Morgunblaðið - 21.12.1995, Qupperneq 8
ffargtttifif«t!»fö
VIÐSKIFTIAIVINNULÍF
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1995
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HAFSTEINN Reykjalín, eigandi Avis bílaleigunnar
Avis í alþjóða
bókunarkerfi
AVIS bílaleigan hefur tengst
hinu alþjóðlega bókunarkerfi
Avis Wizard sem teygir anga
sína til 15 þúsund söluaðila
víðsvegar um heiminn. Þetta
gjörbreytir allri aðstöðu bíla-
leigunnar til markaðssetningar
erlendis og einfaldar mjög bók-
anir fyrir erlenda aðila sem
þurfa á bílaleigubíl að halda
hér á Iandi. Að sama skapi opn-
ast miklir möguleikar á að bóka
bílaleigubíla fyrir íslendinga
hvar sem er í heiminum á hag-
stæðum kjörum.
Eigandi Avis-bílaleigunnar,
Hafsteinn Reykjalín, rak áður
bílaleiguna RVS, en fékk Avis-
umboðið ásamt öðrum árið
1989. Hann tók alfarið við um-
boðinu árið 1992 og sameinaði
þá bílaleigu RVS og Avis. Á
þeim tíma var bílaleigan með
35 bíla en þeim hefur fjölgað
um 35 á hveiju ári. Nú í sumar
var fyrirtækið mest með 137
bíla í útleigu af ýmsum gerðum,
bæði stóra og smáa. Avis starf-
rækir útibú á Akureyri, Þórs-
höfn, Höfn og Keflavíkurflug-
velli. Stefnt er að því að vera
með mun fleiri bíla í útleigu á
næsta ári. Hjá fyrirtækinu
starfa 6-9 manns að jafnaði auk
starfsmanna á landsbyggðinni.
Hafsteinn segir að nánast
sama verðskrá hafi verið í gildi
frá árinu 1991 og í mörgum
tilfellum hafi verð lækkað frá
þeim tíma. „Viðskiptin hafa
verið að aukast smátt og smátt
þannig að hagstæðari innkaup
hafa náðst á bílum. Þá er minna
um tjón og skemmdir á bílum
en áður var. Síðan reynum við
að halda yfirbyggingu og
kostnaði í lágmarki. Bílaleiga
er að færast í ríkari mæli út í
að leigja bíla á föstu daggjaldi
án kílómetragjalds. Það skiptir
einnig miklu máli að ná upp
góðri nýtingu á bílaflotann."
Kerfið veitir yfirsýn
Hingað til hafa bílar hjá Avis
bílaleigunni verið bókaðir bréf-
lega, gegnum fax eða síma og
hafa viðskiptavinir því þurft að
bíða eftir staðfestingu, að sögn
Hafsteins. Með hinu nýja Wiz-
ard-kerfi geta nú 15 þúsund
söluaðilar um allan heim lagt
inn pöntun á hvaða tíma sólar-
hrings sem er og fengið stað-
festingu á henni svo til sam-
stundis. Um leið eru veittar
upplýsingar um tegund bifreið-
ar, verð, afhendingarstað og
-stund. Meðal söluaðila eru
ferðaskrifstofur og flugfélög
um heim allan því kerfið er
samtengt helstu bókunarkerf-
um flugfélaganna eins og
Amadeus og Galileo.
Hægt verður að skrá allar
bókhaldsupplýsingar í kerfið
ásamt upplýsingum um verð,
viðskiptavini, bíla o.s.frv. Það
auðveldar því yfirsýn yfir dag-
legan rekstur og gerir hann
mun markvissari.
Hafsteinn segir að núna hafi
opnast möguleikar fyrir stjórn-
endur fyrirtækisins að fylgjast
með rekstri þess eða jafnvel
fjarstýra því hvar sem er í
heiminum því kerfið veiti upp-
lýsingar um leigu á einstökum
bílum, kílómetrafjölda, pantan-
ir o.s.frv. Sömuleiðis sé unnt
að setja fram sértilboð á útleigu
bíla í tiltekinn tíma og kemur
það upp á skjánutn hjá öllum
þeim aðilum sem hafa aðgang
að kerfinu. Á sama hátt eigi
Islendingar nú kost á að nýta
sér tilboð bílaleiga um allan
heim. Vissulega feli þetta kerfi
í sér töluverðan kostnað en
reiknað sé með því að það
muni skila sér margfalt til baka
með auknum viðskiptum og
hagræðingu.
Fólk
Nyir starfs-
menn hjá Opn-
um kerfum
•KARL Björgvin
Brynjólfsson hef-
ur verið ráðinn hjá
Opnum kerfum
hf. sem markaðs-
fulltrúi í heildsölu.
Hann starfaði áður
hjá Örtölvutækni
lif. frá 1991. Karl
hóf störf hjá Opn-
um kerfum hf. í
september sl. Unnusta Karls er El-
ísabet Erla Dungal bankastarfs-
maður og eiga þau eitt barn.
•BENEDIKT
Gröndal hefur
verið ráðinn hjá
Opnum kerfum
hf. við þjónustu
og ráðgjöf á net-
kerfum og víð-
netsbúnaði. Hann
lauk tæknifræði-
prófi frá Tækni-
skóla Kaup-
mannahafnar
árið 1987 og hóf þá störf hjá Oli-
vetti í Kaupmannahöfn. Arið 1988
hóf hann störf í tölvudeild Raf-
magnsveitu Reykjavíkur þar sem
hann starfaði til ársins 1990. Síðastl-
iðin fimm ár starfaði hann hjá Ört-
ölvutækni hf. þangað til hann var
ráðinn til Opinna kerfa hf. Benedikt
er kvæntur Ragnhildi Teitsdóttur
og eiga þau saman 2 börn.
•HANS Pétur
Jónsson hefur
verið ráðinn hjá
Opnum kerfum
hf. í starf mark-
asðfulltrúa í beinni
sölu. Hans sér um
PC-tölvur frá
Hewlett-Packard
og FISKARS-raf-
bakhjarla ásamt
því að annast viðskiptavini sem nota
HP-vélbúnað til keyrslu á Conc-
ord/XAL-hugbúnaði. Hans starfaði
Hans Pétur
Jónsson
hjá Hans Petersen hf. frá 1979 til
1986 og sem deildarstjóri Tölvu-
tækni-Hans Petersen hf. frá 1986
þar til Örtölvutækni-Tölvukaup
hf. keypti reksturinn í lok árs 1991.
Þar starfaði Hans síðan þar til hann
hóf störf hjá Opnum kerfum hf. í lok
október sl. Hans er kvæntur Öldu
Björk Sigurðardóttur og eiga þau
tvö börn.
Nyráð-
gjafarstofa
•HÖSKULDUR
Frímannsson
hefur stofnað
rekstrarráð-
gjafarstofu. Við-
fangsefni stof-
unnar verða eink-
um á sviði stjórn-
unar, endurskipu-
lagningar, stefnu-
mótunar og al-
tækrar gæða-
stjórnunar. Jafnframt hyggst hann
sinna ritstörfum um stjórnun og
skyld efni, að því er segir í frétt.
Höskuldur er stúdent frá Versl-
unarskóla Islands 1970, viðskipta-
fræðingur frá Háskóla íslands 1977
og með MBA frá University of
Bridgeport 1978. Frá því hann lauk
námi hefur hann starfað við að
stuðla að betra samstarfi á milli
fyrirtækja, deilda og starfsmanna.
Síðastliðin 10 ár hefur hann starfað
sem rekstrarráðgjafi, fyrst hjá
Skýrr og síðan hjá Ráðgarði frá
1990. Hann varð stundakennari við
Viðskipta- og hagfræðideild HI
1984 og lektor við deildina 1988.
Auk þessa hefur hann flutt fyrir-
lestra, haldið námskeið og ritað
greinar í blöð og tímarit um stjórnun.
Höskuldur kemur til með að
leggja áherslu á vinnu með stjórn-
endum þar sem skilvirkni samstarfs
milli þeirra og starfsmanna er auk-
in. Leitast verður við að beisla það
afl sem til staðar er í fyrirtækjum
til að þau verði samkeppnishæfari.
Til að ná þessum árangri mun Hös-
kuldur notast við aðferðir gæða-
stjórnunar og lærdómsfyrirtækisins.
Einnig er boðið að byggja upp hópa
með frelsi til frumkvæðis.
Torgið
Heildasala á láns-
fjármarkaði
HUGMYNDIR nokkurra fjárfesta með
Sjóvá-Almennar og Vátryggingarfélag ís-
lands í fararbroddi um stofnun nýs fjár-
málafyrirtækis hér á landi, sem m.a.
myndi starfa sem heildsölubanki, voru í
fréttum í síðustu viku. Þetta er mjög
áhugaverður kostur á íslenskum fjár-
magnsmarkaði en spurningin er hvort
slíkur banki gæti boðið íslenskum fyrir-
tækjum upp á betri lánskjör en þeim bjóð-
ast nú hér á landi.
Morgunblaðið gerði lauslega könnun á
því hvaða kjör væru í boði hjá nokkrum
bönkum og fjárfestingarlánasjóðum.
Gengið var út frá því að fyrirtækið teldist
vera traustur viðskiptavinur sem væri að
taka 50 milljónir króna að láni til lengri
tíma. Ekki voru teknar með í reikninginn
þær þóknanir sem ríkissjóður tekur til
sín, en þar er m.a. að finna 1,5% stimpil-
gjald sem ekki er hægt að semja um
neinn afslátt á., sama um hversu háar
upphæðir er að ræða.
Hjá Fiskveiðasjóði eru teknir 6,5%
vextir af lánum. Þeir breytast þó í sam-
ræmi við gengisbreytingar og breytingar
á líbor-vöxtum erlendis. Þessir vextir mið-
ast við gengiskörfu fiskveiðasjóðs sem í
grófum dráttum er samsett af jeni(20%),
dollar(30%) og evrópskum gjaldmiðl-
um(50%).
Lántakandi getur þó valið aðra kosti
og t.d er mögulegt að taka lán í einni
erlendri mynt og ber lánið þá líbor-vexti
í viðkomandi landi að viðbættu 2,2%
álagi. Sem dæmi má nefna að ef lánið
er tekið í jenum eru líbor-vextir í dag
0,45%, og vextir af láninu því 2,65%. Láp
í mörkum myndi í dag bera 6,01% vexti
og svo koll af kolli. Gengisáhætta viðkom-
andi verður þó mun meiri með þessum
hætti.
Iðnlánasjóður býður upp á 6,75%
vexti, íslandsbanki upp á 6,8% vexti en
hjá Búnaðarbankanum eru kjörvextir
lægstir eða 6,45%. Ekki fékkst uppgefið
hvaða skilyrði fyrirtæki þurfa að uppfylla
hjá bönkunum til þess að fá hagstæð-
ustu kjör en á það hefur verið bent að
þar sé um mjög lítiinn hluta fyrirtækja
að ræða. Hjá Iðnlánasjóði fengust þær
upplýsingar að um fjórðungur viðskipta-
vinanna fái bestu kjör og eins og fyrr
segir er aðeins eitt vaxtastig hjá fisk-
veiðasjóði og því allir viðskiptvinir á
sömu vaxtakjörum.
Fljótt á litið virðist hins vegar muna
mestu í þóknun. Hjá Fiskveiðasjóði er
lántökuþóknunin 1% en 2% hjá íslands-
banka og Búnaðarbanka. Ekki fékkst upp-
gefið hver lántökuþóknunin er hjá Iðnl-
ánasjóði. Hins vegar er bent á að þóknun-
in sé í flestum tilfellum samningsatriði
hjá bönkunum þegar að góðir viðskipta-
Samanburaur á iánskjBrum
banka og fjárfest.iánasjoða
Lánastofnun Vextir Lántökugj.
Búnaðarbanki 6,45% * 2,0%
íslandsbanki 6,80% * 2,0%
Iðnlánasjóður 6,75% * Ekki gefið upp
Fiskveiðasjóður 6,50% 1,0%
* Kiörvextir
vinir eiga í hlut, og samningsstaða fyrir-
tækja sé eðlilega misjöfn. Því má ætla
að þessi munur sé eitthvað minni í raun.
Það virðist því ekki vera ýkja mikill
munur á þeim kjörum sem að bankakerf-
ið býður fyrirtækjum upp á nú, og þeim
kjörum sem þau geta fengið hjá fjárfest-
ingarlánasjóðum. Erfitt er að gera sér
grein fyrir því hvort að heildsölubanki
gæti boðið betri kjör en þetta. Hugsan-
lega gæti þó verið eitthvað svigrúm til
þess að lækka þóknunina, en ekki mun
vera óalgengt að þóknun erlendra heild-
sölubanka fari allt niður í 0,2% þegar um
hærri fjárhæðir er að tefla.
Þessi kjör virðast heldur ekki vera
ósvipuð því sem fyrirtæki hafa getað
fengið á frjálsum markaði hér heima með
skuldabréfaútboði. Þar hafa vaxtakjörin
verið í kringum 6,5%-7,0%, eða aðeins
um 1% lakari en þau kjör sem ríkissjóði
býðst á innlendum lánamarkaði og þykir
ýmsum sem munurinn þar sé helst til lítill.
Sú spurning sem eftir stendur er þá
hvort að fyrirtæki geti nálgast eitthvað
hagstæðari lán erlendis. Þar skiptir gríð-
arlega miklu máli hvort að banka- eða
ríkisábyrgð liggi að baki. Betri kjör nást
út á slíkar ábyrgðir en fyrir þær þarf að
sjálfsögðu að greiða. Bankar og fjárfest-
ingarlánasjóðir geta tekið lán á u.þ.b.
0,2-0,4% yfir líbor, enda liggur þar ríkis-
ábyrgð eða ígildi hennar að baki. Ef um
fyrirtæki kýs að notast ekki við neinar
ábyrgðir er ekki óalgengt að þau greiði
u.þ.b. 1,5%-2,5% yfir líbor, sem er um-
talsvert meira en ríki og lánastofnanir
greiða.
Því má vel hugsa sér að íslenskur heild-
sölubanki, sem hefur komið sér upp
þokkalegu lánstrausti, geti miðlað slíkum
lánum hingað til lands á betri kjörum en
nú er. Um slíkt skal þó ekki fullyrt hér
en þetta er spennandi möguleiki sem
áhugavert verður að fylgjast með hvort
úr rætist í framtíðinni.
ÞV