Morgunblaðið - 30.12.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
;gll«r$fmb:ia&tfe
■ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER
BLAÐ
Kunnir kapp-
ar heiðraðir
NOKKRIR kunnir íþróttakappar ganga á fund
lílísabctar Bretlandsdrottningar í London á
morgun til að taka við heiðursmerki bresku
krúninnar. Fyrstan þar rná nefna heimsmets-
hafann i þr ístökki, prestssoninn Jonathan
Fklwards, sem setti þrisvar heimsmet og vard
fyrstur manna til að stökkva yfir átján metra.
Edwards varð heimsmeistari í Gautaborg í
sumar. Bernard Gailacher, fyrirliði Ryder Cup
Evrópuliðsins í golfi, sem fagnaði sigri á
Bandarikjatnönnum 14 Vj -18 xh á Oak Hill
Country Club í Rochester, New York í Banda-
rikjunum í september. Þá mætir lan Rush,
fyrirliði Liverpool, á fund drottningar til að
taka við sínum verðlaunum, allir fá kapparnir
MBE-orðuna — „Order ofthe British Empire. “
HANDKNATTLEIKUR
Útlit fyrirað nærri tíundi hver Mosfellingurfylgi UMFAtil Drammen í næsta mánuði
Geta fylK465 sæta Júmbó-þotu
að er gríðarlegur áhugi hjá
stuðningsmönnum okkar fyr-
ir ieiknum og hópferðinni sem fé-
lagið stendur fyrir til Noregs vegna
hans. Við erum ekki byijaðir að
selja miða en samt hafa työ hundr-
uð og fímmtíu manns bókað far
og ég reikna með að uppselt verði
í ferðina,“ sagði Jóhann Guðjóns-
son, formaður handknattleiks-
deildar Aftureldingar, en félagið
leikur fyrri leik sinn í átta liða
úrslitum Borgarkeppni Evrópu
gegn norska liðinu HK Drammen
í Drammen sunnudaginn 21. jan-
úar nk. Gríðarlegur áhugi er fyrir
leiknum í Mosfellsbæ og að sögn
formannsins gæti stefnt í að tæp-
lega tíundi hver Mosfellingur fylgi
liðinu til Noregs í leikinn.
„Nú bíðum við bara eftir svari
frá Atianta hvort við fáum stóru
Júmbó-þotuna þeirra sem tekur
fjögur hundruð sextíu og fímm far-
þega. Hvort af því verður skýrist
nú öðrum hvorum megin við ára-
mótin. Um leið og þetta atriði verð-
ur komið á hreint hefjum við form-
lega miðasölu í verslun Nóatúns í
Mosfellsbæ." Jóhann sagði enn-
fremur að ef stóra vélin yrði ekki
á lausu stæði Aftureldingu til boða
önnur þota frá Atlanta sem tekur
340 farþega. „Ég bara vona að við
fáum stóru þotuna, því ég er viss
um að við getum fyllt hana. Tugir
manna hafa haft samband við okk-
ur og lýst yfir áhuga á að fara með
auk þeirra tvö hundruð og fímmtíu
sem komnir eru á blað nú þegar,"
bætti formaðurinn við með bros á
vör. Jóhann kvað ekkert vandamál
vera að fá gistingu fyrir þennan
stóra hóp í Drammen. Hann hefur
sett sig í samband við forráðamenn
félagsins. „Framkvæmdastjóri fé-
lagsins hefur fullvissað mig um að
það verði á lausu hótelherbergi fyr-
ir alla þá sem óska eftir að koma
með okkur, jafnvel þó þeir verði
fjögur hundruð sextíu og fimm.“
Jóhann sagði ennfremur áformað
að selja farmiðann á níu til tíu
þúsund krónur. Gisting og miðar á
leikinn verða síðan seldir sérstak-
lega.
Eins og fyrr sagði leikur Aftur-
elding fyrri leikinn ytra á sunnu-
daginn kiukkan fjögur en áformað
er að þotan með leikmenn og
stuðningsmenn fari af stað klukk-
an sex á laugardagsmorgni frá
Keflavík. Farið verður heim á
sunnudagskvöldið eftir leik og
áformað er að lenda í Keflavik um
miðnætti. „Norðmennirnir koma
síðan hingað til lands miðvikudag-
inn á eftir og síðari leikurinn verð-
ur að Varmá fimmtudaginn 25.
janúar.
SKIÐI
Pemilla á
sigurbraut
PERNILLA Wi-
berg frá Svíþjóð
sigraði í gær í
annað sinn í röð
í svigi heimsbik-
arsins. Hún sigr-
aði í síðasta svig-
inu fyrir jól og
endurtók það i
fyrsta svigmót-
inueftirjólí
Semmering í
Austurríki í gær.
SjáC4
Reuter
Landsliðinu boð-
ið til Japan I aprfl
Rúmenar og Júgóslavar á Lottó-mótinu
Landsliði karla í handknattleik hefur ver-
ið boðið á mót í Japan í apríl næstkom-
andi. Um er að ræða átta þjóða sterkt mót
sem Japanir hugsa sér sem æfingamót fyrir
heimsmeistarakeppnina, sem þeir halda
1997. HSÍ hefur áhuga á að þiggja boðið
en ekki hefur verið ákveðið hvort af ferð-
inni verður, þar sem svo óheppilega vill til
að mótið fer fram á sama tíma og lokaúr-
slit íslandsmótsins — þegar barátta tveggja
bestu liða landsins um Islandsmeistaratitil-
inn á að fara fram skv. mótaskrá.
Forráðamenn HSÍ hyggjast skoða gaum-
gæfilega hvort hægt verði að seinka lokaúr-
slitum íslandsmótsins um eina viku, til að
landsliðið komist út. Reikna má með að
margir leikmenn yrðu valdir í landsliðið úr
liðunum tveimur, sem mætast í úrslitunum,
því ef af verður vill HSÍ senda eins sterkt
lið út og kostur er. Undirbúningur úrslitalið-
anna tveggja raskast því óumflýjanlega ef
af Japansferðinni verður og ekki víst að
forráðamenn þeirra verði hrifnir af því. Úr-
slitin um íslandsmeistaratitilinn eiga að he§-
ast föstudaginn 12. apríl en HSI-forystan
fundar á næstunni með forráðamönnum fé-
laga og þeim nefndum sem hlut eiga að
máli, til að komast að niðurstöðu.
Sterkt Lottó-mót
ísland verður meðal keppenda í Lottó-
mótinu, sem fram fer í Noregi um mánaða-
mótin janúar-febrúar. Um er að ræða fimm
þjóða mót að þessu sinni og eru aðrar þátt-
tökuþjóðir Noregur, Danmörk, Júgóslavía
og Rúmenía.
íþróttaráð Kópavogs styrkir íþróttafélög
ÍÞRÓTTARÁÐ Kópavogs hefur veitt félögum í bænum afreksstyrk fyrir
unnin afrek á árinu 1995. Blakdeild HK fékk 750 þús. kr., Körfuknattleiks-
deild Breiðabliks 450 þús. kr., Knattspyrnudeild Breiðabliks 300 þús. kr.,
Fimleikadeild Gerplu 150 þús. kr., Frjálsíþróttadeild Breiðabliks 150 þús.
kr., Skotfélag Kópavogs 130 þús. kr., Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar,
íþróttafélag fatlaðra, Tennisfélag Kópavogs og Siglingafélagið Ýmir fengu
37.500 kr.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR: TVEIR NÝIR LANDSÞJÁLFARAR TIL FRÍ / C3