Morgunblaðið - 21.12.1995, Blaðsíða 1
FfÁRrESTINGAR
Skýlaus krafa
um arösemi/4
OLÍUPREIFING
Hagræöing er
eina markmiöiö /6
ÞfÓNUSTfl
Avis í alþjóöa-
bókunarkerfi /8
Bankastjóri
SÓLON R. Sigurðsson, var end-
urráðinn bankastjóri Búnaðar-
banka Islands á fundi bankaráðs á
þriðjudag. Gildir ráðning hans til
sex ára eins og lög mæla fyrir um.
Sólon var eini umsækjandinn um
stöðuna.
Leeson
Nick Leeson, sem varð Barings-
banka að falli, getur huggað sig
við það í klefa sínum í fangelsinu
í Singapore um jólin að vinir hans
munu skála fyrir honum í nýjum
bjór, sem ber nafn hans og kaliast
„Lesson Lager“. Aðeins 100 kassar
voru framleiddir af ölinu, sem er
kallað „sennilega dýrasti bjór í
heimi“ á vörumiðanum. Á miðan-
um stendur „1.4 milljarða dollara
áfengismagn" og er með því átt
við tapið, sem Leeson olli Barings-
banka.
Olíufélagið
Hlutabréf í Olíufélaginu hækkuðu
mikið í verði í þessari viku. Gengi
bréfanna hefur hlaupið á bilinu
5,92 og upp í 6,00 í þessum mán-
uði en á þriðjudag rauk það upp
í 6,30. Þetta samsvarar um 6%
hækkun á einum degi, en síðustu
viðskipti þar á undan voru á geng-
inu 5,96. Heildarverðmæti við-
skipta í félaginu þann dag nam
tæpum 6 milljónum króna.
SÖLUGENGI DOLLARS
QENQI NOKKURRA
GJALDMIÐLA
GJALDMIÐLA 1U \
frá 4. Janúar Í995 (sölugengi) \
j DOLLARI "" | [STERLINGSPUND
-5,87% breyting
líl
\ L
-4,68% breyting
r,w /u
frá áramótum
68,75
1995
VmVmVj'áVo'n^
),OI 70 UMjyUIILj
frá áramótum
107,23
1995
4---1
-1-1-1-1-1-I-tH-h—I-h
FMAMJJAS0N
Dönsk KRÓNA Kr | Pýskt MARK
----------------------13.0
44,06
---------------------1 u.o !
+4,51% breyting j
frá áramótum ’ 1
+3,22% brey
frá áramc
1996
'j'fVa'm'j'j'á's'o'nV" 9,c
Japanskt YEN Franskur FRAN
+3,55% breyting
frá áramótum
-5,39% breyting
frá aramotum
1995
'j'f'm'a'm'j'j'á's'o
1995
----1-----1----1----1----1----1----1
J F M A M J J
Hugmyndir um að stofna nýtt félag um
hlut banka og sjóða í Borgarkringlunni
Samningur við
Kringluna í
burðarliðnum
SAMNINGAR um nána samvinnu
og sameiginlega yfirstjórn Borgar-
kringlunnar og Kringlunnar eru nú
í burðarliðnum og verða væntan-
lega lagðir fyrir eigendafund í
Kringlunni kringum áramótin.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins á stjórn Borgarkringlunnar
4-6 hf. einnig eftir að ljúka samn-
ingum við meðeigendur sína í hús-
inu um framkvæmdir í sameign.
Borgarkringlan 4-6 hf. er í eigu
íslandsbanka, Landsbankans, Iðn-
lánasjóðs og Iðnþróunarsjóðs sem
keyptu húsið á nauðungaruppboði
árið 1993. Þetta félag á 66% hlut
í húsinu en meðal annarra eigenda
er Byggingafélagið Mænir hf. sem
keypti húsnæði skemmtistaðarins
Ommu Lú og skrifstofuhæðir á síð-
asta ári.
I þeim drögum að samningi hús-
félags Kringlunnar og Borgar-
kringlunnar 4-6 hf. sem nú liggja
fyrir er m.a. gert ráð fyrir því að
stofnað verði nýtt hlutafélag um
hlut síðarnefnda félagsins í húsinu.
Eignast Kringlan 15% hlut í því
félagi í skiptum fyrir þann aðgang
sem Borgarkringlan fær að bíla-
stæðum í Kringlunni.
Byggjíi bíó við Borgarkringlu
Einnig eru uppi hugmyndir um
að byggja kvikmyndahús með
þremur bíósölum við Borgarkringl-
una að vestanverðu og er fyrirhug-
að að það tengist annarri hæð húss-
ins. Ér raunar gert ráð fyrir að
önnur hæðin verði alfarið lögð und-
ir starfsemi af þessu tagi eins og
leiktækjasali og veitingastaði.
Á fyrstu hæðinni að vestanverðu
er gert ráð fyrir bílageymslu og
verður unnt að aka beint þaðan inn
á aðra hæð í bílageymslu Kringl-
unnar. Allar aðrar hindranir milli
húsanna verða fjarlægðar og opnað
milli bílageymslnanna á jarðhæð,
ef samningar takast. Hingað til
hefur t.d. há járngirðing á efri hæð
bílageymslu hindrað viðskiptavini í
því að fara á milli húsanna.
Þá eru töluverðar skipulags-
breytingar áformaðar á fyrstu hæð
Borgarkringlunnar eftir því sem
næst verður komist. Þannig er gert
ráð fyrir því að verslunin 10-11
fari út úr húsinu.
„Ákveðin öfl vilja mig út“
Eiríkur Sigurðsson, eigandi
10-11, segir að ekki hafi ennþá
náðst samkomulag um framtíð
10-11 í húsinu. Gerður hafi verið
húsaleigusamningur til 10 ára sem
nú sé verið að reyna að rifta. „Það
er verið að reyna að setja mig út'
í horn því mönnum í Kringlunni
virðist ekki líka samkeppnin við
10-11. Mín ósk er sú að fá að taka
þátt í uppbyggingu verslunar á
þessum stað en ákveðin öfl vilja að
ég fari út.“