Morgunblaðið - 19.12.1995, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Leikdagarnir í riðlunum:
8. júní: England - Sviss London
9. júni: 9. júní: 9. júní: Spánn • Búlgaría Þýskaland ■ Tékkland Danmörk ■ Portúgal Leeds Manchester Sheffield
10. júní: 10. júní: Holland - Skotland Rúmenía ■ Frakkland Birmingham Newcaslle
11. júní: 11. júní: Ítalía - Rússiand Tyrkland - Króatía Liverpool Nottingham
13. júní: 13. júní: Sviss - Holland Búlgaría - Rúmenía Birmingham Newcastle
14. júní: 14. júní: Tékkland - Ítalía Portúgal - Tyrkland Liverpool Nottingham
15. júní: 15. júní: Skotland - England Frakkland - Spánn London Leeds
16. júní: 16. júní: Rússland - Þýskaland Króatía- Danmörk Manchester Shettield
18. júní: 18. júní: 18. júní: 18. júní: Skotland- Sviss Frakkland • Búlgaría Holland - England Rúmenía • Spánn Birmingham Newcastle London Leeds
19. júní: 19. júní: 19. júní: 19. júní: Rússland - Tékkland Króatía - Portúgal Ítalía - Þýskaland Tyrkland - Danmörk Liverpool Nottingham Manchester Sheffield
Evrópu
í Engl
B-riðiil:
Búlgaría
Frakkland
Rúmenía
Spánn
C-riðill:
Ítalía
Rússland
Tékkland
Þýskaland
A-riðill:
England
Holland
Skotland
Sviss
Tvö efstu lið úr
hverjum riðli
komast í... /
8 liða úrsli
1B-2A Liverpool 22. jfiní-i —----
2C-1D Birmingham 23. júní-^Manchester 26. júní-i
3 hWembley 30.ium
2B-1A London 22. jum -|_ London 26. júní-1
Undanúrslit:
Úrslitaleikur:
1C-2D Manchester 23. júní
]-
■ VICKY Wilmore tíu ára gömul
stúlka í Englandi og mikill stuðn-
ingsmaður Manchester United
læknaðist á undraverðan hátt á
dögunum. Fyrir ári síðan fór hún
allt í einu að lesa og skrifa afturá-
bak og læknar gátu ekki fundið út
hvers vegna.
■ ÞEGAR uppáhalds liðið hennar,
Manchester United gerði 2:2 jafn-
tefli við Rotor Volgograd í UEFA-
keppninni í september fylgdist hún
með leiknum í sjónvarpi. Hún varð
vonsvikiin með jafnteflið því það
dugði liðinu ekki til að komast
áfram. Hún kastaði sér aftur á bak
í stólnum sem féll og hún rak höfuð-
ið í borð. Daginn eftir fór hún í
skólann eins og venjulega en nú las
hún og skrifaði eðlilega.
■ KEN Merrett sem sæti á í stjórn
United sagðist ánægður með að
eitthvað gott hafi leitt af tappi liðs-
ins. „Þetta var slæmur dagur hjá
félaginu en það er ánægjulegt að
eitthvað gott hlaust af tapi okkar,"
sagði hann.
■ GEORGE McCloude leikmaður
Dallas í NBA-deildinni í Banda-
ríkjunum setti met um helgina
þegar hann gerði 8 þriggja stiga
körfur í síðari hálfleik í tapleik gegn
Phoenix.
■ McCLOUDE jafnaði jafnframt
met Joe Dumars og Brian Shaw
toóm
FOLK
með því að gera alls 10 þriggja
stiga körfur í leiknum.
■ JACK O'Donnell reyndasti
dómarinn í NBA-deildinni er hætt-
ur. Hann hafði ákveðið það fyrir
nokkru en beið með að tilkynna
ákvörðun sína þar til dómaraverk-
fallinu lauk. O’Donnell hafði dæmt
í 28 ár í deildinni og ásætæða þess
að hann hættir er að hann rak
Clyde Drexler útaf með tvær
tæknivillur í fyrsta úrslitaleik Hou-
ston og Orlando í vor. Stjórnendur
deildarinnar vilja ekki að stjörnurn-
ar séu reknar af velli og allra síst
í úrslitaleikjum og sögðu að
O’DonnelI fengi ekki fleiri leiki í
úrslitum. Hann ákvað því að hætta
og sjá nú forráðamenn deildarinnar
mjög eftir orðum sínum.
■ WASHINGTON Bullets mun
breyta um nafn fyrir næsta leik-
tímabil. Eigandi liðsins var persónu-
legur vinur Izthaks Rabins fyrrum
forsætisráðherra ísraels og var við-
staddur útför hans. Nú vill hann
taka út Bullets (sem þýðir byssu-
kúla) og ætlar að efna til hug-
myndasamkeppni um nýtt nafn.
Ástæðan er tvíþætt; morðið á Rab-
in, sem skotinn var til bana á dög-
unum, og há tíðni morða í Washing-
ton.
■ GRAEME Le Saux, landsliðs-
bakvörður Englands, mun ekki
geta leikið. í EM næsta sumar.
Hann varð fyrir því óhappi að fót-
brotna illa á hægri fæti í leik með
Blackburn gegn Middlesbrough
um helgina.
■ TERRY Venables, landsliðsein-
valdur Englands, sagði að meiðsli
Le Saux væru mikil blóðtaka fyrir
enska landsliðið.
■ EFTIR leiki helgarinnar er
Newcastle efst á blaði hjá veðbönk-
um í London yfir væntanlega Eng-
landsmeistara. Newcastle er með
4-9, Man. Utd. er með 3-1 og í
þriðja sæti kemur Liverpool með
6-1, en var með 8-1 fyrir leik sinn
gegn United.
■ FRANSKI knattspyrnumaður-
inn Basile Boli sagði í gær, að
hann hætti að leika með Mónakó
í janúar, til að ganga til liðs við
Red Diamonds í Japan. Boli er
28 ára og hefur leikið 45 landsleiki
fyrir Frakkland.
DO-RE-
Litlu krakkarnir í Do-Re-MÍ
tónskólanum skemmtu gest-
um með hljóðfæraleik og söng 1
Neskirkju á dögunum og endur-
tóku leikinn fyrir gamla fólkið á
Elliheimilinu Grund í liðinni viku.
Þeir sýndu það sem æft hefur
verið síðan í haust, jafn-
vel lengur í sumum til-
fellum, og verðuf að
segjast eins og er að
frammistaða þeirra,
hvo’rt sem það var á
píanó, þverflautu, fiðlu
eða gítar, var i einu
orði sagt frábær. Að ógleymdum
söngnum. Sumir voru tauga-
óstyrkir og fóru út af laginu en
það kom ekki að sök því hitt lag-
ið var ekki síðra. Allir reyndu að
gera sitt besta og gleðin skein
úr hveiju andliti. Þetta var sann-
kölluð menning, þetta var sport.
Krakkar eru móttækilegir fyrir
öllu og þeir geta allt, hver á sínu
sviði. Þess vegna er aðalatriðið
að þeir séu með í einhverju upp-
byggilegu og umfram allt
skemmtilegu en engu skiptir
hvort um er að ræða frjálsan leik,
föndur, söng, hljóðfæraleik, dans,
fimleika, sund, fijálsíþróttir,
knattspyrnu, handknattleik eða
körfuknattleik svo dæmi séu tek-
in. Eins hefur ekkert að segja
hvort barnið sé best í hópnum eða
ekki en mergurinn málsins er að
það hafi gaman af því sem það
er að gera. Það er reyndar grund-
vallaratriði í öltu þvi sem einstakl-
ingurinn tekur sér fyrir hendur.
Þegar tii lengri tíma er litið verð-
ur viöfangsefnið ávallt auðveldara
viðfangs þegar fólk gengur glatt
til starfans og viðheldur ánægj-
unni hvað sem á gengur.
Þetta getur reynst erfitt þegar
út í hinn harða heim íþróttanna
er komið. Það er ekki öilum gefið
að standast álagið sem því fylgir
og enginn utanaðkomandi getur
ætlast til þess að Pétur eða Páll
sé í fremstu röð. Það er fyrst og
fremst undir þeim sjáifum komið.
íslendingar hafa ekki átt
marga afreksíþróttamenn. Mun
fleiri hafa talið sig í þeim hópi
og brjóst þeirra hefur breikkað
við það eitt að vera í félagsliði
að ekki sé talað um úrvalslið eða
landslið á einhveiju stigi. Hins
íþróttafolki sem öðr-
um vænlegast að velja
verkefni við hæfi
vegar komast þeir, sem dvelja um
of í eigin hugarheimi, fyrr en
seinna að því að þeir eru ekki
eins góðir og þeir héldu. Efnilegir
krakkar eru í öllum greinum en
það er langur vegur frá því að
teljast efnilegur í það að vera
góður. Árangur f alþjóða keppni
í nánast hvaða grein sem er talar
sínu máli.
Reyndur, íslenskur íþróttamað-
ur sagði undirrituðum í heyranda
hljóði fyrir skömmu að hann hefði
ekki lagt sig allan fram á tímabil-
inu og sömu sögu væri að segja
af flestum ef ekki öllum samheij-
unum. Þeir hefðu brugðist félagi
sínu, stuðningsmönnunum, sjáíf-
um sér. Er spurt var um ástæð-
una var fátt um svör en viðmæl-
andinn ætlaði að taka sér tak.
Öllum er hollt að staldra við
af og tii og meta stöðuna. Allir
geta bætt sig, gert betur, en hver
og einn verður að svara því hvort
hann sé tilbúinn að leggja á sig
það mikla erfiði sem því fylgir að
komast í fremstu röð, hvort hann
eigi raunhæfa möguleika á að
vera á meðal þeirra bestu. Ef nið-
urstaðan er neikvæð er samt
óþarfi að örvænta, því allir geta
fundið sér eitthvað við hæfi og
sama er hvemig að menningunni
er komið. Do, re, mí getur vissu-
lega hentað fleirí en þeim yngstu.
Það er sport.
Steinþór
Guðbjartsson
Átti KR-ingurinn ÓSKAR KRISTJÁNSSOIM ekki að vera hætturíkörfubolta?
Held að okkar
tími sé kominn
ÓSKAR Kristjánsson leikmaður meistaraflokksliðs KR hefur
verið að sækja í sig veðrið í undanförnum leikjum. Óskar er
elnnig þjálfari kvennaliðs KR sem er efst í 1. deild kvenna ásamt
íslandsmeisturum Breiðabliks.
OSKAR er fæddur í Lúxemborg
25. febrúar 1972 og bjó þar
til 16 ára aldurs er hann flutti til
_■■■■ ísiands. Óskar
Eftir byijaði í körfu-
/Var knattleik 6 ára
Benediktsson gamall og lék með
ungmennaliðum í Lúxemborg með-
an hann bjó þar. Hann er ólofaður
nemandi við Háskóla íslands þar
sem hann er á öðru ári í þýsku.
Að undanskildum einum vetri er
hann var skiptinemi í Bandaríkjun-
um iék hann með KR frá því hann
kom frá Lúxemborg allt til ársins
1992 er hann fann fyrir verkjum
í baki. Þá fékk hann þann úrskurð
frá læknum að hann léki aldrei
körfubolta framar vegna liðagigtar
í baki. Þá ákvað hann að snúa sér
að þjálfun og byijaði í yngri flokk-
unum en í fyrra tók hann við
kvennaliði KR. En átti hann von á
því að vera í baráttunni við Breiða-
biik í kvennaboltanum?
„Þegar farið var af stað í haust
settum við okkur það markmið að
vinna bæði deild og bikar. Því mið-
ur féílum við úr leik í 16 liða úrslit-
um bikarkeppninnar. Við erum með
gríðarlega sterkt fimm manna
byijunarlið og útlendingurinn okk-
ar er að koma til. Síðan er fullt
af ungum stelpum á uppleið og
framtíðin björt. Svo árangurinn
hefur ekki komið mér á óvart.”
Á hvað hefur þú lagi áherslu?
„Eg hef lagt megináherslu á að
þær ieiki almennilega vörn. Það er
það sem ég er bestur í sjálfur og
því kannski eðlilegt að maður leggi
áherslu á það í þjálfun einnig. Það
hefur tekist að leika góða vörn og
til dæmis í lekjunum gegn Breiða-
bliki og Keflavík tókst að naida
þeim í fimmtíu og sjö stigum. Það
er alveg ljóst að það lið sem spilar
bestu vörnina vinnur Isiandsmótið
og við erum að leika bestu vörnina
eins og mál standa í dag.“
Þið stefnið á titilinn í vor?
„Keflavík hefur verið með besta
liðið undanfarin ár og Blikastúlkur
voru bestar í fyrra með eina útlend-
Morgunblaðið/Ásdís
ÓSKAR Kristjánsson ætti ekki að geta leiklð körfuknattleik
vegna meiðsla en er þó á fullu með KR og þjálfar stúlkurnar.
inginn í deildinni. Nú held ég að
okkar tími sé kominn."
Er kvennakarfan í framför?
„Kvennakörfuboltinn hefur
batnað mikið og er orðinn mjög
skemmtilegur. Nú eru stelpurnar
farnar að gera marga fallega hluti
og breiddin er að aukast. Það hef-
ur tvímælalaust gert gott að fá
útlendinga ti! liðanna."
Að þér sjálfum, hvernig stendur
á því að þú ert farinn að æfa og
spila að nýju eftir að hafa verið
dæmdur úr leik af læknum með
liðagigt í baki fyrir þremur árum?
„Eg var á sterkum lyfjum, en
hætti að taka þau og fór til Banda-
ríkjanna sumarið 1994 og var í
miklum hita í þijá mánuði og það
gerði mér gott. Síðan var ég aðeins
með í fyrravetur. í sumar tók ég
ákvörðun um að hella mér út í
æfingar á ný. Nú er komið eitt og
hálft ár síðan ég hætti að taka
lyfin og ég finn ekki fyrir neinu
en mér var sagt á sínum tíma að
sjúkdómurinn gæti tekið sig upp
að nýju innan árs.“
Ertu sáttur við árangur ykkar í
karlaliðinu í vetur?
„Við höfum kiúðrað nokkrum
leikjum það sem af er. Það eru
ungir strákar í liðinu og við ætlum
að nýta jólafríið vei og koma vel
undirbúnir eftir áramót. Við erum
komnir í undanúrslit bikarkeppn-
innar og ætium okkur í úrslit. Ég
tel okkur geta náð þriðja eða fjórða
sæti í deildinni þegar upp verður
staðið.“