Morgunblaðið - 07.12.1995, Blaðsíða 2
i.•!'»)■; ua, < <i* í i.i)i n
MORGUNBLAÐIÐ - AUGLÝSING
!’t! :!.~n.!iííri?i- - i ■ v <ij • m -
2 E FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1995
AGÆTI SJONVARPSAHORFANI
|
I
;
!
i
!
íslenska sjónvarpiö hf. var stofnað af nokkrum
traustum fyrirtækjum snemma árs 1995.
Meö Stöö 3 er íslenskum fjölskyldum í fyrsta
sinn gert kleift aö nýta sér fjölbreytnina á
sjónvarpsmarkaðinum því meö hinum
fullkomna fjölrása afruglara geta allir horft
á sitt uppáhaldsefni þegar þeim hentar.
Meö þessu blaði viljum viö kynna þér marg-
þætt framboð á sjónvarpsefni hjá Stöö 3.
Tilraunaútsendingar okkar hófust 24. október
síöastliöinn. Viö erum enn aö ná tökum á
mjög fullkomnum tæknibúnaði og fullmóta
glæsilega dagskrá okkar og má búast við aö
útsendingar gangi ekki alveg hnökralaust
fyrir sigfyrst um sinn. Við hvetjum áhorfendur
okkar til að vera í sambandi viö okkur og
hjálpa okkur þannig aö móta Stöö 3.
Afruglarinn okkar er hrein bylting en með
honum er unnt aö afrugla allar útsending-
arrásirnar í einu. Þetta þýöir aö á sama
tíma og unglingurinn á heimilinu er aö fýlgj-
ast meö MTV tónlistarrásinni geta aörir
fjölskyldumeðlimir notiö dagskrárrásarinn-
ar eöa horft t.d. á eftirsóknarverðan
fræösluþátt sem sýndur er á Discovery
Channel - allt á sama tíma.
Stöö 3 stefnir aö því aö veita úrvals þjón-
ustu og fyrir hönd starfsfólks og eigenda
Stöövar 3 óska ég þér góörar skemmtunar.
Áskriftarskilmálar
unnir í samvinnu við
Neytendasamtökin
Um leiö og þú gerist áskrifandi að Stöö 3
tryggir þú þér greiðan aögang aö fimm útsend-
ingarrásum. Veröiö er afar hagkvæmt, aöeins
1.995 kr. á mánuöi ef greitt er meö boðgreiðsl-
um en annars er áskriftargjaldið 2.145 kr. á
mánuöi. Skráningargjaldið, sem er 3.990 kr.
fellur niöur ef áskrift er greidd í 12 mánuöi sam-
fellt, áskriftargjaldið gildir eingöngu um nýja áskrif-
endur. Til aö tryggja réttarstööu áskrifenda og
Stöövar 3 voru bæöi áskriftarskilmálarnir og
áskriftarsamningur Stöövar 3 unnir í samvinnu
viö Neytendasamtökin.
Áskriftarsími Stöövar 3 er 533 5633.
Svona kemstu í samband
við Stöð 3
Til aö ná útsendingum Stöðvar 3 þarf örbylgju-
loftnet og afruglara. Fjölbýiishús þar sem eru
12 íbúðir eða fleiri hafa flest fengið loftnet nú
þegar en aðrir fá loftnet uppsett á kostnað
Stöðvar 3 eftir að hafa skráð sig. Auðvelt er
að setja búnaðinn upp en ef fólk vill fá aðstoð
við það, vísar Stöð 3 á rafeindavirkja sem
hafa reynslu á þessu sviði. Afruglari Stöðvar
3 er tæknibylting en mjög einfaldur í notkun
og það þarf aldrei að stilla hann.
Ef svo óheppilega vill til að afruglarinn er
tekinn úr sambandi þarf að tilkynna það til
Stöövar 3 sem sér um að senda rétt boð inn
á hann aftur.
Úlfar Steindórsson
framkvæmdastjóri
Loftnet
Orbylgjuloftnet------
Afruglari -----
-«i
gj M
1