Morgunblaðið - 13.12.1995, Page 4
Lára Hrund
og Halldóra
á pall
LÁRA Hrund Bjargardóttir
og Halldóra Þorgeirsdóttir
unnu til bronsverðlauna á
Norðurlandamóti unglinga
sem lauk í Kaupmannahöfn á
sunnudaginn. Lára Hrund
varð þriðja í 200 metra skrið-
sundi, synti á 2.09,90 mín. og
einnig þriðja í 200 nietra fjór-
sundi á 2.26,83 min. Halldóra
lenti í þriðja sæti í 200 metra
bringusundi, synti á 2.44,36
mín.
Keflavík og
UMFN í
úrslit
KEFLAVÍK og Njarðvík
tryggðu sér í gær rétt til að
leika í undanúrslitum í bikar-
keppni kvenna í körfuknatt-
leik og þar leika einnig lið
ÍS og Ht. Njarvíkurstúlkur
sigruðu Val að Hliðarenda,
58:37, og I Grindavík sigraði
Keflavfk, 79:54.
Sigurjón
keppti í
Flórída
SIGURJÓN Arnarsson, kylf-
ingur úr GR, keppti nýlega á
tveimur mótum á Tommy
Armour mótaröðinni í
Flórída. Fyrst á þriggja daga
móti á Ridgewood Lakes vell-
inum. Hann lék fyrstu tvo
dagana á 76 höggum en síð-
asta daginn á pari, 72 högg-
um. Á laugardaginn keppti
hann síðan á eins dags móti
á Mission Inn vellinum og lék
á pari, eða 72 höggum, en
SSS vallarins er 73. Sigruijón
hafnaði í 22. sæti af 74 kepp-
endum.
Thompson í
óvenjulegri
viðbragðs-
stöðu
DALEY Thompson, ólympíu-
meistari í tugþraut á
Ólympiuleikunum í Moskvu
1980 og í Los Angeles 1984,
er í startholunum en að þessu
sinni ekki i frjálsum heldur
í knattspyrnu. Hann hefur
æft með 3. deildar liði Mans-
field að undanförnu, lék með
varaliðinu sl. mánudag og
skoraði í 3:1 tapleik en sér
fram á að fá fyrsta leik sinn
með aðalliðinu á laugardag.
„Daley skoraði og lék vel,“
sagði Keith Alexander, að-
stoðarþjálfari. „Hann hefur
góða tækni, skallar vel og
hraðinn er greinilega í lagi.
Hann er 38 ára og þvi kæmi
mér á óvart ef hann ætti
langa framtíð fyrir sér í bolt-
anum en það er ekki þar með
sagt að hann verði ekki í
byrjunarliðinu gegn Cardiff
á laugardag. Vegna meiðsla
voru 11 á æfingu áþri^judag
og Daley var einn þeirra."
Hann bætti við að erfið dag-
skrá væri hjá liðinu yfir jólin
og þá gæti Daley komið til
hjálpar. „Ef hann væri 20
árum yngri vildu öll lið gera
samning við hann.“
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari spáir í bikarleiki kvöldsins
Hefð og heima-
völlur hafa mjög
mikið að segja
Byggðu höll á 202 dögum
Fimm leikir í 16 liða úrslitum bik-
arkeppni karla í handknattleik
fara fram í kvöld. Þorbjörn Jensson
landsliðsþjálfari sagði við Morgun-
blaðið í gær aðspurður um viðureign-
ir kvöldsins að Víkingur ætti að sigra
Gróttu B og sama ætti við um Þór
Akureyri gegn Breiðabliki en von
væri á meiri baráttu í hinum þremur
leikjunum.
FH aldrei sigrað að Hlíðarenda
Valsmenn taka á móti FH-ingum
og sagði Þorbjöm að miðað við leiki
Iiðanna að undanfömu væru líkumar
Valsmegin. „Hins vegar er annað
viðhorf { bikarleikjum og meira tek-
ist á í þeim en FH hefur aldrei unn-
ið Val að Hlíðarenda. Valsmenn
mega samt vara sig á að afskrifa
FH-inga þó þeir hafi verið að spila
■s illa því FH er samansett af reyndum
leikmönnum sem vita hvað þarf að
leggja á sig til að sigra.“
Selfyssingar taka á móti Aftureld-
ingu sem hefur aldrei sigrað á Sel-
fossi en Þorbjöm hallast að sigri
gestanna. „Selfoss sigraði síðast í
miklum baráttuleik í deildinni en þó
ekki hafi gengið mjög vel hjá Aftur-
eldingu í deildinni og leikmenn ekki
verið nógu baráttuglaðir hallast ég
að því að liðið sigri. Afturelding er
líka sterkara á pappírnum en liðið
þarf að yfirvinna þann ótta að hafa
ekki sigrað á Selfossi. Hins vegar
er Selfoss erfítt heim að sækja og
síðast þegar liðin mættust fengu
heimamenn rosalegan stuðning frá
áhorfendum. Hann verður ekki
minni núna.“
HK sigrar heima
Fram sækir HK heim og sagðist
Þorbjöm gera ráð fyrir sigri Kópa-
vogsmanna.
„Fram kpm á óvart í 32 liða úrslit-
um og sló ÍR út en HK hefur geng-
ið mjög vel í deildinni og sigrað
meira sannfærandi en Fram. Heima-
völlurinn hefur mikið að segja og
því trúi ég að HK sigri.“
Víkingur B og IBV leika á laug-
ardag en bikarmeistarar KA og
Völsungur hafa þegar tryggt sér
sæti í átta liða úrslitum.
Morgunblaðið/Þorkell
HÁLFDÁN Þórðarson og félagar í FH mæta Valsmönnum aö
Hlíðarenda í kvöld í 16-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ.
plióíPigivwMaíítíi
AUSTURRÍKISMENN byggðu
nýja og glæsilega íþróttahöll í
Vín á 202 dögum. Höllin, sem
tekur 5.000 áhorfendur í sæti,
var sérstaklega byggð fyrir HM
kvenna í handknattleik sem nú
stendur þar yfir. Keppnin fer
reyndar að hluta til fram í Ung-
veijalandi.
Að sögn Helgu Magnúsdóttur,
fyrrum stjórnarmanns HSI sem
nú er í Austurríki til að fylgjast
með keppninni, hefur mótshaldið
gengið nokkuð vel. „Það eru all-
ir mjög ánægðir með fyrirkomu-
lagið hér í Austurríki, en það
hefur verið erfiðleikum háð að
fara yfir til Ungveijalands.
Þangað er um fjögurra tíma
akstur og oft hafa keppnisliðin
þurft að bíða á landamærunum
eftir að fá að fara i gegn. Það
hefur einnig verið erfitt að ná
símasambandi við Ungveijaland
og því berast úrslit leikja sem
fara þar fram mjög seint og illa.
Eins hefur snjóað hér síðustu
daga og veldur það enn frekari
^ töfum á umferðinni yfir landa-
mærin,“ sagði Helga.
Leikir í 16-liða úrslitum fóru
fram í gærkvöldi og þá ljóst
hvaða lið leika í 8-liða úrslitum
á morgun. Austurríki - Danmörk,
Þýskaland - Suður-Kórea, Nor-
egur - Rúmenía og Ungveijaland
- Rússland eða Úkranía.
■ Úrslit / B2
NORSKA kvennalandsllðið í handknattleik stendur sig vel á HM í Austurríki og er komlð í
8-liða úrslit þar sem þær mæta Rúmeníu á morgun. Hér er það Hege Kuitsand sem skorar í
leik gegn Slóvakíu í 16-liða úrslitum sem fram fór í gær.
Norðmenn standa sig
Reuter
HANDKNATTLEIKUR