Morgunblaðið - 11.01.1996, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1996 B 7
VIÐSKIPTI
Ljósmyndarar heimsækja Hasselblad
HÓPUR íslenskra ljósmyndara
heimsótti á dögunum Hasselblad
myndavélaverksmiðjurnar í
Gautaborg, á vegum fyrirtækis-
ins Beco, umboðsaðila Hassel-
blad á íslandi. Hópurinn var
staddur í borginni á svokallaðri
Foto-messu, fagstefnu i ljós-
myndun, sem haldin er í Gauta-
borg annað hvert ár og af því
tilefni bauð Beco íslensku ljós-
myndurunum að njóta dags í
verksmiðjunum, segir í frétt frá
umboðsaðilanum Beco hf.
Fylgst var með framleiðslu-
ferlinu frá upphafi til enda; frá
hráefnislager allt þar til öllu
hafði verið raðað saman eftir
kúnstarinnar reglum og fullbún-
ar myndavélarnar blöstu við.
Síðan var hópnum boðið á lit-
skyggnusýningu á breiðljaldi,
þar sem saga Hasselblad var
rakin og einnig sýndar myndir
þekktra ljósmyndara víðs vegar
að úr heiminum. Hasselblad er
m.a. þekkt fyrir að hafa verið
valin af bandarisku geimferða-
stofnuninni í Apollo geimferðina
1969; geimfarinn Neil Arm-
strong var með Hasselblad-vél á
sér er hann steig fyrstur manna
á tunglið og tók þá margar eftir-
minnilegar myndir.
Beco hefur verfið með við-
gerðarþjónustu fyrir Hasselblad
hérlendis frá 1985 en tók við
söluumboðinu fyrir tveimur og
hálfu ári. Sérfræðingar frá
fyrirtækinu koma til íslands á
tveggja ára fresti og fara yfir
myndavélar Hasselblad-notenda
þeim að kostnaðarlausu en Beco
hefur hins vegar allan tækjakost
til að þjónusta Hasselblad-not-
endur dags daglega, öll mæli-
tæki og nauðsynleg verkfæri.
A myndinni, sem Kjartan Þor-
björnsson (Golli) tók, er íslenski
hópurinn ásamt Birgittu Zorjan,
sem er önnur frá vinstri, al-
mennatengslafulltrúa Hassel-
blad. Eigendur Beco eru Baldvin
Einarsson, lengst til vinstri, og
Ingibjörg Siguijónsdóttir, önn-
ur frá hægri.
Fólk
Ráðinn ritstjóri
Gests ’96
• RÓBERT Mellk hefur verið ráð-
inn ritstjóri bókarinnar Gestur ’96,
sem gefín er út á
ensku af Lífi og
sögu hf. Bókin er
nú að koma út í 5.
skipti og mun sem
fyrr höfða til er-
lendra ferðamanna
með landkynningu
í formi ljósmynda
og greina. Hún er
um 250 blaðsíður
og liggur frammi á
flestum gistiherbergjum landsins og
ferðaskrifstofum innanlands og er-
lendis, segir í frétt.
Róbert hefur á annan áratug unn-
ið við útgáfu sem tengist íslensku
þjóðlífi. Hann hefur ritstýrt ýmsum
blöðum og tímaritum, svo sem Mod-
ern Iceland, Foreign Livingog Ice-
land - The Cutting Edge of Fisheries
Technology. Greinar eftir hann hafa
birtst í tímaritum heima og erlendis,
Róbert Mellk
m.a. EX, WorldFishingog Scandina-
vian Guide. Róbert er fæddur og
uppalinn í Bandaríkjunum, en móðir
hans er íslensk. Eftir háskólapróf
fluttist hann til íslands og kenndi
m.a. fyrstu árin ensku og bókmennt-
ir við Menntaskólann við Hamra-
hlíð og Námsflokka Reykjavíkur
áður en hann sneri sér að skriftum
og ritstjórnarstörfum.
Ráðin til Kassa-
gerðarinnar
• ELÍN Björg Ragnarsdóttir, hef-
ur verið ráðin til starfa sem sölumað-
ur hjá Kassagerð Reykjavíkur. Elín
Björg er fædd árið
1968 á Húsavík.
Hún útskrifaðist
1994 sem fisk-
tæknir frá Fisk-
vinnsluskólanum í
Hafnarfirði og
lauk námi í sjávar-
útvegsfræðum við
Endurmennt-
unarstofnun Há-
skóla íslands í
Elín Björg
desember 1995. Elín Björg hefur sl.
sumur starfað við fiskvinnslu og
ferðamál.
Framkvæmdastjóri
Apótekarafélagsinshættir
STJÓRN Apótekarafélags íslands
sagði í október sl. upp ráðningar-
samningi við Guðmund Reykjalín,
framkvæmdastjóra félagsins, með 6
mánaða fyrirvara. Ástæða uppsagn-
arinnar er sú breyting á fyrirkomu-
lagi í lyfsölumálum, sem fyrirsjáan-
leg er með væntanlegri gildistöku
nýrra lyfjalaga 15. mars 1996, að
því er segir í frétt frá félaginu.
Fram kemur að stjóm AÍ taldi
eðlilegt að félagið væri óbundið, þeg-
ar að þessum breytingum kæmi og
gæti þá hagað rekstri félagsins mið-
að við nýjar aðstæður.
I framhaldi af uppsögninni óskaði
Guðmundur Reykjalín eftir að fá
lausn frá störfum sem fyrst og hefur
verið gerður starfslokasamningur við
hann. Guðmundur lét formlega af
störfum 1. janúar sl., en samkomulag
var um að hann sinni ákveðnum verk-
efnum fyrir félagið fyrst um sinn.
Guðmundur Reykjalín starfaði
sem framkvæmdastjóri félagsins í
15 ár og nú þegar hann lætur af
störfum eru honum þökkuð farsæl
störf, sem hann hefur rækt af ein-
stakri samviskusemi og prúð-
mennsku, segir í fréttinni.
að Grensásvegi 7
á morgun föstudag
frá 14.00 til 17.00
Við bjóðum forsvarsmönnum fyrirtækja og áhugasömum
aðilum að koma og kynnast starfsemi okkar
að Grensásvegi 7, 2. hæð, föstudaginn 12. janúar
milli kl. 14.00 og 17.00.
U DTfQ □ © Ll QD HQ
frá hugmynd til markaðar
Brynjar
HÖNN UN
Ráðgjöf
Auglýsingar og markaðsmál
Sfmi 568-6121 ^8x588-6121
©
Rauði dregillinn
Stafræn hljóð- og myndvinnsla
Sfmi 588-4222 • Fax 588-4225
ISL@NDIA
Internetmiðlun
Veffang: http://www.islandia.is
Sfmi 588-4020 • Fax 588-4014
UNDUR&
StórMErKI
Auglýsingar / Skiltagerð
Sfmi 588-3066 • Fax 588-4014
Auglýsingar
Markaösmál
Hönnun
Ráðgjöf
Kvikmyndun
Stafræn
hljóö- og
myndvinnsla
Internet
Heimasíöur
Ski Itagerö
Merkingar
Þjónusta