Morgunblaðið - 02.12.1995, Side 1
96 SIÐUR LESBOK/C/D
276. TBL. 83. ÁRG.
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Réttað í Baringsbankamálinu
Sleppur Leeson
með 2-4 ár?
Singapore. Reuter.
NICK Leeson játaði sig sekan í gær um svik í tengslum við samninga,
sem ollu því, að Baringsbanki tapaði um 90 milljörðum ísl. kr. og varð
gjaldþrota. Viðurlögin eru allt að átta ára fangelsi en margt bendir til,
að hann fái eitthvað mildari dóm. Búist er við honum í dag.
Við réttarhöld í gær kom fram,
að Leeson hefði veðjað á gengisþró-
unina á japanska verðbréfamarkað-
inum én á 30 mánaða tímabili fram
til síðustu áramóta hefði' stöðugt
hallað undir fæti fyrir honum. Sagði
saksóknarinn, að Leeson hefði falið
tapið með fölskum reikningum og
jafnvel falsað bréf í sama skyni.
Ákæruatriðum fækkað
Saksóknarinn hefur hins vegar
fallið frá 9 af 11 upphaflegum ákær-
um vegna samvinnuJ Leesons við
rannsókn málsins. Þær tvær, sem
eftir eru, geta varðað átta ára fang-
elsi mest. Haft er eftir heimildum,
að Leeson verði hugsanlega dæmdur
í tveggja til fjögurra ára fangelsi.
Veijandi Leesons sagði, að skjól-
stæðingur sinn hefði ekki hagnast
sjálfur á spákaupmennskunni og
óförum bankans og ekki stæði til
að gera neina Hollywood-kvikmynd
um sögu hans eins og flogið hefði
fyrir.
Herlið
til Bosníu
Brussel, París. Reuter.
SENDIHERRAR aðildarríkja
Atlantshafsbandalagsins sam-
þykktu í gær að senda 2.600
hermenn til Bosníu og þeir
eiga að undirbúa friðargæslu
60.000 manna herliðs undir
stjórn bandalagsins.
Fyrstu hermennirnir verða
sendir til Bosníu í dag og gert
er ráð fyrir að þeir verði allir
komnir þangað snemma i
næstu viku. Hermennirnir
2.600 verða frá ýmsum
NATO-ríkjum, m.a. 700 frá
Bandaríkjunum og 500 frá
Bretlandi.
Reuter
Flugumferð
raskast
í París
FLUGVIRKJAR franska ríkis-
flugfélagsins Air France, sem
starfa á Orly-flugvelli, lögðu
niður vinnu í gær í mótmæla-
skyni við efnahagsstefnu stjórn-
valda. Flykktust þeir út á flug-
brautir og ollu verulegri röskun
á flugumferð, einkum innan-
landsflugi og flugi til Banda-
ríkjanna. Flugi til vallarins var
beint til Charles de Gaulle-vall-
arins þar sem starfsemi var með
eðlilegum hætti.
Starfsmenn fjarskiptafyrir-
tækja, skattsins, tollsins, vöru-
flutningafyrirtækja, heilbrigð-
isþjónustunnar og kennarar
hafa ákveðið að leggja niður
vinnu á mánudag. Talsmaður
stjórnarinnar varaði starfs-
menn samgöngufyrirtækja við
í gær og sagði að áframhald-
andi aðgerðir af þeirra hálfu
þýddu að loka yrði fyrirtækjum
og segja upp starfsfólki.
Myndin var tekin af mótmæl-
um járnbrautarstarfsmanna í
Marseille í gær og þar klæddust
sumir jólasveinabúningi.
■ 500 km umferðarhnútur/18
NATO-ríki velja nýjan framkvæmdasljóra
Samstaða næst
um Javier Solana
Brussel, Kaupmannahöfn, Madrid. Reuter.
SENDIHERRAR að-
ildarríkja Atlantshafs-
bandalagsins (NATO)
samþykktu í gær sam-
hljóða að mæla með því
að Javier Solana, utan-
ríkisráðherra Spánar,
yrði framkvæmdastjóri
NATO. Gert er ráð fyr-
ir að Solana verði skip-
aður í embættið á fundi
utanríkisráðherra ríkja
NATO á þriðjudag.
Þetta verður í fyrsta
sinn sem fram-
kvæmdastjóri NATO
kemur frá ríki sem hef-
ur ekki að fullu verið
fært undir herstjórnar-
kerfi bandalagsins.
Sendiherra Spánar, Carlos Mir-
anda, sem stjórnaði fundi sendiherr-
anna, fagnaði valinu. „Þetta er góð-
ur og mikilvægur dagur fyrir Spán-
veija.“
Malcolm Rifkind, utanríkisráð-
herra Bretlands, sagði Solana hafa
hæfileika og reynslu til að standa
sig vel í embættinu. Klaus Kinkel,
utanríkisráðherra Þýskalands, tók
í sama streng. „Javier Solana er
fyrsta flokks val. I honum samein-
Javier
Solana
ast evrópsk viðhorf og
stuðningur við náið
samstarf við Bandarík-
in, auk leiðtogahæfi-
leikanna. Þetta hefur
hann sýnt sem forseti
ráðherraráðs Evrópu-
sambandsins," sagði
Kinkel.
Nokkrum mínútum
áður en skýrt var frá
valinu tilkynnti Uffe
Ellemann-Jensen, fyrr-
verandi utanrikisráð-
herra Danmerkur, að
hann drægi sig í hlé
sem frambjóðandi. „Ég
óska gamla starfsbróð-
ur mínum til ham-
ingju,“ sagði hann. „Ég læt í ljósi
þá von að hann noti embættið til
að stuðla að sterkari tengslum Evr-
ópu og Norður-Ameríku og styrkja
evrópska stoð NATO.“
Samstaða náðist smám saman
um Solana eftir að Bandaríkjamenn
höfnuðu Ruud Lubbers, fyrrverandi
forsætisráðherra Hollands, sem
Bretar, Frakkar og Þjóðveijar
studdu. Frakkar neituðu hins vegar
að styðja Ellemann-Jensen.
Spænski utanríkisráðherrann
tekur við af Willy Claes, sem sagði
af sér 20. október vegna meintrar
aðildar að mútuhneyksli í Belgíu á
síðasta áratug.
Var andvígur NATO í fyrstu
Ákvörðuninni var fagnað á
Spáni. „Þetta er í fyrsta sinn sem
Spánveiji gegnir svo mikilvægu
hlutverki á alþjóðavettvangi,“ sagði
talsmaður Þjóðarflokksins, stærsta
stjórnarandstöðuflokksins.
Solana og félagar hans í Sósíal-
istaflokknum voru andvígir aðild
Spánar að NATO þegar landið gekk
í bandalagið. Hálfu ári síðar, eða
1982, komst flokkurinn til valda
og sneri við blaðinu. Flokkurinn
studdi aðildina þegar efnt var til
þjóðaratkvæðis um hana árið 1986.
Solana er 53 ára og hefur getið
sér gott orð sem ráðherra í öllum
stjórnum spænskra sósíalista frá
árinu 1982. Solana hefur verið tal-
inn eini maðurinn sem gæti tekið
við af Felipe Gonzalej forsætisráð-
herra sem leiðtogi Sósíalistaflokks-
ins og bundið enda á deilurnar inn-
an hans. Fréttaskýrendur sögðu það
því nokkurt áfall fyrir spænska sós-
íalista að Solana skuli vera á leið
til Brussel.
Irar hylla Clinton
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, ávarpaði í gær írsku þjóð-
ina í miðborg Dyflinnar að við-
stöddum 100.000 manns sem
fögnuðu honum ákaft. „Irar hafa
lagt sitt af mörkum til að sigrast
á myrkum öflum tortímingar út
um allan heim,“ sagði forsetinn
meðal annars. „Þið blásið heims-
byggðinni friðaranda í brjóst.
Þið hafið sveipað friðinn hetju-
Ijóma.“
Clinton ávarpaði einnig írska
þingið og hét því að Bandaríkja-
stjórn myndi styðja tilraunir Ira
og Breta til að konia á varanleg-
um friði á Norður-írlandi. Hann
sagði hins vegar ekkert hæft í
vangaveltum um að hann myndi
knýja á Irska lýðveldisherinn
(IRA) um að láta vopn sín af
hendi áður en friðarviðræður
hæfust.
Irskir fjölmiðlar fóru lofsam-
legum orðum um Clinton sem
„forseta friðarins" og honum var
tekið sem „syni írsku þjóðarinn-
ar“, enda er móðir hans, Virgin-
ia Cassidy-Kelly, af írsku bergi
brotin. Clinton kvaðst stoltur af
írsku ætterni sínu og kom við á
krá í Dyflinni sem ber sama nafn
og fjölskylda móðurinnar,
Cassidy, þótt kráin tengist henni
ekki að öðru leyti.
Á myndinni heldur Bill Clinton
á írskum bjór með Marien G.
Kakebeeke, framkvæmdastjóra
ölgerðarinnar Murphy’s Brew-
eries.