Morgunblaðið - 11.01.1996, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1996 B 5
ÞARF ekki speking til að sjá að Landsbankinn
stefnir í mikinn vanda.
sé á breytingum á þessu sviði og
bendir m.a. á fjárhag Landsbank-
ans. „Það þarf ekki mikinn fjármála-
speking til að kíkja á reikninga
Landsbankans til að sjá að sá bank-
inn þarf á auknu eiginfé að halda.
Ég held hins vegar að til þess að
stuðla að samkeppni sé réttara að
stefna að því að eftir standi tvær
álíka stórar einingar."
Gunnlaugur segist hins vegar ekki
telja heppilegt að fara að velta upp
einum kosti umfram annan nú. Hins
vegar sé það ljóst að í pottinum séu
Búnaðarbanki, Landsbanki, ísiands-
banki, sparisjóðirnir, Iðnlánasjóður,
Iðnþróunarsjóður, Fiskveiðasjóður,
Húsnæðisstofnun og Lánasjóður ís-
lenskra námsmanna, svo að dæmi
séu nefnd. „Það má ekki líta á þessa
sjóði sem einhveija heilaga reiti ein-
ungis vegna þess að þeir urðu til
fyrir einhvetjum áratugum. Ég vil
því raða þessum spilum á borðið og
gefa upp á nýtt.“
Slík sameiningaráform munu
vafalítið mæta töluverðri andstöðu
innan bankakerfisins að mati Gunn-
laugs. Samruna muni vafalítið fylgja
mikil hagræðing í mannahaldi, bæði
hvað varðar almenna
starfsmenn sem og alla
leiðina upp metorðastig-
ann.
„I svona kerfi eru ótal
smákóngar og það gefur
augaleið að ef við getum
til dæmis haft einn banka-
stjóra í stað 6 þá er 5 ofaukið og
slík áform mæta vafalaust andstöðu.
Ég ætla hins vegar engu að spá um
hver niðurstaðan verður hjá rikinu.
Maður er svo oft búinn að sjá góð
áform verða að engu þar,“ segir
Gunnlaugur.
Eftirliti með ríkisbönkum
ábótavant
Slæma rekstrarstöðu ríkisbank-
anna má að stórum hluta rekja til
þess að eftirlitskerfi ríkisbankanna
hafí verið mjög ábótavant, að mati
Gunnlaugs, og segir hann Fram-
sóknarflokkinn ekkert síður hafa
brugðist þar en aðra flokka. „Ég er
sannfærður um að hvergi í hinum
vestræna heimi hefðu verið valdir í
þetta eftirlitshlutverk, þ.e. bankar-
áðin, menn með jafn litla þekkingu
á bankamálum og lítinn bakgrunn
til að afla sér nauðsynlegrar þekk-
ingar, eins og gert hefur verið á
íslandi. Svona vinnubrögð ættu sér
ekki stað í stórum bönkum úti í
heimi.“
Hann bendir m.a. á að rekstrarleg
ábyrgð yfirstjórnarinnar sé of lítil.
Henni stafi engin ógn af yfirboður-
um sínum heldur sitji áfram hvað
sem á dynji. Gunnlaugur telur eðli-
legt að hlutverk bankaráðanna sé
að móta stefnu bankanna. „Þar ætti
að setja framkvæmdastjórn bank-
anna markmið, hvað varðar arð,
veltu og þjónustustig og fylgjast síð-
an með því að hún nái
þessum markmiðum. Ef
framkvæmdastjórnin
bregst þá er hægt að
láta hana víkja, líkt og
gerist á hinum almenna
markaði."
Gunnlaugur segir að
innan bankakerfísins skorti það að-
hald sem hlutahafafundur veiti
stjórnendum fyrirtækja á almennum
markaði. „Þessir fundir veita gífur-
legt aðhald, aðhald sem ég held að
allir stjórnendur hafi gott af að búa
við.“
Æskilegt að
eftir standi
tveir álíka
stórir bankar
Atvinnurekendur!
Kona um hálfþrítugc er að leita sér að starfi.t.d.á skrifstofu og/eða
heildsölu. Góð tungumála- og tölvukunnátta er til staðar.
Svör óskast send til afgreiðslu Mbl., merkt: „G- I9",fyrir 18. janúar.
FUNDUR
framundan!
Tæknivæddir þingsalir í öllum stærðum.
Leitið upplýsinga og við sendum gögn um hæl.
SCANDIC
LOFTLEIDIR
Sfmi: 5050 900 • Fax: 5050 905
í GÓDU EGLU
KHALDI...
HA6KVÆMNI TIMASPARNAÐUR ORYGGI ISLENSKT 06 VANDAÐ
...STEMMIR
STÆRÐIN LIKA!
Egla bréfabindin fást í 5 mismunandi
stærðum. Þau stærstu taka 20% meira
en áður, en verðið er það sama. Og
litaúrvalið eykur enn á fjölbreytnina!
Með því að hringja í sölumenn
okkar getur þú pantað þær möppur
sem henta fyrirtæki þínu. Hringdu í
síma 562 8501 eða 562 8502 og þú færð
möppurnar sendar um hæl.
RÖÐ 06 RE6LA
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Sími: 562 8500
Símbréf: 552 8819
ATHYGLISVERÐASTA AUGLÝSING ÁRSINS 1995
LUMAR ÞÚ Á AUGLÝSINGU?
ÍMARK efnir til samkeppni í samráöi viö
Samband íslenskra auglýsingastofa um
athyglisveröustu auglýsingu ársins 1995.
Skilyrði fyrir þátttöku er að auglýsingin sé
gerð af íslenskum aöila og hafi birst fyrst
á árinu 1995.
Tilgangur samkeppninnar er aö vekja
almenna athygli á vel gerð.um
auglýsingum og auglýsingaefni og veita
aöstandendum þeirra veröskuldaöa
viöurkenningu.
Veitt veröa verölaun fyrir bestu
auglýsinguna í eftirtöldum flokkum:
• Kvikmyndaðar auglýsingar
• Útvarpsauglýsingar
• Dagblaðaauglýsingar
• Tímaritaauglýsingar
• Auglýsingaherferðir
• Umhverfisgrafík
• Markpóstur
• Vöru- og firmamerki
• Kynningarefni annað en
markpóstur
Skilafrestur rennur út mánudaginn
15. janúar 1996.
Auglýsingaefni ásamt útfylltum þátttöku-
seölum skal skila í pósthólf 7162, 127 Rvk.
IMARK
- \ m