Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 MORGUNBLA.ÐIÐ 5521150-952 1378 LARUS t>. VALDIMARSSON, framkvæmDASIJORi KRISTJÁN KRISIJÁNSSON, loggiliur fasie'ignasali Upplýsingar um viðskiptin á árinu 1995: Meðaltöl seldra eigna Raunvirði var 99% af kaupverði. Af raunvirði var: Útborgun 41,4%, verðtryggðar áhvílandi skuldir 29% og verðtryggðar eftirstöðvar 29,6% („húsbréf"). Á fyrstu 29 dögum samningstímans greiddu kaupendur 73,7% af raun- virði útborgunar eða 30,5% af raunvirði kaupverðs. Afhending var 12 dögum eftir undirritun kaupsamnings. Útborgun var greidd á 91 degi. Hlutfall raunvirðís var 128,8% af fasteignamati. Hlutfall raunvirðis var 79,1% af brunabótamati. Miðað er við hækkun á lánskjaravísitölu á milli ára sem var 1,02%. Bestu nýársóskir til viðskiptamanna okkar og annarra landsmanna með þakklæti fyrir liðið ár, traust og góð viðskipti. • • • Viðskiptum hjá okkur fylgir ráðgjöf óg traustar upplýsingar. Almenna fasteignasalan sf. var stofnuð 12. júlí 1944. ALMENNA FASTEIGNASALAN LftUGAVEG118 S. 552 1150-5527370 552 1150-552 1370 LARUS t>. VALDIMARSS0N, framkvamdasijori KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, loggiliur fasieignasali Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Mosfeilsbær - Reykjavík - eignaskipti Vel býggt og vel með farið tilburhús, ein hæð, 160 fm, á úrvalsstað í Mosfellsbæ. Góður bílskúr um 40 fm. Stór ræktuð eignarlóð. Margs- konar eignaskipti möguleg. Lyftuhús - suðuríbúð - frábært útsýni Mjög góð 3ja-4ra herb. íbúð á 6. hæð við Æsufell. Sólsvalir. Sameign eins og ný. Verð aðeins kr. 5-5,5 millj. Álfheimar - hagkvæm skipti 5 herb. neðri hæð um 125 fm. Allt sér. Góð lán. Skipti æskileg á 3ja- 4ra herb. íb. í nágrenninu sem má þarfnast egdurbóta. Séríbúð - Garðabær - langtímalán „Stúdíó“-íbúð á 3. hæð og í risi rúmir 100 fm. Næstum fullgerð. Allt sér. 40 ára húsnæðislán kr. 5,1 millj. Vinsæll staður. Lækkað verð. 2ja herb. - traustir kaupendur Leitum að 2ja herb. íbúðum m.a. í Hlíðum, vesturborginni og við Grens- ásveg. Mega þarnfast endurbóta. Rétt íbúð verður gr. við kaupsamning. • • Góðar eignir óskast í vestur- borginni, Hiíðum og gamla bænum. Mega þarfnast endurbóta. ALMENNA FASTEIGNASALAN UUG»VE6I18S. 552 1158 552 1371 éél Fasteignamiðlun Sigurður Óskarsson, lögg. fasteignasaU, Kristján Kristjánsson lögg. fasteignasali, Sigurjón Skálason sölum., Hveragerði. Suburlandsbraut 16, sími 588 0150 fax 588 0140 félag ff fasteignasala Opið LAUGARDAG 13-15 Vantar allar stærðlr elgna í Kópa- vogi norðan Nýbýlavegar, allar stærðir eigna I miðborg og vesturbæ Rvíkur, 3ja herb. íb. á svæði 105 mifli Miklu- brautar og Skipholts, 4ra herb. einbýli í Vogum eða Sundum. Nýbýlavegur - Kóp. - sér- hæð. Glæsileg, parketlögð 83 fm efri sérhæð með 40 fm bílskúr. Frábært út- sýni. V. 8,3 millj. Leirubakki. Glæsileg 97 fm íbúð með sérþvottahúsi. Áhv. 3,8 millj. V. 7,3 millj. Dunhagi. Glæsileg 85 fm ibúð á 2. hæð. Hús og íbúð allt endurnýjað. Suð- ursvalir. Bílskúr. Áhv. 5 millj. V. 7,9 millj. Álftamýri. Frábær 68 fm íbúð á 4. hæð í vönduðu fjölbýli. Malbikuð bíla- stæði og hiti I tröppum. Áhv. byggsj. 700 þús. V. 6,2 millj. Vindás - frábær lán. Giæsiieg parketlögð 85 fm íbúð á 1. hæð með bíl- geymslu. Áhv. byggsj. 3,5 millj. V. 7,5 millj. Skaftahlíð. Glæsileg 46 fm Ibúð á I jarðhæð. Skipti á stærri íbúð f nálægu hverfi norðan Miklubrautar. Áhv. byggsj. 2,7 millj. V. 4,8 millj. Furugrund - hagstæð kjör. Frábær 36 fm Ibúð á 2. hæð. Laus strax. Eignina má greiða með húsbréfaláni allt að 70% kaupverðs eða 25 ára láni frá verðbréfafyrirtæki eða sparisjóði allt að 55% af kaupverði og láni frá seljanda. V. 3,9 millj. Seltjarnarnes - góð lán. stór- glæsileg 66,5 fm parketlögð útsýnislbúð á 4. hæð við Austurströnd. Áhv. 3,4 millj. V. 6,3 millj. Laus fljótlega. Starengi. Fokhelt 176 fm einbýli meó innb. bílskúr. V. 8,6 millj. Klukkurimi. Frábærlega vel teiknað 170 fm einbýlishús með innbyggðum bíl- skúr. Nánast fokhelt. V. 7,7 millj. j Eitt blab fyrir alla! -kjarni málsins! FRÉTTIR Hitaveita Reykhóla áfram til sölu Orkubúið kaupir ekki í andstöðu við heimamenn ODDVITI Reykhólahrepps segir að hreppsnefndin muni halda áfram viðræðum um sölu hitaveitunnar á Reykhólum þrátt fyrir að mikill meirihluti fundarmanna hafi hafn- að þeim hugmyndum á borgara- fundi á dögunum. Framkvæmda- stjóri Orkubús Vestfjarða segir að Orkubúið hafi ekki áhuga á að kaupa veituna í andstöðu við heimamenn. „Við höldum okkar striki," segir Stefán Magnússon oddviti Reyk- hólahrepps um það hvaða áhrif nið- urstaða borgarafundarins hefði á þau áform hreppsnefndarinnar að selja Orkubúi Vestljarða hitaveit- una. Á fundinum var kosin undir- búningsnefnd til að kanna mögu- leika á kaupum heimamanna. Stef- án segir að allt sé inni í myndinni þegar hann er spurður um mögu- leika þeirra að kaupa en vekur at- hygli á því að ekki sé búið að stofna félag um kaupin. Viðræðum yrði haldið áfram við Orkubúið. Kristján Haraldsson Orkubús- stjóri segist hafa staðið í þeirri trú að þeir væru komnir langleiðina að því að ná samkomulagi við hreppsnefnd Reykhólahrepps um kaup á hitaveitunni. Segist hann ekki hafa heyrt í heimamönnum eftir borgarafundinn. „Orkubúið mun ekki kaupa hitaveituna í and- stöðu við hreppsbúa. Við töldum okkur vera að leysa mál fyrir sveit- arfélagið og vorum tilbúnir að kaupa hitaveituna gegn því að það íþyngdi ekki rekstri okkar,“ segir Kristján. Ekki fæst uppgefið hvað Orku- búið vill gi’eiða mikið fyrir hitaveit- una en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er líklegt kaupverð nálægt 50 milljónum kr. Þar er innifalin borhola á Kletti sem ekki gefur neinar tekjur og vegna henn- ar hefur ríkið boðist til að veita Orkubúinu lán sem ekki þarf að greiða af fyrr en holan fer að gefa arð. Koma þá á bilinu 30-40 milljónir kr. í kassa sveitarsjóðs. Er við það miðað að íjárfestingin borgi sig upp á 20 árum og orku- verðið verði meira en tvöfaldað, hækkað úr 40 í 90 kr. tonnið af heitu vatni, svo það verði það sama og annars staðar hjá Orkubússvæð- inu. Vantar upplýsingar Undirbúningsnefnd heima- manna kom saman á fund í gær til að kanna möguleikana á kaupum hitaveitunnar. Jón Sveinsson í Mið- húsum segir að enn vanti upplýs- ingar til að leggja mat á málið en hann segist ekki vera allt of bjart- sýnn á að það takist. Segir Jón að menn geri sér grein fyrir því að úr þessu verði ekki hægt að halda orkuverðinu jafn lágu og verið hefði. Hins vegar hefði verið mjög sterk andstaða við það á borgara- fundinum að Orkubú Vestfjarða hefði með höndum bæði rafmagns- og hitasölu á þessu svæði, þar gætu verið andstæðir hagsmunir á ferðinni. Þjóðminjaráð um silfursjóðinn Umfjöllun Vilhjálms Arnar mjög óheppileg ÞJÓÐMINJARÁÐ segir að umfjöll- un Vilhjálms Arnar Vilhjálmssonar fomleifafræðings um silfursjóðinn frá Miðhúsum hafi verið mjög óheppileg að því er fram kemur í bréfi til hans. Órökstuddar aðdrótt- anir hans í garð aðila, sem tengist því, séu ekki sæmandi starfsmanni Þjóðminjasafns íslands. Líti Þjóð- minjaráð það háttarlag mjög alvar- legum augum og sé það í raun víta- vert. Þjóðminjavörður hefur áminnt Vilhjálm Örn vegna -framkomu í starfi. Þjóðminjaráð tekur m.a. fram að rannsókn á sjóðnum í Kaupmanna- höfn hafi verið gerð í framhaldi af ósk menntamálaráðuneytisins í því skyni að kanna aldur silfursins svo sem unnt væri en ekki til þess að staðfesta eða hrekja það sem gert hafi verið fram að þeim tíma. Mat ráðsins sé að í greinargerð Helga Þorlákssonar og Lilju Ámadóttur komi skýrt fram niðurstöður dönsku rannsóknarinnar enda birtist niður- lag hennar og meginniðurstöður í orðréttri þýðingu. Hvað varðar kynningu á niður- stöðum rannsóknarinnar vill ráðið taka fram að ákveðið hafi verið að leggja fram öll gögn málsins þegar rannsókn lyki. Þau hafi legið frammi á blaðamannafundi í Boga- sal 30. júní og þar hafi skýrsla Vilhjálms, merkt tvö, ekki verið undantekning. Þjóðminjaráð hafi ályktað á fundi Fékk flug- eld 1 augað TVEIR hlutu skaða á augum um áramótin. Sjö ára gamall drengur fékk flugeld í augað við áramóta- brennu í borginni. Drengurinn slasaðist alvarlega á auga og hlaut miklar blæðingar. Að sögn lækna leiðir tíminn það í ljós hvort drengurinn heldur sjón- inni. Þá fékk ung kona blys í annað augað og var gerð aðgerð á henni. LJtlit er fyrir að hún hafi ekki orðið fyrir varanlegum skaða. sínum 30. júní 1995 að lokið væri þeirri rannsókn sem menntamála- ráðuneytið fól því að láta gera. Ráðið hafi ekki á þessu stigi tekið afstöðu til frekari rannsókna á silf- ursjóðnum. Fræðimenn geti hins vegar rannsakað sjóðinn eða ein- staka hluta hans eins og aðra gripi Þjóðminjasafnsins. Alvarlegar ásakanir í garð Þjóðminjasafns Þjóðminjaráð segir að af tillits- semi við Vilhjálm Orn sem málsað- ila hafi honum verið afhent á undan öðrum eintak af skýrslu National museet ásamt greinargerð Helga Þorlákssonar og Lilju Árnadóttur frá því í júní 1995. Honum hafi verið gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum eða skýr- ingum. Ráðið er ósammála því að misræmi sé í niðurstöðu í skýrslu Þjóðminjasafns Dana og greinar- gerð Helga Þorlákssonar og Lilju Árnadóttur. Að lokum er tekið fram að ásak- anir í garð þjóðminjaráðs og starfs- manna Þjóðminjasafnsins í bréfi frá 8. nóvember séu mjög alvarlegar og harmar þjóðminjaráð að starfs- maður safnins skuli hafa haft í frammi slíkan málflutning gagnvart stofnun sinni og samstarfsfólki. Andlát ÞORVALDUR JÓNSSON ÞORVALDUR Jónsson frá Fáskrúðsfirði, Rauðalæk 20, Reykja- vík, lést 31. desember. Þorvaldur var lengi umboðsmaður skipafé- laga. Hann hóf ungur verslunarstörf hjá föð- ur sínum, var um tíma til sjós og verkstjóri hjá Kaupfélagi Fá- skrúðsfirðinga í átta ár. Hann sá um af- greiðslu Skipaútgerðar ríkisins frá 1930 til 1981, tók við af- greiðslu Eimskips af föður sínum, var um- boðsmaður Flugfélags íslands frá stofnun til 1964 og var símstöðvar- stjóri á Fáskrúðsfirði frá 1943- 1959, auk þess að sinna ýmsum trúnaðarstörfum. Þorvaldur var einn af stofnendum Lionsklúbbs Fáskrúðsfjarðar og heiðursfélagi frá árinu 1978. Þorvaldur flutti til Reykjavíkur 1981 og starfaði á skrifstofu Ríkisskips til 1986. Síðastliðið ár dvaldi hann á Hrafn- istu í Reykjavík þar sem hann lést á hjúkrunardeild. Þorvaldur fæddist á Tanga í kauptúninu Búðum á Fáskrúðs- firði þann 18. ágúst 1908. Foreldrar hans voru Jón Davíðsson verslunarstjóri og kona hans Jóhanna Hólmfríður Kristjáns- dóttir. Þorvaldur lætur eftir sig eiginkonu, Oddnýju A. Jónsdótt- ur frá Þorvaldsstöð- um í Breiðdal, og fjögur uppkomin börn, Jóhönnu Ásdísi, maki Vilmundur Víðir Sigurðsson, Guðnýju Björgu, maki Sigurður Þorgeirsson, Jónu Kristínu, maki Ómar Ásgeirsson, og Kristján, maki Helga Jóna Óðinsdóttir. Bamabörn- in eru níu og barnabamabörnin þrjú. Minningarathöfn verður í Laug- ameskirkju fimmtudaginn 4. janúar klukkan 15. Útför fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugardag- inn 6. janúar klukkan 14.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.