Morgunblaðið - 09.12.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 09.12.1995, Síða 1
KNATTSPYRNA KIMATTSPYRIMA: BAYERIM MUIMCHEN MÆTIRIMOTT1IMGHAM FOREST/C4 HSV burstaði Frankfurt HSV burstaði Eintracht Frankfurt 5:1 í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöidi og er komið í fjórða sæti deildarinnar. Liðinu hefur gengið mjög vel og hefur ekki tapað nema einum leik síðan Fel- ix Magath tók við liðinu fyrir ellefu leikjum. Thomas Doli kom inná sem varamaður hjá Frankfurt og skoraði eina mark liðsins. Þetta var fyrsti leikur hans í rúmt ár, en hann hefur verið frá vegna meiðsla. St Pauli náði í þrjú stig gegn Bayer Uerdingen með 5:2 sigri á úti- velli og er um miðja deild. Eyjólfur Sverrisson og félagar hans í Hertha Berlín gerðu markalaust jafntefli við Unterhac- hing á útivelii í 2. deildinni. Einn leikur fór fram í hollensku knattspym- unni í gærkvöldi. Feyenoord sigraði Heerenveen 1:0 á útivelli og gerði Orlando Trustfuil sigur- markið undir lok fyrri hálfleiks. SigurðurJónsson, landsliðsmaðurfrá Akranesi, á leiðtil Svíþjóðar Skagamenn hafa náð samkomulagi vid Örebro SKAGAMENN hafa náð sam- komulagi við sænska liðið Örebro um sölu á landsliðs- manninum Sigurði Jónssyni. Eins og komið hef ur fram bauð Orebro 80 þúsund sænskar krónur eða um átta milljónir króna i síðustu viku en Skagamenn höfnuðu því tilboði. Nýtt tilboð barst síðan í gær og var þá ákveðið að heimila Sigurði félagskipti og mun hann gera tveggja ára samning við Örebro og flytjast búferlum til Svíþjóðar eftir áramót. Guðjón Þórðarson, þjálfari Skagamanna og fram- kvæmdastjóri Knattspymufélags ÍA, sagði í gær að málið varðandi Sigurð væri frágengið af hálfu félagsins. „Félagaskiptin eru klár. Stjóm félagsins hefur tekið tilboð- inu frá Örebro og málinu ér lokið af okkar hendi. Við vonum bara að honum farnist vel í Svíþjóð og honum fylgja góðar óskir um gott gengi héðan frá Akranesi. Von- andi lyftir hann sænsku deildinni upp á hærra plan. Það er mikil eftirsjá í Sigurði fyrir Akranes og íslenskan fótbolta,“ sagði Guðjón. „Það hljóta öll hin liðin í deild- inni að kætast yfir þvi að Sigurður skuli yfirgefa herbúðir okkar. Við erum hins vegar með fullt af góð- um knattspyrnumönnum sem ég treysti og það kannski kemur til með að reyna meira á þá núna. Við erum hvergi bangnir og ætlum að halda okkar striki. Ég get ekki séð aðjmð séu til betri miðjumenn hér á íslandi en ég hef innanborð í Skagaliðinu,“ sagði Guðjón Þórð- arson. Skagamenn hafa fengið til liðs við sig Steinar Adolfsson og Mi- hajlo Bibercic frá KR. Varnarmað- urinn Zoran Miljkovic verður áfram og svo er verið að ganga frá samningi við Bjarka Gunn- laugsson. „Það er klárt að Bjarki verður hér áfram, það á aðeins eftir að ganga frá formsatriðum í því sambandi. Tíminn undanfarið hefur allur farið í Örebro-málið og þvi hefur það tafist að ganga frá skriflegum samningi við Bjarka,“ sagði þjálfarinn. Jurgen Klins- mann í vax JÚRGEN Kiinsmann, leikmaður Bayern Miinchen og fyrirliði þýska landsliðsins í knattspyrnu, er kominn i góðan hóp Þjóð- veija, en fámennan, á Madame Tussaud vaxmyndasaf ninu í London. Þar eru meðal annars iandar hans Ludwig van Beet- hoven tónskáld, Konrad Adenauer kanslari og Boris Becker tenniskappi. „Hún er nyög lík mér. Þetta er flott og ég er nyög stoitur. Ég ift á þetta sem viðurkenningu á knattspyrn- unni sem atvinnu og frábæru ári sem ég átti þjá Tottenham siðasta keppnistimabil," sagði hinn Ijóshærði Þjóðverji þegar hann skoðaði vaxmyndina þar sem hann er í þýska landsliðs- búningnum og auðvitað með númer átján á bakinu. * •" ' ' SIGURÐUR Jónsson, landsliAsmaður frá Akranesl, sam hór er f baráttu vlð elnn teikmanna skoska liðsins, Raith Rovers, f Evrópukeppnlnnl f haust, leikur með sænska lUHnu Örebro næstu tvö keppnistímabll. Skagmenn samþykktu félagasklptl hans yfir i Örebro f gaer. 1995 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER BLAD B L A Ð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.