Morgunblaðið - 13.12.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
*8g
m
ði'gnnitlaítib
1995
MIDVIKUDAGUR 13. DESEMBER
BLAD
KNATTSPYRNA / DRATTUR I HM 1998 l FRAKKLANDI
írar og
Rúmenar
bjartsýnir
JACK Charlton, þjálfari
íra, var ánægður með að
vera í áttunda riðli. „Rúm-
enía er eina liðið í riðlinum
sem við getum sagt að sé
mjög gott, en ég held samt
að margir af lykilmönnum
liðsins séu komnir á seinni
hluta blómaskeiðs síns.“
Angel Iordanescu, þjálf-
ari Rúmena, var einnig
mjög ánægður. „Það eru
bara tvö lið í þessum riðli,
við og Irar. Við hlökkum
til því við töpuðum fyrir
írum í vítasyrnukeppni í
HM 1990 og viljum hefna
þeirra ófara,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Sigmundur
ÍSLEIMSKIR landsllðsmenn í knattspyrnu munu standa í ströngu næstu tvö
árin því ísland lenti í sex liða rlAli í undankeppni Evrópukeppninnar, en dreg-
iA var í riAla í gær. í riAli islands, 8-riAII, eru Rúmenía, írland, Lltháen, Make-
dónía og Liechtenstein. Hér má sjá nokkra íslenska leikmenn fyrir leikinn
gegn Ungverjum í haust, en þelr eru frá vlnstrl Hlynur Stefánsson, Krlstján
Jónsson, DaAi Dervlc, Eyjólfur Sverrisson, Arnór GuAjohnsen, Birkir Kristins-
son og Einar Þór Daníelsson.
Tveir nýliðar með
til Grænlands
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálfari í handknatt-
leik, valdi í gærkvöldi 12 manna landsliðshóp til
að leika tvo landsleiki við Grænlendinga um helg-
ina. Tveir leikmenn í hópnum hafa ekki leikið A-
landsleik, en það eru þeh* Davíð Ólafsson úr Val
og Njörður Árnason úr ÍR. Annars verður landslið-
ið þannig skipað að markverðir verða Bergsveinn
Bergsveinsson úr Aftureldingu og Bjarni Frostason
úr Haukum og aðrir Ieikmenn þeir Olafur Stefáns-
son, Val, Róbert Sighvatsson, Aftureldingu, D;igur
Sigurðsson, Val, Halldór Ingólfsson, Haukum, Leó
Örn Þorleifsson, KA, Ingi Rafn Jónsson, Val, Gunn-
ar Andrésson, Aftureldingu og Aron Kiistjánsson,
Haukum, auk þeirra Davíðs og Njarðar.
Hópurinn heldur til Grænlands á föstudag og
verður leikið í Nuuk á föstudag og laugardag. Is-
lenska landsliðið hefur einu sinni áður leikið í
Nuuk, árið 1990 gegn Dönum, en þetta er í fyrsta
sinn sem leikinn er landsleikur i handknattleik við
Grænlendinga. „Ég veit ekkert um grænlenska lið-
ið en veit þó að þeir hafa undirbúið sig þó nokkuð
fyrir þetta og ég hef heyrt að danski landsliðsþjálf-
arinn komi tíl að stjórna liðiuu, en ég veit ekki
hvort það er rétt,“ sagði Þorbjöm í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Ellert eftirlits-
rnaður á Evrópuleik
íra og Hollendinga
ELLERT B. Schram, forseti íþróttasambands ís-
lands, verður eftiríitsmaður með Evrópuleik ír-
lands og Hollands sem fer fram á Anfield Road,
heimavelli Liverpool, í kvöld. Um er að ræða auka-
leik um 16. og síðasta sætið í úrslitakeppninni sem
verður í Englandi á næsta ári. Talið er að hver
leikmaður Ira fái sem samsvarar fimm milljónum
í aukagreiðslu fyrir sigiu- en leikmenn Hollands
um 10 miHjónir og áætlað er að stuðningsmenn íi'a
verði þrisvar sinnum fleiri en stuðningsmenn Hol-
lendinga. Sérstök öryggisgæsla verður á leiknum,
200 lögregluþjónar verða að störfum innan vallar
eða helmingi 11601 en venjulega á deUdarleikjum.
Þetta er mikUvægasti leikur I Liverpool síðan 1977
þegar Skotland og Wales léku þar um sæti í HM
1978.
írar gætu fjölmennt
til Reykjavíkur
ÍRSKIR stuðningsmenn eru taldir þeir skemmtUeg-
ustu í heimi — geysilega áhugasamir og láta ekk-
ert stöðva sig, þegar mikið liggur við. Þegar írar
Iéku mjög þýðingarmikinn leik á Möltu í undan-
keppni HM á Ítalíu 1990, fóru 6000 stuðningsmenn
tU Möltu tíl að styðja við bakið á sínum mönnum.
Stuðningsmennimir notuðu tækifærið og gistu í
viku á Möltu — þeir komu færandi hendi fyrir
eyjaskeggja, Irar færðu þeim 300 millj. ísl. kr. f
gjaldeyristekjur. Á þessu sést, að ef leikur íslands
og íriands í Reykjavík verður þýðingarmikiU fyrir
Ira, má búast við miklum fjölda íra tU Reykjavíkur
og þarf þá stærri írska krá í Reykjavík en Dubliner.
Ágætt, þar til Rúmenía
bættist í hópinn
Islendingar leika í 8. riðli í undan-
keppni Heimsmeistarakeppn-
innar í knattspyrnu, en dregið
var í París í gærkvöldi. Island var
í fjórða styrkleikaflokki og Liecht-
enstein og Makedónía höfðu þegar
verið dregin í 8. riðil þegar Island
var dregið. Næst í okkar riðil var
Litháen, þá írland og þegar liðin
úr fyrsta styrkleikaflokki voru
dregin varð bið á að einhver kæmi
í 8. riðilinn. Það voru aðeins Svíar
og Rúmenar eftir þegar ljóst var
að Rúmenar yrðu í okkar riðli.
Og var nú þokkalega ánægður
með hvernig þetta dróst - eða þar
til Rúmenía bættist í hópinn," sagði
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari í
knattspyrnu í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi, en hann var
viðstaddur þegar dregið var í riðla
í gær ásamt Eggerti Magnússyni,
formanni KSÍ, og Snorra Finn-
laugssyni, framkvæmdastjóra KSÍ.
„Til að líta á þjörtu hliðarnar
þá hefðum við hæglega getað orð-
ið óheppnari og lent á móti ein-
hveijum nýju ríkjunum í fyrrum
Sovétríkjunum, og það vildum við
alls ekki. Þrátt fyrir að þetta virð-
ist ef til vill ekki vera rosalega
sterk lið svona við fyrstu sýn, þá
eru þarna lið sem hafa verið að
leika vel. Litháar voru með ítölum
og Króötum í riðli í Evrópukeppn-
inni og stóðu sig vel þar, Irar hafa
komist í úrslitakeppni HM síðustu
tvö skiptin og Rúmenar hafa verið
lengi í fremstu röð.
A góðum degi held ég samt að
við ættum að geta náð góðum úr-
slitum. Það er alltaf möguleiki og
auðvitað ætlum við í þessa keppni
til að reyna að ná eins langt og
mögulegt er,“ sagði Logi og bætti
því við að ef til vill væri gott fyrir
okkur ef írar kæmust í úrslita-
keppni EM, með því að vinna Hol-
lendinga í dag. „Það væri fínt að
fá þá heim í haust eftir úrslita-
keppni Evrópukeppninnar, þá held
ég að við gætum átt góða mögu-
leika gegn þeim.“
■ Drátturinn / B2,B3
HANDKNATTLEIKUR: LEIKIR11S-LIÐA URSLITUM BIKARSINSIKVOLD / B4