda leikmenn í herbúðum sínum,
hefur óskað eftir því að Guðni verði skráður sem
Breti, þannig að liðið geti teflt fram öllum er-
lendu leikmönnunum — þrír geta nú tekið þátt
í hveijum leik. Reglur segja að erlendir leik-
menn, sem hafa leikið fimnv ár samfellt í Eng-
landi, skuli skráðir sem heimamenn. Guðni hefur
ekki leikið samfellt í fimm ár, en aftur á móti
samanlagt í fimm ár með Tottenham og Bolton.
„Það eru helmingslíkur á að ég verði skráður
sem heimamaður. Bolton hefur bent á að ég
hafi þurft að fara heim um tíma vegna bak-
meiðsla,“ sagði Guðni Bergsson.
kém
FOLK
■ SPÆNSKA smáliðið Salamanca
hefur verið á höttunum eftir brasil-
íska landsliðsmiðherjanum Romario,
sem kjörinn var besti leikmaður
heimsmeistarakeppninnar í Banda-
ríkjunum í fyrra. Hann leikur nú
með Flamengo í heimalandinu, en
nú virðist ljóst að hann fer ekki til
spænska liðsins.
■ SALAMANCA hafði reiknað með
fjárhagsstuðningi bandaríska
íþróttavöruframieiðandans Nike,
sem Romario er samningsbundinn
en fyrirtækið ákvað síðan að taka
ekki þátt í ævintýrinu. Forráðamenn-
imir komust að þeirri niðurstöðu að
flutningur Romarios til Salamanca
kæmi sér vel fyrir fyrirtækið á Evr-
ópumarkaði en staða þess á markaði
í Suður Ameríku myndi hins vegar
skaðast of mikið.
■ KRISTINN Björnsson, skíða-
kappi, og félagar hans í landsliðinu,
Arnór Gunnarsson og Haukur
Arnórsson, kepptu í svigi í Vail í
Bandaríkjunum í fyrradag, en fóru
allir út úr í fyrri umferð. Þeir keppa
í stórsvigi á sama stað í dag.
■ SIGURJÓN Arnarsson kylfing-
ur úr GR keppti í vikunni á þriggja
daga móti í Tommy Armour móta-
röðinni í Bandaríkjunum. Leikið var
á Eastwood vellinum í Orlando, sem
er par 72 og SSS hans er 74. Sigur-
jón lék á 222 höggum (73-73-76)
og endaði í 29. sæti af 75 keppend-
um, en mótið vannst á 210 höggum.
■ ANNIKA Sörenstam, 25 ára
kylfingur, var á miðvikudaginn út-
nefnd íþróttamaður ársins í Svíþjóð,
er hún fékk hina svokölluðu Bragd-
medalíu sem Svenska Dagbladet
veitir og er sú útnefning sem hæst
er skrifuð meðal slíkra þar í landi.
Þetta er í fyrsta skipti í 70 ára sögu
verðlaunanna að kylfingur verður
fyrir valinu. 6
■ SÖRENSTAM sigraði á sex stór-
mótum í golfi á árinu, þ.á m. á opna
bandaríska meistaramótinu. Að auki
var hún efst á peningalista evrópsku
og bandarísku mótaraðanna — þén-
aði sem sagt mest allra keppenda á
báðum á árinu — nokkuð sem engum
golfleikara, hvorki karli né konu hef-
ur áðurtekist. Sörenstam var í haust
útnefnd sem óopinber heimsmeistari
kvenna í golfi 1995. Fyrir aðeins 5
árum íhugaði Sörenstam mjög al-
varlega að leggja golfið á hilluna,
en hætti við það, með áðurgreindum
afleiðingum.
■ ÓLAFUR Sveinsson leikmaður
með 1. deildarliði Gróttunnar í
handknattleik er kviðslitinn og verð-
ur frá leikjum og æfingum næstu
sex til átta vikumar.
Siguröur Grétarsson
ráðinn þjálfari Vals
RÍKHARÐUR Daðason, knatt-
spyrnumaður úr Fram, segist
ekki taka ákvörðun um hvar
hann leiki næsta tímabil fyrr en
umjólin, en hann hefur rætt við
þjálfara þriggja liða í 1. deild-
inni hér á landi auk þess sem
hann hefur rætt við Framara,
en þar hefur hann alla tíð leik-
ið. „Eg er í rauninni að bíða og
sjá til hvað gerist hérna í Banda-
ríkjunum og ef færi gefst gæti
ég vel hugsað mér að leika í
nýju atvinnumannadeildinni
hér,“ sagði Ríkharður í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Ég hef rætt við nokkur félög
heima, en það er svo til allt á
frumstigi. Ég skil að menn vilji
fara að fá ákveðin svör frá
mér, en mér er illa við að ganga
frá hlutum yfir hálfan hnöttinn.
Ég kem heim um jólin og þá
verður væntanlega kpmið á
hreint hvað ég geri. Ég er mjög
þakklátur liðunum heima að
gera mér þann greiða að bíða
eftir svari frá mér, en ég vil
bíða aðeins og sjá hver þróunin
verður hér með deildina,“ sagði
Ríkharður.
Ríkharður vildi ekki nefna
þau þijú félög sem hann hefur
rætt við en vitað er að KR-ingar
hafa rætt við hann og Luka
Kostic, þjálfari játaði því í gær.
„Ég er sáttur við hópinn þjá KR,
en ef eitthvað kemur upp, hér
heima eða erlendis mun ég
skoða það,“ sagði Kostic í gær,
en KR mun vera að Ieita sér að
sterkum sóknarmanni.
SIGURÐUR Grétarsson var í gær
ráðinn þjálfari meistaraflokks
Vals í knattspyrnu. Sigurður hefur
undanfarin ár verið þjálfari fjórðu
deildar liðs í Sviss, en áður en hann
snéri sér að þjálfun var hann leik-
maður í Sviss með Luzern og Grass-
hoppers og varð meistari með báðum
félögunum. Sigurður lék fjölda land-
sleikja og var fyrirliði íslenska lands-
liðsins síðustu árin áður en hann
hætti. Sigurður er 33 ára gamall og
hefur verið meira og minna í at-
vinnumennsku síðan hann var 17
ára. Þá fór hann frá Breiðabliki til
Þýskalands þar sem hann var í eitt
ár, kom aftur heim til Breiðabliks
en var síðan eitt keppnistímabil í
Grikklandi og fór þaðan til Sviss þar
sem hann hefur verið síðan.
Forráðamenn Vals sögðu í gær-
kvöldi að fyrirhugað væri að Sigurð-
ur yrði þjálfari félagsins í einhver
ár, en það væri ekki að fullu frágeng-
ið hversu lengi, en hann kemur til
starfa hjá félaginu 1. febrúar og
mun Kristinn Björnsson sjá um þjálf-
un leikmanna fram að þeim tíma.
Sigurður mun hafa í huga að hafa
mann sér til aðstoðar en ekki er enn
frágengið hver það verður.
Að sögn Valsmanna er búið að
ganga frá samningum við svo til
alla leikmenn liðsins frá því í sumar
en þó er ljóst að Kristinn Lárusson
fer í Stjörnuna og Davíð Garðarsson
leikur með Þór næsta ár.
Þegar Valsmenn voru spurðir
hvort Sigurður ætlaði að fá einhvern
liðsstyrk til Vals svaraði varafor-
maður knattpsyrnudeildar: „Sigurð-
ur kemur til starfa 1. febrúar til að
þjálfa þá leikmenn sem við höfum
núna. Við erum með sterkan hóp
ungra leikmanna sem við erum stolt-
ir af.“
Ríkharður íhug-
ar að leika í
Bandaríkjunum
Sigurður fer að Hlíðarenda
SIGURÐUR Grétarsson, fyrrum fyrirliði landsliðsins í knatt-
spyrnu, fór utan í atvinnumennsku 17 ára gamall en snýr
senn aftur heim eftir 16 ára útiveru. Sigurður, sem lék með
Breiðabliki á árum áður, tekur við stjórninni hjá Valsmönnum
að Hlíðarenda. Hann er hér í leik með Grashoppers í Sviss.
KNATTSPYRNA
Bolton vill skrá
Guðna Bergs-
son sem Breta