Morgunblaðið - 10.12.1995, Síða 20

Morgunblaðið - 10.12.1995, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Ferðamálaskóli íslands, Menntaskólanum í Kópavogi. Skólinn er skiþulagður á þann hátt að nemendur sækja sjálfstæð námskeið þar sem farið er yfir afmarkaða hluta ferðafræðinnar eða taka tvær heildstæðar annir. Nemendur geta því sjálfir ráðið fjölda námskeiða sem þeir vilja sækja og hversu hratt námið sækist. Námsframboð á vorönn: • Fargjaldaútreikningur • Farbókunarkerfi • Ferðalandafræði íslands • Ferðalandafræði útlanda • Ferðaskrifstofur • Markaðsfræði ferðaþjónustu • Rekstur ferðaþjónustu • Þjónustusamskipti • Umhverfi og ferðaþjónusta • Enska fyrir ferðaþjónustu Skráning í skólann stendur yfir til 18. desember. Kennslá hefst samkvæmt stundaskrá 10. janúar 1996. Hikið ekki við að hringja í sírna 564 3033 og fá nánari uþþlýsingar. Skrifstofa skólans er oþin virka daga frá kl. 09:00-14:00. Kennslutími mánudaga til fostudaga frá kl. 17:30-21:40. Ferðamálaskóli íslands MENNTASKÓLANUM í KÓPAVOGI ICELAND SCHOOL OF TOURISM FRÉTTIR Flugdeild Landhelgisgæslunnar 40 ára FLUGFLOTI gæslunnar í árdaga: flugbáturinn, fyrsta þyrlan af Bell-gerð og Skymaster DC-4 flug- vélin sem gæslan eignaðist 1962 var fjögurra hreyfla með 18 klst. flugþoli og gjörbreytti því aðstæðum til leitar- og björgunarflugs. Þyrlurnar ollu þátta- skilum í starfseminni í DAG eru 40 ár frá því að Landhelg- isgæslan (LHG) eignaðist sína fyrstu flugvél. Það var Catalínuflugbátur- inn TF-RÁN. Fram að því hafði LHG notast við leiguflugvélar við eftirlits- störf. Á þessum 40 árum hefur Gæslan átt eða leigt langtímaleigu alls 18 flugför, þar af 11 þyrlur. Nú á Landheigisgæslan fjórar flugvélar, Fokker flugvélina TF-SÝN og þyrl- urnar TF-SIF (Dolphin), TF-GRÓ (Ecuruil) og TF-LÍF (Super Puma). Landhelgisgæsla úr lofti er næstum jafngömul fluginu á íslandi. Þegar árið 1920 var farið að ræða opinber- lega um möguleika á að nota flug- báta til gæslu við strendur landsins. Á- þriðja áratugnum voru flugvélar notaðar til síldarleitar og fóru yfir- menn af varðskipum gjaman með til eftirlits á miðunum. Þetta flug lagðist að mestu niður í kreppunni en hófst aftur 1937. Á stríðsárunum lagðist landhelgisgæsla úr lofti einnig niður. Góður árangvr af gæsluflugi Árið 1947 var aftur tekið til við gæsluflug. Notast var við farþega- flugvélar sem leigðar voru í einstak- ar eftirlitsferðir. Arið 1948 urðu þau þáttaskil að Landhelgisgæslan tók á leigu Grumman flugbát um tveggja mánaða skeið, eingöngu til landhelg- isgæslu. Eftirlit úr lofti bar góðan árangur við að stugga erlendum tog- urum úr landhelginni. Menn öðluðust færni við að staðsetja landhelgis- brjóta úr lofti. Reglubundið gæsluflug Skipulögð landhelgisgæsla úr lofti hófst við útfærslu landhelginnar í 4 sjómílur 1952. Með samræmdum aðgerðum flugvéla og varðskipa var nú farið að góma landhelgisbijóta og færa þá til hafnar. Catalina-flugbáturinn TF-RÁN var tveggja hreyfla og gat lent bæði á sjó og landi. Flugvélin kom hingað til lands í þjónustu bandaríska hers- ins og strandaði á Þórshöfn 1954. Flugmálastjórn keypti flugvélina og seldi síðan Landhelgisgæslunni. „Katan“ eins og vélin var gjaman HINN 10. desember 1955 eignaðist Landhelgisgaeslan sína fyrstu flugvél — Catalínuflugbátinn TF-RÁN. FOKKER-vélin TF-SÝR sem síðar var seld en Fokkerarnir hafa gegnt veigamiklu hlutverki í starfsem flugdeildar Landhelgisgæslunnar. nefnd var í þjónustu Gæslunnar fram í desember 1962. Þyrlur í 30 ár Fyrstu þyrluna eignaðist Land- helgisgæslan í félagi við Slysavarna- félag Islands í mars 1965. Þetta var Bell þyrla og fékk einkennisstafina TF-EIR. Þyrlan sannaði fljótt ágæti sitt og hefur hlutur þyrlna í björgun- ar- og eftirlitsflugi hjá Landhelgis- gæslunni farið vaxandi æ síðan. í nóvember 1985 fiaug Páll Hail- dórsson yfírflugstjóri nýrri Dolphin- þyrlu, TF-SIF, til landsins. Páll segir að um það leyti hafí orðið þáttaskil í rekstri Landhelgisgæslunnar. Þá var farið að hafa þyrluáhöfn til reiðu allan sólarhringinn, stjómstöð LHG var sömuleiðis höfð opin allan sólar- hringinn allan ársins hring. í kjölfar- ið bættust læknar frá Borgarspítal- anum í áhöfn þyrlunnar. Slðastliðinn áratug hefur TF-SIF farið í 722 sjúkra-, björgunar- og leitarflug. „í þessum ferðum höfum við flutt 581 einstakling. Þar af er talið að um 150 eigi líf sitt beinlínis að þakka þyrlunni," sagði Páll Hall- dórsson yfirflugstjóri. Við flugdeild LHG starfa nú um 25 starfsmenn. Að sögn Páls yfír- flugstjóra er flugvélum LHG flogið um 1.500 stundir á ári. HÓTEL ORK er eina hótel landsins sem býður fulla þjónustu um jólahátíðina Fjölbreytt jóladagskrá og glaðværar samverustundir. Glæsilegur veislumatur alla dagana. Sértilboð fyrir fjölskyldur og einstaklinga. HÓTEL ÖRK, HVERAGERÐI • SÍMI 483 4700 • BRÉFSÍMI 483 4775

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.