Morgunblaðið - 08.12.1995, Blaðsíða 50
50 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Bochara, Pakistan 2,54 x 1,61
Tuisserkan, Irun, 2,10 x 1,29
Kohlioy, Iran 2,35 x 1,23
Sarough, Iran, 2,15 x 1,35
Peking, Kína 2.29 x 1.68
Nokkur dwmi «r söluskrá:
Bolutrh, Afghanistan, ca. 85 x 1,30 Algengt verð 20.000, NÚ: 6.900
Jaldar, Pakistan, ca. 95 x 1,60 Algengt verS 40.000, NÚ: 19.800
Algengt verð 65.000, NÚ: 49.900
Algengt verð 70.000, NÚ: 35.800
Algengt verð 70.000, NÚ: 35.800
Algengt verð 70.000, NÚ: 35.800
Algengt verð 90.000, NÚ: 68.900
Stórglæsileg
sölusýning
á handhnýttum
austurlenskum mottum
a 25-60%
undir markaðsverði
a /'CfJt c/
HÓTEL
REYKJAVIK
SIGTÚNI
laugardag 9- des. kl. 11—18,
sunnudag 10. des. kl. 10-18.
ASTA
JÓNSDÓTTIR
+ Ásta Jónsdóttir fæddist á
Gjögri í Strandasýslu 5. maí
1930. Hún lést í Reykjavík 29.
nóvember síðastliðinn og fór
útför hennar fram frá Kópa-
vogskirkju 7. desember.
AÐEINS nokkur orð frá okkur sem
kölluðum okkur Tónabæjarhópinn,
en það kom út af því, að um ára-
bil störfuðum við saman nokkrir
foreldrar í Styrktarfélagi vangef-
inna að skemmtunum, sem voru
haldnar í Tónabæ. Muna sjálfsagt
margir eftir.þeim, ekki síst grímu-
böllunum, sem alltaf var beðið eft-
ir með mikilli eftirvæntingu.
Þarna var Ásta ósérhlífin og
dugleg, sem annars staðar og lét
sig aldrei vanta. Ekki er hægt að
minnast á Ástu án þess að geta
Ólafs manns hennar, en þau voru
saman í öllu þessu starfi. Þetta var
skemmtilegur tími fyrir okkur öll.
Héldum við hópinn með því að
fara nokkrum sinnum út að borða.
Nú er aðeins tæpt ár síðan
Guðný, dóttir Ástu og Ólafs, lést,
yndisleg stúlka og mikið uppáhald
foreldra sinna. Þegar það skeði var
Ásta búin að ganga í gegnum mik-
il veikindi og meðferð sem því
fylgdi. Þrátt fyrir það stóð hún
fyrir útför og glæsilegri erfi-
drykkju með svo mikilli reisn að
seint gleymist, en Ólafur með
henni eins og alltaf.
Á kveðjustund viljum við Tóna-
bæjarhópurinn þakka Ástu liðnar
samverustundir. Við sendum Ólafi
hugheilar samúðarkveðjur fyrir
hönd hópsins.
Hallfríður.
í annað sinn á þessu ári kveður
starfsfólk Reiknistofu bankanna
kæran félaga. Hinn hræðilegi
sjúkdómur krabbamein tók fyrst
Björk og nú er hún Ásta okkar
farin til Guðs, þar sem hún á ör-
ugglega fagnaðarfund með dóttur
sinni Guðnýju, sem lést á jóladag
1994.
Ásta byijaði sem matráðskona
hjá Reiknistofu bankanna árið
1984 og sá um RB stelpurnar og
strákana allt til þess dags, er sjúk-
dómurinn kom í veg fyrir að hún
gæti mætt til vinnu. Henni þótti
sárt að geta ekki lengur stjanað
við okkur eins og hún hafði svo
sannarlega gert síðastliðin ellefu
ár. Áhugi Ástu á velferð okkar
samstarfsmanna hennar og fjöl-
skyldna okkar gerði það, að við
litum. ekki einasta á hana sem
matmóður ókkar heldur sem kæra
og elskulega vinkonu. Ásta hafði
sínar skoðanir á mönnum og mál-
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentunirini. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á
heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa
örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnárnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
t
Hjartkær eiginmaður minn,
GUNNAR JÓNSSON
íNesi,
Rangárvöllum,
andaðist miðvikudaginn 6. desember.
Guðrún Jónsdóttir.
t
Faðir minn og tengdafaðir,
ARNE K. 0DEGÁRD,
Holvegen 11,
Molde,
Noregi,
andaðist 30. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í Molde föstudaginn 8. des-
ember.
Knut Odegárd, Þorgerður Ingólfsdóttir.
t
Hjartkær eiginmaður minn,
RAGNAR F. GUÐMUNDSSON,
Sogavegi 86,
Reykjavík,
er látinn. Jarðarförin ákveðin síðar.
Bergljót Sveinsdóttir.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, systir,
amma og langamma,
AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Kirkjubæ,
Strembugötu 15,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsungin frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum laugardaginn 9. desember
kl. 11.00.
Marfa Gunnarsdóttir, Runólfur Alfreðsson,
Svava Jónsdóttir, Andrés Magnússon,
Sigfríð Runólfsdóttir, Þorvaldur Olafsson,
Aðalheiður Runólfsdóttir,
Gunnar Bergur Runólfsson,
Bergþór Þorvaldsson.