Morgunblaðið - 13.01.1996, Síða 4

Morgunblaðið - 13.01.1996, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Y ann Kolbeinsson TYRKJ ADÚFAN er auðþekkt á SILKITOPPAN er litskrúðug og gráum búningi og svörtum hálfkraga. m®ð silkilitaðan topp. Þáttur Selfosslög- reglu í aðdraganda banaslyss Réttvar staðið að eftirför EKKERT verður aðhafst frekar vegna aðgerða lögreglunnar á Sel- fossi í aðdraganda banaslyss, sem varð á Suðurlandsvegi 14. október sl. Þrír létu lífíð, ungur maður og fullorðið sambýlisfólk. Bifreið unga mannsins var veitt eftirför af Selfosslögreglu eftir að manninum hafði verið gefið stöðv- unarmerki sem hann sinnti ekki. Lögreglumenn reyndu að aka fram fyrir bílinn, sem þá var á austur- leið, skammt vestan Ölfusárbrúar, og freista þess að stöðva hann með þvi móti. Þá var honum ekið fram úr lögreglubílnum, yfír Ölfusárbrú, einn hring á hringtorginu við suður- enda brúarinnar og inn á Ölfusár- brú aftur. Síðan var bflnum ekið á ofsa- hraða vestur Suðurlandsveg. Lög- reglumennirnir óku á eftir með tendruð viðvörunarljós og sírenu, en þegar stöðugt dró í sundur með bflunum slökktu þeir viðvörunar- ljósin við Biskupstungnabraut og fylgdu bifreiðinni eftir. Um 800 metrum vestar skullu bfll unga mannsins og bíll fullorðna fólksins saman af miklu afli með þeim afleiðingum að öll þijú létu lífíð. Ekkí ástæða til frekari aðgerða Sýslumaður Árnessýslu vísaði rannsókn málsins til Rannsóknar- lögreglu ríkisins en dómsmálaráðu- neytið rannsakaði sérstaklega þátt lögreglunnar á Selfossi að beiðni embættis ríkissaksóknara. Dóms- málaráðuneyti skilaði niðurstöðu sinni í fýrradag. Var hún á þá leið að rétt hefði verið staðið að eftirfór af hálfu lögreglu og ekki væri ástæða til frekari aðgerða. Emb- ætti ríkissaksóknara lét RLR vita um niðurstöðuna og er málinu þar með lokið. TÖLUVERT hefur verið um flækingsfugla í vetur líkt og fram kom í nýlegri fuglataln- ingu. Undanfarið hefur tyrkjadúfa haldið sig í nágrenni Efstasunds í Reykjavík. Þessi dúfutegund er útbreidd í Evrópu og verið að færa sig vestur á bóginn. Tyrkja- ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegs- ráðherra segir að óánægja hags- munaaðila í rússneskum sjávarút- vegi með úthlutun Norðmanna á kvóta úr norsk-íslenzka sfldarstofn- inum séu góðar fréttir og einangrun Norðmanna í málinu fari vaxandi. Þó sé engan veginn víst að afstaða rússneskra stjómvalda á samninga- fundi um síldveiðar í Moskvu síðar í mánuðinum verði í samræmi við afstöðu hagsmunaaðila. „Við höfum haft samband við rússnesk stjómvöld, en ég held að það sé óraunhæft að ráða í það Vetrar- gestir dúfan er nær árlegur gestur hér á landi og er vitað til þess að hún fyrirfram hvaða afstöðu þau muni hafa á þessum fundi,“ sagði Þor- steinn í samtali við Morgunblaðið. Betra samband við Rússa „Rússamir hafa mikla hagsmuni af samstarfínu við Norðmenn og hafa veitU verulegan hluta af sfld- inni í norskri lögsögu. Þó fer ekki hjá því að Norðmenn vom nokkuð einangraðir í lok síðasta fundar landanna fjögurra [íslands, Noregs, Rússlands og Færeyja]. Þessi þiýst- ingur hagsmunasamtaka í rúss- neskum sjávarútvegi er að nokkm hafi orpið hér einu sinni. Allt frá áramótum hafa silki- toppur sést á höfuðborgarsvæð- inu og austur fyrir fjall. Silki- toppumar em alltíðir gestir hér á landi og koma gjarnan í flokk- um. Ætla má að frosthörkur í Vestur-Evrópu hafi rekið fugl- ana hingað norður í „hlýjuna“. leyti framhald þeirrar stöðu,“ sagði Þorsteinn. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur að undanfömu tekizt betra samband á milli íslenzkra og rússneskra stjómvalda en áður hefur verið. Það ræður nokkra þar um að innan rússneska sjávarútvegsins hefur óánægja með samstarf við Norðmenn farið vaxandi. Þannig telja ýmsir áhrifamenn í sjávarút- vegi í Norður-Rússlandi að umsvif Norðmanna á Múrmansk-svæðinu hafi einkum verið á kostnað Rússa og lítil verðmæti orðið eftir í landinu. Sjávarútvegsráðherra um Rússa og síldarstofninn Segir einangrun Norð- manna fara vaxandi Vorlaukar gægjast uppúrmoldu HLÝINDIN að undanförnu hafa ruglað gróðurinn í höfuð- borginni nokkuð í ríminu. Blómabrum á víði er sums stað- ar orðið þrútið og krókusar og fyrstu vorlaukarnir eru farnir að gægjast upp úr moldu. Jóhann Pálsson garðyrkju- stjóri segir að ekki sé fýsilegt að hlýindakaflar séu of langir, allra síst svona síðla vetrar. „Svefnlyfin sem plönturnar hafa birgt sig upp af á haustin eru farin að minnka og viðnám- ið fyrir hlýindum er minna,“ sagði Jóhann. Hann segir að vorlaukarnir þoli þetta mjög vel og séu oft famir af stað um þetta leyti árs. „Svo sést það líka á þeim víði sem blómgast fyrir laufgun að blómbrumin eru byrjuð að þrútna. Blómgunin getur farist fyrir ef þetta gengur of langt en það skiptir þó ósköp litlu máli því víði er nú yfirleitt ekki fjölgað hér með fræi,“ sagði Jóhann. Hann sagði að megnið af öðrum gróðri væri ennþá á það sterkum náttúrulegum svefn- lyfjum að hann léti lítið á sér kræla þrátt fyrir blíðuna. Magnús Jónsson veðurstofu- stjóri segir að ekki sé hægt að sjá á veðurkortunum að stór- viðri eða hríð sé í vændum. Væntanlega hvessi á næstunni af suðri með vætu og enn meiri hlýindum en núna er. Magnús segir að svo langur hlýinda- kafli sé ekki óvepjulegur hér á landi og mörg dæmi þess að það gerist í öllum mánuðum ársins. „Allur fyrri hluti desember- mánaðar var með einstakri blíðu en síðan lagðist hann í annað blíðutímabil með frost- hörkum. Núna upplifum við þriðja blíðutímabilið. Við höf- um fengið núna einn og hálfan mánuð með tiltölulega ljúfu veðri þótt það hafi verið gjör- ólíkur karakter á því,“ sagði Magnús. Starfsmenn Reykjavíkur- borgar eru farnir að sinna hefð- bundnum vetrarverkum. A þessum árstíma eru jafnan klipptar trjágreinar og lim- gerði snyrt til. Þykir mönnum ekki verra að þurfa ekki að vaða djúpan snjó meðan þessi verk eru unnin. Morgunblaðið/RAX STARFSMENN Reykjavíkurborgar eru farnir að sinna hefðbundn- um vetrarverkum, þ.e. snyrta limgerði og klippa tijágreinar. Veiðieft- irlitsmenn á heimleið FISKISTOFA hefur kallað heim tvo veiðieftirlitsmenn sem ekki fengu vist um borð í ís- lenskum skipum á Flæmingja- gmnni. Eftir eru þrír veiðieftir- Iitsmenn á jafnmörgum skipum á þessum miðum. Þórður Ásgeirsson, forstjóri Fiskistofu, sagði það sjálfgefíð að kalla mennina heim þegar þeir fengu ekki að fara um borð í skipin. Hann sagðist réikna með að sjávarútvegs- ráðuneytið og kanadísk stjórn- völd tækju ákvörðun um fram- hald málsins. Allt að 20 skip Allt að 20 íslensk skip hafa verið á Flæmingjagrunni þegar flest er að sumarlagi. Þórður sagði að veiðieftirlitsmenn hefðu verið ráðnir tímabundið til að sinna eftirliti í þessari „fyrstu hrinu“. Ef niðurstaðan yrði sú að eftirlitsmenn færa í öll skip og fyöldi þeirra ykist til muna í sumar væri ljóst að ráða þyrfti nokkra eftirlits- menn til viðbótar. Handtekin í banka eftir innbrot ÞRÍR karlmenn og kona vora handtekin þegar þau reyndu að skipta ávísunum sem þau höfðu stolið í innbroti í iðnfyrir- tæki á Nýlendugötu aðfaranótt föstudagsins. Lögreglunni var tilkynnt um innbrotið kl. 9.45 í gærmorgun. Óljóst var í fyrstu hveiju hafði verið stolið en búið var að róta mikið í hirslum. Um kl. 10 var tilkynnt um konu í Búnaðar- bankanum á Hlemmtorgi sem reyndi að skipta ávísun upp á 110 þúsund kr. sem var með stimpli fyrirtækisins. Skömmu síðar var tilkynnt um mann í Búnaðarbankanum í Austur- stræti sem reyndi að skipta þar 170 þúsund kr. ávísun. Maðurinn var ásamt tveimur öðrum mönnum á bfl fyrir utan bankann þegar lögreglan kom á staðinn og vora þeir allir handteknir. Einn þeirra reynd- ist þó ekki hafa tekið þátt í innbrotinu. Kostaði skatt- greiðendur 700 milljónir AÐSTOÐ ríkisins við fískeldis- fyrirtæki hefur kostað skatt- greiðendur allt að 7Q0 milljónir króna í töpuðum lánum og ábyrgðum. í skýrslu Ríkisendurskoðun- ar um endurskoðun ríkisreikn- ings 1994 kemur fram að af þeim 18 fyrirtækjum sem ábyrgðardeild fiskeldislána hjá Ríkisábyrgðarsjóði gekkst í ábyrgð fyrir hafa 16 verið lýst gjaldþrota eða hætt rekstri. Af 20 fyrirtækjum sem fengu sérstök rekstrarlán samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar urðu 8 gjaldþrota eða hafa hætt starfsemi, og Silfurlax hf. varð gjaldþrota sama ár og ríkissjóður lánaði fyrirtækinu 50 milljónir króna. Telur Ríkisendurskoðun þannig að ekki verði séð að aðstoð ríkisins við fískeldisfyr- irtækin hafi skilað varanlegum árangri þrátt fyrir að hafa kostað skattgreiðendur allt að 700 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.