Morgunblaðið - 10.01.1996, Page 1

Morgunblaðið - 10.01.1996, Page 1
 lendingar til Spánar SKÍÐASAMBAND íslands hefur ákveðið að senda þijá keppendur á heimsmeistara- mótið í alpagreinum sem fram fer í Sierra Nevada á Spáni í byijun febrúar. Þetta eru þeir Kristinn Björnsson frá Ólafs- firði, Amór Gunnarsson frá ísafirði og Haukur Arnórsson úr Ármanni, en þeir hafa allir verið við æfingar undir stjórn landsliðsþjálfarans Kaminski i Schladming í Austurríki í vetur. Heimsmeistaramótið í Si- erra Nevada átti að fara fram síðasta vetur en var frestað um eitt ár vegna snjóleysis. Nú hefur verið ákveðið, að ef ekki verður nægur siyór í Sierra Nevada verður heims- meistaramótið flutt til St. Anton í Austurríki. KNATTSPYRNA Weah gaf Weng- er verðlaun sín KNATTSPYRNUKAPPIIMN George Weah frá Líberíu, sem var krýndur knattspyrnumaður heims í Mílanó á mánudagskvöldið, kom skemmtilega á óvart við krýning- arathöfnina. George „kóngur“ eins og hann er kallaður, kallaði Arsene Wenger, fyrrum þjálfara sinn hjá Mónakó, upp á svið og færði honum öskjuna með verðlaunagrip sínum að gjöf og sagði við það tækifæri: „Ég vil að þið vitið öll að mér hefur þótt vænt um vináttu margra manna, en það er einn maður sem mér þykir vænst um. Það er þessi ARSENE Wenger, fyrsti þjálfari Weah í Evrópu. maður,“ sagði Weah þegar hann færði Wenger gripinn. „Þegar ég kom til Evrópu, reyndist þú mér sem faðir. Þú sagðir við mig: „George, legðu hart að þér, þá verður þú góður leikmaður." Eg fór eftir ráðleggingum Wengers og hann lagði grunninn að því að ég hef orðið gæfusamur," sagði Weah. „Ég fékk þennan verðlaunagrip, en ég vil að þú eigir hann. Þú verðskuldar hann meira en ég,“ sagði Weah þegar hann ávarpaði Wenger, sinn fyrsta þjálf- ara í Evrópu eftir að Mónakó keypti hann frá Tonnerre Yaounde í Kamerún 1988. Frá Mónakó fór Weah til París St. Germain og þaðan fyrir þetta keppn- istímabil til AC Milan. Þjálfari Noregs valdi konu EGIL Olsen, landsliðsþjálfari Norðmanna, hefur heldur betur komið á óvart í vali á besta knattspyrnumanni heims, en 100 landsliðsþjálfarar tóku þátt í kjörinu sem lauk með útnefn- ingu George Weah í fyrrakvöld. Hver landsliðsþjálfari tilnefndi þrjá leikmenn á atkvæðaseðli sínum og hefur það komið á óvart að Olsen var með konu á lista sínum. Norska stúlkan Hege Riise, sem varð heims- meistari með Norðmönnum í Svíþjóð, varð í þriðja sæti á lista Olsens á eftir rússneska varnar- leikmanninum Ilia Tsimbalar hjá Spartak Moskvu og sóknar- leikmanninum Ivan Zamorano hjá Real Madrid. Kona hefur aldrei áður verið á lista yfir bestu leikmenn heims. De Mos rekinn frá Werder Bremen Theodór og Kjart- an í Breiðablik THEODÓR Hervarsson og Kjartan Einarsson hafa báðir gengið til liðs við 1. deildarlið Breiða- bliks. Theodór hefur leikið með Skagamönnum undanfarin ár og á 42 leiki í 1. deild og hefur gert tvö mörk í deildinni. Hann lék ekki mikið með ÍA í fyrra, var einu sinni í byrjunarliði í bikarkeppninni og kom f imm sinnum inn á sem varamaður I deildinni. Hann kemur væntanlega til landsins í maí, en hann er við nám í veður- fræði í Noregi. Theodór leikur vinstra megin, annað hvort sem bakvörður eða miðjumaður og Kjartan Iék með Keflvíkingum í fyrra. Örebrosvarar Eyjamönnum ekki JÓHANNES Ólafsson, formaður knattspyrnu- ráðs ÍB V, segir greinilegt að sænska liðið Örebro ætli sér að fá einhveija greiðslu fyrir Hlyn Stef- ánsson sem lék með félaginu í fjögur ár en er nú kominn heim til Eyja á nýjan leik. „Forráða- menn Örebro hafa ekki haft fyrir því að svara símbréfum sem við höfum sent þeim og ég er búinn að gefast upp á að reyna að komast í sam- band við þá og hef beðið KSÍ að hafa milligöngu í málinu,“ sagði Jóhannes í samtali við Morgun- blaðið í gær. Hann sagði ljóst að samningur Hlyns og Örebro væri útrunninn og því ætti félagið enga kröfu um greiðslu fyrir leikmanninn. „Forráða- menn félagsins hafa hins vegar sagt Hlyni að þeir ætli sér að fá einhveija greiðslu fyrir hann,“ sagði Jóhannes, sem vonast eftir því að eitthvað fari að skýrast í málinu. HOLLENDINGURINN Aad de Mos var í gær rekinn frá Werder Bremen og mun aðstoðarmað- ur hans, Karl-IIeinz Kamp, taka við stjórninni fyrst um sinn. Bremen, sem varð í öðru sæti undir stjórn Otto Rehhagel sl. keppnistímabil, er nú í fimmtánda sæti. „Þessi ákvörðun var erfið, en við urðum að taka hana,“ sagði Franz Boehmert, forseti Werder Bremen. Liðið hefur ekki náð sér á strik undir stjórn De Mos og hann hefur ekki náð að feta í fótspor Rehhag- el, sem fór til Bayem MUnchen efth- sl. keppnis- timabil, eftir fjórtán ára frábært starf hjá Werd- er. Undir stjórn Rehhagel varð Werder sigurveg- ari í Evrópukeppni bikarhafa 1992 og varð tvisv- ar þýskur meistari og einnig tvisvar bikarmeist- ari. De Mos er fyrrum þjálfari PS V Eindhoven í Hollandi, Mechelen og Anderlecht í Belgíu. Æ Þrír Is- ÍSLENSKU landsliðsmennlrnlr Kristinn Björnsson, Arnór Gunnarsson og Haukur Arnórsson verða fulltrúar íslands á heimsmeistaramótinu í Slerra Nevada á Spáni í næsta mánuði. Plorjgttnl&lbiMI* 1996 MIÐVIKUDAGUR 10. JANUAR BLAÐ SKIÐI / HEIMSMEISTARAMOTIÐ I ALPAGREINUM MIKIL ANDSTAÐA VIÐ HUGMYND UM STÆKKUN KNATTSPYRNUMARKA / B3

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.