Morgunblaðið - 22.12.1995, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 22.12.1995, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995 37 kominn einhver fullorðinn að draga okkur upp. Aldrei urðum við beint vör við að fylgst væri með okkur en bak við hverja eldhúsgardínu voru samt vökul augu mammanna. Fjaran var líka vinsæl og hver átti sinn bát með viðeigandi veið- arfærum til að sigla meðfram fjör- unni. Stundum var farið í útilegu, ■ sem við kölluðum, en þá var siglt inn að Gúanói og fiskað í þar og haldið heim aftur. Þá reið á að bátarnir gengju vel því langt var að fara. Minn bátur, Sæfari, var með gafl og toggálga sitt hvoru megin, tuttugu árum fyrir skuttog- aratímann, en hann gekk ekki vel og varð því oft síðastur á miðin. Stundum mætti ég þeim á heimleið- inni Gísla Begga með Má, Draupni með Rán sem hann fékk frá Hidda og svo Grétari með Höfrung en þessir bátar báru af öðrum á ströndinni og þótt víðar væri leit- að. Bátur Grétars var smíðaður af Jóni, föðurföður hans, en bar nafn fyrsta báts Jakobs á Strönd, móð- urföður hans. Reyndar smíðuðum við Grétar marga báta í kjallaran- um heima hjá foreldrum hans, Svenna og Þóru. Svenni átti mikið úrval handverkfæra og voru þau óspart notuð og ekki alltaf farið sem best með. Aldrei heyrðist samt styggðaryrði frá Svenna sem þol- j inmóður sýndi okkur réttu hand- tökin og áminnti um vandvirkni. Þó fann hann að ef við gengum ekki frá verkfærunum á sinn stað. Hirðusemi var eitt af aðalsmerkj- um hans. Þeir voru ófáir dagarnir sem ég sást ekki heima við nema kvölds og morgna meðan þessar skipa- smíðar stóðu yfir enda voru kök- j urnar hennar Þóru góðar. Að mað- | ur tali nú ekki um fiskibollumar t hennar sem eru einn sá besti matur * sem ég hef bragðað, það var hreint ótrúlegt hvað var hægt að borða mikið án þess að verða leiður á þeim, en mikið varð maður samt saddur. Þóra og Svenni höfðu reist hús á næstu lóð við foreldra Þóru, Jakobs Jakobssonar og Sólveigar Ásmundsdóttur, frænku minnar. , Nokkrum sinnum bar það við að Sola kallaði á mig inn í hafragraut i með spenvolgri mjólk út á og sykur f yfir, sennilega fundist ég stækka lítið, enda höfðinu lægri en dóttur- sonur hennar sem var árinu yngri. Eitt vorið lenti ég í leiðinda slysi. Var ég veiklulegur fram eftir sumri og var þá sérlega tíður gestur í hlýju eldhúsinu hjá Solu sem gaf mér skyr og hafragraut með skarfakáli og öðru grænmeti, svo | ég yrði fljótari að ná mér. Þegar ég fór í göngur sem krakki var það $ venja Leifa, bróður hennar í | Naustahvammi, þaðan sem lagt var upp, að kalla mig inn í bæ til að gefa mér örlítið í gogginn eins og hann sagði, vanalega grautur eða skyr með hnausþykkum ijóma og slátri, og ég varð að borða vel. Þá var lán að gangnastjórinn mætti yfirleitt seint svo að maturinn náði að sjatna áður en lagt var á fjallið. j Það 'var eins með Þóru að hún f fylgdist vel með því að maður færi . frá henni vel saddur og það gerðist I oft. Það var mikið lán að fá að alast upp í ftjálsræðinu inni á Strönd þar sem allir lögðust á eitt í að vaka yfir velferð hver annars. Það voru forréttindi að alast upp mitt í fjörugri þjóðfélagsumræðu þar sem hlutirnir voru brotnir til mergj- ar og mörgu hrint í framkvæmd. * Þær lágu ekki á liði sínu, vinkon- ( urnar Þóra og Guðný, við að ljá ^ góðum málstað lið, hvort sem það var til leiklistar, slysavarna eða annarra menningar- og mannúðar- mála og oft var skriður á þeim út Strandgötuna ef svo bar undir. Reisn og skörungsskapur fylgdi Þóru hvar sem hún fór og öllu góðu lagði hún lið. Það var gæfa að fá að alast upp í nágrenni við i hana og eiga sem trúnaðarvin á fullorðinsárum. Hafðu þökk fyrir að standa um mig vaktina og vaka ( yfir velferð minni og annarra Strandarbúa. Jón Benjamínsson. PÉTUR BALDVINSSON + Pétur Friðrik Baldvinsson var fæddur í Hólkoti rétt utan við Dalvik 14. apríl 1909. Hann lést á Sjúkra- húsi Siglufjarðar hinn 14. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jón Baldvin Sigurðsson og Guð- rún Tómasdóttir úr Svarfaðardal. Pét- ur átti 11 alsystkini, en sjö þeirra dóu ung. Pétur átti einn hálfbróður sem faðir hans eign- aðist með seinni konu sinni. Fyrri kona Péturs var Jó- hanna Þorleifsdóttir úr Hrísey, en hún lést skömmu eftir 1930. Þau eignuðust einn son, Tómas, f. 1930, d. 1963. Eiginkona hans var Sigríður Hermannsdóttir á Dalvík. Eftirlifandi eiginkona Péturs er Mundína Sigurðar- dóttir frá Vatnsenda í Héðins- firði. Börn þeirra eru Ásbjörn, f. 1937, Hanna Guðrún, f. 1939, gift Bjarna Þorgeirssyni, og Halldóra Ragna, f. 1942, gift Björgvini Jónssyni. Öll búsett á Siglufirði. Pétur fór ung^ur til sjós og stundaði sjómennsku og verkamannavinnu á meðan hann var búsettur á Dalvík. Hann fluttist til Siglufjarðar 1935 og var vélstjóri og kokkur á sildarbát- um og vertíðarbát- um. Þá starfaði hann lengi sem planformaður hjá ýmsum síld- arsaltendum á Siglufirði. Síð- ustu starfsárin gerði hann út eigin trillu frá Siglufirði. Pétur tók virkan þátt í félagsstarfi og var meðal stofnenda verka- lýðsfélagsins á Dalvík, starfaði lengi méð Leikfélagi Siglu- fjarðar og söng með Karlakórn- um Vísi og Kirkjukór Siglu- fjarðarkirkju í áratugi. Útför hans fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. OKKUR bræðuma langar til að minnast móðurafa okkar, Péturs Baldvinssonar, sem nú er látinn. Afi Pétur átti mikið í okkur enda sóttum við talsvert til hans á æskuárum okkar á Siglufirði og þess vegna er við hæfi að rifja upp nokkur minningabrot um leið og við kveðjum þennan heiðursmann. Pétur Friðrik Baldvinsson var fæddur í Hólkoti rétt utan við Dal- vík á fýrsta áratug þessarar aldar og tilheyrði því aldamótakynslóð þessa lands. Hann ólst upp á Dal- vík og eins og margt samtímafólk þá varð hann snemma var við að lífsins skóli er bæði erfiður og mis- kunnarlaus. Skæður sjúkdómur kvaddi fljótlega dyra hjá bam- margri íjölskyldunni og aðeins fimm af tólf systkinum náðu full- orðins aldri. Hin létust öll ung, flest úr berklum. Sömu örlög hlaut móð- ir hans þegar afi var aðeins 14 ára gamall. Faðir hans eignaðist einn son með seinni konu sinni sem gekk einnig fyrri bömum hans í móður- stað. Það að lifa af þessar hörmung- ar var greinilega ákveðin forspá fyrir þá löngu lífsgöngu sem fram- undan var. Margir sem þekktu Pét- ur Bald höfðu á orði að hann hefði átt að minnsta kosti níu líf. Hann komst stundum í ’ann krappan á sjónum og þrátt fýrir að heilsan yrði oft fyrir áföllum á fullorðinsár- unum þá var eins og ekkert biti á karlinn. Við minnumst sérstaklega atviks sem átti sér stað þegar afi var kom- inn yfir sjötugt. Þá þurfti hann að fara á trillunni sinni, einn síns liðs, inn í Héðinsfjörð til þess að ganga frá veiðihúsinu þar fyrir veturinn. Veðrið var slæmt og áttin óhagstæð til lendingar á litlum árabát í fjör- unni. í brimgarðinum hvolfdi ára- bátnum yfir hann og rak upp í fjöru- borðið. Með einhverjum yfirnáttúm- legum hætti tókst honum að lyfta bátnum ofan af sér og lá svo nær dauða en lífi í fjörunni í nokkum tíma á eftir. En hann átti talsvert þrek eftir þótt kominn væri á átt- ræðisaldur og ekki gerði hann mik- ið úr þessu kraftaverki sjálfur. „Þetta er heljarmenni," sögðu fé- lagar hans úr hópi trillukarla á Siglufirði þegar þeir fréttu af viður- eign gamla mannsins við náttúm- öflin. Afí stofnaði snemma heimili með fyrri konu sinni Jóhönnu Þorfinns- dóttur úr Hrísey. Sambúð þeirra hafði ekki staðið lengi þegar sami sjúkdómur og hafði tekið móður hans í burtu á æskuárunum kvaddi dyra að nýju. Hún dó úr berklum langt fyrir aldur fram frá ungum syni þeirra, Tómasi Péturssyni. A.fí hafði miklar mætur á syni sínum sem gerði sjómennskuna að ævi- starfí, en forlögin höguðu því þann- ig að Tómas dmkknaði þegar bátur hans fórst í aftakaveðri í aprfl 1963. Ekkja Tómasar er Sigríður Her- mannsdóttir á Dalvík og eignuðust þau þijú böm. Afí hélt alltaf góðu sambandi við fjölskylduna á Dalvík enda vom þau honum mikilvæg tenging við átthagana. Þrátt fyrir þessa erfíðu lífsreynslu þá var afí alla tíð lífsglaður maður og bar ekki sorg sína á torg. Hann fór snemma til sjós og lærði hand- brögðin af föður sínum sem var mikill hagleiksmaður, góður smiður og einstök selaskytta. í landi vann hann við það sem til féll hveiju sinni í aðdraganda kreppunnar. Hann kynntist því snemma brauðstritinu og ranglætinu í þjóðfélaginu. Afí tók því virkan þátt í réttindabaráttu verkafólksins á þessum tíma, sem snerist um það að fá að stofna félög og semja um kaup og kjör. Hann var einn af stofnendum verkalýðsfé- lagsins á Dalvík og var fyrir vikið heiðraður af Verkalýðsfélaginu Ein- ingu í Eyjafirði árið 1983. Til Siglufjarðar kom hann síðan árið 1935, enda var þar næga at- vinnu að hafa og sfldarbærinn í miklum vexti. Þar kynntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, og ömmu okkar, Mundínu Sigurðar- dóttur frá Vatnsenda í Héðinsfirði. Þau giftust árið 1938 og eignuðust þijú böm, Ásbjörn, Hönnu og Hall- dóru, sem öll eru búsett á Siglu- firði. Bamabörnin og bamabarna- börnin, frá Siglufirði og Dalvík, em orðin yfír þijátíu og alla tíð lagði hann mikið upp úr því að halda góðu sambandi við okkur og það var ætíð gott að koma í heimsókn til afa og ömmu á Vetrarbrautina, Laugarveginn og nú síðast Dvalar- heimilið Skálahlíð. Það er óhætt að segja að afí Pétur hafí verið persónugervingur síldarævintýrsins á Siglufírði þegar það var og hét. Þeir sem komið hafa og minnst síldarævintýrsins með okkur Siglfirðingum á sumrin undanfarin ár, hafa oft velt því fyr- ir sér hvort stemmningin og yfír- bragð síldaráranna hafí í raun verið eins og segir í minningum þeirra sem upplifðu þennan merka kafla í atvinnusögu okkar Islendinga. Eftir að hafa heyrt sögumar frá afa og samtímamönnum hans emm við ekki í vafa um að svo hafí ver- ið. Hann var bæði vélstjóri og kokk- ur á síldarbátum og í landi var hann planformaður hjá helstu síld- arsaltendum bæjarins. Á kvöldin. var hann svo hrókur alls fagnaðar, spilaði, söng og dansaði þar til ræst var í söltun að nýju. Svona var lífið á Siglufírði á síldarárunum. Yfír vetrartímann lá bærinn að mestu í dvala og þá vann afi oft á tíðum í SR eða Tunnuverksmiðj- unni. En þá gafst góður tími til að sinna félagsstörfum enda hafa Sigl- firðingar löngum haldið úti eigin menningarlífí vegna einangrunar staðarins. Pétur Bald var ein af driffjöðmnum í Leikfélagi Siglu- fjarðar og söng mikið i revíum á þessum tíma. Við minnumst þess að hann tók okkur með í fyrsta skipti á leiksýningu og var það mikil upplifun fyrir ung börn. Hann söng ennfremur með Karlakórnum Vísi og Kirkjukómum í áratugi. Allar þessar minningar eru okkur í fersku minni því afí var duglegur að segja okkur sögur og rifja upp gömlu tímana þegar við barnaböm- in vomm að alast upp á Siglufírði. Það var alltaf gott að koma til afa og ömmu eftir skóla og þiggja heitt kakó, tefla og hlusta á skemmtileg- ar frásagnir. Besti tíminn fyrir sög- ur og endurminningar var þó þegar við fengum að fara með á sjóinn eða í silungsveiði í Héðinsfjörðinn, eftir að afi gerðist trillukarl á efri ámm. Smábátasjómennskan átti vel við hann enda fannst honum einna best að vera sjálfs sín herra úti á sjó í kyrrðinni og öllu sem því fylgdi. Við bræðumir vomm ekki háir í loftinu þegar við fengum fyrst að fara á sjó með afa og kynnast sjó- mennskunni. Hann lagði sig fram við að kenna okkur réttu handtökin og lagði áherslu á að við lærðum helstu ömefni og viðmið í landi. Stundum gekk hann út frá því að við . strákarnir fetuðum í fótspor hans og yrðum sjómenn seinna meir. Ekki gekk það þó eftir með okkur, en hann fékk sinn skipstjóra í nafna sínum Pétri Bjarnasyni og var samband þeirra sérstaklega náið og gott. Skemmtilegustu minningarnar frá þessum tíma em úr ferðunum í Héðins§örðinn með afa og Pétri Bjama á Freyjuunni, trillunni sem hann átti lengst af. Afi var veiði- vörður þegar Héðinsfjörður dró hvað flesta til sín á sumrin. Hann þekkti því allar aðstæður í firðinum og oft var byijað á því að sigla inn á milli klettanna sem mynda nátt- úrulega höfn í utanverðum firðin- um. Þá var farið í land og klifrað eftir eggjum. Síðan var haldið inn í fjarðarbotninn og róið í land á árabát og tekið til við að moka bleikjunni á land. í Héðinsfírði kom- umst við í snertingu við óspillta náttúmna, fegurðin var mikil og kyrrðin fullkomin. Ef við vorum heppnir þá var gist í veiðihúsinu og þá gat maður átt von á því að sá gamli brygði sér í gömul hlut- verk úr Leikhúsinu. Það má vissu- lega líkja samvemstundunum í Héðinsfírði við himnaríki á jörð og í síðasta sinn sem við heyrðum í afa sagði hann: „Við fömm á Freyj- unni í Héðinsfjörðinn næsta sum- ar.“ Nú er hann farinn í sína hinstu siglingu og himnaríki mun standa honum opið þegar í höfn er komið. Það vom í raun forréttindi að fá að alast upp við þessar aðstæður, þar sem kynslóðimar lifðu í nánu samneyti hver við aðra, þar sem eldra fólkið miðlaði þekkingu sinni og reynslu til bamanna og gaf okk- ur tækifæri á að upplifa gamla sam- félagið og náttúruna í sinni feg- urstu mynd. Að þessu munum við búa allt okkar líf og vera ríkari fyrir vikið og fyrir þetta emm við honum ævinlega þakklát. Nú er komið að kveðjustundinni og langri, strangri en jafnframt lit- ríkri ævigöngu er lokið. Þegar við höfum fylgt afa í hans hinstu för gengur jólahátíðin í garð og hún mun vissulega vekja upp fleiri minningar. Fyrir afa vom jólin alit- af sérstök hátíðarstund og hann lagði mikla áherslu á að allir væm glaðir í kringum hann. Ekki endi- lega með stómm gjöfum heldur með vináttu og hjartahlýju. Við minn- umst jólaboðanna heima hjá afa og ömmu og þar kom jólasveinninn alltaf í heimsókn. Þessi sami jóla- sveinn skemmti síðan öllum bömum bæjarins á jólaböllunum sem á eftir komu. Þegar við uppgötvuðum lejmdardóm jólasveinsins þá sáum við að það var leikarinn og söngvar- inn Pétur Bald sem var á bak við hvíta skeggið og fór mjög vel með hlutverkið. Það er því erfítt að kveðja afa nú þegar hátíð ljóssins er að hefj- ast, en minningin um hann mun lifa hjá okkur afkomendum hans. Guð blessi minningu Péturs Bald- vinssonar. Jón Ólafur Björgvinsson, Sigurður Tómas Björgvinsson. t Maðurinn minn, er látinn. HARALDUR SIGURÐSSON fyrrverandi bókavörður, Drápuhlíð 48, Sigrún Á. Sigurðardóttir. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGÓLFUR ÁRNASON, dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, áður Hrfseyjargötu 8, Akureyri, lést að morgni 21. desember. Svan Ingólfsson, Árni Ingólfsson, Sigrfður Ingólfsdóttir, Agnes Ingólfsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Björg Sigurjónsdóttir, Sigurður Björnsson, Hákon Jónsson, Hrafnhildur Ingólfsdóttir, Óíafur Aðalbjörnsson, Hrefna Ingólfsdóttir, Kristján Sveinsson, Lára Ingólfsdóttir, Páll Asgeirsson, Inga Björk Ingólfsdóttir, Vilhelm Arthursson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og iangafi, JÓN ÁGÚST JÓNSSON, sfðast til heimilis á sambýli aldraðra, Skjólbraut 1, Kópavogi, andaðist í Borgarspítalanum miðvikudaginn 20. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Stefanía Axelsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.