Morgunblaðið - 08.12.1995, Blaðsíða 66
66 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 21. útdráttur
1. flokki 1990 - 18. útdráttur
2. flokki 1990 - 17. útdráttur
2. flokki 1991 - 15. útdráttur
3. flokki 1992 - 10. útdráttur
2. flokki 1993 - 6. útdráttur
2. flokki 1994 - 3. útdráttur
3. flokki 1994 - 2. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. febrúar 1996.
Öll númerin veröa birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum
hér að ofan birt í dagblaðinu Degi föstudaginn 8.
desember. Uþþlýsingar um útdregin húsbréf liggja
frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og
verðbréfafyrirtækjum.
cSo HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
f I HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 569 690
Eitt blab fyrir alla!
- kjarni málsins!
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
í MAÍ á síðasta ári héldu
ítalir eitt af sínum árlegu
stórmótum í Kongresshöll-
inni í Salsomaggiore. Alls
kepptu þar 166 sveitir eða
um 1.000 spilarar. Þetta
var ágæt æfing fyrir ítalska
landsliðið, sem vann Evr-
ópumeistarakeppnina rúm-
um mánuði síðar. Spilið að
neðan kom_ upp í Salso-
maggiore. í aðalhlutverki
er landsliðsparið Buratti og
Lanzarotti.
Austur gefur; NS á
hættu. Norður 4 KG643 ? 874 ♦ Á ♦ Á765
Vestur Austur
* 9 4 82
t ÁKD63 1 ? G952
♦ DG9432 111111 ♦ 105
♦ D 4 KG842
Suður 4 ÁD1075 ? 10 4 K876 4 1093
Vestur Norður Austur Suður
Mortish Buratti Fogel Lanzarotti
- Pass 2 spaðar*
3 spaðar**Dobl 4 hjðrtu Pass
Pass 4 spaðar 5 hjörtu Pass
Pass 5 spaðar Allir pass
• Tartan, þ.e. veikt með a.m.k. 5-4 í spaða
og láglh.
*• Mtoist 5-5 í hjarla og láglit
Útspil: Hjartaás.
Svo virðist sem sagnhafí
hljóti að gefa þijá slagi: einn
á hjarta og tvo á lauf. En
Lanzarotti fann leið sem
dugði til vinnings. Vestur
skipti yfir í laufdrottingu í
öðrum slag, sem var drepin
með ás. Nú fór Lanzarotti í
hreinsunarleiðangur. Ásamt
því að taka tromp tvisvar,
trompaði hann út hjörtun og
einn tígul í borði. Suður átti
út í þessari stöðu:
Norður
♦ G6
f -
♦ -
♦ 76
Vestur Austur
4 - ♦ -
? K
4 DG9 111111 ♦ -
4 - 4 KG8
Suður
4 10
t -
♦ 8
4 109
Lanzarotti spilaði nú tígli
og henti laufi úr borði! Vest-
ur átti slaginn, en varð að
spila rauðu spili og gefa
trompun og aftast.
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Þarfar umræður
VEGFARANDI skrifar:
„Sl. þriðjudag, 5. des-
ember, horfði ég á umræð-
ur í Dagsljósi í sjónvarpinu
þar sem tekist var á um
hvemig staðið er að skoðun
bifreiða. Þar kom m.a.
fram að bílar fara athuga-
semdalítið í gegnum skoð-
un hjá Bifreiðaskoðun en
síðar, eftir að þeir hafa
lent í umferðaróhappi,
kemur í ljós að öiyggisbún-
aði var ábótavant. Ég vil
þakka Svanhildi Konráðs-
dóttur og samstarfsfólki
hennar í dagsljósi fyrir að
vekja athygli á þessu máli
- enda orð í tíma töluð.
Það er sannarlega um-
hugsunarvert ef rekja má
umferðarslys og óhöpp til
iélegs ástands ökutækja
sem sleppa í gegnum skoð-
un. Er það tilfellið, eins og
Karl Ragnars sagði í um-
ræðunum, að samkeppnin
í bifreiðaskoðunarmálum
sé farin að bitna á gæðum
skoðunarinnar? Ljótt er ef
satt er!“
Niðurgreiðsla á
hressingarhóteli
INGIBJÖRG hringdi og
vildi lýsa undrun sinni
yfir hlut ríkisins í
kostnaði dvalargesta á
heiísuhælinu í
Hveragerði. Hún telur að
fólk almennt hafi ekki
gert sér grein fyrir þeim
kostnaði sem ríkið ber af
þessari þjónustu, en í
blaðinu sl. miðvikudag
var grein um heilsuhælið
á bis. 12. Heilsuhælið
getur tæplega talist
sjúkrastofnun, heldur er í
raun hregsingarhótel fyrir
frískt eldra fólk sem þarf
kannski að grenna sig eða
breyta um mataræði eða
fá meiri hreyfingu.
Vel unninn
unglingaþáttur
SIGURÐUR Þorsteinsson
hringdi og vildi lýsa yfir
mikilli ánægju með ungl-
ingaþáttinn Ó þriðjudags-
kvöldið 5. desember. Þátt-
urinn var bæði vel unninn
og faglega tekið á efni.
Fagmennskan sem sýnd
var í þessum þætti er í
hæsta gæðaflokki.
Tapað/fundið
Vettlingur tapaðist
DÖKKUR vettlingur, út-
pijónaður með hvítu, tap-
aðist frá Ráðhúsinu í
strætisvagnaskýlið beint á
móti laugardaginn 18.
nóvember. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma
551- 3703.
Hjól tapaðist
SVART fjallahjól af
Wheeler-gerð með gráum
demparagaffli hvarf frá
húsi í Vesturbænum fyrir
u.þ.b. tveimur vikum.
Hjólsins er sárt saknað,
þar sem það er notað til
ferða í skóla. Ef einhver
hefur orðið var við hjólið
vinsamlega hringið í síma
552- 0957.
Gæludýr
Kettlingar fást
gefins
TVEIR smávaxnir, loðnir
kettlingar fást gefins.
Uppl. í síma 561-1523.
Kisi er týndur
GULBRÚNN, virðuieg-
ur, gamall köttur frá
Seltjarnarnesi er búinn
að vera týndur í viku.
Hann er ómerktur. Ef
einhver hefur séð kisa
er hann vinsamlegast
beðinn að hringja í síma
561-2275.
SKÁK
(Jmsjón Margcir
Pétursson
Svartur leikur
og vinnur.
STAÐAN kom upp á
rússneska meistaramót-
inu í Elista í haust. Al-
þjóðlegi meistarinn
Gennadi Tunik (2.515)
var með hvítt, en Volodja
Malakoff (2.520), 15
ára, var með svart og
átti leik.
29. - Hc3! og hvítur
gafst upp því eftir 30.
Dxc3 - Rf3+ 31. Khl -
Dh3 blasir mátið við.
Malakoff þessi er með
allra efnilegustu skák-
mönnum Rússa eins og
stig hans gefa til
kynna. Hann var‘
á fyrsta borði í
liði unglinga-
landsliðs Rússa áe
Ólympíumóti 15
ára og yngri á!
Kanaríeyjum í
vor. í innbyrðis *
viðureign Rússa 3
og Islendinga
tókst honum að2
leggja Jón Viktor
Gunnarsson að ’
velli eftir langa
og stranga viðureign, en
samt sem áður höfðu
okkar drengir heildarsig-
ur á Rússum 2'h-Vh
og urðu síðan Ólympíu-
meistarar í þessum ald-
ursflokki.
Atskákmót Reykja-
víkur 1995 fer fram nú
um helgina í Menning-
armiðstöðinni Gerðu-
bergi í Breiðholti. Taflið
hefst kl. 14.30 laugar-
daginn 9. desember og
lýkur daginn eftir. Tefld-
ar verða 9 umferðir eftir
Monrad kerfi og er um-
hugsunartíminn 25 mín-
útur á skákina. Verðlaun
20 þús, 12 þús og 8 þús.
Víkverji skrifar...
SÉRBLAÐ Morgunblaðsins, Úr
verinu, fjallaði í þessari viku
um saltfiskverksmiðju SÍF, Nord
Morue, í héraðinu Jonzac í suðvest-
urhluta Frakklands. Þar er vel að
verki staðið og ánægjulegt að sjá
hve íslendingar skara víða fram úr,
þegar þeir standa að fyrirtækja-
rekstri á sviði sjávarútvegs. Fyrir-
tækinu í Jonzac stjóma fímm ungir
íslendingar, öll eru þau rétt rúmlega
þrítug, og ríkir þar góður samstarfs-
andi og drífandi hugur. Enda hefur
framleiðsla og velta Nord More þre-
faldazt á fimm árum og stefnt er
að fimmföldun framleiðslunnar inn-
an fárra ára frá því verksmiðjan var
keypt 1990. Góður hagnaður hefur
verið af rekstrinum, en það er mikil
breyting því að Svíar áttu það og
ráku á síðasta áratug.
XXX
AÐ ER á fleiri stöðun en í
Jonzac-héraði hinu franska,
sem íslendingar taka þátt í rekstri
fyrirtækja í sjávarútvegi af miklum
myndarskap. íslendingar eru í öll-
um byggðum heimsálfum og alls
staðar hafa þeir náð góðum ár-
angri. Fyrir utan resktur verk-
smiðja stóru sölusamtakanna, SH
og ÍS í Bandaríkjunum eru reknar
söluskrifstofur íslenzkra fisksala
um allan heim. Þessi fyrirtæki hafa
á sér mjög gott orð og sækjast
margir erlendir fiskframleiðendur
eftir því að komast inn í sölukerfi
þeirra. Islendingar standa að
rekstri myndarlegra sjávarútvegs-
fyrirtækja í Chile og Mexíkó, í
Namibíu og á Kamtsjatka í Asíu.
íslenzkir skipstjórar skara víða
fram úr og auk fyrrnefndra staða
má nefna Sigurgeir Pétursson á
Nýja-Sjálandi, sem þar er orðinn
þekktur búraskipstjóri.
XXX
SVONA mætti vafalítið halda
áfram og finna íslendinga við
störf erlendis. Það er greinilegt,
að þar sem sérfræðiþekking okkar
er mest, á sviði sjávarútvegs og
nýtingar jarðhita, erum við eftir-
sóttir til samstarfs. Við þurfum að
kynna þessa sérþekkingu okkar
sem víðast um heim. Jarðhitaskóli
Sameinuðu þjóðanna er starfandi
hér á landi og hefur það vafalítið
skilað okkur verkefnum á erlendri
gruridu. Gera þarf hugmyndir um
alþjóðlegan sjávarútvegsskóla hér
á landi að veruleika, en slík kennsla
hér myndi vafalítið skila sér í verk-
efnum á sviði sjávarútvegs víða
um heim.
Það er engin tilviljun að sá út-
flutningsiðnaður okkar, sem hvað
lengst hefur náð, skuli tengjast
sjávarútvegi. Það er tekið eftir því
sem vel er gert og því hafa fyrir-
tæki eins og Marel, Póls, Sæplast,
Borgarplast, Hampiðjan, J. Hin-
riksson og fleiri selt framleiðslu-
vörur sínar í umtalsverðum mæli
til margra tuga þjóðlanda. Það er
glæsilegur árangur.