Morgunblaðið - 09.12.1995, Blaðsíða 1
KNATTSPYRNA
KIMATTSPYRIMA: BAYERIM MUIMCHEN MÆTIRIMOTT1IMGHAM FOREST/C4
HSV burstaði
Frankfurt
HSV burstaði Eintracht Frankfurt 5:1 í þýsku
úrvalsdeildinni í gærkvöidi og er komið í fjórða
sæti deildarinnar. Liðinu hefur gengið mjög vel
og hefur ekki tapað nema einum leik síðan Fel-
ix Magath tók við liðinu fyrir ellefu leikjum.
Thomas Doli kom inná sem varamaður hjá
Frankfurt og skoraði eina mark liðsins. Þetta
var fyrsti leikur hans í rúmt ár, en hann hefur
verið frá vegna meiðsla. St Pauli náði í þrjú
stig gegn Bayer Uerdingen með 5:2 sigri á úti-
velli og er um miðja deild.
Eyjólfur Sverrisson og félagar hans í Hertha
Berlín gerðu markalaust jafntefli við Unterhac-
hing á útivelii í 2. deildinni.
Einn leikur fór fram í hollensku knattspym-
unni í gærkvöldi. Feyenoord sigraði Heerenveen
1:0 á útivelli og gerði Orlando Trustfuil sigur-
markið undir lok fyrri hálfleiks.
SigurðurJónsson, landsliðsmaðurfrá Akranesi, á leiðtil Svíþjóðar
Skagamenn hafa náð
samkomulagi vid Örebro
SKAGAMENN hafa náð sam-
komulagi við sænska liðið
Örebro um sölu á landsliðs-
manninum Sigurði Jónssyni.
Eins og komið hef ur fram
bauð Orebro 80 þúsund
sænskar krónur eða um átta
milljónir króna i síðustu viku
en Skagamenn höfnuðu því
tilboði. Nýtt tilboð barst síðan
í gær og var þá ákveðið að
heimila Sigurði félagskipti og
mun hann gera tveggja ára
samning við Örebro og flytjast
búferlum til Svíþjóðar eftir
áramót.
Guðjón Þórðarson, þjálfari
Skagamanna og fram-
kvæmdastjóri Knattspymufélags
ÍA, sagði í gær að málið varðandi
Sigurð væri frágengið af hálfu
félagsins. „Félagaskiptin eru klár.
Stjóm félagsins hefur tekið tilboð-
inu frá Örebro og málinu ér lokið
af okkar hendi. Við vonum bara
að honum farnist vel í Svíþjóð og
honum fylgja góðar óskir um gott
gengi héðan frá Akranesi. Von-
andi lyftir hann sænsku deildinni
upp á hærra plan. Það er mikil
eftirsjá í Sigurði fyrir Akranes og
íslenskan fótbolta,“ sagði Guðjón.
„Það hljóta öll hin liðin í deild-
inni að kætast yfir þvi að Sigurður
skuli yfirgefa herbúðir okkar. Við
erum hins vegar með fullt af góð-
um knattspyrnumönnum sem ég
treysti og það kannski kemur til
með að reyna meira á þá núna.
Við erum hvergi bangnir og ætlum
að halda okkar striki. Ég get ekki
séð aðjmð séu til betri miðjumenn
hér á íslandi en ég hef innanborð
í Skagaliðinu,“ sagði Guðjón Þórð-
arson.
Skagamenn hafa fengið til liðs
við sig Steinar Adolfsson og Mi-
hajlo Bibercic frá KR. Varnarmað-
urinn Zoran Miljkovic verður
áfram og svo er verið að ganga
frá samningi við Bjarka Gunn-
laugsson. „Það er klárt að Bjarki
verður hér áfram, það á aðeins
eftir að ganga frá formsatriðum í
því sambandi. Tíminn undanfarið
hefur allur farið í Örebro-málið
og þvi hefur það tafist að ganga
frá skriflegum samningi við
Bjarka,“ sagði þjálfarinn.
Jurgen Klins-
mann í vax
JÚRGEN Kiinsmann, leikmaður Bayern Miinchen og fyrirliði
þýska landsliðsins í knattspyrnu, er kominn i góðan hóp Þjóð-
veija, en fámennan, á Madame Tussaud vaxmyndasaf ninu í
London. Þar eru meðal annars iandar hans Ludwig van Beet-
hoven tónskáld, Konrad Adenauer kanslari og Boris Becker
tenniskappi. „Hún er nyög lík mér. Þetta er flott og ég er
nyög stoitur. Ég ift á þetta sem viðurkenningu á knattspyrn-
unni sem atvinnu og frábæru ári sem ég átti þjá Tottenham
siðasta keppnistimabil," sagði hinn Ijóshærði Þjóðverji þegar
hann skoðaði vaxmyndina þar sem hann er í þýska landsliðs-
búningnum og auðvitað með númer átján á bakinu.
* •" '
'
SIGURÐUR Jónsson, landsliAsmaður frá Akranesl, sam hór er f baráttu vlð elnn teikmanna
skoska liðsins, Raith Rovers, f Evrópukeppnlnnl f haust, leikur með sænska lUHnu Örebro
næstu tvö keppnistímabll. Skagmenn samþykktu félagasklptl hans yfir i Örebro f gaer.
1995
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER
BLAD
B L A Ð