Morgunblaðið - 06.12.1995, Síða 1
pfeö $6 Y ' • ‘fi T «■? $ 'B *í' t’S ‘Pðvi 3 #
>í
fi'
&
jg
m
gfc
BLAD ALLRA LANDSMA
B
1995
MIDVIKUDAGUR 6. DESEMBER
BLAD
FIMLEIKAR
RUSLAN Ovtslnnikov gæti orðið fyrsti íslendingurinn sem keppir í fimleikum á Ólympíuleikum.
Gísli ífjórða
sæti á N M
GÍSLI Kristjánsson úr ÍR hafnaði í 4. sæti í
99 kg flokki á Norðurlandamótinu í ólympísk-
um lyftingum sem fram fór í Skelleftá í Sví-
þjóð um síðustu helgi. Hann lyfti 125 kg í snör-
un, 160 kg í jafnhöttun og samanlagt 285 kg.
Hann var eini íslenski keppandinn á mótinu.
Besta afrek mótsins vann Norðmaðurinn Stian
Grimseth í +108 kg flokki er hann snaraði 175
kg, jafnhattaði 215 kg og því samanlagt 390 kg.
A þingi Lyftingasambands Norðurlanda,
sem haldið var í tengslum við mótið, var Guð-
mundi Sigurðssyni úr ÍR veitt heiðursorða
sambandsins fyrir vel unnin störf síðustu 30
árin í þágu íþróttarinnar.
Bochum tapaði
ÞÓRÐUR Guðjónsson og féiagar hans í Boch-
um töpuðu fyrir Duisburg, 0:1, á heimavelli í
þýsku 2. deildinni í fyrrakvöld. Þórður var í
byijunarliðinu en var tekinn útaf á 60. mín-
útu. Bochum er sem fyrr í efsta sæti með 39
stig, en Duisburg í öðru sæti með 35 stig eftir
18 umferðir.
Hertha Berlín gerði jafntefli við Wolfsburg,
2:2, á laugardaginn. Eyjólfur Sverrisson hóf
leikinn en var tekinn útaf í hálfleik. Hertha er
í 10. sæti deildarinnar með 24 stig.
Dregið á réttum
tíma í París
DREGIÐ verður í undanriðla fyrir næstu
heimsmeistarakeppni í knattspyrnu í París
næstkomandi þriðjudag eins og ráð var fyrir
gert. Ottast var að jafnvel yrði að fresta at-
höfninni vegna verkfallanna í Frakklandi, en
aiþjóða knattspyrnusambandið (FIFA) til-
kynnti í gær að áætlun yrði haldið — dregið
yrði í Louvre safninu á áður ákveðnum tíma.
l—l r w jr r
Floðljos vigð a
Sauðárkróki
TINDASTÓLL og Þór frá Akureyri eigast við
í knattspyrnuleik í kvöld á Sauðárkróki, en þar
í bæ hafa menn komið upp flóðljósum við malar-
völlinn og verða þau vígð í kvöld. Leikurinn
hefst kl. 19.30. Að sögn forráðamanna Tinda-
stóls breytir flóðlýsingin öllu fyrir knattspymu-
menn á Sauðárkróki og nágrenni því nú geta
menn leikið knattspyrnu þar mun lengur en
áður var hægt.
Ruslan íslensk-
ur ríkisborgari
RUSLAN Ovtsinnikov, fimleika-
maðurinn ungi frá Eistlandi sem
hefur dvalið hér á landi við æf-
ingar frá því í ágúst í fyrra, verð-
ur íslenskur ríkisborgari á næstu
dögum. Ruslan er 18 ára og bjó
í Eistlandi, en þar sem hann talar
ekki eistnesku fékk hann ekki
ríkisfang þar í landi og kom því
til Islands með þjálfara sínum í
þeirri von um að fá íslenskt ríkis-
fang.
Ailsherjarnefnd Alþingis hef-
ur lagt fram frumvarp um veit-
ingu ríkisborgararéttar og hefur
frumvarpið farið í gegnum tvær
umræður og því aðeins formsat-
riði að samþykkja það á allra
næstu dögum. Nefndin mælir
með samþykki frumvarpsins þar
sem lagt er til að 97 einstakling-
ar fái íslenskan ríkisborgararétt
og er Ruslan Ovtsinnikov einn
þeirra.
Ruslan, sem þarf að taka sér
eitt íslenskt fornafn, er einn besti
fimleikamaður heims í sínum ald-
ursflokki. Hann undirstrikaði
það í liðakeppni Evrópumóts
unglinga sem fram fór í Péturs-
borg í Rússlandi fyrir skömmu.
Þar náði hann hæstu einkunn
allra einstaklinga í samanlögðum
árangri af sex áhöldum.
Þar sem Ruslan hefur verið
ríkisfangslaus hefur hann ekki
haft keppnisrétt á alþjóðlegum
mótum, nema þá í liðakeppni.
Islenskur ríkisborgararéttur
veitir honum keppnisrétt, m.a. á
Evrópumóti unglinga sem fram
fer eftir áramótin og siðan er
hann auðvitað gjaldgengur á
Ólympíuleikana í Atlanta.
HANDKNATTLEIKUR
Patrekur valinn í
úrvalslið Evrópu
PATREKUR Jóhannesson,
landsliðsmaður hjá KA, hefur
verið valinn til að leika með úrvals-
liði Evrópu gegn heimsmeisturum
Frakka í Lúxemborg 22. desember.
Leikurinn er í tilefni 50 ára afmælis
handknattleikssamabnds Lúxem-
borgar.
Enginn leikmaður úr Evrópu-
meistaraliði Svía er í liðinu, sem
er skipað þessum leikmönnum: Irf-
an Smajlargic, Cróatía Banka
Zagreb (Króatíu), Iztok Puc, Pivo-
varna Lasko Celje (Króatíu), Jordi
Fernandez, Cajapontevedra Teucro
(Spáni), Vassily Koudinov, Ivry
(Rússlandi), Andrei Lavrov, Ivry
(Rússlandi), Nenad Oerunicic, Bid-
asoa (Júgóslavíu), Jozei Eles, Fotex
Veszprem (Ungveijalandi), Eliodor
Voicea, Elmshom (Rúmeníu),
Dmitri Torgovanov (Rússlandi),
Mikhail Jakimovitch, Teka Sant-
ander (Hvíta-Rússlandi), Konstant-
in Sharovarov, SKA Minsk (Hvíta-
Rússlandi), Patrekur Jóhannesson,
KA, Lars Christiansen, Kolding IF
(Danmörku), Goran Stojanovic,
Rauða Stjarnan Belgrad (Júgóslav-
íu).
Tveir leikmenn koma frá sama
liðinu - Rússarnir Koudinov og
Lavrov, sem leika með Parísarliðinu
Ivry.
KIMATTSPYRNA: JURGEN KLINSMANN MEÐ 4 + 2 GEGN BENFICA / B4