Morgunblaðið - 08.12.1995, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
flF HVER3U GEfZie&Ö
/VUTT SVO BfZJÓSTUM-
KeufjANLEGT?
Grettir
, /yiýFuxSÆ c/eíí
\4&G£EA Þa$>.
MyFLUGA þ&iFAÐ
Ge£A'
T
01995Tribune Media S*rvio««, hc. _ /
AHffightsRðservad. 10-J /Wl
Smáfólk
Why Dog5 Are the Most
Superiorof All Creatures
On Land,5ea and Sky
and Maybe Space.
Hvers vegna hundar eru æðstir
allra dýra á landi, sjó, í lofti og
ef til vill í himingeiminum.
sé örlítið of lang-
ur lyá þér...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reylgavik • Simi 569 1100 • Símbréf 569 1329
ÁRNI H. Kristjánsson og Gylfi Páll Hersir.
Osvífin árás á
kjör röntgentækna
Frá Árna H. Kristjánssyni og
Gylfa Páli Hersi:
FYRIR skömmu var 14 röntgen-
tæknum á Landspítala íslands sagt
upp hluta af starfssamningi sínum,
nánar tiltekið greiðslu á 15 óunn-
um yfirvinnutímum á mánuði.
Þessum samningi var komið á fyr-
ir tæpum 2 árum. Röntgentæknar
litu svo á að verið væri að segja
þeim upp, þar sem ekki er hægt
að segja upp hluta af starfssamn-
ingi.
Hér er á ferðinni tilraun ríkis-
valdsins til að skipuleggja og skera
niður í heilbrigðismálum. Hópur
með tiltölulega rýr kjör verður fyr-
ir barðinu. Launakerfíð er furðu-
lega samsett af óunninni yfirvinnu
og ýmsum álagsbótum og til þess
fallið að hártoga og vafstra með.
Við þessu er eitt að gera sem
margoft hefur verið bent á: Kveðja
yfírvinnuna og hækka grunnkaup-
ið. Meðan það er ekki gert gilda
fyrri samningar!
Fyrir um það bil þremur árum
stóðum við Dagsbrúnarverkamenn
í slipp Stálsmiðjunnar við Reykja-
víkurhöfn í ekki ósvipaðri deilu.
Við höfðum samning um 5 yfir-
vinnutíma á viku, að vísu unna en
ekki óunna. Stjórn fyrirtækisins
taldi sig óbundna af þessum samn-
ingi af ástæðum sem ekki skulu
raktar hér, og sagði honum upp.
Eftir töluvert þref þar sem við
höfnuðum því meðal annars að
vinna yfírvinnu meðan brotnir
væru á okkur samningar, höfðum
við sigur í Félagsdómi. Stálsmiðj-
unni var gert að standa við gerðan
samning. Meðan á þessum deilum
stóð var samstaðan meðal okkar
óijúfanleg og við nutum vaxandi
stuðnings og skilnings hjá öðrum
starfshópum á okkar vinnustað og
víðar. Við kynntum málið hvar sem
við komum og reyndum að skýra
það í fjölmiðlum.
Okkar afstaða var sú að við vild-
um sleppa þessari föstu yfirvinnu
en fá grunnkaupshækkun. í upp-
hafí árs í fyrra var svo loks gerður
nýr samningur þar sem ákvæðið
um fasta yfírvinnu hvarf og í stað-
inn kom 4% grunnkaupshækkun.
Því er þetta mál rifjað upp hér
að okkur finnst margt líkt með
þessum tveimur málum. Ljóst er
að sú sérstæða aðferð að hækka
kaupið með því að vinna meira og
jafnvel næstum allan sólarhring-
inn, er gamaldags uppgjafarleið
sem menn fóru í stað þess að
þrýsta á um hækkun tímakaups-
ins. Það er erfítt ef ekki beinlínis
rangt útfrá sjónarmiði launafólks,
að halda því til streitu að vinna
yfírvinnu. Meðal vinnuvika ASÍ-
félaga lengdist úr 46 stundum í
47,2 stundir eða um 2,6% á árun-
um 1992-1994, samkvæmt Kjara-
rannsóknanefnd. Það er fáránlegt
að fjöldi manns skuli enga vinnu
fá meðan aðrir þræla og púla
myrkranna milli. Það er álíka fár-
ánlegt að færri skuli vinna verk
sem margir unnu áður, á æ skert-
ara kaupi.
Víða í Evrópu hefur vinnuvikan
verið stytt. Þá hafa komið til hækk-
anir til að mæta tekjutapinu og
þannig verður það auðvitað að
vera.
Verkafólk verður að vemda lífs-
kjör sín. Kjaramál eru annað og
meira en desemberuppbætur, eins
og menn með góðgerðarsjónarmið
halda fram þessa dagana. Það er
fyrir tilstuðlan almennrar verka-
lýðsbaráttu að hér er menntun og
heilbrigðisþjónusta fyrir alla, að
nafninu til. Hvort tveggja er háð
efnahag. Verkafólk fær lakari heil-
brigðisþjónstu og hún fer versn-
andi. Tannlæknavitjunum barna á
skólaskyldualdri hefur fækkað, um
áramót er talað um að taka upp
innritunargjöld á sjúkrahúsum og
rætt er um forgangsröðun sjúk-
linga, hinum efnameiri að áhyggju-
lausu. Það er því ekki sjálfgefið
að sú menntun og heilbrigðisþjón-
ustá sem þó er hér verði áfram.
Þess vegna ber okkur að veija slíka
ávinninga. Árásir á kjör röntgen-
tækna eru hluti af því. Um leið
og við bendum á samlíkinguna við
baráttu okkar Dagsbrúnarmenna
hvetjum við aðra hópa launafóks
til þess að styðja röntgentækna.
ÁRNI H. KRISTJÁNSSON,
GYLFIPÁLL HERSIR,
verkamenn í slipp Stálsmiðjunnar við
Reykjavíkurhöfn.
Allt efni sem birtist í Morgunbiaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt f
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútan.di.