Morgunblaðið - 21.12.1995, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C/D
292. TBL. 83. ÁRG. FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Jeltsín segir úrslitin ekki
kalla á stefnubreytingu
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
sagði í gær að engin ástæða væri
til að hafa áhyggjur af úrslitum rúss-
nesku þingkosninganna á sunnudag.
„Stjórnin getur framfylgt sömu
stefnu og áður,“ bætti hann við þeg-
ar hann tjáði sig í fyrsta sinn opin-
berlega um úrslitin.
„Við höfum enga ástæðu til að
hafa áhyggjur eða að líta á kosning-
arnar sem harmleik," sagði Jeltsín.
Gennadíj Zjúganov, leiðtogi
kommúnista, sem virðast hafa fengið
um þriðjung þingsætanna, sagði að
andstæðingar kommúnismans í Rúss-
landi hefðu „loksins" beðið ósigur.
Hann kvaðst þó ekki ætla að knýja
fram róttækar breytingar á stjóminni
þar sem hann óttaðist að lokauppgjör
við forsetann gæti skaðað kommún-
ista í forsetakosningunum í júní.
„Augljós og gróf fölsun“
Alexander Rútskoj og Alexander
Lebed, leiðtogar tveggja flokka sem
komust ekki yfir 5% þröskuldinn í
kosningunum, sökuðu í gær yfirvöld
um viðamikil kosningasvik til að
halda flokkum þeirra utan þings.
„Augljós og gróf fölsun hefur átt
sér stað,“ sagði Rútskoj, sem er
fyrrverandi varaforseti Rússlands.
Hann sagði að flokkur hans, Derz-
hava, hefði fengið 9,4% atkvæða
en ekki 2,5% eins og kjörstjórnin
hefur sagt. Fleiri stjórnarandstöðu-
flokkum hefði verið haldið fyrir
neðan 5% mörkin.
Lebed sakaði kjörstjórnina einnig
um kosningasvik. „Augljósar falsan-
ir hafa átt sér stað,“ sagði hann.
Rútskoj ekki á þing
Flokkur Lebeds, Samtök rúss-
neskra samfélaga, fékk 4,14% at-
kvæða og því engan mann kjörinn
af landslista. Lebed bauð sig þó fram
í einmenningskjördæmi og náði kjöri.
Rútskoj var aðeins á landslista Derz-
hava og verður því ekki á þingi.
■ Bandalagi kommúnista/20
Vill skiln-
að Karls
og Díönu
London. Reuter.
ELÍSABET Bretadrottning hef-
ur farið frám á það við Karl
prins og Díönu prinsessu að þau
skilji að lögum, að því er tals-
maður hirðarinnar staðfesti í
gærkvöldi.
Hermt er að Karl hafi þegar
fallist á bón móður sinnar, sem
sögð er hafa ritað prinsinum
og prinsessunni og sagst vera
bæði reið og vonsvikin vegna
deilna þeirra í fjölmiðlum.
Karl og Díana skildu að borði
og sæng fyrir þremur árum.
Hafa samskipti þeirra verið
hatrömm síðan.
Díana átti klukkustundar
fund með John Major forsætis-
ráðherra í Kensington-höll í
gær. Ekki var látið uppi hvað
þeim fór á milli en tatið að það
hafi snúist um þá ósk Díönu
að gegna sendiherrahlutverki.
Tekist á
um veiði-
kvóta
Brussel. Reuter.
SPÁÐ er hörðum átökum á
fundi . sjávarútvegsráðherra
Evrópusambandsins (ESB) í
dag um skiptingu aflakvóta í
efnahagslögsögu sambandsins.
Fyrir fundinum liggur tillaga
framkvæmdastjórnar ESB um
allt að 50% niðurskurð á
heildarafla.
Breskur embættismaður
sagði í gær að Tony Baldry,
sjávarútvegsráðherra Breta,
myndi freista þess með öllum
ráðum að breskir sjómenn
þyrftu ekki að taka á sig sömu
skerðingu afla og sjómenn ann-
arra ríkja ESB en fram-
kvæmdastjórnin leggur til að
aðildarríkin taki á sig hlutfalls-
lega sömu skerðingu öll.
Stofnar í hættu
Bretar eiga erfitt með að
sætta sig við 50% skerðingu
sólflúrukvóta í Norðursjó, veru-
lega minnkun síldarkvóta við
Vestur-Skotland og umtals-
verða skerðingu skarkola- og
sólflúrukvóta á vestursvæðum
lögsögu ESB, eins og tillögur
framkvæmdastjórnarinnar frá
5. desember gera ráð fyrir. Þær
byggðu á mati vísindamanna á
ástandi fiskstofna í lögsögu
sambandsins.
Þar sagði að gripa verði til
ráðstafana til að koma í veg
fyrir frekara hrun. Bolfisk-
stofnar séu enn í lágmarki og
síldar-, makríls- og flatfisk-
stofnar hafi minnkað þrátt fyr-
ir aðvaranir um ástand þeirra
í fyrra.
Spánveijar, Portúgalir og
Frakkar eru sömuleiðis
óánægðir með tillögu um að
heildarlýsingsafli á vest-
ursvæðunum verði lækkaður
um 22%.
Spánveijar gegna forystu-
hlutverki í ESB og freistuðu
þess í gær að miðla málum fyr-
ir fund sjávarútvegsráðherr-
anna í dag.
■ Major tapar/16
Umfangsmesta aðgerð í sögu Atlantshafsbandalagsins hafin
Veður og tog-
streita skyggðu
á athöfnina
Reuter
Próflok í
Pakistan
PRÓFLOKUM er fagnað með
óvenjulegum hætti í Pakistan.
Myndin var tekin á skemmti-
sýningu fyrir nýútskrifaða
nemendur í skóla í Islamabad
í gær. Fylgjast börnin með ung-
um dreng í áflogum við svartan
björn úr Himalajafjöllum.
Sanyevo. Reuter.
SVEITIR Atlantshafsbandalagsins
(NATO) tóku í gær formlega við
friðargæslu í Bosníu af Sameinuðu
þjóðunum. Mjög slæmt veður var í
Sarajevo og varð að fresta athöfn
vegna skiptanna um nokkrar
klukkustundir þar sem vél Leigh-
tons Smiths aðmíráls, sem stjórnar
aðgerðum NATO, gat ekki lent á
flugvelli borgarinnar sökum þoku.
NATO tók hins vegar við friðar-
gæslunni klukkan ellefu að staðar-
tíma, tíu að íslenskum tíma, líkt og
áformað hafði verið og tók Michael
Walker, yfirmaður landsveita
NATO, við völdum af Bernard
Janvier, yfirmanni sveita SÞ, við
óformlega athöfn á Sarajevo-flug-
velli fjörutíu mínútum síðar.
Embættismenn og yfirmenn í
friðargæsluliði SÞ kvörtuðu hins
vegar margir yfír því að óþarfi hefði
verið að fresta hinni formlegu at-
höfn. Það hefði einungis verið gert
til að hægt hefði verið að sýna at-
höfnina beint í bandarísku sjón-
varpi.
Hermenn NATO hófu aðgerðir
þegar í stað og fjarlægðu hundrað
breskir hermenn í brynvörðum bif-
reiðum serbneska vegatálma í
Vrbas-dalnum í vesturhluta Bosníu
Reuter
MICHAEL Walker, einn yfirmanna NATO-sveitanna, og Bernard
Janvier, yfirmaður friðargæslusveita NATO, við athöfnina í
Sarajevo.
og settu upp bækistöðvar í Krupa.
Er sá bær í um' 30 kílómetra fjar-
lægð frá Banja Luka. „Markmið
okkar er að menn finni fyrir nær-
veru okkar sem allra fyrst," sagði
Alastair Ross, majór.
Samkvæmt friðarsamkomulag-
inu um fyrrverandi Júgóslavíu verð-
ur þetta svæði afhent Serbum að
nýju en þeir töpuðu því í bardögum
á lokastigi stríðsins.
Friðargæslan í Bpsníu er um-
fangsmesta verkefni NATO frá
upphafi og taka alls sextíu þúsund
hermenn frá sextán þjóðum þátt í
aðgerðunum.