Morgunblaðið - 07.01.1996, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ
4
SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1996
h
VIKAN 31/12-6/1
►SÖLUMIÐSTÖÐ hrað
frystihúsanna keypti rekst-
ur sælgætisverksmiðjunnar
Opals hf. og endurseldi síð-
an til Nóa-Síríusar hf. um
áramótin. Samningurinn
var gerður með því skilyrði
að Nói-Síríus flytti hluta af
starfsemi sinni til Akur-
eyrar og skapaði þannig 20
ný störf.
►ÁKVEÐIÐ hefur verið að
taka tilboði fyrírtækisins
Nutrasweet Kelco í Banda-
ríkjunum í 66% hlut islenska
ríkisins í Þörungaverk-
smiðjunni hf. á Reýkhólum.
Andvirði hlutafjár í fyrir-
tækinu er um 23 miHjónir
og nemur hlutur ríkisins
samkvæmt því 15 milljón-
um.
►FÉLAGSDÓMUR hefur
dæmt uppsagnir kjarasamn-
inga Dagsbrúnar, Verka-
lýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur, Einingar og
Hlífar ógildar. Málskostnað-
ur í máli VSÍ og Dagsbrúnar
fellur niður en Verkalýðs-
og sjómannafélag Keflavik-
ur, Eining og Hlíf voru
hvert um sig dæmd til að
greiðaVSÍ 100.000 kr.í
málskostnað.
► JÓN Arnar Magnússon
fijálsíþróttamaður úr
Tindastóli á Sauðárkróki
var útnefndur íþróttamaður
ársins 1995 áfimmtudags-
kvöld. Hann segir að árið
hafi verið ævintýri líkast og
vonast til að titillinn gefi sér
byr undir báða vængi.
►STEFÁN Baldursson
Þjóðleikhússtjóri og Þuríð-
ur Pálsdóttir formaður
Þjóðleikhúsráðs hafa skrif-
að ritstjóra Dagsljóss Ríkis-
sjónvarpsins bréf í umboði
Þjóðleikhúsráðs þar sem
þess er farið á leit að leik-
Iistargagnrýnandi þáttar-
ins, Jón Viðar Jónsson, fjalli
ekki oftar um sýningar leik-
hússins. Jón Viðar segir
ekkert í bréfinu þurfa svars
við.
Prestar fá 9,5%
launahækkun
KJARANEFND hefur úrskurðað
prestúm 9,5% launahækkun að með-
altali. Sjötíu aðrir embættismenn á
vegum ríkisins fá að meðaltali 8%
hækkun. Hækkunin gil<lir frá 1. des-
ember. Guðrún Zoéga, formaður
kjaranefndar, segir að nefndin hafí
tekið mið af úrskurði Kjaradóms og
samningum við opinbera starfsmenn.
Jafet hættir hjá ÍÚ
JAFET Ólafsson hefur látið af störf-
um sem útvarpsstjóri íslenska út-
varpsfélagsins. Stjóm íslenska út-
varpsfélagsins samþykkti þær breyt-
ingar á yfirstjóm fyrirtækisins að
setja á fót fjögurra manna fram-
kvæmdastjóm, sem fara mun með
daglegan rekstur félagsins ásamt
nýjum stjómarformanni þess, Jóni
Ólafssyni. Jón fer jafnframt með
ábyrgð útvarpsstjóra.
Eiríkur skoðar deil-
una í Langholti
EIRÍKUR Tómasson, hæstaréttar-
lögmaður og lagaprófessor, hefur
tekið að sér að skoða ágreininginn í
Langholtskirkju og skila hr. Ólafi
Skúlasyni, biskupi íslands, skýrslu
um hann.
Kostnaður vegna ÓL
ÁÆTLAÐUR heildarkostnaður Rík-
isútvarpsins vegna beinna útsendinga
frá Ólympíuleikunum í Atlanta í
Bandaríkjunum í júlí nk. verður um
45 milljónir. Bogi Ágústsson, frétta-
stjóri Sjónvarps, segir að ef niður-
staðan yrði sú að dreifa jafnt á allar
deildir þeirri upphæð sem veija á til
dagskrárgerðar á árinu sé ljóst að
til harkalegs niðurskurðar verði að
grípa. Nefnirhann í því sambandi að
fella niður 11 -fréttir og segja upp
starfsfólki.
Bosníu-Serbar hand-
taka múslima
STJÓRNVÖLD Bosníu-Serba í hverf-
um þeirra í Sarajevo létu á fimmtu-
dag lausa 16 múslima sem handtekn-
ir vora fyrr í vikunni í hverfunum.
Fólkið sagðist hafa sætt illri meðferð
í haldi Serba, jafnvel barsmíð og
kvartaði undan því að hermenn Atl-
antshafsbandalagsins, NATO, hefðu
ekkert skipt sér af handtökunni.
Serbar hefðu stolið skilríkjum, erlend-
um gjaldeyri og jafnvel bílum fanga
sinna. Handtakan var brot á Dayton-
samkomulaginu sem tryggja á ferða-
frelsi í allri Bosníu.
Talsmenn heija NATO neituðu í
fyrstu að skipta sér af málinu, sögð-
ust ekki geta sinnt lögreglustörfum
í landinu. Þótti ljóst að málið gæti
haft alvarlegar afleiðingar fyrir álit
almennings á friðargæsluliðinu, væri
jafnvel prófsteinn á það hvort takast
mætti að framfylgja friðarsamkomu-
laginu.
Kozyrev segir af sér
ANDREJ Kozyrev, utanríkisráðherra
Rússlands frá árinu 1990, sagði af
sér embætti á föstudag en hann var
kjörinn þingmaður fyrir Múrmansk í
kosningunum í desember. Ráðherra
má ekki gegna jafnframt þing-
mennsku í Rússlandi og varð Kozyrev
því að velja. Ljóst þótti að staða hans
í ráðherraembætti væri orðin mjög
veik vegna gagnrýni kommúnista og
þjóðemissinna á störf hans.
► SAMKOMULAG náðist
seint á föstudagskvöld milli
repúblikana á þingi og Bills
Clintons Bandaríkjaforseta
um að veita alrikisstjórninni
í Washington greiðsluheim-
ildir til bráðabirgða en
margir opinberir starfs-
menn hafa ekki fengið laun
vikum saman. Verður því á
ný hægt að byrja að árita
vegabréf í sendiráðum
Iandsins.
►TOMIICHI Murayama,
forsætisráðherra Japans og
leiðtogi sósíalista, tilkynnti
óvænt á föstudag að hann
hygðist segja af sér emb-
ætti. Ekki yrði þó efnt til
nýra kosninga, stjórnar-
flokkarnir myndu halda
áfram samstarfi. Talið var
líklegt að Ryutaro Hashi-
moto viðskiptaráðherra, úr
Fijálslynda lýðræðisflokkn-
um, tæki við stjórnarforyst-
unni.
►FRANSKAR útvarps-
stöðvar mótmæltu í vikunni
nýjum lögum sem kveða á
um að minnst 40% þeirra
dægurlaga sem leikin eru
frá því snemma morguns
fram til 10.30 á kvöldin skuli
vera frönsk. Segja talsmenn
stöðvanna að löggjöfin sé
tilræði við frelsi hlustenda.
FRETTIR
BIRGIR Sigurjónsson, flugvirki, mundar hitamyndavélina og Björn Steinbjörnsson, dýralæknir,
og Friðþjófur Þorláksson, hestamaður, fylgjast með af miklum áhuga.
Hitamyndavél notuð
við hrossalækningar
NÝ TÆKNI er komin til sögunnar
við greiningu á helti í hrossum og
staðsetningu á bólgum á ýmsum
stöðum líkamans. Er hér um að
ræða hitamyndavél sem beint er að
hrossinu og kemur fram á sjón-
varpsskjá hitaútstreymi frá líkama
hestsins, mestur hiti þar sem bólgur
eru eða eymsli af öðrum sökum.
Bjöm Steinbjörnsson dýralæknir er
farinn að nýta sér þessa tækni, en
eigandi tækjanna er Birgir Sigur-
jónsson flugvirki.
Birgir segir að fjölbreytt notkun-
argildi tækjanna hafi vakið áhuga
sinn og hafi hann keypt þau þegar
hann var atvinnulaus á sínum tíma.
Sem dæmi nefndi hann að tækið
nýttist til að finna hvar vatn væri
komið inn á tvöfaldar plastklæðn-
ingar á flugvélum, hægt væri að
greina leka í heitum og köldum
Nýr höfundur
sunnudags-
hugvekju
SÉRA Jóna Kristín Þorvaldsdóttir,
sóknarprestur í Grindavík, skrifar
sunnudagshugvekjur fyrir Morgun-
blaðið næstu mánuði. Fyrsta hug-
vekja hennar birtist í blaðinu í dag,
sunnudag 7. jan-
úar.
Séra Jóna
Kristín lauk stúd-
entsprófi frá MS
1980 og guð-
fræðiprófi (cand.
theol.) frá Há-
skóla íslands
1988. Hún var
farprestur í Nes-
kaupstað 1989 til
1990 og hefur
verið sóknarprestur í Grindvíkur-
prestakalli frá 1990.
Hún var í ritnefnd Orðsins, rits
félags guðfræðinema, 1987 til 1988,
í ritstjórn blaðsins Kirkjulíf á Austur-
landi 1989 til 1990. Hún er í helgi-
siðanefnd íjóðkirkjunnar, í stjórn
Bjarma, félags um sorg og sorgarvið-
burði, og Soroptimistaklúbbi Suður-
nesja. Hún hefur flutt hugvekjur og
morgunbænir í útvarpi og erindi um
trúarleg efni á fundum og samkom-
um.
Eiginmaður hennar er Ómar Ás-
geirsson atvinnurekandi og eiga þau
tvö böm.
vatnslögnum, snjóbræðslukerfum,
mismunaálag á fösum í raflögnum
og svo væri þetta stórsniðugt þegar
kanna þyrfti ástand lagna við kaup
á eldra húsnæði.
Birgir sagðist hafa auglýst
myndavélina, en undirtektir hafi
verið heldur dræmar. Sagði hann
að svo virtist sem menn gerðu sér
ekki grein fyrir gagnsemi tækisins
og hversu notkunarmöguleikarnir
væra fjölbreyttir. Nefndi Birgir að
starfsmenn Húsasmiðjunnar hafi
átt í vandræðum með rafmagnið
en tekist hafi að finna meinið með
hitamyndavélinni og síðan hefur
hann verið með reglulegt eftirlit
þar.
Tækið greindi óléttu
En upphafið að nýtingu tækisins
við hrossalækningar var að Ragnar
Ólafsson, kunnur hestamaður, á
íslenska tík sem átti að vera hvolpa-
full og datt þeim í hug að reyna
tækið og sjá hvort greina mætti
óléttuna með myndavél Birgis. í
framhaldi af því fóru þeir að prófa
hana á hrossin. Síðar komst svo
Björn dýralæknir í málið og hefur
vélin verið notuð í nokkram tilvik-
um.
Björn sagði hér um að ræða nýj-
ung í læknisgreiningu, því hægt
væri að staðsetja mjög nákvæmlega
hvar meinið liggur hveiju sinni.
Sérstaklega ætti þetta við um bóg
og bak hrossa, þar sem erfitt væri
að fínna auma bletti með þreifingu,
bæði liði og vöðva. Benti Björn á
að bakmein væru mun algengari í
hrossum en áður var talið og nýtt-
ist hitamyndavélin vel í þeim efnum.
Aðspurður kvað Björn ástæður fyr-
ir þessum bakmeinum meðal annars
þær að álag kæmi of snemma á
bak hrossa og einnig hefði hann
gran um að of þungir knapar væru
að ríða hrossum sem ekki hefðu
nægilega sterkt bak til að bera
byrðina svo vel fari.
Ástæður breytinga á geðslagi,
þannig að hrossin sýni ólund með
ýmsum hætti, megi oft rekja til
eymsla í baki. Einnig megi rekja
breytingar á ganglagi til þessa.
Hross tapi fjöðrun eða þessari eðli-
legu bylgjuhreyfingu baksins og
fari ýmist í skeiðbinding eða leiti í
brokk þegar eitthvað ami að bak-
inu. Sagði Björn að brýnt væri að
knapar huguðu vel að hnökkum sín-
um, hversu vel þeir pössuðu á hest-
ana. Einnig væri nokkuð algengt
að hnakkarnir væru staðsettir of
aftarlega þannig að meginþungi
byrðarinnar kæmi á veikasta hluta
baksins.
Opið hús hjá
bílaverkstæðum
BÍLGREINASAMBANDIÐ
stendur fyrir opnu húsi á bíla-
verkstæðum á landinu laugar-
daginn 13. janúar næstkomandi
og er útlit fyrir að um 30 verk-
stæði standi landsmönnum opinn
þennan dag. Þar verður boðið upp
á endurgjaldslausa þjónustu fyrir
viðskiptavini.
Meðal þess sem bílaeigendum
verður boðið upp á þennan dag
verður m.a. ljósastilling og peru-
skipti, afgasmæling og hleðslu-
mæling, athugun á rúðuþurrk-
um, hjólbörðum, frostlegi og
hemlum og mat á tjóni og verðá-
ætlun á viðgerðum.
Jónas Þór Steinarsson, fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasam-
bandsins, segir að algengt sé að
öryggisbúnaður eins og ljós sé í
ólagi á bílum.
„Ljósin vora eiginlega eina
atriðið sem var jafnan í góðu
lagi áður en reglum um aðalskoð-
un var breytt. Nú hefur ljósa-
skoðunum fækkað mjög mikið
því bíllinn er orðinn þriggja ára
gamall þegar hann fer fyrst í
aðalskoðun. Á sama tíma hefur
ljósanotkun aukist mjög mikið
með ,dagljósanotkun. Svo líða
aftur tvö ár þar til bíll er færður
aftur til aðalskoðunar þannig að
fyrstu fimm árin fer bíllinn að-
eins einu sinni í ljósaskoðun,“
sagði Jónas.
Jónas Þór sagði að tilgangur-
inn með opnu húsi væri m.a. að
fá bílaeigendur til þess að huga
að þessum öryggisþáttum og
ætlunin væri að hafa þennan við-
burð árvissan á bílaverkstæðum
landsins.
Jóna Kristín
Þorvaldsdóttir
í
i
i
I
i
i
I
i
i
I
I
i
I
I
I
É
I
I
I
I
É
I
I
I
I
f
■ Hugvekja/38