Morgunblaðið - 11.01.1996, Qupperneq 1
96 SÍÐUR B/C/D
8.TBL. 84.ÁRG.
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Minningar-
athöfn á
Bastillutorgi
TIJGIR þúsunda komu saman á
Bastillutorginu í París til að
minnast Fran?ois Mitterrand,
fyrrverandi Frakklandsforseta,
er lést á mánudag. Mitterrand
verður borinn til grafar í fæð-
ingarbæ sínum Jarnac í dag og
verða einungis nánustu ættingj-
ar hans og vinir viðstaddir útför-
ina, Einnig verður haldin minn-
ingarathöfn um Mitterrand í
París sem fjöldi erlendra gesta,
þar á meðal Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti Islands, verður
viðstaddur. Banamein Mitterr-
ands var krabbamein og brutust
í gær út deilur í Frakklandi um
hvenær hann hefði veikst af því.
Dagblaðið Le Monde sagðist
hafa heimildir fyrir því að
krabbameinið hefði greinst síðla
árs 1981 eða snemma á árinu
1982, eða rétt eftir að hann var
kjörinn forseti, og hefði því ver-
ið haldið leyndu í rúman áratug.
Þá lýsti bróðir hans, Robert Mitt-
errand, því yfir í viðtali við
fréttastöðina LCI að forsetinn
hefði fengið slæma læknismeð-
ferð. Læknarnir fimm er önnuð-
ust hann hefðu ekki verið sam-
mála um meðferðina en jafn-
framt neitað að kalla til erlendan
sérfræðing sökum þjóðarstolts.
Fjölskylda Mitterrands gaf út
fréttatilkynningu í gær þar sem
hún lýsir yfir fullu trausti á þá
lækna er önnuðust hann.
Reuter
Warren Christopher miðlar málum
milli ísraela og Sýrlendinga
Skammur tími
til stefnu
Jerúsalem. Reuter.
WARREN Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, og Shimon
Peres, forsætisráðherra ísraels,
hvöttu Sýrlendinga í gær til að reyna
að ljúka friðarsamningum við Israeia
hið fyrsta. Aðeins nokkrir mánuðir
væru til stefnu ef ljúka ætti samning-
um fyrir þingkosningar í ísrael í
október.
Christopher kom í gær til Miðaust-
urlanda en hann mun ferðast nokkr-
um sinnum milli Jerúsalem og Dam-
askus fram til sunnudags.
Hann sagði að viðræður ríkjanna
væru nú á viðkvæmu stigi. Hvatti
hann til að nú yrði slegið í klárinn
og reynt að nálgast niðurstöðu í
helstu ágreiningsefnunum. Þar er um
að ræða framtíð Gólanhæða, örygg-
ismál og sambúð ríkjanna í framtíð-
inni.
Shimon Peres sagði í gær, að ein-
ungis nokkrir mánuðir væru til
stefnu vegna þingkosninganna.
Hætta væri á að eftir kosningar
kæmust til valda hægrisinnar sem
efuðust um nauðsyn þess að friðmæl-
ast við Sýrlendinga.
Vilja í ríkisstjóm
Istanbul. Reuter.
LEIÐTOGAR tyrkneska Velferðar-
flokksins, flokks heittrúarmanna,
leggja nú mikla áherslu á að flokk-
urinn eigi aðild að næstu stjórn
landsins og segjast reiðubúnir til
m’álamiðlana. Flokkurinn vann sigur
í þingkosningum í desember en aðr-
ir flokkar hafa síðan reynt að mynda
bandalag gegn honum.
A fundum í gær ræddu flokksleið-
togarnir hvaða málamiðlanir flokk-
urinn gæti sæst á við stjórnarmynd-
un. Necmettin Erbakan, leiðtogi
Velferðarflokksins, sagðist vongóð-
ur um að flokkurinn ætti aðild að
næstu stjórn en honum var falin
stjórnarmyndun á þriðjudag.
Tyrkneskir fréttaskýrendur telja
að Erbakan muni fyrst reyna að ná
samkomulagi við Föðurlandsflokk-
inn (ANAP), sem Mesut Yilmaz veit-
ir forstöðu.
Er jafnvel talið líklegt að heittrú-
armenn muni afsala sér forsætis-
ráðuneytinu og öðrum mikilvægum
ráðuneytum fái þeir aðild að stjórn
landsins og yfirráð yfir t.d. mennta-
málum.
Uppreisnarmenn sleppa á annað þúsund gíslum í Kísljar
Bílalest Tsjetsjena
stöðvuð við landamærin
Pervomajskaja. Reuter.
Reuter
TSJETSJENSKUR uppreisnarmaður, vopnaður sprengjuvörpu,
og gísl fylgjast með rússneskri herþyrlu úr einni rútunni.
RÚSSNESKAR hersveitir um-
kringdu í gær þorpið Pervomajskaja
í suðurhluta héraðsins Dagestan í
Rússlandi, rétt við landamærin að
Tsjetsjníju, þar sem ellefu rútur
tsjetsjenskra uppreisnarmanna höfðu
verið stöðvaðar með um 150 gísla.
Fyrr um daginn hafði uppreisnar-
mönnunum, sem talið er að séu um
tvö hundruð talsins, verið leyft að
yfirgefa sjúkrahús í borginni Kísljar
í rútunum en þar höfðu þeir haldið
um tvö þúsund manns í gíslingu.
Tsjetsjenar hótuðu í gærkvöldi að
skjóta gíslana ef þeir fengju ekki að
halda ferð sinni til Tsjetsjníju áfram.
Samningar náðust í gær um að
uppreisnarmennimir fengju að halda
aftur til Tsjetsjníju og voru þeim
útvegaðar rútur til að komast leiðar
sinnar. Var þá flestum gíslanna
sleppt en um 150 gíslar voru teknir
með. Að auki tóku uppreisnarmenn-
irnir nokkra tugi gísla til viðbótar
er þeir komu til Pervomajskaja. Sjö
embættismönnum frá Dagestan, er
höfðu boðið sig fram sem gísla gegn
því að meirihluta gíslanna á sjúkra-
húsinu yrði sleppt, var þó veitt frelsi.
Fréttastofan Interfax hafði eftir
.einum fulltrúa innanríkisráðuneyt-
isins í Dagestan, er hafði farið inn
í þorpið, að andrúmsloftið þar væri
afslappað. Hefðust gíslarnir fyrir í
rútunum enda mjög kalt. Hann sagði
að uppreisnarmennirnir hefðu sagt
gíslunum að þeir vildu ekki drepa
þá og hefðu hvatt þá til að forða sér
ef átök brytust út.
Gáfu yfirvöld þá skýringu á því
að Tsjetsjenarnir voru stöðvaðir í
Pervomajskaja að brú á leiðinni væri
ónýt. Var sagt að verið væri að reyna
að semja við uppreisnarmennina um
að fara aðra leið.
Stöðvaðir af þyrlu
Rússneskur blaðamaður, Rúslan
Kúsarov, er ferðaðist með bílalest-
inni, sagði að hún hefði verið stöðvuð
af herþyrlu er skaut í átt að rútun-
um. „Þyrlan skaut að okkur. Þeir
hittu okkur næstum því. Það var
greinilegt að þeir vildu að við stöðv-
uðum í þessu þorpi."
Að sögn Tass-fréttastofunnar
hafa íbúar bæjarins Khasavjúrt, sem
Iagt er til að ekið verði í gegnum,
beðið stjórnvöld um að hverfa frá
þeim áformum.
Gíslatakan er mikið áfall fyrir
rússnesku stjórnina enda í annað
skipti á sjö mánuðum, sem Tsjetsj-
enar taka fjölda fólks í gíslingu utan
Tsjetsjníju. Viktor Tsjernómyrdín
forsætisráðherra sagði í gær að upp-
reisnarmönnunum yrði refsað en
ekkert gert er stefndi lífi gíslanna í
hættu.
Að minnsta kosti þrettán óbreyttir
borgarar og sjö lögreglumenn féllu
í átökum i Kísljar á þriðjudag.
Ford-flak
í vörpuna
Ósló. Morgunblaðið.
RÚSSNESKI togarinn Mal-
akov fékk óvæntan afla er
hann var á veiðum á Barents-
hafi um 15 sjómílur norður
af Kap Nord á mánudag. Auk
slatta af þorski kom flak af
Ford Sierra-bíl í vörpuna og
hefur norska lögreglan grun
um að tryggingasvik hafi
valdið því að flakinu var sökkt
í sjó.
Dýpið á þessum slóðum er
um 250 metrar. Ymsa mikil-
væga hluti vantaði í bílinn að
sögn Aftenposten. Talið er að
verksmiðjunúmer á yfirbygg-
ingu sé læsilegt og mun því
væntanlega koma í ljós hvort
norskur bíleigandi hefur átt
Fordinn. Skipið var væntan-
legt til Bátsfjord í gær.
Eftir að samskipti við Rúss-
land urðu greiðari hafa áhafn-
ir rússneskra togara komið
sér upp margs konar við-
skiptatengslum í Noregi.
Rússar kaupa oft gamla og
ódýra bíla í Noregi, eins og
þeir hafa gert á Islandi, og
sigla með þá heim. Bílasalar
og einstaklingar í Norður-
Noregi eru orðnir uppiskroppa
með bíla í verðflokkum undir
100.000 krónum íslenskum.