Morgunblaðið - 07.01.1996, Síða 56

Morgunblaðið - 07.01.1996, Síða 56
varða víðtæk fjármálaþjónusta Landsbanki íslands Bankl allra landsmanna MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 RKYKIAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK _______________________, Morgunblaðið/RAX Rætt um hljóðfærasölu til að létta á fjárhagsvanda RÚV Mjög verðmæt fiðla meðal eigna RUV Sparnað- arnefnd __ skipuð í HÍ HÁSKÓLARÁÐ hefur ákveðið að bíða með að skipa viðræðunefnd við ríkið vegna hugmynda um að gera Háskóla íslands að sjálfs- eignarstofnun þar til frekari undir- búningsvinna hefur farið fram. „Menn eru sammála um að hér sé eitt stærsta mál sem komið hefur upp á borð háskólans og telja að um svo róttæka breytingu sé að ræða, að standa verði vel að undirbúningi innanhúss áður en farið er út í viðræður,“ sagði Svein- bjöm Bjömsson rektor HÍ. Hann sagði enn fremur að vegna þess að skólinn hefði ekki fengið meira fjármagn á fjárlögum en 'raun ber vitni muni verða skipuð sparnaðarnefnd, sem hafi það hlut- verk að skila tillögum um hvar skera megi niður. Sjálfsnám á tölvuneti? Hluti sparnaðarins gæti falist í því að beina hluta af æfíngatíma nemenda inn á tölvunet þannig að stúdentar geti gert æfingar sem sjálfsnám á netinu. Þá telur rektor ljóst að ekki verði hægt að fara út í ný verk- efni sem auki heildarkostnað. „Geti menn innan fjárhagsramma tekið upp nýjungar gegn því að leggja niður annað er þeim fijálst að gera það,“ sagði hann. ■ Stefnumörkun/10/11 -----»■ ♦ ♦ • Sóttu nýfætt barn til Nes- kaupstaðar TF LÍF, þyrla Landhelgisgæslunn- ar, sótti nýfætt barn til Neskaup- staðar aðfaranótt sl. laugardags og flutti það á sjúkrahús í Reykja- vík. Þyrlan fór í loftið kl. 219.30 á föstudagskvöld og lenti kl. 3.30 aðfaranótt laugardagsins. Aðstæður til flugsins voru slæm- ar, afar lélegt skyggni og þoka og þurfti að fljúga meðfram suður- strönd landsins. Tveir læknar voru um borð í vélinni. Bamið var að- eins þriggja stunda gamalt þegar læknir á Neskaupstað tók ákvörðun um að senda það með sjúkraflugi til Reykjavíkur. KÖNNUNARVIÐRÆÐUR hafa farið fram milli Verkamannafélags- ins Dagsbrúnar og Verkakvennafé- lagsins Framsóknar um hugsan- lega sameiningu. Viðræðurnar liggja niðri þessa dagana en að sögn Sigurðar Bessasonar, starfs- manns Dagsbrúnar, má reikna með að þeim verði haldið áfram. „Eg fullyrði að það er fullur vilji .meðal Dagsbrúnarmanna að fara í viðræður við Framsókn af fullri einurð,“ sagði hann. Sigurður sagði að A-listi stjórnar og trúnaðarráðs Dagsbrúnar, vegna væntanlegra stjómarkosninga, hefði á stefnu- skrá sinni að hefja viðræðurnar af fullum krafti ef listinn næði kjöri. Félagsmenn Framsóknar og Dags- brúnar eru samtals um 8.000. MEÐAL hugmynda sem upp hafa komið innan Ríkisútvarpsins, til að létta á fjárhagsvanda þess, er að selja hljóðfæri sem eru í eigu stofnunarinnar. Ríkisútvarpið á nokkur verðmæt hljóðfæri, bæði flygla og fiðlur, að sögn Harðar Vilhjálmssonar, fjármálastjóra RÚV. Þeirra á meðal er mjög verð- mæt Guameri fiðla en Hörður vildi ekki gefa upp verðmætamat henn- ar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er verðmæti fiðlunnar á annað hundrað milljónir kr. Hörður sagði að þegar Sinfóníu- hljómsveitin var aðskilin frá Ríkis- útvarpinu og gerð að B-hluta stofnun árið 1981, hefðu fylgt Áhugi á víðtækari sameiningu félaga á höfuðborgarsvæði Um áramótin sameinuðust líf- eyrissjóðir Iðju, Sóknar, Félags starfsfólks í veitingahúsum, Fram- tíðarinnar í Hafnarfirði, Hlífar í Hafnarfirði og lífeyrissjóður Dags- brúnar og Framsóknar. Nokkur áhugi hefur verið á því innan ein- stakra félaga sem standa að ný- stofnuðum lífeyrissjóði að athugað henni töluvert mörg hljóðfæri sem Ríkisútvarpið átti og hafði lagt Sinfóníuhljómsveitinni til. RÚV hélt þó eftir nokkrum verðmætum hljóðfærum en aðspurður sagði Hörður að dýrt væri fyrir stofnun- ina að eiga þessi hljóðfæri, m.a. vegna trygginga. „Fyrirtæki þurfa að hafa efni á því að styrkja listina með þessum hætti,“ sagði hann. Rætt um sölu Skjaldarvíkur og eignarlands á Vatnsenda Ríkisútvarpið á ýmsar fleiri eignir sem rætt er um hvort ástæða sé til að selja. M.a. er nú til at- hugunar sala á húsi og landareign RUV í Skjaldarvík. „Undir haustið verði hvort grundvöllur sé fyrir nánara samstarfí eða sameiningu einhverra eða allra félaganna. Eng- ar viðræður eru þó hafnar um þenn- an kost. „Það eru margir þeirrar skoðun- ar innan verkalýðshreyfingarinnar að það sé kominn tími til að menn tali af fullri alvöru um að sameina á mun víðari grunni félög á Reykja- víkursvæðinu. Ég tel hins vegar reiknum við með að ný og öflug langbylgjustöð verði tekin í notkun á Gufuskálum. Ríkisútvarpið á Skjaldarvík, myndarlegt tveggja íbúða hús og stórt land í kring og það er líklegt að þessi nýja lang- bylgjustöð geri miðbylgjustöðina sem starfrækt er frá Skjaldarvík óþarfa. Þá myndum við til dæmis athuga möguleika á því að Ríkisút- varpið seldi þetta hús og eignir sínar þarna. Hið sama má segja um Vatnsenda en þar á Ríkisút- varpið stórt eignarland. Menn eru að velta fyrir sér hvað sé réttlátt að Ríkisútvarpið eigi á sínum efna- hagsreikningi þegar peninga er þörf,“ sagði Hörður. að menn verði að stíga eitt skref í einu og skoða þetta svo í fram- haldinu," sagði Sigurður. Verði öflugri í baráttunni Björn Grétar Sveinsson, formað- ur Verkamannasambandsins, sagði að víða innan hreyfingarinnar væru uppi hugmyndir um samstarf eða sameiningu félaga, en þær væru í flestum tilvikum mjög skammt á veg komnar. Björn Grétar sagði að sameining væri eðlileg þróun sem ætti að fara fram án tilskipana að ofan, ef menn fyndu hjá sér þörf fyrir sameiningu. „Þetta snýst allt um að félögin geti veitt betri þjónustu og verði öflugri í barátt- unni,“ sagði hann. Kveikt á perunni ÞAÐ ER ekki lítið starf, sem bíð- ur götuljósadeildar Rafmagns- veitu ríkisins á ári hverju. Á orkuveitusvæði rafmagnsveit- unnar, sem nær yfir Reykjavík, Kjalarnes, Mosfellsbæ, Selljarn- arnes, Garðabæ og Kópavog, eru um 25 þúsund götuljósastólpar og samkvæmt upplýsingum ívars Þorsteinssonar, framkvæmda- stjóra tæknimála hjá rafmagns- veitunni, er skipt um tíu þúsund perur á ári. Notaðar eru tvær tegundir pera, kvikasilfursper- ur, sem gefa frá sér bláhvítt ljós, og natríumperur, sem hafa gult Ljós. Ivar sagði að fjórir vinnu- flokkar sæju um peruskipti og viðgerðir og þeir hefðu fjóra lyftikörfubifreiðir til umráða. Á þessari mynd sést starfsmaður rafmagnsveitunnar í lyftikörfu við einn af ljósastaurum borgar- innar. -----» ♦ ♦ ■■■■ 23 hand- teknir í fíkniefna- máli GERÐAR voru tvær húsleitir í gær í húsum í austurborginni á vegum fíkniefnadeildar lögreglunnar með liðstyrk frá almennu lögreglunni í Reykjavík. Ellefu voru handteknir á öðrum staðnum og tólf á hinum. Fíkniefna- deildin hafði grun um að fíkniefna- misferli færi fram á stöðunum, þ.e.a.s. neysla og sala á fíkniefnum. Lagt var hald á lítilræði af hassi og amfetamíni. Einnig var lagt hald á allmarga muni sem talið er að séu þýfi. Verkamannafélagið Dagsbrún og V erkakvennaf élagið Framsókn Könnunarviðræð- ur um sameiningu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.