Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 4
HANDKNATTLEIKUR
Átta liða úrslit bikarkeppninnar í karla- og kvennaflokki verða háð í kvöld
Eini alvöruúrslitaleikur bikar-
keppninnar á Akureyri í kvöld
í KVÖLD verður leikið í 8-liða
úrslitum í bikarkeppni karla og
kvenna í handknattleik. Mest
spennandi leikur kvöldsins er
án efa viðureign bikarmeistara
KA og íslandsmeistara Vals á
Akureyri. Þessi lið háðu harða
rimmu ffyrra bæði um íslands-
og bikarmeistaratitilinn. Bikar-
úrslitaleikurinn í fyrra var tví-
framlengdur og er einn mest
spennandi leikur sem fram
hefur farið hér á landi. „Það
má segja að þetta sé úrslita-
leikur keppninnar. Það lið sem
vinnur verður bikarmeistari,11
sagði Þorbjöm Jensson lands
liðsþjálfari.
Allir leikir kvöldsins í karlaflokki
hefjast klukkan 20 nema leik-
ur KA og Vals sem hefst í KA-hús-
inu hálftíma siðar. Þorbjörn Jensson
landsliðsþjálfari spáir í leiki kvölds-
ins fyrir Morgunblaðið, og segir að
leikurinn á Akureyri verði „stóri“
leikur kvöldsins.
„Það er rosalega erfitt að spá
um úrslit leiksins á Akureyri. Sem
Valsmaður verð ég þó að spá Val
sigri en það verður mjótt á munun-
um og það kæmi mér ekki á óvart
þótt leikurinn yrði framlengdur.
Valsmenn eru með örlítið betur
spilandi lið — betri vörn og eins
betri markvörð, enda hafa þeir
fengið á sig fæst mörk í deildinni,"
sagði þjálfarinn.
„KA-menn eru hins vegar með
öflugar skyttur; Patrek og Duran-
ona. Sóknarleikur þeirra hefur verið
góður og ef skytturnar verða í stuði
verður þetta erfíður leikur fyrir
Val. Svo má ekki gleyma því að
KA er á heimavelli og það eitt get-
ur vegið eins og aukaleikmaður.
Þessi tvö lið eru þau bestu í dag
og því er hægt að segja að þetta
verði eini alvöru úrslitaleikur bikar-
keppninnar,“ sagði Þorbjöm.
Völsungur - Selfoss
„Það yrði stórslys ef Selfoss
myndi tapa á Húsavík. Selfyssingar
eru með miklu betra lið og því spái
ég öruggum sigri þeirra."
Breiðablik - Fram
„Eg tippa á Framara í þessum
leik því þeir eru með mun betra lið
en Breiðablik. Heimavöllurinn dug-
ar Blikum ekki.“
ÍBV - Víkingur
„Þessi lið eru mjög áþekk að
i styrkleika, en ég held að heimavöll-
urinn ráði úrslitum og ég spái því
sigri Eyjamanna.“
Stórleikur í Garðabæ
í bikarkeppni kvenna byrja allir
leikimir kl. 20.00 nema leikur Fram
og FH sem hefst í Framhúsinu kl.
I 18.15. Leikur Stjömunnar og
Hauka í Garðabæ er stórleikurinn
í 8-liða úrslitum enda em liðin í
tveimur efstu sætunum í 1. deild.
Þorbjörn segist hallast að sigri
Stjömunnar. „Heimavöllurinn veg-
ur þungt og ræður úrslitum," sagði
Þorbjöm.
Morgunblaðið/Bjarni
Bikarslagur
ALFREÐ Gíslason og
Patrekur Jóhannes-
son úr KA hafa und-
anfarna daga stund-
að sund í flotvestum
tll að liðka slg elns
og sjá má á mynd
Kristjáns Kristjáns-
sonar hér tll hliðar,
en þelr hafa báðfr átt
við hnémeiðsli að
stríða. Á myndinni
hér að ofan má sjá
Ólaf Stefánsson,
stórskyttu úr Val, en
hann verður í sviðs-
IJósinu í kvöld í lelk
sem margir telja hlnn
raunverulega úrsllta-
leik blkarkeppnlnnar.
Svíar burstuðu Tékka
Fram - FH
„Framarar em með betra lið en
FH-ingar og hafa titil að verja.
Framstúlkur vita hvað þarf til í bik-
arkeppninni. Það verður því Fram
sem kemst áfram.“
Víkingur - ÍBV
„Þessi lið em áþekk að styrk-
leika. Víkingur hefur ekki leikið vel
það sem af er mótinu en ég held
að þessi leikur verði vendipunktur-
inn og ég veðja því á Víking. Heima-
völlurinn er einnig mikilvægur í
svona leikjum.“
Fylkir - KR
„Ég held að KR-ingar vinni Fylki
nokkuð örugglega. Það er meiri
reynsla og breidd í KR-liðinu,“ sagði
Þorbjörn.
FJÓRIR fyrstu leikirnir f heims-
bikarmótinu í handknattleik,
sem haldið er í Svíþjóð, fóru
fram í gær en þar keppa þær
þjóðir sem urðu í ótta efstu sæt-
unum á Heimsmeistaramótinu
hér á landi í maí. Heimamenn
áttu ekki í nokkrum erfiðleikum
með Tékka, voru 15:9 yfir í leik-
hléi og sigruðu með nfu marka
mun, 31:20.
Egyptar sigurðu Króata 26:22.
Heimsmeistararnir frá Frakk-
landi sigruðu Svisslendinga
26:23 eftir að hafa 13:12 yhr f
leikhléi og Rússar fóm illa með
Þjóðverjar. Rússar höfðu 16:7
yfir f leikhléi og hélst sá munur
lengi fram eftir en undir lokin
slökuðu Rússar á klónni og sigr-
uðu 29:22.
Þess má geta að þeir sem hafa
aðgang að Eurosport geta séð
flesta leikina í beinni útsendingu
og í dag leika Þjóðveijar og
Egyptar klukkan 17.30 að ís-
lenskum tíma og Svíar og Sviss-
lendingar kl. 19. Frakkar og
Tékkar leika einnig í dag og
Króatar mæta Rússum.
Oldham þarf
að borga
18,2 millj. kr.
fyrir Þorvald
FÉLAGSSKIPTADÓM-
STÓLL í Englandi úrskurðaði
í gærkvöldi, að Oldham yrði
að greiða Stoke 180 þús. sterl-
mgspund fyrir Þorvald
Örlygsson, eða um 18,2 miljj.
íslenskra króna.
FOLX
■ ALLT bendir nú til að svissneski
leikmaðurinn Marc Hottiger, sem
leikur með Newcastle í Englandi,
gangi til liðs við Everton. Hann lék
51 leik með Newcastle á síðustu
leiktíð en hefur ekki komist í liðið í
vetur eftir að Warren Barton var
keyptur. Hottinger lék í úrslita-
keppni HM 1994 og hann vill endi-
lega fá að spila í deildinni enda þarf
hann að halda sér í góðri æfingu
fyrir EM í sumar. Everton hefur
boðið rúmar 70 milljónir í kappann
en hann getur ekki leikið með Evér-
ton fyrr en hann fær nýtt atvinnu-
leyfi.
■ ENSKT dagblað skýrði frá því í
gær að Chelsea sé í samningavið-
ræðum við Gianluca Vialli, hinn 31
árs gamla krúnurakaða senter hjá
Juventus á Italíu. Samningur hans
rennur út í vor og segir sagan að
Vialli langi að leika með Chelsea
en þar er Ruud Gullit fyrir og Glen
Hoddle við stjórnvölinn.
■ ALEX Ferguson, knattspyrnu-
stjóri hjá Manchester United, var
í Mílanó á sunnudaginn til að skoða
miðjumanninn Zvonimir Boban hjá
AC Milan en hann hefur átt erfitt
uppdráttar hjá félaginu. Þangað var
hann keyptur 1991 en var síðan lán-
aður til Bari og kallaður aftur þegar
Frank Rijkaard yfirgaf AC Milan.
Vikulaun hans eru sögð rétt rúmlega
ein milljón.
■ LEEDS hefur fengið gamla brýn-
ið Lee Chapman að láni hjá
Ipswich til þess að fylla skarð það
Sem þeir Jeboah og Brian Deane
skilja eftir sig á næstunni, en Dean
tekur út bann á meðan Jeboha þarf
að fara í landsleik.
■ WEST Ham vill kaupa Don
Hutchison frá Sheffield United
fyrir um 80 mil|jónir króna, en
þegar hann var seldur frá Li-
verpool fyrir nokkru kostaði kapp-
inn rúmlega 150 milljónir króna.
■ SUNDERLAND fékk um 20
milljónir króna í tekjur af jafnteflis-
leiknum við Manchester United um
helgina og vonast menn þar á bæ
til að fá ríflega 100 milljónir fyrir
síðari leikinn en hann verður sýndur
á SKY 30. janúar.
■ TVEIR rússneskir landsliðsmenn
hafa gengið til liðs við Millwall,
þeir Sergei Yuran og Vassili
Kulkov, og fyrir vikið hefur þýski
sóknarmaðurinn Uwe Fuchs snúið
heim og verið lánaður til Fortuna
Diisseldorf, en hann kom til Milw-
all frá Kaiserslautern eftir að hafa
hjálpað Middlesbrough upp í úr-
valsdeildina.
■ ROGER Stanislaus, 27 ára gam-
all varnarmaður hjá Leyton Orient,
á yfir höfði sér langt bann eftir að
í ljós kom í lyfjaprófi að hann hefur
neytt kókaíns.
■ BOLTON keypti í gær miðju-
manninn Wayne Burnett frá
Plymouth og greiddi um 10 millj-
ónir króna fyrir hann, en áður var
kappinn hjá Blackburn.
■ TONY Coton, markvörður hjá
Man. City, gekk í gær til liðs við
Sunderland.