Morgunblaðið - 06.12.1995, Page 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995
BLAD
Viðtal
3 Birgir Jóhanns-
son, fram-
kvæmdastjóri
Nord Morue
AflabrÖgð
4 Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipanna
Markaðsmál
0 Sjávarútvegur í
Rússlandi á leið
upp úr öldudaln-
um
BEITA 8 BALA Á DAG
• ÞÆR stöllur LiJja Guðjóns-
dóttir og Bylgja Jónsdóttir
komu frá Sandgerði til Ólafsvík-
ur til að vinna við beitingu. Þær
Morgunblaðið/Alfons
beita nú krókana lyá Garðari II
SH og gefa körlunum ekkert
eftir, beita hvor um sig 8 bala
ádag.
íslensk fiskilifur útílokuð
af markaði í Þýskalandi
íslensk lifur var útilokuð af
Þýskalandsmarkaði fyrir
nokkrum vikum síðan vegna
þess að skordýraeitrið
klórdan fannst í meira
magni í lifrinni en þýskar reglugerðir leyfa. Að sögn Gríms Valdimarssonar
forstjóra Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins er magnið sem þýskar reglur
leyfa tíu sinnum minna en almenn alþjóðamörk. íslenska fyrirtækið Triton
hefur flutt um 70 tonn af fiskilifur til Þýskalands á þessu ári.
Inniheldur og mikið af
skordýraeitrinu klórdan
„Það hefur nú verið haft að við-
kvæði í starfsgreininni að vandræðin
af þessu tagi komi alltaf fyrst frá
Þýskalandi," segir Grímur. „Sérfræð-
ingarnir verða að rökstyðja hvað rétt-
læti það vísindalega að henda vöru,
sem er með eitt lægsta klórdan magn
í heimi, út af markaðinum. Þá segja
þeir sem svo að við efnabreytingar sem
verði við neyslu geti myndast hættuleg
efni og á meðan þeir viti ekki meira
njóti neytandinn vafans."
íslenska lifrin undir við-
miðunarmörkum annars staðar
„Þetta hefur að vissu marki haft
áhrif,“ segir Örn Erlendsson, fram-
kvæmdastjóri Tritons, sem flutt hefur
70 tonn af lifur til Þýskalands á þessu
ári. „Klórdan er flokkur úrgangsefna
og í þýskri reglugerð er kveðið svo á
að hámarksmagn megi vera 0,01 mg
á kíló. I öðrum löndum ESB er kveðið
á um að hámarksmagn sé 0,1 mg á
kíló eða þá að alls ekkert ákvæði er
um þetta magn. í löndum utan ESB
sem eru mjög kröfv.hörð, eins og
Bandaríkin, er magnið 0,3 mg.“
Hann segir að íslenska lifrin hafi
mælst með 0,03 til 0,05 mg á kíló af
klórdan og sé því langt undir viðmiðun-
armörkum í öllum ríkjum utan Þýska-
lands.
„Staðan er sú að samkvæmt þessum
staðli hefur lifur frá íslandi verið dæmd
ósöluhæf í Þýskalandi," segir hann.
„Það má geta þess að Triton hefur
tekist að byggja þarna upp mjög góðan
markað hjá stórum og virtum fyrir-
tækjum. Við höfum verið í sambandi
við heildarsamtök þýsks fiskiðnaðar
og verslunar með fiskafurðir í Þýska-
landi. Þau byijuðu á því að ganga úr
skugga um það, að þarna væri ekki
um prentvillu að ræða í reglugerðinni.
Svo reyndist ekki vera, en þau hafa
núna snúið sér til heilbrigðisráðu-
neytisins og farið þess á leit að á með-
an að þetta mál sé skoðað frekar, verði
ákvæðið tekið úr gildi um stundarsak-
ir. Ekki hefur borist svar við því og
við það stendur í augnablikinu."
Þýskaland bestl markaðurinn
Örn segir að útflutningur Tritons til
Þýskalands á þessu ári hafi verið 70
tonn. „Öll lifur er uppseld hjá okkur,
en ný vertíð hefst í janúar,“ segir hann.
„Við erum að reyna að fá þetta leið-
rétt svo hægt sér að byija á því að
endurnýja sölusamninga fyrir næstu
vertíð.“
Fréttir Markaðir
Mikið fryst og
saltað af síld
• ÞAÐ stefnir í metvertíð í
frystri síld í ár og hafa út-
flytjendur endurskoðað
áætlaða heildarþörf til að
uppfylla gerða samninga.
Þannig hefur áætluð heild-
arþörf fyrir frysta síld verið
aukin úr 25 þúsund tonnum
í 38 þúsund tonn. Þar af
telur IS sig þurfa 20 þúsund
tonn og SH 18 þúsund tonn.
Síldarútvegsnefnd áætlar
heildarþörfina um 23 þús-
und tonn sem er þrjú þúsund
tonna aukning frá því sem
áður var talið duga./2
Uppgangur
hjá Nord Morue
• MIKILL uppgangur hefur
verið hjá Nord Morue, dótt-
urfyrirtæki SIF í Jonzac í
Frakklandi, undanfarin ár.
Frá því SÍF keypti fyrirtæk-
ið 1990, hefur framleiðslan
verið meira en þrefölduð og
velta þess hér um bil líka,
án þess að starfsfólki hafi
fjölgað. Veltan á síðasta ári
var um 3,3 milljarðar króna
og framleiðslan 9.100 tonn.
Afkoman hefur verið góð,
en síðustu árin hefur fyrir-
tækið verið að skila eigend-
um sínum á íslandi um 100
milljónum króna árlega./5
Möguleikar
í Namibíu
• EFTIR árangursríka sjáv-
arútvegssýningu „Fish
Africa ’95“ sem lauk um
helgina er íslenska sendi-
nefndin nú stödd í Walvis
bay í Namibíu þar sem hún
á fundi með sjávarútvegs-
fyrirtækjum og opinberum
aðilum. Að sögn Stefáns L.
Stefánssonar frá viðskipta-
skrifstofu utanríkisráðu-
neytisins, sem fer fyrir
sendinefndinni, eru veruleg-
ir möguleikar fyrir íslensk
sjávarútvegsfyrirtæki i
Namibíu./7
Nýr maður með
Guðbjörgu ÍS
• ÞEGAR Guðbjörg ÍS 46
lagði úr höfn á Isafirði á
laugardaginn var í fyrsta
sinn síðan vorið 1966 að
skipstjóri var ekki Ásgeir
Guðbjartsson eða sonur hans
Guðbjartur. Guðmundur
Einarsson, skipstjóri frá Bol-
ungarvík, er nú með skipið
í fyrsta sinn. Frá því fyrsta
Guðbjörgin var sjósett vorið
1956 hafa einungis tveir
skipstjórar leyst af./8
Aflinn að
engu orðinn
• ALLIR bolfiskstofnar við
austurströnd Bandaríkj-
anna eru nú í lágmarki. Á
næsta ári er áætlað að að-
eins 4.000 tonn af þorski
verði veidd þar, sama magn
af ufsa, ekkert af ýsu og
þúsund tonn af karfa. Mest-
ur er samdrátturinn í þorsk-
inum, en í fyrra varð þorsk-
afli á þessu svæði 22.000
tonn og er áætlaður 18.000
á þessu ári. Ysuaflinn í ár
er áætlaður þúsund tonn og
sömu sögu er að segja af
karfanum, en þalið er að af
ufsa veiðist 6.000 tonn í ár.
Aætluð veiðabróuiL^g
Bandaríkjanna
á nokkrum tegundum
við austurströndina
Þús. tonn
18
6 6
1 1 1
94 95 96 94 95 96 9495 96 94 95 96
Þ0RSKUR ÝSA UFSI KARFI
Helmild: Groundfish Forum - réðstetnurit
Ýsuafli er
áuppleið
Áætluð veiðaþróun ,
Kanadamanna
á nokkrum tegundum 1
við austurströndina f
94 95 96 94 95 96 94 95 96 94 95 96
Þ0RSKUR ÝSA UFSi KARFI
• STAÐAN við austur-
strönd Kanada er einnig
slæm. Þorskstofninn þar er
í sögulegu lágmarki og al-
gjört veiðibann á svokölluð-
um norðurslóðarþorski.
Leyfilegt er að veiða 10.000
tonn af þorski í ár og sama
veiði er áætluð á næsta ári.
Ysuveiðin er hins vegar að
auskast lítillega og er áætl-
uð 10.000 tonn á næsta ári.
Ufsaafli er á sömu nótunum,
en lang mest má veiða að
karfa, þó afli af honum sé á
niðurleið. I fyrra veiddust
49.000 tonn, 36.000 tonn er
veiðin áætluð í ár og 30.000
á því næsta./6