Morgunblaðið - 13.12.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 13.12.1995, Síða 1
72 SÍÐUR B/C/D 285. TBL. 83. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Serbar í Bosníu slepptu úr haldi frönsku flugmönnunum tveimur Óttast var um líf þeirra allan tímann París, Washington. Reuter. TVEIR franskir flugmenn, sem sleppt var eftir að hafa verið í haldi Bosníu-Serba í þrjá mánuði, komu heim til Frakklands í gær. Var tek- ið á móti þeim sem hetjum og urðu miklir fagnaðarfundir með þeim og ástvinum þeirra. Er það haft eftir rússneskum milligöngumanni, að lif Frakkanna hafi verið í hættu allt fram á síðustu stund. Er nú ekkert í vegi fyrir því, að Dayton-sam- komulagið um frið í Bosníu verði undirritað í París á morgun. Flugmennirnir, Frederic Chiffot og Jose Souvignet, voru heldur óstyrkir á fótunum þegar þeir stigu út úr flugvélinni, sem kom með þá til herflugvallar fyrir vestan París, en þar tóku ástvinir þeirra á móti þeim auk Jacques Chirac, forseta Frakklands. Erfiðar viðræður Haft er eftir rússneskum stjórn- arerindreka, sem tók þátt í samn- Snjór og strendur á undan- haldi Róm. Reuter. INNAN fimmtíu ára kunna sóldýrkendur og skíðamenn að horfa á bak baðströndum við Miðjarðarhaf og skiða- brekkum í Ölpunum. Þetta kemur fram í spá náttúru- verndarsamtakanna World Wide Fund for Nature. Samtökin spá því að eftir eina öld kunni helmingur af jöklum heims að vera horfinn vegna gróðurhúsaáhrifa sem valdi því að meðalhiti hækki um 2 gráður á næstu öld. Sums staðar í svissnesku Ölpunum hefur snjólínan hækkað um 100 metra á fimmtán árum. Paolo Lomb- ardi, starfsmaður samtak- anna, segir að þar verði nú mestar breytingar á veður- fari. Hækki snjólínan úr 1.200 metrum í 1.500 metra hæð, stefni það þekktum skíðastöðum á borð við Val d’Isere og Courchaval í hættu. Þá geta gróðurhúsaáhrifin reynst áhrifarík við Mið- jarðarhaf, að sögn Lombar- dis. „Sandstrendur kunna að hverfa. Við Miðjarðarhaf hef- ur gengið nokkuð á um þriðj- ung strandlengjunnar." ingum um frelsi flugmannanna, að þeir hefðu verið á valdi hóps, sem ekki hlýddi í einu og öllu fyrirmæl- um frá forystumönnum Bosníu- Serba. Sagði hann, að samningavið- ræður hefðu verið erfiðar og óttast hefði verið um líf þeirra allt fram á síðasta dag. Chirac, forseti Frakklands, þakk- aði i gær Slobodan Milosevic, for- séta .Serbíu, og Borís Jeltsín, for- seta Rússlands, fyrir þeirra þátt í frelsi flugmannanna. Orrustuflugvél Frakkanna, Mirage 2000, var skotin niður 30. ágúst í loftárás NATO-flugvéla á stöðvar Bosníu-Serba. Voru Frakkarnir hafðir aðskildir í hálfan annan mánuð. Þeim var síðan sleppt við bæinn Zvornik á landamærum Bosníu og Serbíu. Neita leynisamningum Franska stjórnin neitaði í gær, að nokkrir samningar hefðu verið Reuter FRÖNSKU flugmönnunum, Jose Souvignet og Frederic Chiffot, var innilega fagnað við komuna til Parísar. Hér faðmar Souvign- et konu sína, Isabelle, en lengst af vissi hún ekki hvort hann væri lífs eða liðinn. gerðir á laun til að tryggja frelsi flugmannanna en getgátur voru um, að Bosníu-Serbar ætluðu sér að nota þá sem skiptimynt í nýjum samningum um stöðu Serba í Sarajevo. Fréttaskýrendur segja, að aðalástæðan fyrir því að þeim var sleppt hafi verið ótti Milosevics, forseta Serbíu, við hertar refsiað- gerðir. Finnland Einka- leyfi póstsins afnumið Helsinki. Reuter. STJÓRNVÖLD í Finnlandi hafa failist á áætlun um að afnema einkaleyfi póstsins á póstdreifingu, þ.e.a.s. útburði bréfa undir tveimur kg á þyngd. Samgönguráðuneytið hefur samþykkt áætlunina og í febr- úar á að vera ljóst hvernig núgildandi lögum verður breytt, að sögn Lisu Ero, ráð- gjafa ráðuneytisins. Pósturinn áfram Pósturinn verður rekinn áfram en hér eftir verður einkafyrirtækjum heimilt að annast þessa þjónustu líka fyrir þá, sem það vilja. Má nefna sem dæmi, að nokkur fyrirtæki hafa í sameiningu óskað eftir að fá að taka þátt í bréfaútburði til fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu. Ero sagði, að Finnland og Svíþjóð væru komin lengst Evrópuríkja í að auka frelsi á þessu sviði póstdreifingar. íMNt Reuter FRÁ mótmælagöngunni í París í gær, hinni mestu í borginni frá uppreisn námsmanna og verkamanna árið 1968. Juppe hvikar ekki þrátt fyrir verkföll Hundruð þús- unda mótmæla París. Reuter. HUNDRUÐ þúsunda Frakka gengu í gær um götur stærstu borga Frakk- lands til að mótmæla áformum stjórnar Alains Juppe forsætisráð- herra um mesta niðurskurð á velferð- arkerfinu í 50 ár. Samtök verkamanna í þjónustu hins opinbera, Force Ouvriere, sögðu að 1,7 til tvær milljónir manna hefðu tekið þátt í mótmælagöngunum víða um landið i gær, en embættismena innanríkisráðuneytisins töluðu um 500.000 til ein milljón manns. Áður hafði Juppe sagt að stjórnin myndi segja af sér ef tvær milljónir manna tækju þátt í slíkum götumótmælum. Stærs'ta stéttarfélag lestastarfs- manna ákvað að þalda áfram verk- falli í a.m.k. tvo daga til að krefjast þess að stjórnin félli frá áformum um að fækka starfsmönnum. Vantrauststillaga, sem stjórnar- andstaðan bar fram á stjórnina, var felld á þingi í gær með miklum mun. Vígreifur fjöldi/20 Vandi lífeyrissjóðakerfisins Verður Chile fyrirmyndin? London. Reuter. ÓHÁÐA lífeyrissjóðakerfíð í Chile, uppsöfnunarkerfi sem byggt hefur upp mikla, innlenda sjóði á aðeins 15 árum, er farið að vekja æ meiri athygli, meðal annars í ýmsum Evrópuríkjum. í nýrri skýrslu frá Adam Smith-stofnuninni í Bretlandi er lagt til að hugað sé að þessu kerfi þaræn í henni Segir einnig, að ljölgun fólks í efstu aldursflokkunum sé að sliga breska velferðarkerfið. í Chile var kerfið tekið upp 1981 og síðan hefur það safnað í sjóði 1.626 milljörðum ísl. kr. og árlegur vöxtur þess er um 130 milljarðar kr. Á síðasta áratug jókst sparnað- ur í Chile til jafnaðar um 15% á ári, á árunum eftir 1990 var aukn- ingin allt að 27% og 30% á þessu ári. Óháða lífeyrissjóðakerfið, sem lýtur opinberu eftirliti, svarar nú til helmings alls sparnaðar í land- inu. Sagt er að þessi mikli, innlendi sparnaður hafi hlíft Chile við slæm- um afleiðingum mikilla hræringa á alþjóðlegum fjármagnsmarkaði eins og gerðist í Mexíkó. Stefnir í gjaldþrot í skýrslu Adam Smith-stofn- unarinnar segir, að um 2030 verði einn eftirlaunaþegi í Bret- landi á hveija 2,4 vinnandi menn og nú þegar um aldamótin verði útgjöld tryggingakerfisins kom- in í rúma 9.300 milljarða kr. Þau . verði ekki greidd nema með því að .hækka skatta, sem aftur hefði alvarleg áhrif á efnahagslífið. Eamonn Butler, einn höfunda skýrslunnar, segist ekki vera í nein- um vafa um að taka eigi kerfíð í Chile til fyrirmyndar í Bretlandi eins og þegar hafi verið gert í ýmsum Suður-Ameríkuríkjum. Nefnd á vegum breska Verka- mannaflokksins hefur einnig verið að skoða þetta kerfi og álit tveggja bandarískra stofnana sem vilja að það verði tekið upp í Bandaríkjun- um. Chilíska kerfið er einnig til skoð- unar á Italíu, Spáni, Hollandi og í Suður-Afríku. Skylduaðild í Chile ber öllum skylda til að greiða í einhvern lífeyrissjóð og er lágmarksiðgjald 10% af tekj- um en hámark 20% og fylgir því nokkur skattafsláttur. Geta menn skipt urn sjóði að vild án þess að réttindi þeirra skerðist og þegar komið er á eftirlauna- aldur ráða menn sjálfir eftirlaun- unum innan þeirra marka, sem þeir hafa áunnið sér.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.