Morgunblaðið - 10.12.1995, Síða 12

Morgunblaðið - 10.12.1995, Síða 12
12 B SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ O Reptil- icusar FYRIR skemmstu kom út hjá hollenska fyrirtækinú Staalplaat breiðskífan 0 með Reptilicus. Reptilicus er skipuð þeim Guðmundi Markússyni og Jóhanni Ei- ríkssyni, en aukamaður við gerð 0 var Andrew Mc- kenzie sem jafnframt sá um upptökur. Guðmundur segir að brátt muni Soleilmoon í Bandaríkjunum einnig gefa diskinn út. Hann segir að heiti diskins feli í sér sitt- hvað. „Það nægir að segja að þessi diskur lokar ákveðnum hring fyrir okk- ur,“ segir Guðmundur og bætir við að helsta einkenni plötunnar sé að hún sé að- gengilegri en það sem Rep- tilicus hefur áður gefið út. Neðan- jarðar- safn DÆGURTÓNLIST Hvað með hestinn? ÚTGÁFA er blómleg nú um stundir, ekki síst fær neðanjarðartónlist að hljóma, því nýútkominn er safndiskur með þessháttar tónum, Strump í fótinn. Útgefandi er Veraldarker- öld, sem hefur áður gefið út safnsnældurnar Strump. Væntanlegur diskur er með nítján lögum tólf ólíkra sveita. „Þetta er það sem verið hefur í gangi bakvið tjöldin," segir útgef- andinn Magnús Axelsson, „Það er svo margt að ger- ast sem ekki kemst upp á yfirborðið." Magnús segist. hafa haft samband við flestar sveit- irnar að fyrra bragði, hann hafi valið úr þær sem hann þekkti til og vissi að væru góðar, „en eftir að þetta spurðist út bárust mér upp- tökur úr ýmsum áttum. Það fór nú mest á diskinn, en eitthvað varð eftir vegna þess að mér fannst það ekki eiga við. Á disknum verða um sjötíu mínútur af tónlist og ég hefði gjaman viljað hafa það meira’. Mér finnst svo skemmti- legt að standa í þessu,“ segir Magnús aðspurður um hvað reki hann áfram, „að reyna að kortleggja það sem er í gangi, að taka skyndimynd af því sem helst er á seyði. Það er allt of lítið um að gefin sé út ný íslensk tónlist. Útgáfa sem þessi þarf ekki að kosta mikið, en hún er bráðnauðsynleg og það er reynaar furðulegt að stóru fyrirtækin skuli ekki sinna þessari tónlist meira.“ Ham snýr afitur VARLA hefpr það farið fram hjá mörgum að hljómsveit- ina geðþekku Ham hefur þrotið örendi, reyndar er all- langt siðan lífi hennar lauk með kveðjutónleikum og tón- leikaplötu í kjölfarið, að ekki sé minnst á mínútu þögn í troðfullri Laugardalshöll í júní á síðasta ári. Þrátt fyrir það er eitthvað lff í líkinu, því fyrir skemmstu kom út diskurinn Dauður hestur sem á eru áður óútgefnar upptök- ur, sem legið hafa í salti í þijú ár. Aplötunni nýju eru lög í enskum búningi sem hljómsveitin tók upp með svissneska upptökustjóran- um Roli Mosimann, þar á meðai tvö lög sem ekki hafa heyrst opinber- lega, aukin- heldur .: sem tvö eru til viðbótar sem hljómsveitin lék sjaldan á tónleikum. Að sögn þeirra Hamliða Siguijóns Kjartanssonar og Óttarrs Proppés er Dauður hestur samfelldasta plata eftir Áma Motthíosson Ham og sú besta hvað varðar hljóm. Siguijón og Óttarr segja að útgáfurnar á plötunni hafi legið óútgefnar og þetta hafi verið „dót sem þurfti að hreinsa upp“. „Við tókum þetta upp fyrir Sódómu Reykjavík,“ segir Siguijón, „tókum fleiri lög en við áttum að taka upp, það voru bara þijú iög á Sódómu-plöJ-unni á ís- lensku, en yið tókum lfka lög á ensku sem átti að nota til að kynna hljóm- sveitina úti.“ „Heims- frægðin kallaði," segir Ótt- arr, „og nú er loksins kom- ið að henni.“ Upptökustjóri á plötunni Morgunblaðið/Ámi Sacbcrg Helmsfrægð Ótarr Proppé og Siguijón Kjartansson. f er svisslendingurinn Roli tónlistarmönnum ytra. Mosimann. sem hefur unn- „Það má segja að Björk ið með mörgum þekktum hafí ýtt okkur af stað, en við höfðum fylgst með hon- um úr ijarlægð nokkuð lengi. Við vissum reyndar að hann hafði verið í ein- hveiju sambandi við Ás- mund Jónsson,“ segir Sig- utjón, „og blaðamann úr Hafnarfirði", skýtur Óttarr inm', en Siguijón heldur áfram: „... og urðum okkur út um sfmanúmerið hans. Við sendum honum Buffalo Virgin, en eftir að hafa heyrt hana hafði hann ekki áhuga á að vinna með okk- ur. Þegar hann aftur á móti heyrði upptökur sem við gerðum fyrir hann í Tónabæ snerist honum hugur. Hann kom svo hing- að til iands þegar komið var að því að taka upp Sódómu og svo aftur ári síðar og tók upp tvö lög til viðbótar.“ Óttarr og Siguijón segj- ast ekki hafa miklar áhyggjur af því þó engin sé hljómsveitin að fylgja plötunni eftir, það hafi gengið ágætlega að selja plötur úti í heimi án þess að hljómsveitin sé starfandi og sumir meðlimir jafnvel dauðir. Þeir segja þó að þetta sé lokaskammtut af hljóðversupptökum Ham. Dauður hestur sé plata sem hefði átt að vera komin út fyrir löngu, því hún sé í raun besta plata hljóm- sveitarinnar, með besta hljóminn og mesta heildin. Meðal andfætlinga ÓSKAR Guðnason þekkja margir, ekki síst fyrir lagið Gamall draumur, sem Bubbi Morthens söng inn á vinsælda- lista. Nú hefur Óskar sent frá sér sólóskífu sem hann hljóð- ritaði meðal andfætlinga. Oskar segist hafa flust til Ástralíu þegar eig- inkona hans fór í nám. Þá var hann búinn að taka My Daydream upp á ensku og langaði að setja enska texta við fleiri lög. „Ég samdi því nokkur lög og setti við þau enska texta með aðstoð Ing- ólfs Steinssonar," segir hann, en þriðji íslendingur- inn, Geir Gunnarsson, sem fluttist til Ástralíu skömmu á eftir Óskari, tók að sér að taka upp og aðstoða við hljóðfæraleik. „Mig vantaði þó söngv- ara,“ segir Óskar, „en þekkti til manns ytra, Louis Shel- don, sem er Baha’i eins og ég, og hefur spilað með til að mynda Seals and Crofts, Art Garfunkel, Lionel Richie og fleiri. Hann hefur búið í Ástralíu síð- ustu tólf ár og á þar hljóðver. Ég hringdi einfaldlega í hann og bað hann um að benda mér á söngvara, og hann sagði mér að hafa engar áhyggj- ur, hann hefði mann fyrir mig og skipti engu í hvaða tóntegund þetta væri, hann gæti sungið fjórar átt- undir. Það stóð heima, þeg- ar við komum í hljóðverið var söngvarinn, sem kallað- ur er The Phamtom á um- slaginu, ekki einu sinni bú- inn að hlusta á lögin eða lesa textana, mætti á stað- inn og söng inn níu lög á átta tímum.“ Óskar seg- ist hafa feng- ið vissan inn- blástur við lag- og texta- gerðina frá kenningum trúarinnar og því er tilvitn- un í Ba- ha’u’llah á umslaginu, „og það á kannski eftir að draga úr umfjöllun, en mér fannst það snúast um það að vera heiðarlegur," segir hann. „Ég hefði aldrei verið maður til að gera þessa plötu ef ég hefði ekki gerst Baha’i.“ _ Morgunblaðið/Kristinn Óskar Guðnason. Eitthvað nýtt MEÐAL þeirra sem láta í sér heyra fyrir þessi jól er hljóm- sveitin Zebra. Fyrsta breið- skifa Zebra er kom út í síð- ustu viku. Zebra er dúett, skipaður Guð- mundi Jónssyni og Jens Hanssyni forðum félögum úr Sálinni, en tónlistin er all frábrugðin því sem menn eiga að venjast af þeim bæ. Guðmundur segir að þeir Jens hafi verið byijaðir að velta þessu sam- starfí fyrir sér þeg- ar Sálin fór í frí 1993. „Mig langaði til að gera eitthvað nýtt,“ segir hann, hveija fleiri með okkur. Það komst þó aldrei af stað en við höfum samt verið að grípa í þetta öðru hvoru og fundum þá að okkur leið bara best að vera tveir í þessu svo ég tók að mér að syngja.“ Tónlistin er að mestu unnin í tölv- um og Guðmundur segist helst hafa viljað byija á slíku fyrir löngu. „Það er svo spennandi að takast á við þetta, því tölvan gefur óendanlega mögu- leika án þess að hljóma lífvana. Þetta er eins spennadi og þegar ég var að byija í bílskúrnum." „ég var eiginlega búinn að fá nóg af þessu hljómsveita- brasi. Ég hafði svo samband við Jenna um haustið og við ákváðum -að gera eitthvað í þessum dúr og vildum fá ein-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.