Morgunblaðið - 07.01.1996, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
BRIDS
llmsjón Guðmundur l'áll
Arnarson
LESANDINN er að spila
rúbertubrids í ítölskum
spilaklúbbi. Þú og makker
þinn eigið geim og nú ertu
að spila þijú grönd, sem líta
vel út. Ef þú vinnur spiiið,
er rúbertunni lokið, þú get-
ur staðið upp, þakkað fyrir
þig og farið heim. Tapist
spilið hins vegar ...
Austur gefur; NS á
hættu.
Norður
♦ KDG64
V 87
♦ Á62
+ 873
Suður
♦ 53
V ÁG654
- ♦ KD8
* ÁK4
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 hjarta
Pass 1 spaði Pass 2 lauf
Pass 2 tíglar Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
. . . gerist þrennt (1)
Andstæðingamir taka tvær
alsiemmur í röð; (2) makker
þinn hættir að spila við þig
(sem er kannski ekki það
versta); og (3) klúbbstjórinn
innrammar sögu spilsins
upp_ á vegg.
Útspil vesturs er tígultía.
Hvernig viltu spila? (Spað-
inn liggur hvorki 6-0 né
5-1.)
Þú tekur slaginn heima
og spilar spaða. En ef þú
lætur mannspil úr borðinu,
lengist í rúbertunni:
Norður
♦ KDG64
V 87
♦ Á62
♦ 873
Vestur Austur
♦ 82 ♦ Á1097
▼ D9 IIIIH V K1032
♦ 109743 111111 ♦ G5
♦ D965 * G102
Suður
♦ 53
V ÁG654
♦ KD8
♦ ÁK4
Austur dúkkar spaðahá-
karlinn, en drepur næst og
spilar tígli eða laufí. Þá fást
aldrei nema tveir slagir á
spaðann og átta í allt, því
hjartað er of langsótt.
Með því að spila smáum
spaða frá báðum höndum í
bytjun er samgangurinn
tryggður og þrír spaðaslag-
ir auðsóttir.
E.S. Sögumaður er ítal-
inn Franco Broccoli, sem
skrifar töluvert í ítalska
bridsblaðið.
SKÁK
llmsjón Margcir
Pctursson
SVARTUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp á Guð-
mundar Arasonar mótinu í
Hafnarfirði í desember.
Færeyjameistarinn Eyðun
Nolsoe (2.111 dönsk stig)
var með hvítt, en Sævar
Bjarnason (2.305), alþjóð-
legur meistari, hafði svart
og átti leikinn. Hvítur lék
síðast 31. Hel- e5
Listaafhending
RANGHERMT var í frétt
á bls. 47 í blaðinu í gær
að Friðrik Ragnarsson
hafi afhent lista mótfram-
boðsins í Verkamannafé-
laginu Dagsbrún. Það var
formannsefnið Kristján
Árnason sem afhenti list-
ann. Beðist er velvirðing-
ar á þessum mistökum.
Leiðrétting
Á forsíðu fasteignablaðs
Morgunblaðsins á föstu-
dag urðu þau mistök í
línuriti að tölur um mán-
aðarlegar greiðslur vegna
afborgana af hæstu lán-
um vegna nýbyginga voru
rangar. Réttar eru þær
31. - Hbl! 32. Hxf5 -
Hxel+ 33. Kf2 - Ha2+
34. Kg3 - Hd3+ 35. Kxg4
- Hxg2+ 36. Kh5 - exf5
37. h3 — Kh7! og hvítur
gafst upp. Hann á
ekki viðunandi vörn
við hótuninni g7-g6
mát.
Skákþing
Reykjavíkur 1995
hefst í dag, sunnu-
daginn 7. janúar, í
félagsheimili Taflfé-
lags Reykjavíkur,
Faxafeni 12. Tefldar
verða 11 umferðir í
einum flokki. Teflt
er þrisvar í viku, á
sunnudögum kl. 14
og miðvikudögum
og föstudögum kl.
19.30. Mótið er öllum opið.
Verðlaun: 60 þús., 30 þús.
og 20 þús. Einnig eru veitt
verðlaun í stigaflokkum.
Umhugsunartíminn er ein
og hálf klukkustund á 30
leiki og síðan 45 mínútur
til að ljúka skákinni. At-
kvöld Hellis annað kvöld
kl. 20 í Menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi í Breið-
holti.
þannig: Mánaðarlegar
greiðslur vegna lána til
15 ára eru kr. 52.860,
vegna lána til 25 ára kr.
39.045 og vegna lána til
40 ára kr. 32.263. Beðizt
er velvirðingar á þessum
mistökum.
Pennavinir
14 ÁRA sænsk stúlka vill
skrifast á við stráka á svip-
uðum aldri. Hefur áhuga á
bókum, tónlist og fl.:
Jennie Gustavsson,
Stjtinistigen 9,
Frödinge,
598 95 Vimmerby,
Sverige.
COSPER
Þú mundir ekki heldur eftir silfurbrúðkaupi okkar eða
gullbrúðkaupi.
LEIÐRÉTT
ORÐABÓKIIM
GÓÐUR vinur þessara
pistla vakti mig til um-
hugsunar um orðasam-
bandið til góða, sém
hann hyggur, að fjöl-
miðlamenn séu farnir
að nota í ríkara mæli
en gert var fyrir nokkr-
um áratugum. ís-
lenzkukennarar hafa
lengi bent nemendum
á, að þetta væri beint
tekið úr dönsku og í
reynd þarflítið í ís-
lenzku máli. Vafalaust
hefur það smogið inn í
málið fyrir dönsk áhrif
á fyrri öldum. í OH er
elzta dæmið úr Passíu-
sálmum sr. Hallgríms
Til góöa
Péturssonar, þar sem
hann segir: „tak það og
virð til góða. í dönsku
heitir þetta, svo sem
flestir þekkja, til gode,
og þar notað í jmsum
samböndum. I Ný-
danskri orðabók frá
1896 sem kennd er við
sr. Jónas á Hrafnagili
og Björn Jónsson rit-
stjóra, stendur þetta:
hafe til gode og sagt
merkja á íslenzku eiga
inni. Þar er enn fremur
orðasambandið holde
en nt til gode og þýtt
á íslenzku vorkenna
e-m e-ð. í því er einnig
fólgin afsökun. Þá er
sambandið gore en til
gode skýrt með orðun-
um gæða e-m. Frá um
1860 er dæmi: „spörðu
þær eigi að eta og
gjöra sér til góða. “ I
Isafold Björns Jóns-
sonar 1876 stendur
þetta: [peningar]
standa „til góða“ í bók
kaupmanns. Hér er
með gæsalöppum verið
að afsaka notkun þessa
danskættaða orðalags.
Mönnum getur ekki
heldur blandazt hugur
um, að orðalagið að
eiga e-ð inni hjá e-m
fer betur í máli okkar.
J.A.J.
STJÖRNUSPÁ
cftir Franccs Drakc
STEINGEIT
Afmælisbarn dagsins:
Þú sýnir öðrum örlæti og
skilning, og ert mikill
dýravinur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft á þolinmæði að
halda og ættir ekki að skýra
öðrum frá áformum þínum
að svo stöddu ef þú vilt ná
settu marki.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að ljúka heimaverk-
efni, sem þú hefur vanrækt
að undanförnu. Einhugur rík-
ir hjá fjölskyldunni, sem
leggur sitt af mörkum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú gerir rétt í því að halda
þig utan við deilur um stjóm-
mál eða trúarbrögð í dag.
Skoðanir þínar gætu valdið
misskilningi.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí) H88
Varastu einhvern sem fer á
bak við þig í mikilvægu máli
í dag. Haltu þínu striki, og
þú finnur réttu lausnina fljót-
lega.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Einhugur ríkir hjá ástvinum
í dag, og þeir njóta dagsins
með fjölskyldunni. Barn get-
ur komið þér ánægjulega á
óvart í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) <&?
Þú þarft að afgreiða mikil-
vægt mál í dag, sém þolir
ekki meiri bið. Ef þú lætur
skynsemina ráða, fínnur þú
lausnina.
v^g
(23. sept. - 22. október)
Gættu þess að mæta stund-
víslega til stefnumóts eða
samkomu í dag, því elia gæti
komið upp misskilningur milli
ástvina.
Sþorödreki
(23. okt. - 21. nóvember) Cjjj0
Þótt þú hafír ástæðu til að
fagna góðu gengi í vinnunni
að undanförnu, ættir þú ekki
að láta þar við sitja. Haltu
sókninni áfram.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Vertu vel á verði í peninga-
málum og viðskiptum. Til eru
þeir, sem vilja reyna að mis-
nota sér reynslu þína og
þekkingu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Eitthvað er að gerast sem
veitir þér tækifæri til að
bæta stöðu þína og auka tekj-
urnar. Þú ert vissulega á
réttri leið.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Eftir langvarandi deilur tak-
ast góðar sættir milli vina í
dag. Einhver gefur þér góð
ráð, sem eiga eftir að reyn-
ast vei.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) 3*
Þótt misskilningur ríki i sam-
skiptum við vin eða starfsfé-
laga, er annað uppi á ten-
ingnum í sambandi ástvina,
sem njóta dagsins.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spárafþessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra stað-
reynda.
SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1996 43
TILBOD
ÓSKAST
í Jeep Wrangler 4x4, árgerð '95 (ekinn 4 þús. mílur), Geo
Storm, árgerð '93, Chevrolet Lumina A.P.V., árgerð '90,
Plymouth Colt Vista, árgerð '88 og aðrar bifreiðar, er
verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 9. janúar
kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.00.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
RANNÍS
Rannsóknarrað Íslands
AUGLYSIR STYRKI
Norrænt samstárf vísindaráða
NOS-nefndir
Rannsóknarráð á Norðurlöndum hafa með sér samstarf á íjórum
helstu fagsviðum grunnvísinda í svokölluðum NOS-nefndum
(Nordis samarbejdsnævn). Nefndirnar eru fjórar: Samstarfsnefnd í
félagsvísindum (NOS-S), hugvísindum (NOS-H), náttúruvísindum
(NOS-N) og læknavísindum (NOS-M). Rannsóknarráð Islands á
fulltrúa í öllum nefndunum fjórum og eru þeir próf. Þórólfur
Þórlindsson í NOS-S, próf. Vésteinn Ólason í NOS-H, dr. Halldór
Þorgeirsson í NOS-N og próf. Helgi Valdimarsson í NOS-M.
Nefndirnar koma saman tvisvar á ári, vor og haust. Þær ræða stöðu
og þróun vísindamála á Norðurlöndum og samstarfsmöguleika hver
á sínu sviði. Eitt helsta verkefni þeirra er einnig að úthluta styrkjum
til norrænna samstarfsverkefna.
Styrkir
Umsækjendur þurfa að vera frá minnst tveimur Norðurlandanna.
Umsóknir eru metnar út frá vísindalegu gildi verkefnisins og hæfni
umsækjenda, (líkt og tíðkast með umsóknir til annarra vísin-
dasjóða). Styrkir eru veittir til þrenns konar verkefna:
a) Forverkefai, til könnunar á hugmyndum um ný sam-
starfsverkefai. Upphæðirnar eru oftast á bilinu 100—500 þús.
ísl. kr. til hvers verkefais. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar í
NOS-H og NOS-S, til 1. mars og 1. október í NOS-M, en í
NOS-N er enginn tilgreindur umsóknarfrestur.
b) Samnorræn rannsóknaverkefni. Upphæðir til þessara verkefaa
geta verið frá 100—5.000 þús. ísl. kr. Umsóknarfrestur er til
1. júní hjá NOS-H og NOS-S, til 1. mars og 1. október hjá
NOS-M, en enginn til greindur umsóknarfrestur er hjá NOS-N.
c) Útgáfustyrkir. Bæði NOS-H og NOS-S veita styrki til útgáfu
fræðirita. Umsóknar frestur er til 15. febrúar og 1. júní.
Frekari upplýsingar um NOS-nefndirnar og um ofangreinda s
tyrki fást hjá skrifostofu Rannsóknarráðs ísiands, Laugavegi 13,
sími 563-1320, þar sem viðeigandi umsóknar eyðublöð fást.
-kjarnimálsins!