Morgunblaðið - 09.01.1996, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KNATTSPYRNA
LANDSLIÐSMENNIRNIR i knattspyrnu úr
Fram, Birkir Kristinsson og Kristján Jónsson,
eru famir til Noregs og Svíþjóðar og byijaðir
að æfa með Brann og Elfsborg án þess að að
gengið hafa verið frá félagaskiptum þeirra úr
Fram. Framarar biða eftir að félögin hafi sam-
band vegna félagaskiptanna.
Jón Sveinsson, miðvörður FH-liðsins, hefur
gengið á ný til liðs við Fram.
Maradona vill að
þeir ríku borgi
meiri skatta
MARGIR te\ja að knattspyrnukappinn Diego
Maradona hafi stigið sín fyrstu spor sem „stjóra-
málamaður“ þegar hann sagði i sl. viku að ríkt
fólk í Argentínu, eins og hann sjálfur, eigi að
greiða meira í skatta — skatta til að hjálpa fóiki
í landinu sem býr við hungur. Systir Maradona
hefur ekki haft ráð á hafa ofan í sig og á, en
hann hefur hjálpað henni. Maradona segir að
það séu ekki allir, sem eigi ríka bræður, eins
og systir hans.
1996
ÞRIDJUDAGUR 9. JANUAR
BLAD
Besti árangur
Daníels í göngu
DANÍEL Jakobsson, skíðagöngumaður úr
Leiftrí, náði besta árangrí sínum í 15 km göngu
með hefðbundinni aðferð á sterku móti í Asarna
í Svíþjóð á laugardaginn. Hann hafnaði í 19.
sæti og vár 2,41 mín. á eftir sænska sigurvegar-
anum Niklas Jonsson. Björn Dæhiie, sem hefur
örugga forystu í heimsbikarnum, varð annar, 8
sekúndum á eftir Jonsson. Torgny Mogren frá
Svíþjóð varð þríðji. Gísli Einar Árnason frá
ísafirði tók einnig þátt í göngunni og hafnaði í
39. sæti.
Daníel er í góðri æfingu og hefur verið að
bæta sig verulega síðan í fyrra. Hann tekur þátt
í sænska meistaramótinu sem byijar 21. janúar.
Hann tók þátt í minna móti í Strömsund á sunnu-
dag og sigraði. Hann var einni mínútu á undan
Svíanum Márten Handler, sem varð annar í 15
km göngu.
Birkir og Kristján
eru farnir út
Leikmenn New-
castle fá 15 millj. kr.
GEORGE Weah, landsliðsmaður
Líberíu og leikmaður AC Milan,
var krýndur knattspyrnumaður
heims af alþjóða knattspyrnusam-
bandinu, FIFA, í hófi í Mílanó í
gærkvöldi. Weah, sem var á dög-
unum kjörinn knattspyrnumaður
Evrópu og einnig Afríku 1995,
fékk 170 stig í atkvæðagreiðslu
sem 100 landsliðsþjálfarar tóku
þátt í. Paolo Maldini, AC Milan,
fékk 80 atkvæði og Jiirgen Klins-
mann, Bayern Munchen, var í
þriðja sæti með 58 atkvæði. Rom-
ario, Brasilíu, fékk 50 atkvæði og
Roberto Baggio, AC Milan 49.
Þetta er í fimmta skipti sem FIFA
viðurkennir leikmann, en áður
hafa Lothar Matthaus, Marco Van
Basten, Roberto Baggio og Rom-
ario verið krýndir.
Landslið Brasiliu var valið besta
liðið 1995 og landslið Jamaíku var
valið efnilegasta Iiðið. Þá fékk
Frakkinn Jacques Glassmann sér-
staka viðurkenningu fyrir hátt-
vísi, en það var hann sem sagði
frá að menn frá Marseille hefðu
reynt að múta honum og félögum
hans — til þess að láta lið þeirra
tapa fyrir Marseille.
KNATTSPYRNUKAPPINN George Weah náði þrennunnl í gærkvöldi, þegar hann
var krýndur besti knattspyrnumaður heims 1995 af FIFA. Weah, sem er hér
ásamt elginkonu sinni, er einnig knattspyrnumaður Evrópu og Afríku.
LEIKMENN Newcastle, sem eru taldir líklegast-
ir til að verða Englandsmeistarar, fá 15,6 miiy.
ísl. kr. á mann ef þeir ná að tryggja liðinu hinn
eftirsótta meistaratitil. Þetta er mun hærri bón-
us en búið er að lofa leikmönnum Man. United,
en þeir eiga að fá átta miiy. kr. á mann ef þeir
ná titlinum til Old Trafford.
FRJALSIÞROTTIR
Martha Ernstdóttir kemurheim, færekki lengurstyrkfrá Ólympíusamhjálpinni
Læt ekkert stoppa mig
Hlaupakonan Martha Ernstdótt-
ir, sem hefur náð lágmarki
fyrir 5.000 metra hlaup á Ólympíu-
leikunum í sumar, fær ekki lengur
styrk frá Ólympíusamhjálpinni. Þeg-
ar Marta fékk styrkinn greiddan
fyrir áramótin fylgdi lítill gulur miði
með sem sagði að þetta væri síðasta
greiðslan til hennar.
„Ég veit að FrjálsíþróUasamband-
ið og Ólympíunefnd íslands hafa
verið að reyna að fá þessu breytt
en ég veit ekki hvort það tekst. Það
er ekkert annað fyrir mig að gera
en að koma heim, því ekki lifir mað-
ur á loftinu einu saman,“ sagði
Martha í samtali við Morgunblaðið
í gær, en hún er nú stödd hér á landi
en á eftir að bregða sér til Noregs
og pakka niður.
Það kemur nokkuð á óvart að
Martha skuli missa styrkinn því hún
náði Ólympíulágmarki í 5.000 metra
hlaupi í fyrra og um leið hlaut hún
keppnisrétt á heimsmeistaramótinu.
„Það þýðir ekkert að svekkja sig
yfir þessu. Auðvitað breytast for-
sendur hjá manni við þetta en ég
er ákveðin í að halda mínu stirki og
fara á Ólympíuleikana. Ég er þakk-
lát fyrir þetta ár sem ég fékk styrk-
inn og læt þetta hafa sem minst
áhrif á mig. Ég læt ekkert stoppa
mig. Ætli þetta lendi ekki á fjöl-
skyldunni eins og venjulega," sagði
Martha.
Hún tók þátt í víðavangshlaupi í
Belfast um helgina og lenti þar í
áttunda sæti, fékk tímann 16,52
mínútur en hlaupnir voru 4,8 kíló-
metrar, en lágmarkið fyrir keppni í
5.000 metra hlaupi á Ólympíuleik-
unum er 16,05 mínútur og því náði
Marta í sumar. „Það er nú ekkert
að marka tímana í víðavangshlaup-
unum, en ég er sátt við frammistöð-
una því veðrið var leiðinlegt, mjög
hvasst,“ sagði Martha.
SKÍÐI / HEIMSBIKARINN: ALBERTO TOMBA ENGUM LÍKUR / B8