Morgunblaðið - 07.01.1996, Qupperneq 1
96 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
5. TBL. 84. ÁRG. SUNNUDAGUR 7. JANÚAR1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
■" t.’,
4Éfáf0MS0
' -
Ifgijl
ilill
.
VETRARRIKIIBARÐARDAL.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Utanríkisráðherra S-Kóreu gagnrýnir lýsingar SÞ á stöðu norðanmanna
Neyðarbirgðir matvæla í
Norður-Kóreu miklar
Seoul. Reuter.
SKORTUR á matvælum er ekki orðinn brýnn
í Norður-Kóreu vegna þess að ríkið á enn
nægar neyðarbirgðir af korni, að sögn ráð-
herra í ríkisstjórn Suður-Kóreu í gær. Frétta-
stofan Yonhap hafði eftir ráðherranum að í
tölum frá stofnunum Sameinuðu þjóðanna
um ástandið virtust birgðirnar ekki vera tald-
ar með.
„Það er rétt að Norður-Kórea er að lenda
í vanda vegna matarskorts en þetta merkir
ekki að landið sé í alvarlegum erfiðleikum,“
sagði Gong Ro-myung utanríkisráðherra í
viðtali við fréttastofuna. Hjálparstofnanir SÞ
sögðu nýlega að rúmar tvær milljónir barna
í Norður-Kóreu gætu orðið að þola fæðu-
skort auk um 500.000 vanfærra kvenna.
Kommúnistastjórnina í Pyongyang myndi
skorta 1,2 milljónir tonna af hrísgrjónum til
að geta fætt alla íbúa landsins og fjöldi barna
myndi deyja úr vannæringu á næstu vikum
ef auðugar þjóðir kæmu ekki til hjálpar.
Flóð eyðilögðu í fyrra mikið af hrísgijóna-
uppskeru norðanmanna og hafa ásamt ýms-
um mistökum valdið slæmu matvælaástandi.
Gong tjáði sig ekkert um það hve lengi
N-Kórea gæti komist af hjálparlaust en benti
á, að gera yrði róttækar umbætur á stjórnar-
farinu til að leysa efnahagsvandann í norðri.
Hann sagði að kanna yrði málið betur áður
en alþjóðleg hjálp yrði veitt og tryggja að
hjálpargögn lentu ekki í höndum hersins.
Stjórnvöld í Seoul hafa krafist þess að norðan-
menn leggi af fjandsamlega stefnu sína gagn-
vart grannanum í suðri.
Aukin stríðshætta
N-kóreski herinn hefur eflt viðbúnað sinn
á landamærunum. Margir óttast að sverfi enn
að kommúnistastjórninni geti það valdið nýju
stríði á Kóreuskaga. Ríkin tvö háðu blóðugt
stríð snemma á sjötta áratugnum og börðust
Bandaríkjamenn með sunnanmönnum en Kín-
vetjar með norðanmönnum. Ekki bætir úr
skák að óvissa ríkir nú um það hver fari með
völd í Norður-Kóreu. Kim Jong-il, sem búist
var við að tæki við af föður sínum, Kim II-
sung heitnum, virðist ekki hafa tekist að
treysta sig í sessi.
Hollustubætur
ANGELA Lamanna, 39 ára gamall
grænmetiskaupmaður í Milanó, and-
aði léttar fyrir skömmu er dómur féll
í borgardómi Mílanó. Rúmlega sjötug-
ur arkítekt hafði krafið Lamanna um
nær 25 milljónir króna í bætur vegna
þess að schaferhundur hennar hafði
ráðist á manninn sem datt og lær-
brotnaði. Grænmetissalan gefur ekki
svo mikið af sér og lagði dómarinn
því til að Lamanna greiddi manninum
bæturnar aðallega með öðrum hætti,
þ.e. með appelsínum, kiviávöxtum og
eplum.
Arkítektinum fannst þetta afbragðs
hugmynd og sættust menn á að hann
fengi ókeypis grænmeti og ávexti
næstu tvö árin. Lamanna verður þó
að greiða honum rúmlega 370.000
krónur í skaðabætur og sendi honum
auk þess körfu með góðgæti fyrir jólin.
Ceausescu var
vel efnaður
NICOLAE Ceausescu, sem tekinn var
af lífi í Rúmeníu 1989, átti um millj-
arð dollara, 65.000 milljónir króna, á
leynilegum bankareikningum og voru
sumir þeirra erlendis, að sögn þing-
nefndar í Búkarest. Féð mun hafa
fengist með vopnasölu til annarra
landa en einnig hagnaðist einræð-
isherrann vel á því að heimta fé af
gyðingum og fólki af þýskum uppruna
sem vildi fá að flytjast úr landi.
Hjartaslag
á sviðinu
New York. Reuter
FRUMSÝNING á óperu Leos Janac-
eks, Makropulos-málið, endaði svip-
lega á föstudagskvöld í Metropolitan-
óperuhúsinu þegar tenórsöngvarinn
Richard Versaille féll úr stiga er var
í þriggja metra hæð yfir sviðinu og
lést skömmu síðar.
Versaille var 63 ára gamall. Hann
lék hlutverk lögfræðingsins Viteks og
var að syngja ljóðlínuna „Það lifir
enginn að eilífu" er hann féll. Hann
var fluttur í skyndingu á sjúkrahús
en lést þar fljótlega. Bráðabirgða-
rannsókn benti til þess að hann hefði
fengið hjartaslag á sviðinu.
Meðal þátttakenda var sópransöng-
konan Jessye Norman og var þetta
fyrsta hlutverk hennar hjá Metro-
politan frá 1993. Tjaldið var látið falla
fljótlega eftir að Versaille datt og
hálftíma síðar var skýrt frá því að
sýningunni yrði frestað.
Stefnumörkun
tímabær 10
Launin í Hanstholm
Lífið á íslandi
16
M-. >—
STÆRSTIR Á MÖPPU-
22 MARKAÐINUM
Hver rddd