Morgunblaðið - 13.01.1996, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Húsnæðisstofnun átti 198 íbúðir um síðustu áramót
Átti fleiri íbúðir um ára-
Morgunblaðið/RAX
Tilþrif við Tjörnina
FÓTBOLTI utanhúss þarf ekki að vera árstíða-
bundið fyrirbæri frekar en golf, eins og sannast
hefur í góða veðrinu síðustu daga. Þessir strákar
léku sér í fótbolta í Hljómskálagarðinum í gærdag
og nutu þess að þurfa ekki að dúða sig eins og
venja er á þessum árstíma.
Samdráttartillögur lagðar fyrir sljórn Sjúkrahúss Reykjavíkur á mánudag
Niðurskurður bitnar á
Judy Feeney
Ekkibúið
fyrr en
börnin eru
ábrott
JUDY Feeney, sem var einn af höf-
uðpaurunum í tilraun til að nema
dætur Ernu Eyjólfsdóttur brott frá
íslandi árið 1993, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að enn væru
ekki öll kurl komin til grafar.
„Hvað okkur varðar lýkur þessu
máli ekki fyrr en börnin eru kcmin
afturtil Bandaríkjanna,“ sagði Judy
Feeney, sem ásamt Donald manni
sínum rekur Corporate Training
Unlimited (CTU), fyrirtæki sér-
sveitarmanna úr bandaríska hern-
um, sem hefur meðal annars tekið
að sér að sækja börn, sem annað
foreldri hefur numið brott frá
Bandaríkjunum.
í febrúarhefti tímaritsins Playboy
er grein um starfsemi CTU. Þar er
sagt frá hinni misheppnuðu aðgerð
á Islandi og að í kjölfarið hafi CTU
nærri orðið gjaldþrota.
í Playboy segir að þegar Donald
Feeney hafi verið sleppt úr fangelsi
á íslandi hafi hann þegar hafíst
handa við að skipuleggja aðra tilraun
til að ná stúlkunum. Haft er eftir
þeim hjónum að á íslandi hafi þau
„misst þann stóra“ og Judy Feeney
bætir við: „Þessu er ekki lokið enn.“
Óæskileg á íslandi
Björk
íSky
BJÖRK Guðmundsdóttir var til
umfjöllunar á besta tíma í
breska fréttasjónvarpinu Sky í
gærkvöldi en þá var sagt frá
tónleikaferð hennar um Eng-
Iand sem hefst í Sheffield í
næstu viku.
Fréttamenn stöðvarinnar
sögðu menn hafa deilt um það
hvort Björk væri söngvinn sér-
vitringur eða frumlegur braut-
ryðjandi. Viðmælandi þeirra var
útvarpskona frá Virgin útvarps-
stöðinni, sem sagðist í fyrstu
ekki hafa kunnað að meta Björk
en breiðskífan frábæra Post
hafi komið henni á seinni
skoðunina og tók fram að það
væri fyrst og fremst vegna þess
hve Björk hefði góða rödd.
Sýnt var stutt brot úr mynd-
bandi Bjarkar við lagið Oh So
Quiet, en það hefur nú selst í
um 400.000 eintökum í Bret-
landi. Framleiðslu hefur nú ver-
ið hætt á laginu þótt það sé enn
inni á topp tíu í Bretlandi, en
það er gert til að rýma fyrir
næstu smáskífu Bjarkar, Hyp-
erballad, sem kemur út 5. febr-
úar.
Bílvelta í
Norðurárdal
BÍLL á norðurleið valt á Norður-
landsvegi í Norðurárdal við Bifröst
í gærkvöldi.
Þrennt var í bílnum og slapp fólk-
ið allt án meiðsla. Bíllinn er mikið
skemmdur, ef ekki ónýtur. Að sögn
lögreglu var lúmsk hálka á veginum
þegar óhappið varð.
mót en nokkru sínni áður
HÚSNÆÐISSTOFNUN ríkisins
átti um áramót 198 íbúðir og hefur
ekki átt fleiri íbúðir um önnur ára-
mót. Ekki hafa verið undirbúin
fleiri uppboð á einu ári eða yfir
1.058 árið 1995. Af þeim þurfti
að gæta hagsmuna HR við 628
uppboð. Sigurður E. Guðmundsson,
framkvæmdastjóri, segir að stofn-
unin verði nánast alltaf fyrir tjóni
við sölu íbúðanna. Hann telur að
tjón hennar nemi tugum milljóna á
ári.
Sigurður sagði engan vafa leika
á því að nauðungaruppboðum á
íbúðum vegna vanskila hefði fjölg-
að á erfíðleikaárunum að undan-
förnum. Hjá honum fengust upp-
lýsingar um að HR hefði átt 58
íbúðir um áramótin 1989, 64 íbúð-
ir 1990, 48 íbúðir 1991, 96 íbúðir
1992, 94 árið 1993, 160 íbúðir
1994 og 198 íbúðir um síðustu
áramót. Af íbúðunum 198 var ein
keypt árið 1987, engin árið 1989,
Uppboðsíbúðir í eigu
Húsnæðisstofnunar
um áramót
n
Cku
ínail
1989 1990 1991 1992 1993 1994 199S
tvær árið 1990, þrjár árið 1991,
fímm árið 1992, tólf árið 1993,
fjörutíu og sex árið 1994 og 129
eða 65% í fyrra.
Kröfulýsingar voru 293 árið
1991, en 628 árið 1995. Uppboðum
vegna vanskila við Byggingasjóð
verkamanna fer einnig fjölgandi.
Hlutfall uppboða var 16,67% árið
1992 og 23% árið 1995. Hlutfallið
hjá Byggingarsjóði ríkisins lækkar
úr 71,52% árið 1992 í 40% árið
1995. Hins vegar hækkar hlutfall
uppboða vegna húsbréfavanskila
úr 11,82% árið 1992 í 37% í fyrra.
Uppboðum vegna eigna í
Reykjavík hefur fjölgað hlutfalls-
lega mest. Alls voru haldin 155
uppboð eða 33,41% uppboða á land-
inu árið 1993, 211 eða 39,07%
uppboða árið 1994 og 268 eða 43%
í fyrra. Uppboðum fækkar hlut-
fallslega annars staðar á landinu
ef frá er talið Norðurland eystra.
í þeim landshluta fjölgaði uppboð-
um hlutfállslega úr 8,19% árið 1993
í 11% í fyrra.
Árið 1991 keypti stofnunin 30
íbúðir og seldi 46. í fyrra keypti
stofnunin 140 eignir og seldi 102.
Sigurður sagði að lögfræðingar
og umboðsmenn um landið sæktu
uppboðin fyrir hönd HR. „Okkar
eigin lögfræðingar koma ekki fyrr
en á lokauppboðið,“ sagði hann.
Hann sagði að eftir uppboðin væri
samið við almennar fasteignasölur
um að selja íbúðirnar.
Yfirleitt tap
„Yfírleitt töpum við á íbúðunum
enda hleðst svo mikill kostnaður á
íbúðimar að þakka má fyrir ef við
þurfum ekki að slá af okkar eigin
lánum. Við verðum því fyrir tjóni
í næstum því hvert einasta skipti,"
sagði hann. Hins vegar væri
áhersla lögð á að ekki þyrfti að
afskrifa lán stofnunarinnar og
hægt væri að fá upp í kostnað.
Hann sagðist ekki vita til að
metið hefði verið árlegt tjón stofn-
unarinnar vegna viðskiptanna en
tjónið næmi án efa nokkrum tugum
milljóna á hveiju ári.
einhverium starfsmönnum
FRAMKVÆMDASTJÓRN Sjúkra-
húss Reykjavíkur vinnur nú að gerð
tillagna sem lagðar verða fyrir
stjórn sjúkrahússins á mánudag um
það hvemig sníða beri rekstur
stofnunarinnar að framlögum á
fjárlögum þar sem gert er ráð fyrir
að sparnaður upp á 3-400 milljónir
króna náist fram.
Jóhannes Gunnarsson, lækninga-
forstjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að tillögumar yrðu mótaðar
um helgina. „En það er varla við
því að búast að við náum rekstrinum
niður um mörg hundruð milljónir
öðruvísi en það bitni á einhveijum
starfsmönnum," sagði Jóhannes og
staðfesti að miðað við óbreytt ráð-
stöfunarfé stæðu stjórnendur spít-
alans frammi fyrir því að segja upp
tugum starfsmanna.
Jóhannes sagði að ýmsar hug-
myndir hefðu verið uppi á borðum
framkvæmdastjómarinnar vegna
samdráttartillagnanna og staðfesti
að á ýmsum stigum hefði meðal
annars verið rætt um að loka dag-
deild aldraðra í Hafnarbúðum, dag-
deild geðfatlaðra í Templarahöllinni
og meðferðarheimili geðfatlaðra
bama við Kleifarveg.
Hann vildi hins vegar ekki ræða
hvort þær hugmyndir væm enn
uppi á borðinu eða hvort tillögur
um þetta yrðu meðal þess sem lagt
verður fyrir stjóm sjúkrahússins á
mánudag.
Starfsfólk blekkt
Stjóm Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja samþykkti á fundi í
gær mótmæli við „framkomnum
hugmyndum stjómenda Ríkisspítal-
anna og Sjúkrahúss Reykjavíkur
um uppsagnir starfsfólks, lokun
deilda og sjúkrarúma og niðurskurð
á þjónustu við þá hópa samfélags-
ins, sem geta ekki borið hönd fyrir
höfuð sér, þ.e. aldraða og geðfatl-
aða.“
í ályktuninni segir að í viðræðum
við stéttarfélög vegna sameiningar
Landakots og Borgarspítalans hafi
því ítrekað verið lýst yfir að samein-
ingin myndi ekki verða til þess að
starfsfólki yrði sagt upp. „Nú virð-
ast hins vegar vera uppi áform um
að fækka starfsfólki Sjúkrahúss
Reykjavíkur um 80 manns. Gangi
þau áform eftir er ljóst að starfs-
fólk og stéttarfélög þess hafa verið
blekkt.“
Judy Feeney sagði í gær að hún
gæti ekki komið aftur til íslands þar
sem hún væri óæskileg hér á landi.
„En hvenær getur foreldri snúið
baki við barni sínu,“ sagði Feeney
og bætti við að hún hefði enn sam-
band við feður stelpnanna, James
Grayson og Frederick Pittman, og
hefði því enn afskipti af málinu.
Hvort CTU myndi aftur blandast í
þetta mál var látið ósvarað.
Tilraunin til að nema stúlkurnar
brott mistókst og voru Donald Fe-
eney og Grayson handteknir á Kefla-
víkurflugvelli og dæmdir í fangelsi.
1 greininni í Playboy segir að frá
konu sinni hal'i Feeney fengið í fang-
elsið tvö þúsund Bandaríkjadollara
(um 130 þúsund íslenskar krónur)
og American Express gaillkort falið
í þykkum bréfspjöldum, sem hann
hafi síðan skorið í sundur.