Morgunblaðið - 07.01.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LBSTIR
SUNNUDAGUR 7. .IANÚAR 1996 15
Morgunblaðið/Ásdís
ARNALDUR Arnarson kveðst hafa verið svo lánsamur að geta sameinað kennslu og tónleikahald.
Tímabært að kveðja sér
hljóðs á nýjan leik
ARNALDUR Arnarson gítarleik-
ari mun halda tónleika í Islensku
óperunni þriðjudaginn 9. janúar.
Eru þeir á vegum Styrktarfélags
Islensku óperunnar og hefjast
klukkan 20.30.
Arnaldur nam gítarleik á ís-
landi, í Sviþjóð, Englandi og á
Spáni og hefur unnið til fjölda
verðlauna á ferli sínum. Hann
hefur búið i Barcelona siðan 1984
og kennir þar gítarleik við Luthi-
er tónlistarskólann, auk þess að
efna til tónleika víða um lönd.
Arnaldur hefur margoft komið
fram á Islandi og eru flutningur
hans á Aranjuez-konsert Rodrig-
os ásamt Sinfóníuhljómsveit Is-
lands undir stjórn Karstens And-
ersen árið 1990 og einleikstón-
leikar hans á Listahátíð í Reykja-
vík 1992 tónlistarunnendum enn
í fersku minni.
Arnaldur kom síðast fram hér
á landi á gítarhátíðinni á Akur-
eyri 1994 og þar á undan á tón-
leikum í röð einleikstónleika í
Gerðubergi árið áður. Þótti hon-
um því tímabært að kveðja sér
hljóðs á nýjan leik. „Forsvars-
menn Styrktarfélags Islensku
óperunnar og ég komumst síðast-
liðið sumar að samkomulagi um
að ég nýtti tækifærið meðan ég
væri staddur hér á landi í jóla-
fríi.“
Arnaldur hyggst leika verk
eftir Isaac Albéniz, Julian Agu-
irre, Manuel María Ponce, Joaqu-
in Turina, Gustave Samazeulh
og Mario Castelnuovo-Tedesco á
tónleikunum en á efnisskrá eru
jafnframt svíta eftir J.S. Bach
og tokkata eftir Þorstein Hauks-
son. Síðastnefnda verkið hefur
Arnaldur flutt nokkrum sinnum
á erlendri grundu en aldrei hér-
lendis.
Fór víða í fyrra
Arnaldur viðurkennir að hann
hafi ef til vill ekki lagt nógu ríka
áherslu á tónleikahald í gegnum
árin. Á nýliðnu ári fór hann hins
vegar víða enda segir hann að
tónleikaferðum hans utan Spán-
ar hafi jafnt og þétt fjölgað á
síðustu misserum. „Þetta hefur
undið upp á sig á undanförnum
árum sem er mjög jákvætt fyrir
mig sem tónlistarmann, auk þess
sem það er alltaf gaman að ferð-
ast.“ Meðal Ianda sem gítarleik-
arinn hefur sótt heim eru Banda-
ríkin, Argentína, Kólumbía, Eng-
land, Sviss og flest Norðurland-
anna.
Kennslan er hins vegar aðal-
starf Arnaldar. „Eg hef verið svo
lánsamur að geta sameinað þetta
tvennt, tónleikahald og kennslu,
enda hef ég mjög gaman af
kennslunni. Ég hef til að mynda
stundum nýtt tækifærið þegar
ég er á tónleikaferðalögum er-
lendis og efnt til stuttra nám-
skeiða. Nokkrir nemendanna
sem sótt hafa þau námskeið hafa
síðar hafið nám hjá mér á Spáni.
Það er mér mikils virði.“
Þess má geta að um þessar
mundir nema tveir íslenskir gít-
arleikarar hjá Arnaldi í Barce-
lona, Halldór Már Stefánsson og
Omar Orn Arnarson.
Að sögn Arnaldar er sitthvað
í farvatninu hjá honum um þess-
ar mundir, þótt ekki sé tímabært
að nefna það á þessari stundu.
Svo mikið er þó víst að hann er
ekki á heimleið enda kveðst hann
vera í góðu starfi ytra, auk þess
sem hann sé kvæntur spænskri
konu. „Ég kem hins vegar til ís-
lands á hverju ári og nýt þess
alltaf að koma fram hér á landi.“
ÞJÓÐDANSAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Kennsla hefst mánudaginn ö. j*anúar í Álfabakka 14A.
Gömlu dansarnir á mánudagskvöldum. Byrjendur og framhaldshópur. Kennari er Helga
Þórarinsdóttir og undirleikari Páll Kárason harmóníkuleikari. Kennsla hefst mánudaginn 8.
janúar og er námskeiðið 12 tímar. Er þetta ekki gamall draumur sem vert er að láta rætast?
Opnir tímar verða annan hvern miðvikudag kl. 20.30-23.00. Þú mætir þegar þú vilt og
greiðir fyrir hvert skipti. Nokkrir dansar eru rifjaðir upp og síðan dansa allir af hjartans lyst.
Stjórnandi er Helga Þórarinsdóttir. Fyrsta opna kvöldið verður miðvikudaginn 10. janúar.
Mikið Qör!!
Barna- og unglingaflokkar.
Áhugavert og þroskandi starf þar sem börnin dansa innlenda og erlenda þjóðdansa, syngja og
læra órgrynni af vísum. Kennsla fer ffam síðdegis á þriðjudögum og laugardagsmorgnum.
Þrír aldurshópar: 3-5 ára, 6-8 ára, 9 ára og eldri.
Kennari er Elín Svava Elíasdóttir og hefst kennslan þriðjudaginn 9. janúar.
/ÚNl ^
Allt dansáhugafólk
velkomið!
Upplýsingor og innritun
í símo 5Ö7-1616.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur.
%
m-i-a gh
o
’S
m
* /ONl ^
FITUBREnnSLUHAmSKEIÐ
HEF|AST 8. |AnUAR.
fTlORGUn-,
DAG~, OG
KVÖLDHÓPAR.
TAKÍTiARKAÐUR
FIOLDI
Á
FltU
BRjnnsm
SK&ÁnÍnG ERJ=IAFÍn
í SÍrriA 586 1616
mnnnÐA
tÍLBOÐ
í LÍKAmSRÆKt
AÐEinS KBu 9.950
Innifalið í tilboði:
h
OPIÐ HV/S
sunnuDACinn
7* jAn
HY timAtAFLA OG
FÍtuBRjnnsLunómsKjÍÐ
MEFjASt mÁnuDACinn 8. jnn.
leikfimi
pallar
pallar-bongó
vaxtarmótun
fitubrennsla
kripalujóga
tækjasalur
nuddpottur
vatnsgufa
Handklæði, sjampó
og hárnæring
fylgir fritt
við hverja komu.
ÁRMÚLA 30-SÍMI 588 1616