Morgunblaðið - 13.01.1996, Side 8

Morgunblaðið - 13.01.1996, Side 8
8 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR I Biskup íslands vandar Geir Waage formanni Prestafélagsins ekki kveðjurnar Ég er orðinn þreyttur á honum" Bullari, bullari, bullari. Ég er orðinn hundleiður á þér . . . 91,5 prósent íslend- inga í Þjóðkirkjunni Hlutfallið var 93,1% landsmanna fyrir tíu árum ÞJÓÐKIRKJUFÓLKI fjölgaði um 124 milli áranna 1994 og 1995 samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofu íslands og skráningu 1. des- ember en íslendingum fjölgaði um 1.023 á sama tíma. Frá árinu 1985 hefur íslendingum fjölgað um 10,8% en fólki í þjóðkirkjunni um 0,4%. Af öllum íslendingum voru 91,5% í þjóðkirkjunni .1. desember 1995. Tíu árum fyrr var þetta hlut- fall 93,1%. 3,3% voru í fríkirkjum (3,6% 1985), 2,7% í öðrum skráð- um trúfélögum (1,7% 1985), 1% í óskráðum trúfélögum eða með ótilgreind trúarbrögð (0,2% 1985) og 1,5% utan trúfélaga (1,3% 1985). Islendingar utan trúfélaga voru 3.923 1. desember sl. Frá 1. desember 1985 hefur þeim fjölgað úr 3.049 eða um 28,7%. Af öllum skráðum trúfélögum hefur fjölgað hlutfallslega mest í Krossinum eða um 280% síðustu tíu árin. Nýfædd böm eru talin til trúfé- lags móður en trúfélagaskipti eru tilkynnt af einstaklingum sjálfum eða forsjármönnum þeirra, séu þeir undir 16 ára aldri. Utan trúfé- laga teljast þeir sem hafa skráð sig svo. Meðfylgjandi tafla sýnir mann- fjölda 1. desember 1995 og skipt- ingu hans eftir trúfélögum. Fjöldi skráðra í trúfélögum 1. des oa breytingar frá < i oois ember FJÖLGUN 1995 HLUTDEILD 1985 og 1994 1985 1994 ■ 1985- 1995 1994- 1995 1985 1995 ALLS Karlar Konur Alls 241.750 266.786 267.809 134.224 133.585 10,8% 0,4% 100% 100% Þjóðkirkjan 225.173 244.925 245.049 122.736 122.313 8,8% 0,1% 93,1% 91,5% Fríkirkjur 8.812 8.490 8.785 4.379 4.406 -0,3% 3,5% 3,6% 3,3% Fríkirkjan í Reykjavík 5.823 4.872 4.884 2.476 2.408 -16,1% 0,2% 2,4% 1,8% Óháði söfnuðurinn í Reykjavík 1.140 1.040 1.183 600 583 3,8% 13,8% 0,5% 0,4% Fríkirkjan í Hafnarfirði 1.849 2.578 2.718 1.303 1.415 47,0% 5,4% 0,8% 1,0% Önnur skráð trúfélög 4.217 6.944 7.299 3.608 3.691 73,1 % 5,1% 1,7% 2,7% Kaþólska kirkjan 1.756 2.535 2.553 1.216 1.337 45,4% 0,7% 0,7% 1,0% Aðventistar 678 781 761 360 401 12,2% -2,6% 0,3% 0,3% Hvítasunnusöfnuður 765 1.105 1.148 584 564 50,1% 3,9% 0,3% 0,4% Sjónarhæðarsöfnuður 46 52 51 29 22 10,9% -1,9% 0,0% 0,0% Vottar Jehóva 359 576 583 289 294 62,4% 1,2% 0,1% 0,2% Baháísamfélag 311 399 402 203 199 29,3% 0,8% 0,1% 0,2% Ásatrúarfélag 74 172 190 166 24 156,8% 10,5% 0,0% 0,1% Krossinn 100 345 380 213 167 280,0% 10,1% 0,0% 0,1% Kirkja Jesú Krists h.s.d.h. 128 154 164 82 82 28,1% 6,5% 0,1% 0,1% Vegurinn - 771 701 343 358 - -9,1% - 0,3% Orð lífsins - 54 64 35 29 - 18,5% ■ - 0,0% Kletturinn - - 72 36 36 - - - 0,0% Búddistafélag Óskráð trúfélög^"— - - 230 52 178 - - - 0,1% og ótilgreind trúarbrögð 499 2.639 2.753 1.217 1.536 451,7% 4,3% 0,2% 1,0% Utan trúfélaga 3.049 3.788 3.923 2.284 1.639 28,7% 3,6% 1,3% 1,5% Heimild: Hagstofa Islands Upplýsinga- og ferðamálafulltrúi á ísafirði Markvisst starf og sameining krafta Þórunn Gestsdóttir ÓRUNN flyst nú búferlum vestur á ísafjörð og þar bíður hennar að móta nýtt tvíþætt starf á framandi stað. Á hvetju á hún von þar vestra? „Ég flyt búferlum í byij- un næsta mánaðar og á bara von á því að dvölin verði frábær og starfíð gefandi og spennandi. Þetta leggst allt saman mjög vel í mig og tilhlökk- unarefni að snúa sér heils hugar að því að inna skemmtilegt starf af hendi. í því felst mikil lífs- fylling. Þetta er auk þess á mínu hjartans áhugasviði og ekki spillir það. Eg hef heldur engar sérstakar áhyggjur af því að við- brigðin kunni að vera mikil. Ég hef að visu verið borgarbarn alla mína tíð og aðeins búið um skeið í Kaupmannahöfn utan Reykjavík- ur, en ég sé ekki að það muni skipta máli, ég hlakka til að bæta ísafírði við,“ svarar Þórunn. Hvar standa Vestfirðingar í ferða- málum og hversu viðamikið er starfið? „Það er útilokað fyrir mig að svara þessum spurningum svo tæmandi sé. Ísaíjarðarkaupstaður hefur ekki verið með starfandi ferðamálafulltrúa þótt á undan mér hafi starfað slíkur fulltrúi fyrir alla Vestfírði með aðsetur á ísafírði. Einnig er þess að geta í þessu sambandi, að framundan er sameining sex sveitarfélaga og gæti starfsvettvangur minn breyst ef hann næði til alls þess svæðis eftir samrunann." Hvar ísfirðingar standa í ferða- málum? „Það sem ég veit er, að það er og hefur verið ansi mikil gróska, enda duglegt og hugmyndaríkt fólk sem þama býr. Eg held að ég verði fyrsti upplýsinga- og ferðamálafulltrúi bæjarfélags á íslandi ef undan er skilinn Olafur Jónsson í Reykjavík. Ég held líka að ferðamönnum hafí fjölgað á svæðinu síðustu árin og er það til marks um gróskuna. Hins vegar á ég eftir að kynna mér stöðuna og umhverfíð betur. Ég hef verið áhorfandi úr fjarlægð og skrifað og birt efni um Vest- fírði. Nú bíður mín að gera nánari úttekt á því hver staða ferða- þjónustu er á svæðinu, kynna mér þær hug- myndir sem uppi eru og viðra mínar eigin. Skoða þá miklu möguleika sem þarna eru og stuðla að markvissu starfi og sameiningu krafta þeirra sem að þessum málum koma.“ Getur þú séð í hendi þér hvað þú munir leggja mesta áherslu á varðandi kynnningu á ferðaþjón- ustu á svæðinu? Svarið er að hluta til það sama og áðan, ég þarf að kynna mér stöðuna til fullnustu áður en ég úttala mig um slíkt. Hins vegar hef ég mínar hugmyndir og eitt get ég nefnt, það reynist alltaf vel að staðir eða svæði, þegar möguleikar þeirra eru kynntir, að áhersla sé lögð á að koma sér- stöðu þeirra á framfæri. Það þarf að benda á sérkennin og hampa þeim auk þess að gera þau að- gengileg fyrir ferðamenn Jtannig að þeir fái notið þeirra. Á Vest- fjörðum er hrikaleg náttúran og ►Þóruiín Gestsdóttir hefur verið ráðin upplýsinga- og ferðamálafulltrúi ísafjarðar- kaupstaðar og hefur störf 1. febrúar. Þórunn á langan feril að baki sem blaðamaður, fyrst á Vísi gamla, síðan á DV eftir sameiningu Vísis og DV, síðan ritstjóri Vikunnar um skeið. 1988 stofnsetti hún síðan út- gáfufyrirtæki sem gaf út ferða- málatímaritið Farvís, sem keypti síðar upp helsta keppi- nautinn Áfanga í eigu Fróða og hét þá blaðið Farvís/Áfang- ar. Nýlega seldi Þórunn útgáfu- rétt tímaritsins og fer nú til þeirra starfa sem hér greinir. landslagið ákveðið sérkenni sem laðar að ferðamenn. Þar þarf ekki að leita langt yfir skammt.“ Heldurðu að þú fáir sæmilegt svigrúm til athafna í nýja starf- inu? „Ef marka má þau samtöl sem ég hef átt við bæjaryfírvöld og aðila í ferðaþjónustu á staðnum er ég mjög bjartsýn og hlýt að svara spurningunni játandi. Þetta hafa verið afar jákvæðar viðræður og ljóst að ég verð í mjög góðu starfsumhverfi." Þú býrð líklega vel að reynslu þinni sem ferðamálablaðamaður og útgefandi um árabil? „Ég reikna með því að það hafí einmitt verið reynsla mín sem varð til þess að það var haft beint samband við mig vegna starfsins. Það var ekki auglýst, held- ur var ég spurð beint. Og ef út í það er farið, þá er reynsla mín mikl- um mun víðtækari heldur en kem- ur af útgáfunni og blaðamennsk- unni. Ég hef starfað mikið við sveitarstjómarmál allt frá árinu 1978 og-til 1994. Setið í ótal nefndum og ráðum á vegum Reykjavíkurborgar, sem fjölluðu m.a. um ferða- og umhverfísmál. Þá var ég í ferðamálanefnd Reykjavíkurborgar í alls átta ár, þar af fjögur sem varaformaður hennar. Sú reynsla ásamt útgáfu- málunum og blaðamennskunni mun styrkja mig í nýja starfinu." En þetta er ekki eitt starf heldur tvö, þú verður líka upplýsingafull- trúi? „Já, og það er eins með það og starf ferðamálafulltrúans, það er ómótuð stærð í huga mínum. Ég hef ekki starfað sem slík fyrr, en svo segir mér hugur um að störfín tvö séu nátengd, þannig að ég kvíði engu. Þvert á móti.“ „Á mínu hjartans áhugasviði"

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.