Morgunblaðið - 20.12.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.12.1995, Blaðsíða 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1995 BLAD 3 Verðum að bjóða betri fisk en aðrir Aflabrögð 4 Þokkaleg rækjuveiði á Flæmingja- grunni Markaðsmál 6 Bragð og fersk- leiki skipta miklu máli á Japansmarkaði 7 Kvótinn er siðlaus STEINISLÆINGARSTJÓRI • ÞORSTEINN Svavarsson hef- ur um árabil haft slæingu afla báta sem landa á Suðureyri með höndum og er með nokkra menn sér til aðstoðar í aðgerðinni. Morgunblaðið/Robert Scbmidt Steini sér einnig um að landa ölium afla og koma honum á vigt og síðan í aðgerð. Hér er Steini með vænan hlýra við fullt stein- bítskar í Suðureyrarhöfn. Ishúsfélagið og Norður- tanginn kaupa Ritinn ÍSHÚSFÉLAG Gengið verður frá kaupunum og þau lögð fyrir hluthafafund ^°urðuJðangikaUpfa meirihluta í rækjuverksmiðjunni Rit á ísafirði af Framtaksfélaginu hf., sem er dótturfyrirtæki íslandsbanka. Gengið verður frá kaupunum í dag en í kvöld verð- ur hluthafafundur hjá Rit þar sem kjör nýrrar stjórnar verður m.a. á dagskrá. Framtaksfélagið átti þar til í dag 53% hlut í Rit og munu íshúsfélagið og Norðurtanginn kaupa allan þann hlut samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins. Afganginn eiga ýmsir ein- staklingar og fyrirtæki á Isafirði og í Reykjavík. Styrklr atvínnulífið Magnús Reynir Guðmundsson, stjórnarformaður Ishúsfélags ísfirð- inga, neitaði að gefa kaupverðið upp en sagði að það væri fyllilega ásætt- anlegt. „Það er of snemmt að ræða um hvaða breytingar verða gerðar á rekstri Rits. Við teljum að kaupin eigi eftir að styrkja fyrirtækið og þá sem að kaupunum standa og verða til góðs fyrir atvinnulífið hér á ísafirði.“ Öflugir útgerðaraðilar Rúmlega fjörutíu manns vinna hjá Rit og er verksmiðjan búin fullkomn- um tækjum til rækjuvinnslu en hefur enga útgerð með höndum. Væntanleg- ir kaupendur, Norðurtanginn og Is- húsfélagið, eru hins vegar öflugir út- gerðaraðilar og bolfiskverkendur. Með kaupunum á rækjuverksmiðjunni renpa þeir fleiri stoðum undir starf- semi sína. Þungur rekstur Ritur hf. var stofnað í október 1992 á grunni tveggja rækjuverksmiðja, Niðursuðuverksmiðjunnar og Rækju- stöðvarinnar, sem. þá voru komnar í þrot. íslandsbanki átti frá upphafi um 35% hlutafjár en síðan jók hann hlut sinn með því að kaupa hlutafé Ögur- víkur í fyrirtækinu og komst eignar- hlutdeild hans þá í 53%. Rekstur fyrir- tækisins hefur lengst af gengið þung- lega og hinn 31. ágúst síðastliðinn námu skuldir þess alls 520 milljónum króna. Þar af voru skammtímaskuldir 313 milljónir en þar vega afurðalán þyngst að sögn Guðmundar Agnars- sonar, framkvæmdastjóra Rits. „Tekj- .ur verða um 700 milljónir króna á árinu en reksturinn stendur í járnum, ekki síst vegna þess að hráefnisverð hefur hækkað gífurlega." Fréttir Markaöir Skata í neytenda- umbúðum • VINNSLUSTÖÐIN í Vestmannaeyjum, sem að undanförnu hefur verið að markaðssetja ýmsar fiskaf- urðir í neytendapakkning- um undir vörumerkinu 200 mílur, hefur undanfarið pakkað skötu í neytenda- pakkningar, enda helsta skötuveisla ársins framund- an á Þorláksmessu./2 Mokafli fyrir vestan • LÍNUBÁTURINN Guðný IS landaði hér í Bolungarvík á mánudagskvöld tæpum sextán lestum af góðum þorski. Aflann fékk báturinn á Halamiðum en þangað er um 50 mílna sigling. Langt er síðan línubátur hefur gert svo góðan róður hér um slóð- ir en fréttir hafa verið af mikilli þorskgengd út af Vestfjörðum undanfarnar vikur./2 Saltfiskur á Spáni • SÖLUSAMBAND ís- lenzkra fiskframleiðenda, SÍF, hefur stofnað sölu- og dreifingarfyrirtækið Cop- esco SIF í samvinnu við fyrir- tækið Sefrisa í Barcelona, en áður sá Copesco um sölu á saltfiski frá SÍF á Spáni./3 Sunnubergið selt • BJARNAREY ehf. á Vopnafirði hefur keypt loðnuskipið Sunnuberg GK 199 af Fiskimjöli og Lýsi hf. í Grindavík. Skrifað var undir kaupsamning um síð- ustu helgi. Félagið Bjarna- rey ehf. var stofnað um kaupin, en stofnendur þess eru Tangi Hf á Vopnafirði og Vopnafjarðarhreppur. Sunnubergi GK fylgir 1% loðnukvóti./5 Japanir sífellt háðari sjávarafurðum • UPPISTAÐAN í matar- æði Japana er hrísgrjón, grænmeti, sjávarafurðir og ýmsar afurðir úr sojabaun- um. Hafa sjávarafurðir ver- ið í miklum metum í Japan frá alda öðli og úrvalið mik- ið./6 Seljum Bretum minna af ísfiski • INNFLUTNINGUR Breta á ísuðum fiski hefur dregizt saman á þessu ári. Eftir fyrstu 7 mánuði ársins höfðu þeir flutt inn 36.400 tonn af ferskum fiski, sem er 6.000 tonnum minna en árið áður. Töluverðar breytingar hafa orðið á hlut helztu fisksölu- þjóðanna í þessum innflutn- ingi milli ára. Á þessu tíma- bili í fyrra seldum við Bretum 14.500 tonn af ferskum fiski, en aðeins 8.100 tonn nú. Fær- eyingar auka hlut sinn úr 5.700 tonnum í 8.500 og írar fara úr 8.500 í 10.400. Aðrar þjóðir, sem koma við sögu, eru Danir með 3.000 tonn, Hollendingar með 1.300 og Þjóðveijar með 1.700 tonn. Ferskf iskinnflutningur til Bretlands íjan.-júlí1995^ign Frá: íslandi 8.088) Færeyjum 8.490I Danmörku □ 3.008 Hollandi □ 1.339 írlandi 10.3831 Noregi ]933 1 Þýskalandi ] 1.655 S Öðrum □] 2.468 1 Bretar minnka freðfiskkaup Freðfisksinnflutningur til Bretlands í jan.-júlí 1995 Frá: tonn íslandif hs.ooi Noreail 22.539] Rússlandi 1 26.Ö491 Færeyjum HI] 7-360 j Danmörku 04.642 Ööruml 26.612] 1 ——-————- ■—3; • BRETAR flytja einnig minna inn af frystum fiski á þessu ári en því síðasta. Að loknum júlímánuði nam inn- flutningurinn 102.200 tonn á móti 112.100 á smatíma í fyrra. Hlutur okkar Islend- inga dregst saman uni 1.000 tonn og er nú 15.000 tonn. Norðmenn voru nú með 22.500 tonn, seni er lítils hátt- ar samdráttur og Rússar voru með 26.000 tonn, sem er 5.000 tonna aukning. Aðrar þjóðir eru með mun minna og koma Færeyingar næstir á eftir okkur með 7.400, nánast al- veg sama magn og í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.