Morgunblaðið - 20.12.1995, Side 1

Morgunblaðið - 20.12.1995, Side 1
Stúlkan meó Botticelliandlitió William D. Valgardson /2 ítölsk ástrióa Susanna Tamaro /2 Kristbjörg Kjeld /3 Hvitur isbjörn Isak Haróarson /6 Vargaldir finnskra skáldkvenna /8 Ekki hægt aó svindla á börnunum Guórún Helgadóttir /8 MEIMIMIIMG LISTIRH B PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1995 BLAÐ Sjötta skiln- ingar- vitið KUFUNGUR með stráum í eig'u Josephs Soderer af gyðinglegum uppruna var hnepptur í fangelsi þegar nasistar lögðu undir sig Austurríki 1938, en heppnaðist að flýja til Bandaríkj- anna sama ár. Robert Musil hlaut frægð fyrir þriggja binda skáldverk sem hann nefndi Maðurinn án eiginleika (1930-43) og oft er vitnað til. Musil hefur verið sagður skrifa í anda James Joyce og sama gild- ir um Broch. Nýjar bækur Ævi og skoðanir Steins Bækur ársins 1995 Kunnir rithöfundar völdu nýlega helstu bækur ársins. Jóhann Hjálmarsson fræddist um bók- menntasmekk þeirra. Doris Lessing hefur efsta á lista skátdsögu eftir Penelope Fitzgerald, The Blue Flower, þar sem vaktar eru til lífs ástir skáldsins Novalis, þess sem orti um bláa blómið. Lessing er líka á norrænum slóðum í vali sínu. Skáldsaga sem færði henni mikla ánægju á árinu er Fuglarnir eftir Taijei Vesaas og hún notar tækifær- ið til að lofa Klakahöllina eftir Vesa- as sérstaklega í leiðinni. Joyce Carol Oates nefnir meðal margra góðra bóka á árinu ævisögu Lewis Carroli eftir Morton N. Cohen sem hún segir jafngilda skáldsögu og bók eftir Daniel C. Dennett um hættulegar hugmyndir Darwins. Malcolm Bradbury er einn þeirra sem nefna ævisögur þekktra manna sem allir voru bókmenntamenn og framarlega í bókmenntagagnrýni: F.R. Leavis, Angus Wilson og Kings- ley Amis. Tékkneska skáldið Miroslav Holub náði helst sambandi við mann sem grafinn var úr snjógröf sinni í Ötztal- ölpunum 1991 og um hann skrifaði fræðilega Konrad Spindler. Þetta er alls ekki bókmenntaverk eins og Holub tekur fram. Holub segir það leitt, en litli maðurinn sem kom upp úr snjónum sé honum hugstæðari en flest í nýjum skáldskap. „Ég hlýt að vera meira fyrir upphaf mannsins en endalok," skrifar skáldið. Sabbath’s Theater eftir Philip Roth er mikilsháttar verk að dómi A. Alvarez. Craig Raine nefnir The Annals of Chile eftir Paul Muldoon. Margaret Atwood hefur eins og fleiri lesið Thomas Bernhard rækilega. Germaine Greer er áhugasöm um ljóð eftir skáldkonur og hneykslast á því fálæti sem mætti á sínum tíma Kat- hleen Raine og Laura Riding. Nadine Gordimer nefnir Fyrsta manninn eft- ir Albert Camus. Robert Scruton hefur lagst í verk T. E. Hulmes og telur að fleiri ættu að fara að hans dæmi. Ahdaf Soueif rómar bók Radwa Ashur sem er þríleikur um Granada og endalok mára á Spáni; þetta er myrk fjölskyldusaga, segir Ashur. D.J. Enricht hefur gefið sér góðan tíma tit að lesa ljóð Pauls Celan og bók um hann eftir John Felstiner. Celan sem var gyðingur lifði af hel- förina, en drekkti sér í Signu 1970 á hátindi skáldferils síns, 49 ára að aldri. Kunnasta ljóð Celans er Helf- úga Klassískar bókmenntir, ævisögur frægra manna og sagnfræði af ýmsu tagi ásamt skáldskap trónar á per- sónulegum listum rithöfundanna. RITVÉL Her- manns Broch ÚT er komin bókin Steinn Steinarr — Ævi og skoðanir. Þar segir Ingi Bogi Bogason, sem lengi hefur rannsakað ævi og verk Steins, frá manninum og skáldinu, lífi Steins og list. Hann greinir frá æskuárum hans vestur í Dölum þar sem hann ólst upp hjá vandalausum en einnig fl'aljar hann um ár Steins í Reykjavík. í bókinni Steinn Steinarr — Ævi og skoðanir er einnig að finna greinar og viðtöl sem birst hafa í fyrri bókum um skáld- ið en einnig greinar sem ekki hafa verið prentaðar þar áður. Tvær grein- anna hafa aldrei komið fyrir almenn- ingssjónir en þær fundust nýverið í kössum með ýmsu dóti Steins sem afhentir voru Landsbókasafninu fyrir nokkrum árum. í bókinni eru einnig ljósmyndir frá ævi Steins og hafa sumar þeirra hvergi birst áður. sín þá nutu hæfileikar hans, skopskyn og bein- skeytt afstaða sín ekki síður í greinum hans um menn og málefni.“ Steinn Steinarr - Ævi og skoðanir er 216 blaðsíður að lengd, þar af eru 24 myndasíður. Bókin var brotin um hjá útgefanda, Vöku- Helgafelli, þar sem kápan var einnig hönn- uð en Jón Kaldal tók myndina af Steini er prýðir framhlið kápu. . Bókin er prentuð og Steinn Steinarr Ingi Bogi Bogason bundin í Prentsmiðj- . unni Odda hf. Steinn í kynningu frá útgefanda segir: Steinarr — Ævi og skoðanir kostar „Þótt Steinn sé frægastur fyrir ljóð 3.590 kr. AÐ VENJU hefur bókablað Times í London, TLS (1. desember), leitað til rithöfunda í því skyni að fá þá til að nefna þær bækur sem höfðu mest áhrif á þá á árinu. Þijátíu og sjö svara í blaðinu. Það er alltaf hnýsilegt að kynna sér þessi svör eða viðbrögð við spurn- ingu af þessu tagi. Það sem skar í augun við fyrsta lestur er að nokkr- ir rithöfundar nefndu bækur sem komu út 1994 eða fyrr. Alvitrar stellingar Menn setja sig vitanlega í alvitrar stellingar þegar svara skal hátíðleg- um spurningum og vilja ekki heldur láta taka innan úr sér. Svörin má skoða í þessu ljósi.^ Fyrstur svarar írinn Paul Mul- doon, eitt kunnasta skáld íra nú. Hann velur sér ljóðasafn frá 1994, úival ljóða Marilyn Hackers 1965-1990 og segir ljóð hennar einkennast af því að hún sameini tæknileg atriði og talmál á eftirminnilegan hátt. Fræðilegar bækur kýs Muldoon einn- ig, eftir Claude Lévi-Strauss og Ste- ven Pinker. Líklega speglast bókmenntalífið í Frakklandi í svari Michels Tournier því að hann velur bók eftir ungan rithöfund og bókaritstjóra Le Figaro, Jean-Marie Rouart, ævisögu hertog- ans de Morny sem var barnabarn Talleyrands og hálfbróðir Napóleons þriðja. í ævisögunni er skyggnst inn í lífið við hirðina og andlegt líf tím- anna. Bandaríska skáldið John Ashbery velur eina þykka bók og aðra þunna. Þykka bókin er Töfrafjall Thomasar Manns í þýðingu John E. Woods, hin er eftir Kaliforníuskáldið Cole Swen- son sem minnir hann á Emily Dickin- son. SJÖTTA skilningarvitið nefndu Austurríkismenn sýningu á síðustu bókastefnu í Frankfurt, en þar voru þeir í öndvegi. Sýningin átti að spegla bókmenntir tuttugustu aldar í Austurríki. Auk bóka, mynda og handrita voru sýndir ýmsir munir úr vörslu rithöfunda: pennar, ritvél- ar og margt fleira. Þarna gat til dæmis að líta ritvél Hermanns Broch og dauðagrímu Roberts Mus- il, einnig kufung, hárlokk, íjöl- skyldualbúm og dagbækur annarra kunnra höfunda svo að eitthvað sé nefnt. Skáldsagnahöfundar frá Vín Þeir Hermann Broch og Robert Musil voru meðal helstu skáld- sagnahöfunda Austurríkis og áttu það sameiginlegt að búa lengst í Vínarborg. Kunnustu verk Brochs eru þríleikurinn Svefngenglar (1931-32) og Dauði Vergil- íusar (1946). Broch sem var

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.