Morgunblaðið - 10.12.1995, Síða 1
■ c V’
r
GÖTUBÍLATORFÆRA ÍBELGÍU - NÝGERÐINNSPRAUTUN-
AR MARKAR TÍMAMÓT - SNJÓKEÐJUR ÚR PLASTI
- KIA SPORTAGE SJÁLFSKIPTUM REYNSLUEKIÐ
SJOVAOPALMENNAR
JllwgtiiiHaltffc
—4r~-----------
\v
SUNNUDAGUR 10. DESEMBER
r*
1995 BLAÐ KJ
5>
Sölumenn
bifreiðaumboðanna
annast útvegun
lánsins á 15 mínútum
Glitnirhí
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Chrysler Voyager
bíll ársins
hjá Motor Trend
Citroen
kynnir
nýjan
smábíl
CITROÉN setur á markað á næsta
ári í Frakklandi nýjan smábíl,
Saxo, sem er í sama stærðarflokki
og Ford Fiesta, Renault Clio, Fiat
Punto og Opel Corsa. Saxo er því
stærri en AX sem áfram verður
framleiddur. Citroén segir að Saxo
verði mun betur búinn en venja
er til í bílum í þessum stærðar-
flokki. Auk þess verður hægt að
fá í bílinn meiri aukabúnað en
venjulega tíðkast, þ.á.m. ABS-
hemlalæsivörn, vökvastýri, líknar-
belg í stýri og fyrir framsætisfar-
þega, vélarlæsingu, þjófavörn, raf-
drifnar rúðuvindur að framan,
samlæsingu, þokuljós, álfelgur, lit-
að gler og samlita stuðara.
Saxo verður fáanlegur með vél-
um sem skila allt frá 50 til 120
hestöflum og er ætlað að standa
undir væntingum og gæðakröfum
evrópskra kaupenda smábíla, en
stór hluti þeirra er konur og ungir
bílkaupendur.
Saxo verður til sölu í Frakklandi
í febrúar á næsta ári í þriggja
dyra útfærslu. í boði verða fjórar
gerðir bensínvéla, þ.e. 1,0 1, 50
hestafla, 1,1 1, 60 hestafla, 1,4 1,
75 hestafla og 1,6 1, 90 hestafla.
Síðar verður Saxo fáanlegur í
sportútfærslu með nýrri 1,6 1, 16
ventla vél sem skilar 120 hestöfl-
um. Fáir bílar í þessum stærðar-
flokki eru með jafnbreiða vélarlínu
og Saxo.
Síðar verður Saxo einnig fáan-
legur í fimm dyra útfærslu og með
dísilvél og sjálfskiptingu. Dísilvélin
verður 1,5 1, 58 hestafla vél Citroén.
■
MOTOR TREND, eitt virtasta og
útbreiddasta bílatímarit í Banda-
ríkjunum, hefur útnefnt Dodge
Caravan sem bíl ársins 1996 í
Bandaríkjunum. Dodge Caravan er
sjö manna fjölnotabíll og er einnig
framleiddur undir nafninu Chrysler
Voyager.
Verið er að kynna bílinn um þess-
ar mundir á Bandaríkjamarkaði og
er hann væntanlegur til Evrópu eft-
ir áramót. Um er að ræða nýja hönn-
un á Caravan/Voyager en þessi teg-
und bíla hefur verið mjög vinsæl og
sú söluhæsta af fjölnotabílum und-
anfarin ár í Bandaríkjunum. Útnefn-
ing Motor Trend er einnig merkileg
fyrir þær sakir að þetta er í fyrsta
sinn sem tímaritið veitir þessi verð-
laun bíl sem- ekki er hefðbundinn
fólksbíll. Þetta er annað árið í röð
sem Chrysler hlýtur þessi verðlaun
en í fyrra varð það fólksbíllinn
Chrysler Stratus sem hlaut þau.
Fyi-stu Chrysler Voyager bílarnir
eru væntanlegir hingað til lands fyr-
ir jól en það er Jöfur hf. Nýbýlavegi
2 í Kópavogi sem er umboðsaðili
Chrysler á Islandi.
1-6050
Vinnu- og neyöarljós
Ljósker meö tveimur
fluorperum og endur-
hlaöanlegri raíthlööu.
Hœgt er eö kveikja á
einm peru í einu. Krókur
ásamt tengi fyrir
sígarettukveikjara fylgir.
í bátinn, bílskúrinn,
bllinn, snjóslebann,
útilegu, tjaldvagninn og
sumarbústadinn.
ÉJS8§
1-4200
Halogen Ijóskastari
12 volta, 1,5 milljón
kerta „quarts halogen"
pera sem tryggir lengri
endingu. Þrífotur i hand-
fangi og stillanlequr
haus. Ljóskeriö sjálft er
vatns- og hitavanö.
5 metra rafmagnssnúra
fylgir ásamt tengi fyrir
sigarettukveikjara.
/ bátinn, bilinn.og
snjósleöann.
1-7000
Feröarafhlaöa,
12 v endurhlaöanleg
Fjölnota millistikki, tengi
fyrir sígarettukveikjara
fylgir. hyrir útvörj), sam-
skiptabunaö, feroatölvur,
Ijós og margt fleira.
/ bátinn, bílskúrinn,
bílinn, snjóslebann,
útilegu, tjaldvagninn og
sumarbústabinn.
U1101
12 volta loftdæla
Tenai fyrir sigarettu-
kveikjara fylgir. Fyrir dekk,
bolta, gúmmíbáta og allt
sem þarf aö blása upp.
í bátinn, bílskúrinn,
bílinn, snjóslebann,
útilegu, tjaldvagninn og
sumarbústabinn.
259102
2 tonna 2 stk.
öryggisstólar
(2 bukkar)
Samanbrjótanlegir og
taka mjög lítiö pláss.
/ bílinn, bílskúrinn,
snjóslebann, útilegu,
tjaldvagninn og
sumaroústabmn.
1-6070 Vinnuljós
12 Volta fluorvinnuljós
meö 8 watta peru. Tengi
fyrir sígarettukveikjara.
/ bátinn, bílskúrinn,
bílinn og snjóslebann.
3.78B
259362
Hjólatjakkur 1,8
tonn
Mjög lóttur og meö-
fænlegur.
/ bílinn, bllskúrinn,
snjóslebann, útilegu,
tjaldvaaninn og
sumarbústabmn.
BILAHORNHD
varahlulaverslun Hafnarfjarðar
ReykjavlKurvegi 50 • SfMI: 555 1019
®] Stilling
Varahlutaverslun fyrir jólasveina