Morgunblaðið - 28.12.1995, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1995 C 7
SUIMNUDAGUR 31/12
Erlendar kvik-
myndir og inn-
lent spaug
Fjöldi frægra kvikmynda af ýmsu tagi
verður til sýningar á Stöð 2 um áramótin.
Einnig ber mikið á íslensku efni, t.d.
gamanþætti Spaugstofumanna á gamlárs-
kvöld og hinum árlega áramótaþætti frétta-
stofunnar, Kryddsíld.
HINN árlegi þáttur fréttastofu
Stöðvar 2, Kryddsíld er á dag-
skrá klukkan 13.50 á gamlársdag.
Sigmundur Ernir Rúnarsson, Helga
Guðrún Johnson og Þorgeir Ást-
valdsson gera upp þjóðmálin og horfa
fram á veginn. Þau fá til sín góða
gesti og ræða málin í gamni og al-
vöru. Forystumenn í íslenskum
stjórnmálum bera saman bækur sín-
ar, þiggja léttar veitingar og slá á
létta strengi.
Þátturinn Imbakonfekt er á dag-
skrá klukkan 20.35. Hér er á ferð-
inni úrval gamanatriða úr Imbakass-
anum á Stöð 2, fram koma litríkar
persónur á borð við Saxa lækni, Stef-
án frá Útistöðum, Ragnar Reykás
og systurnar Guddu og Ruddu. Það
er Spaugstofan sem heldur áhorfend-
um þessa skemmtun.
Skemmtiþáttur af öðrum toga er
síðan á dagskrá klukkan 21.30, Kon-
ungleg
skemmtun
heitir hann
eða „The Royal Variety Perform-
ance“. Hér er á ferðinni góðgerðar-
þáttur þar sem margir af vinsælustu
skemmtikröftum Bretlands koma
fram. Meðal þeirra sem skemmta eru
Cliff Richard, Hale og Pace, Elaine
Paige, Jerry Herman, Brian Conley
og John Bennett.
Kvikmyndin Strýtukollar eða
Coneheads er síðan á dagskrá klukk-
an hálfeitt á nýársnótt. Þetta er vin-
sæl gamanmynd um geimverufjöl-
skyldu sem sest að í Bandaríkjunum.
Útlit þeirra er óneitanlega sérkenni-
legt en sú skýring að þau séu frá
Frakklandi dugir hinum lítt heims-
vönu nágrönnum þeirra ágætlega.
Þijár kvikmyndir
á nýárskvöld
Stöð 2 frumsýnir þijár nýlegar
kvikmyndir á nýárskvöld. Sú fyrsta
hefst raunar klukkan hálfsex um
daginn en þar er á ferðinni kvik-
myndin Strákapör eða „The Sand-
lot“. Þetta er hugljúf gamanmynd
sem gerist árið 1962. Hér segir af
strákahópi sem spilar hafnabolta allt
sumarið og
hvemig nýj-
um strák
tekst að aðlagast hópnum. Strákam-
ir lenda í ýmsum ævintýrum og gera
skemmtilegar uppgötvanir.
Önnur gamanmynd er á dagskrá
klukkan 20.20 og heitir hún Beethov-
en annar eða Beethoven’s 2nd. Eins
og nafnið gefur til kynna er hér á
ferðinni framhaldsmynd en báðar
myndimar hafa notið mikilla vin-
sælda í kvikmyndahúsum. í fyrri
myndinni var hundinum Beethoven
ekki tekið opnum örmum af öllum á
heimili Newton-fjölskyidunnar en
honum tókst þó að vinna hug og
hjörtu allra, þar á meðal húsbóndans
Georges. Nú leikur allt í lyndi og ró
komin á mannskapinn. Það varir þó
ekki lengi því Beethoven er orðinn
ástfanginn og það er von á fjölgun.
Aðalhlutverkin í þessari fjölskyldu-
mynd leika Charles Grodin og Bonnie
Hunt. Leikstjóri er Rod Daniel en
myndin er frá árinu 1993.
Listi Schindlers
Meistaraverk Stevens Spielberg,
Listi Schindlers eða „Schindler’s
List“ er síðan á dagskrá klukkan
21.50. Myndin sem er frá árinu 1993
hlaut sjö Óskarsverðlaun, þar á með-
al sem besta mynd ársins. Aðalper-
sónan, Óskar Schindler, var miklum
hæfileikum gæddur en fullur mót-
sagna. Hann var fæddur sölumaður
og kom sér í mjúkinn hjá nasistum
til að afla sér sambanda og græða
peninga. Hann tók yfir gljámuna-
verksmiðju sem nasistar höfðu gert
upptæka í Kraká og hagnaðist á
mútum, svartamarkaðsbraski og
vinnu ólaunaðra gyðinga.
En smám saman varð Schindler
ljóst hvaða hrikalegu atburðir áttu
sér stað allt í kringum hann. Þegar
helförin mikla breiddist út um Evr-
ópu var þessi mikli hóglífismaður
allt í einu tilbúinn til að fóma öllu
til að bjarga 1.100 gyðingum sem
áttu athvarf í verksmiðjum hans.
Aðalhlutverk leika Liam Neeson, Ben
Kingsley og Ralph Fiennes. Myndin
er frá árinu 1993 og er stranglega
bönnuð börnum.
LoLj
ARAMOTASKAUPIÐ verður á sínum stað á
gamlárskvöld og tæpt á ýmsu af því sem
þjóðin mátti þola anno 1995. Á nýárskvöld
verður sýnd uppfærsla sænska sjónvarps-
ins á óperunni Lifsferli glaumgosans sem
Igor Stravinski gerði við texta eftir W. H.
Auden og Chester Kallman. Hér sjást Greg
Fedderly og Gunilla Söderström í hlutverk-
um sínum.
Hefðbundið
gamlárskvöld
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 29. des-
ember sýnir Sjónvarpið mynd
sem nefnist Vestfjarðavíkingurinn
en þar er sýnt frá keppni aflrauna-
manna sem fram fór á Vestfjörðum
í sumar. Þar á eftir kemur sígild
dans- og söngvamynd með þeim
Fred Astaire, Ginger Rogers og
Randolph Scott í aðalhlutverkum.
Laugardaginn 30. des. ætlar
Arnar Björnsson að gera úttekt á
fótboltasumrinu hér heima í máli
og myndum strax að lokinni beinni
útsendingu frá leik í úrvalsdeild
ensku knattspymunnar. Um kvöld-
ið er síðan athyglisverð bandarísk
bíómynd, Saga frá Bronx, en leik-
stjóri er enginn annar en Robert
DeNiro, sem jafnframt fer með eitt
af aðalhlutverkunum.
Svipmyndir, ávarp og skaup
Gamlárskvöld er með hefð-
bundnu sniði í Sjónvarpinu. Davíð
Oddsson forsætisráðherra ávarpar
þjóðina klukkan átta og þar á eftir
verða sýndar svipmyndir af því sem
hæst bar á innlendum og erlendum
vettvangi á árinu 1995. Að loknu
stuttu innliti í fjölleikahús er síðan
komið að þeim dagskrárlið sem
ekki nokkur lifandi sala lætur fram
hjá sér fara, sjálfu Áramótaskaup-
inu, en þar verða menn og málefni
ársins skoðuð í spéspegli og tæpt
á ýmsu af því sem þjóðin mátti
þola anno 1995.
Þá er komið að ávarpi útvarps-
stjóra, Heimis Steinssonar, og
stuttu eftir að nýja árið er gengið
í garð hefst sýning á bandarísku
gamanmyndinni Heitt í kolunum
eða „Cannonball Fever“ með John
Candy í aðalhlutverki. Nýársdagur
gengur í garð með athyglisverðri
sýningu sænska sjónvarpsins á óp-
erunni Lífsferill glaumgosans sem
Igor Stravinskí gerði við texta eftir
W. H. Auden og Chester Kallman.
Aðalsöngvarar eru þau Greg Fedd-
erley, Barbara Hendricks, Hákan
Hagegárd og Brian Asawa. Esa-
Pekka Salonen stjórnar sænsku
útvarpshljómsveitinni og l'eikstjóri
er Inger Áby. Að kvöldi nýársdags
verður sýnd heimildarmynd sem
Tage heitinn Ammendrup gerði um
Hjört Thordarson hugvitsmann frá
Chicago og kvöldinu lýkur með
upptöku frá hátíðarsýningu á söng-
leiknum Vesalingunum í Royal Al-
bert Hall í október síðastliðnum.
Teiknimyndir og töfrabrögð
Agamlársdag hefur Stöð 3 út-
sendingar klukkan níu með
fjölbreyttu bamaefni. Sögusafnið
er á sínum stað og sömuleiðis leik-
brúðumyndin um Möggu og vini
hennar. Tuttugu mínútur yfir níu
hefur svo nýr breskur teikni-
myndaflokkur göngu sína en hann
heitir Öðru nafni hirðfíflið. Þar
kynnast
áhorfendur
tímaflakkara
og hundinum hans sem líst ekki á
blikuna þegar tímavélin þeirra bil-
ar. kétt fyrir klukkan tíu verða
svo systkinin Orri og Ólafía á
skjánum en þetta er talsettur
teiknimyndaflokkur. Þau búa á
báti á ánni Thames ásamt hundin-
um sínum og eiga fjöldann allan
af góðum vinum.
Það hafa margir lesið bókina
hans Michaels Ende, Sag-
an endalausa, en á gamlársdag
hefur Stöð 3 sýningar á nýjum
teiknimyndaflokki sem byggður
er á þessu ævintýri um Bastian
Baltasar Bux og undraveröldina
sem hann uppgötvar.
Efnilegar breskar rokksveitir
Að kvöldi gamlársdags er efnis-
valið af ýmsum toga. Strax að
loknu ávarpi forsætisráðherra
kynnir Damon Albam í hljómsveit-
inni Blur efnilegar breskar rokk-
sveitir og má þar nefna „The Boo
Radleys“, „Supergrass" og
„Menswear". Elton John styttir
áhorfendum svo stundir fram und-
ir miðnætti en þá verður gamla
árið kvatt og nýju ári fagnað með
óborganlegum þætti töframann-
anna og ærsla-
belgjanna Penn
og Teller. Þessi
þáttur heitir
Ekki reyna
þetta heima með Penn og Teller
og ber nafn með rentu enda stór-
hættulegt að leika nokkuð eftir
þeim.
Laust eftir klukkan eitt verður
kvikmynd Johns Turturro, Mac,
frumsýnd en þetta er fyrsta mynd-
in sem hann leikstýrði og tileink-
aði hana föður sínum. Kvikmynda-
handbók
Maltins gef-
ur myndinni
þtjár stjömur, segir hana fyndna
og sögufléttuna afbragðsvel gerða.
Á nýársmorgun heijast útsend-
ingar ídukkan níu með bamaefni.
Þar er að finna Sögusafnið, Stjána
bláa og son,'Orra og Ólafíu, Mör-
gæsimar og annan þátt teikni-
myndaflokksins Sagan endalausa.
Síðdegis verður sýndur frétta-
annáll sjónvarps- og kvikmynda-
heimsins en þetta er sérstakur
þáttur sem Extra! Entertainment
hefur gert í þáttaröðinni Skyggnst
yfir sviðið sem er reglulega á dag-
skrá Stöðvar 3 síðdegis á þriðju-
dögum.
Rétt fyrir klukkan átta verður
klukkutíma þáttur þar sem stór-
stjömurnar frá Hollywood eru í
sviðsljósinu og kust fyrir hálftíu
er það svo Páll Óskar sem syngur
fyrir fullu húsi í þætti sem tekinn
var upp 19. desember síðastliðinn
í Borgarleikhúsinu. Páll Óskar flyt-
ur bæði gömul lög og ný, en auk
hans komu fram Fjallkonan, Unun
og Milljónamæringarnir.
NYJU ári verð-
ur fagnaðá
Stöð 3 með
óborganleg-
um þætti
töframann-
anna og ær-
slabelgjanna
Penn og Tell-
er. Upptaka
frá tónleikum
Páls Óskars i
Borgarleik-
húsinu 19.
desember
verður
sýnd að
kvöldi ný-
ársdags.