Morgunblaðið - 07.12.1995, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
^ Pasta Basta
Æuintýn i desmher!
m/w)
GílleHe JOY ungaPo Majoríca mvAiza
FYRIREÓÐAMRAKSTUR EAUDETOILETTE girís * ^ ^ ________WHgft ‘ "
Barnafalaverslanirnar
kom það margoft fram að fulltrúar
ríkisvaldsins teldu sérfræðinga í
læknastétt orðna of marga á ís-
landi. Það hefur og um langt skeið
verið krafa TR og yfirvalda að
takmarkað yrði aðgengi sérfræð-
inga inn á samninginn.
í samningaviðræðum var samn-
ingamönnum ríkisins bent á að
með heildareiningafjölda fyrir
þjónustuna ætti ekki að skipta TR
máli hvort sérfræðingar væri ein-
hveijum tugum fleiri eða færri, en
nú vinna eftir samningnum nærri
400 sérfræðingar. Samninganefnd
sérfræðinga vildi hafa aðgengi að
samningnum opið eins og verið
hefur en skildi þó að eðlilegt væri
að sérfræðingar sæktu formlega
um samþykki fyrir starfseminni,
gætu um sérgrein sína, hver að-
staða þeirra væri og hvar. Sérfræð-
ingum yrði kynntur samningurinn
og helst staða sérgreinarinnar ef
kostur væri, en slíkt gæti verið
gagnlegt þeim læknum sem hefðu
lokið sérfræðinámi sínu og hugs-
uðu tll heimferðar. Jafnframt var
minnt á að kostnaður af sérfræði-
þjónustunni hefði ekki aukist síð-
ustu ár þrátt fyrir nokkra fjölgun
sérfræðinga, þ.e. svo virtist sem
jafnvægi væri komið á í þessari
þjónustu eftir að hlutur sjúklinga
í greiðslum var aukinn. Það var
samt skilyrði af hálfu TR að eng-
inn sérfræðingur fengi að starfa
eftir samningnum nema að fengnu
samþykki stofnunarinnar. Vegna
yfirlýstrar andstöðu TR við fjölgun
sérfræðinga og greinilegs skiln-
ingsleysis á því að riýliðun í lækna-
stétt er nauðsynleg fengu fulltrúar
lækna samþykkt að samráðsnefnd
skyldi fjalla um nýjar umsóknir.
Ef ekki næst samstaða í samráðs-
nefnd verða samninganefndir aðila
að semja um ágreiningsefnin. Af-
staða flestra sérfræðinga, samn-
inganefndar þeirra og læknasam-
takanna hefur verið sú að þetta
ákvæði í samningnum gæti aðeins
haft í för með sér einhverja töf á
því að nýir sérfræðingar hæfu störf
eftir samningnum. í raun hefði
ekkert breytzt hvað aðgengi snerti.
Framkvæmd samningsins
Allir klínískir sérfræðingar sem
sótt hafa um að vinna eftir samn-
ingnum á þessu ári hafa verið sam-
þykktir. Aldrei hafa jafnmargir
nýir sérfræðingar hafið störf eftir
samningi við TR á jafnskömmum
tíma og liðinn er síðan bráða-
birgðasamningurinn var gerður í
ágúst eða 18 samtals, flestir
barnalæknar eða fimm, þrír geð-
læknar o.s.frv. Einum rannsókna-
lækni var hafnað a.m.k. tímabund-
ið en sérstakar reglur gilda fyrir
þá sérfræðinga sem hyggjast setja
á fót starfsemi sem mikill kostnað-
ur getur fylgt svo sem rekstri rann-
sóknastofu. Um slíkt hafa staðið
ákvæði í eldri samningum og eru
ekki ný af nálinni. Mál þessa rann-
sóknalæknis er til meðferðar hjá
tryggingaráði. Einum klínískum
sérfræðingi var hafnað um tíma í
haust en síðan samþykktur eftir
að frekari upplýsingar komu fram.
Bréf sem undirritað var af embætt-
ismanni í TR var þó með vægast
sagt óheppilegu orðalagi, þar sem
höfnun var sögð byggð á því að
ekki væri þörf fleiri sérfræðinga í
hans sérgrein en ekkert hlutlægt
mat hefur farið fram á þörf þjóðfé-
lagsins fyrir sérfræðinga í einstök-
um greinum.
KJG spyr í grein sinni á hvaða
aldri læknar hætti sjálfstæðum
stofurekstri. Samráðsnefnd hefur
hingað til ekki gert sérfræðingum
að hætta störfum við ákveðinn ald-
ur. Allir læknar sem fengið hafa
framlengt leyfi landlæknis til að
starfa hafa getað nýtt sér þá fram-
lengingu. Sumir eldri læknar hafa
haft léleg eftirlaun og því haldið
áfram störfum lengur en þeir héfðu
vafalaust sjálfír óskað. í næsta
samningi er eðlilegt að finna leið
Aldrei hafa jafnmargir
nýir sérfræðingar hafið
störf á jafnskömmum
tíma við TR, segir
Gestur Þorgeirsson,
o g frá því að bráða-
birgðasamningurinn var
gerður.
til þess að menn geti hætt störfum
fyrir TR á svipuðum aldri og ann-
ars staðar viðgengst í heilbrigðis-
kerfinu.
Einnig var spurt hvort árskvót-
inn kunni ekki að vera búinn í
desember og sjúklingar verði þá
að greiða fullt. Unnið er eftir sér-
stöku líkani sem skiptir einingum
ársins niður á mánuði og er ein-
ingafjöldi hvers mánaðar leiðréttur
miðað við meðaleiningafjölda sama
mánaðar síðustu árin. Þannig kem-
ur ekki til þess að kvótinn klárist
þegar líður á árið heldur greiðir
TR ekki fyrir þau verk sem fara
umfram áætlaðar einingar hvers
mánaðar. Ljóst er nú þegar að laun
sérfræðinga munu skerðast um
einhver prósent þetta árið.
Að lokum
TR og stjórnvöld hafa talið sér-
fræðinga of marga og krafan um
takmarkað aðgengi er frá þeim
komin. Eftir sem áður hafa allir
þeir 18 sérfræðingar, sem sótt
hafa um að hefja störf nú þegar
eftir samningnum verið samþykkt-
ir en umsókn eins sérfræðings er
fyrir Tryggingaráði, þar sem um
stofnun rannsóknastofu er að ræða
en alltaf hefur þurft séstakt sam-
þykki fyrir slíkri starfsemi.
Ekki er ljóst hvað framtíðin ber
í skauti sér. Ætlast verður til þess
af stjórnvöldum að þau skilji nauð-
syn þess að ungir læknar geti
áfram snúið heim frá sérnámi. Með
því móti einu er tryggt að eðlileg
framþróun verði í lækningum á
íslandi. Vonandi verður ekki
þrengt svo að starfsemi sérfræð-
inga sem er ódýr og skilvirk í flest-
um tilvikum, að þeir treysti sér
ekki til að reka starfsemina á svip-
aðan hátt og hingað til. Slíkt kæmi
niður á þeim sem sízt skyldi.
Höfundur er formaður Læknafé-
lags Reykjavíkur.
Myndband sem útskýrir-virknl
•tölvunnar og helstu fórrita.
Fæst í bókawerslunum og
stófmörkuðum. TilValin jólagjöf
fyrir fóik á öllum aldri.
SHAGAVIKf
sími: 564 4244
fax: 564 4243
AÐSENDAR GREINAR
Einingar og aðgengi
KRISTJÁN J.
Gunnarsson (KJG)
fyrrverandi fræðslu-
stjóri varpaði í blaða-
grein nýverið fram
nokkrum spumingum
og athugasemdum til
samráðsnefndar
Tryggingastofnunar
ríkisins (TR) og sér-
fræðinga vegna þess
bráðabirgðasamnings
sem aðilar gerðu sín í
milli í ágúst mánuði
sl. Samráðsnefnd hef-
ur verið til í mörg ár
en henni er ætlað að
skera úr um vafaatriði
og sjá til þess að í
framkvæmdinni sé farið eftir
ákvæðum samninga. I samráðs-
nefnd sitja tveir aðilar frá TR og
tveir læknar úr samninganefnd
sérfræðinga sem skipuð er af
Læknafélagi Reykjavíkur(LR).
Enda þótt fyrirspurnum og at-
hugasemdum hafi f.o.f. verið beint
til samráðsnefndar vil ég Ieyfa mér
að svara þeim og gera grein fyrir
afstöðu LR.
Forsaga málsins
Þegar samningar á milli sér-
fræðinga og TR tókust í ágústmán-
uði sl. voru liðin nær tvö ár frá
því að TR sagði upp gildandi samn-
ingi á milli aðila. Á nýjum samn-
ingi skyldi spara hinu
opinbera 100 milljónir
króna. í þeirri samn-
ingalotu sem stóð í
næstum tvo ár fundu
samningamenn sér-
fræðinga vel fyrir því
að ekki hefur verið
gert ráð fyrir neinni
sjálfstæðri starfsemi
sérfræðinga, reyndar
má benda á að ekki
er á hana minnst í
Heilbrigðisáætlun ís-
lands. Margir munu
minnast orða sumra
talsmanna stjómvalda
sem að deilunni komu
að það gengi ekki
lengur að sérfræðingar gætu kom-
ið heim til íslands hvenær sem
þeim dytti í hug og „byrjað að
skrifa reikninga á TR“. Yfirleitt
var ekki látið fylgja með, að reikn-
ingar verða því aðeins til að sjúkl-
ingar hafí leitað til læknisins og
staðfest með undirskrift þau verk
sem unnin voru.
Þegar sérfræðingar töldu sig
ekki geta lækkað gjaldskrána fyrir
klíníska vinnu eins mikið og stjórn-
vold kröfðust var tilkynnt um upp-
töku tilvísanakerfis. Hagfræðingar
sérfræðinga reiknuðu dæmið
þannig að það sem sparaðist í sér-
fræðiþjónustu með tilvísanakerfinu
kæmi fram í auknum kostnaði í
heilsugæslunni og því yrði sparn-
aður af kerfisbreytingunni enginn.
Sérfræðingar sögðu sig því nánast
allir af samningi við TR. Þetta mál
varð að miklu hitamáli og jafnvel
kosningamáli í síðustu alþingis-
kosningum.
Nýr heilbrigðisráðherra frestaði
tilvísanakerfinu og sérfræðingar
slógu uppsögnum sínum á frest svo
lengi sem unnið væri eftir bráða-
birgðasamningnum sem gerður var
í ágúst. Takist ekki samningar nú
á komandi vikum gæti farið svo
að tilvísanakerfi yrði sett á og al-
ger óvissa skapaðist um hvort
nokkrir sérfræðingar myndu starfa
fyrir TR. Vonandi kemur ekki til
þess því slíkt ástand myndi a.m.k.
ekki þjóna sjúklingunum.
Um bráðabirgðasamninginn
Samið var um heildareininga-
fjölda, 8 milljónir eininga fyrir klín-
íska vinnu þar sem hver eining
kostaði 135 krónur. Ef kostnaður
við sérfræðiþjónustuna færi upp
fyrir þessa upphæð skyldu sér-
fræðingar veita afslátt eða í raun
endurgreiða hveija krónu sem
umfram yrði. Einnig var samið um
heildareiningafjölda fyrir rann-
sóknir auk þess sem gjaldskráin
var lækkuð verulega. Með þessum
samningi var sérfræðiþjónustan í
raun komin á föst íjárlög.
í samningaviðræðum við TR
Gestur
Þorgeirsson
y[ iniðjuin jóla-
___ innkaupununi er
gott að geta sest niður
og slappað af í hlýrri og
notalegrí jólastemmningu
Við bjóðum þér jóladiskinn
okkar, "hlaðinn" af góðgæti sem
matreiðslunieistarar okkar hafa
nostrað við að útbúa.
Á jóladiskinum eru margir
spennandi réttir ásaint eftirrétt
sem kemur á ovart.
Leynist í honuin mandla?
Möndlugjafirnar okkar liggja
undir jólatrénu og þar geta
heppnir matargestir valið
sér möndlugjöf.
Hún gæti verið ilmvatn...
eða vandaður skartgripur..
eða Glasgow-ferð fyrir 2!
Það er aldrei að vita!
f j' Á£a*tiiui /
|Og hentar vel hvort sem um ,,snöggan“ hádegisverð er að
rceða eða notaleýa kvöldstund með samstarfsjólki jn'nu.
Ivlapparstí” 3S
11« * 1*4 >.»| >.«111 .i ii i r i s. >(> I íi íl
asune/uiÁu/i
'ýúhtctujaliýiGAÝtuu
K'ufcMIe(fi*L hiVLfui
Metff^0j^tHeÍ
*
ibk