Morgunblaðið - 07.12.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
HtargmtöIaMfc
D
1995
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER
BLAD
Ólympíunefnd
fær 6 milljónir
frá borgarráði
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að greiða Ólymp-
íunefnd íslands 6 milljónir króna á næstu tveim-
ur árum til að undirbúa og skipuleggja Smá-
þjóðaleika Evrópu sem haldnir verða á íslandi
árið 1997.
í sanmingsdrögunum er gert ráð fyrir að ár-
legt framlag borgarinnar verði þijár milljónir á
árunum 1996 og 1997. Framlagið skal nýtt til
greiðslu á kostnaði við undirbúning og skipulag
leikanna.
Ennf remur mun borgin styrkja leikana með
endurgjaldslausum afnotum af húsnæði borgar-
innar samkvæmt nánara samkomulagi milli
Ólympíunefndar og íþrótta- og tómstundaráðs.
Ragnar Ingi og
Sigrún Erna unnu
bronsveðlaun
EY STRAS ALTSMÓTIÐ (Baltic Cup) í skylming-
um var haldið i 'Kaupmannahöfn um síðustu
helgi. Islendingar náðu ágætum árangri. Sigrún
Erna Geirsdóttir varð þríðja í kvennaflokki og
Ragnar Ingi Sigurðsson náði sama sæti í opnum
flokki, en þar voru keppendur 53 talsins.
í liðakeppninni, þar sem 14 lið frá sex löndum
tóku þátt, náði íslenska liðið að komast í úrslit
og mætti þar A-liði Hollands. Eftir mikinn bar-
áttuleik unnu Hollendingar 45:41. B-lið íslands
náði 9. sæti.
Sex íslenskir keppendur tóku þátt í mótinu.
í opnum flokki kepptu auk Ragnars Ingaþeir
Kári Freyr Björnsson, sem varð í 7. sæti, Ólafur
Bjarnason (21. sæti) og Guðjón Ingi Gestsson
(26. sæti). Haukur Ingason náði 12. sæti af 28
keppendum í Mahaut-keppni með stungusverð-
um.
Þau mætast í átta
liða úrslitunum
SÍÐASTA umferðin í ríðlakeppni Evrópukeppni
meistaraliða, Meistaradeildinni, lauk í gær og
því er ljóst hvaða lið lenda saman í 8-liða úrslit-
um keppninnar. Þær viðureignir verða þessar:
(B2) Legia (Póll.) - (Al) Panathiuaikos (Grikkl.)
(A2) Nantes (Frakkl.) - (Bl) Spartak (Rússl.)
(D2) Real Madrid (Spáni) - (Cl) Juventus (Ítalíu)
(C2) Dortmund (Þýskal.) - (Dl) Ajax (Hollandi)
■Fyrri leikirnir fara fram 6. mars og þeir síð-
ari hálfum mánuði síðar, eða 20. mars. Síðari
leikirnir verða á heimavelli þeirra liða sem urðu
ofar i riðlunum.
Morgunblaðið/Sverrir
Stúlkurnar
berjast
KNATTSPYRNA
Nýr og glæsilegur leikvangurfyrir HM 1998 kallaður Frakklandsvöllur
Platini hafnaði því að völlur-
inn héti í höfuðið á honum
BREIÐABLIK er eina liðið í 1.
deild kvenna sem ekki hefur tap-
að leik í deildinni. I gær lögðu
Kópavogsstúlkur lið Keflvíkinga
í spennandi leik í Smáranum og
var þetta áttundi sigur stúlkn-
anna í röð í deildinni. Blikar
gerðu 37 stig í hvorum hálfleik
en gestirnir 41 í þeim fyrri en
aðeins 29 eftir hlé. Keflvíkingum
virðist líka illa í hinu nýja
íþróttahúsi því karlaflokkurinn
tapaði fyrir Blikum þar á dögun-
um. Hart var barist í leiknum í
gær og hér er það Anna María
Sveinsdóttir sem hefur náð að
kasta sér á knöttinn en Blikinn
Hanna Kjartansdóttir lætur ekki
sitt eftir baráttulaust og hefur
einnig hönd á knettinum. Lóa
Björg Gestsdóttir reynir að koma
Önnu Maríu til hjálpar.
Leikvangurinn glæsilegi, sem
verið er að byggja skammt
norðan Parísar fyrir heimsmeistara-
keppnina í knattspyrnu 1998, verð-
ur kallaður Stade de France, Frakk-
landsvöllur. Mikið hafði verið rætt
um það í landinu síðustu vikurnar
hvað nefna ætti völlinn, margir ótt-
uðust að niðurstaðan yrði ekki góð
en síðan varð þetta nafn, sem er
e.t.v. ekki mjög frumlegt, fyrir val-
inu.
Mannvirkið, sem er í borginni
St. Denis norðan höfuðborgarinnar,
er afar glæsilegt. Leikvangurinn er
sporöskjulaga og þama eiga 80.000
áhorfendur að komast í sæti. Upp-
hafsleikur HM 1998 verður á vellin-
um svo og úrslitaleikurinn en aðrir
leikir fara fram í öðrum borgum,
víðs vegar um landið.
Guy Drut, íþróttamálaráðherra
Frakklands, upplýsti í vikunni að
nefnd 14 sérfræðinga hefði íhugað
fjölda nafna, flest tengd íþróttum
og þúsundir ábendinga hefðu borist
frá almenningi. Hann sagði hins
vegar að leikvangurinn þyrfti að
bera stutt og hnitmiðað nafn sem
gæfí greinilega til kynna hvers kon-
ar mannvirki um væri að ræða.
„Þetta verður leikvangur fyrir alla
Frakka, völlur allra Frakka," sagði
hann.
Meirihluti tillagna frá almenningi
var á þann veg að nefna leikvang-
inn eftir Michel Platini, besta knatt-
spyrnumanni Frakka, sem er ein-
mitt annar tvegjgja forseta skipi^-
lagsnefndar heimsmeistarakeppn-
innar 1998. En Platini, sem er fer-
tugur, lagðist gegn hugmyndinni.
„Ég er of gamall til að vinna til
verðlauna fyrir knattspymu en of
ungur til að láta nefna knattspyrnu-
velli eftir mér,“ sagði hann. Platini
kvaðst telja nafnið Stade de France
stórkostlegt. „Þetta er besta nafnið
sem hægt var að finna fyrir þjóðar-
leikvanginn," sagði Platini. „Það er
ef til vill ekki mjög framlegt. En
við höfum beðið eftir þessum þjóð-
árleikvangi mjög lengi og mér
finnst Frakkland fallegasta nafn
sem til er þannig að nafngiftin er
rétt.“
HANDKNATTLEIKUR: VALSMENN TRYGGJA STODU SINAATOPPNUM / D4