Morgunblaðið - 13.01.1996, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
I Biskup íslands vandar Geir Waage formanni Prestafélagsins ekki kveðjurnar
Ég er orðinn þreyttur á honum"
Bullari, bullari, bullari. Ég er orðinn hundleiður á þér . . .
91,5 prósent íslend-
inga í Þjóðkirkjunni
Hlutfallið var 93,1% landsmanna fyrir tíu árum
ÞJÓÐKIRKJUFÓLKI fjölgaði um
124 milli áranna 1994 og 1995
samkvæmt upplýsingum frá Hag-
stofu íslands og skráningu 1. des-
ember en íslendingum fjölgaði um
1.023 á sama tíma. Frá árinu
1985 hefur íslendingum fjölgað
um 10,8% en fólki í þjóðkirkjunni
um 0,4%.
Af öllum íslendingum voru
91,5% í þjóðkirkjunni .1. desember
1995. Tíu árum fyrr var þetta hlut-
fall 93,1%. 3,3% voru í fríkirkjum
(3,6% 1985), 2,7% í öðrum skráð-
um trúfélögum (1,7% 1985), 1% í
óskráðum trúfélögum eða með
ótilgreind trúarbrögð (0,2% 1985)
og 1,5% utan trúfélaga (1,3%
1985).
Islendingar utan trúfélaga voru
3.923 1. desember sl. Frá 1.
desember 1985 hefur þeim fjölgað
úr 3.049 eða um 28,7%. Af öllum
skráðum trúfélögum hefur fjölgað
hlutfallslega mest í Krossinum eða
um 280% síðustu tíu árin.
Nýfædd böm eru talin til trúfé-
lags móður en trúfélagaskipti eru
tilkynnt af einstaklingum sjálfum
eða forsjármönnum þeirra, séu
þeir undir 16 ára aldri. Utan trúfé-
laga teljast þeir sem hafa skráð
sig svo.
Meðfylgjandi tafla sýnir mann-
fjölda 1. desember 1995 og skipt-
ingu hans eftir trúfélögum.
Fjöldi skráðra í trúfélögum 1. des oa breytingar frá < i oois ember FJÖLGUN 1995 HLUTDEILD
1985 og 1994 1985 1994 ■ 1985- 1995 1994- 1995 1985 1995
ALLS Karlar Konur
Alls 241.750 266.786 267.809 134.224 133.585 10,8% 0,4% 100% 100%
Þjóðkirkjan 225.173 244.925 245.049 122.736 122.313 8,8% 0,1% 93,1% 91,5%
Fríkirkjur 8.812 8.490 8.785 4.379 4.406 -0,3% 3,5% 3,6% 3,3%
Fríkirkjan í Reykjavík 5.823 4.872 4.884 2.476 2.408 -16,1% 0,2% 2,4% 1,8%
Óháði söfnuðurinn í Reykjavík 1.140 1.040 1.183 600 583 3,8% 13,8% 0,5% 0,4%
Fríkirkjan í Hafnarfirði 1.849 2.578 2.718 1.303 1.415 47,0% 5,4% 0,8% 1,0%
Önnur skráð trúfélög 4.217 6.944 7.299 3.608 3.691 73,1 % 5,1% 1,7% 2,7%
Kaþólska kirkjan 1.756 2.535 2.553 1.216 1.337 45,4% 0,7% 0,7% 1,0%
Aðventistar 678 781 761 360 401 12,2% -2,6% 0,3% 0,3%
Hvítasunnusöfnuður 765 1.105 1.148 584 564 50,1% 3,9% 0,3% 0,4%
Sjónarhæðarsöfnuður 46 52 51 29 22 10,9% -1,9% 0,0% 0,0%
Vottar Jehóva 359 576 583 289 294 62,4% 1,2% 0,1% 0,2%
Baháísamfélag 311 399 402 203 199 29,3% 0,8% 0,1% 0,2%
Ásatrúarfélag 74 172 190 166 24 156,8% 10,5% 0,0% 0,1%
Krossinn 100 345 380 213 167 280,0% 10,1% 0,0% 0,1%
Kirkja Jesú Krists h.s.d.h. 128 154 164 82 82 28,1% 6,5% 0,1% 0,1%
Vegurinn - 771 701 343 358 - -9,1% - 0,3%
Orð lífsins - 54 64 35 29 - 18,5% ■ - 0,0%
Kletturinn - - 72 36 36 - - - 0,0%
Búddistafélag Óskráð trúfélög^"— - - 230 52 178 - - - 0,1%
og ótilgreind trúarbrögð 499 2.639 2.753 1.217 1.536 451,7% 4,3% 0,2% 1,0%
Utan trúfélaga 3.049 3.788 3.923 2.284 1.639 28,7% 3,6% 1,3% 1,5%
Heimild: Hagstofa Islands
Upplýsinga- og ferðamálafulltrúi á ísafirði
Markvisst starf
og sameining
krafta
Þórunn Gestsdóttir
ÓRUNN flyst nú
búferlum vestur á
ísafjörð og þar
bíður hennar að móta nýtt
tvíþætt starf á framandi
stað. Á hvetju á hún von
þar vestra?
„Ég flyt búferlum í byij-
un næsta mánaðar og á
bara von á því að dvölin
verði frábær og starfíð
gefandi og spennandi.
Þetta leggst allt saman
mjög vel í mig og tilhlökk-
unarefni að snúa sér heils
hugar að því að inna
skemmtilegt starf af
hendi. í því felst mikil lífs-
fylling. Þetta er auk þess
á mínu hjartans áhugasviði
og ekki spillir það. Eg hef
heldur engar sérstakar
áhyggjur af því að við-
brigðin kunni að vera mikil. Ég
hef að visu verið borgarbarn alla
mína tíð og aðeins búið um skeið
í Kaupmannahöfn utan Reykjavík-
ur, en ég sé ekki að það muni
skipta máli, ég hlakka til að bæta
ísafírði við,“ svarar Þórunn.
Hvar standa Vestfirðingar í ferða-
málum og hversu viðamikið er
starfið?
„Það er útilokað fyrir mig að
svara þessum spurningum svo
tæmandi sé. Ísaíjarðarkaupstaður
hefur ekki verið með starfandi
ferðamálafulltrúa þótt á undan
mér hafi starfað slíkur fulltrúi
fyrir alla Vestfírði með aðsetur á
ísafírði. Einnig er þess að geta í
þessu sambandi, að framundan
er sameining sex sveitarfélaga og
gæti starfsvettvangur minn
breyst ef hann næði til alls þess
svæðis eftir samrunann."
Hvar ísfirðingar standa í ferða-
málum?
„Það sem ég veit er, að það er
og hefur verið ansi mikil gróska,
enda duglegt og hugmyndaríkt
fólk sem þama býr. Eg held að
ég verði fyrsti upplýsinga- og
ferðamálafulltrúi bæjarfélags á
íslandi ef undan er skilinn Olafur
Jónsson í Reykjavík. Ég held líka
að ferðamönnum hafí fjölgað á
svæðinu síðustu árin og er það til
marks um gróskuna.
Hins vegar á ég eftir að kynna
mér stöðuna og umhverfíð betur.
Ég hef verið áhorfandi úr fjarlægð
og skrifað og birt efni um Vest-
fírði. Nú bíður mín að
gera nánari úttekt á
því hver staða ferða-
þjónustu er á svæðinu,
kynna mér þær hug-
myndir sem uppi eru
og viðra mínar eigin. Skoða þá
miklu möguleika sem þarna eru
og stuðla að markvissu starfi og
sameiningu krafta þeirra sem að
þessum málum koma.“
Getur þú séð í hendi þér hvað þú
munir leggja mesta áherslu á
varðandi kynnningu á ferðaþjón-
ustu á svæðinu?
Svarið er að hluta til það sama
og áðan, ég þarf að kynna mér
stöðuna til fullnustu áður en ég
úttala mig um slíkt. Hins vegar
hef ég mínar hugmyndir og eitt
get ég nefnt, það reynist alltaf
vel að staðir eða svæði, þegar
möguleikar þeirra eru kynntir, að
áhersla sé lögð á að koma sér-
stöðu þeirra á framfæri. Það þarf
að benda á sérkennin og hampa
þeim auk þess að gera þau að-
gengileg fyrir ferðamenn Jtannig
að þeir fái notið þeirra. Á Vest-
fjörðum er hrikaleg náttúran og
►Þóruiín Gestsdóttir hefur
verið ráðin upplýsinga- og
ferðamálafulltrúi ísafjarðar-
kaupstaðar og hefur störf 1.
febrúar. Þórunn á langan feril
að baki sem blaðamaður, fyrst
á Vísi gamla, síðan á DV eftir
sameiningu Vísis og DV, síðan
ritstjóri Vikunnar um skeið.
1988 stofnsetti hún síðan út-
gáfufyrirtæki sem gaf út ferða-
málatímaritið Farvís, sem
keypti síðar upp helsta keppi-
nautinn Áfanga í eigu Fróða
og hét þá blaðið Farvís/Áfang-
ar. Nýlega seldi Þórunn útgáfu-
rétt tímaritsins og fer nú til
þeirra starfa sem hér greinir.
landslagið ákveðið sérkenni sem
laðar að ferðamenn. Þar þarf ekki
að leita langt yfir skammt.“
Heldurðu að þú fáir sæmilegt
svigrúm til athafna í nýja starf-
inu?
„Ef marka má þau samtöl sem
ég hef átt við bæjaryfírvöld og
aðila í ferðaþjónustu á staðnum
er ég mjög bjartsýn og hlýt að
svara spurningunni játandi. Þetta
hafa verið afar jákvæðar viðræður
og ljóst að ég verð í mjög góðu
starfsumhverfi."
Þú býrð líklega vel að reynslu
þinni sem ferðamálablaðamaður
og útgefandi um árabil?
„Ég reikna með því að það
hafí einmitt verið reynsla mín sem
varð til þess að það var haft beint
samband við mig
vegna starfsins. Það
var ekki auglýst, held-
ur var ég spurð beint.
Og ef út í það er farið,
þá er reynsla mín mikl-
um mun víðtækari heldur en kem-
ur af útgáfunni og blaðamennsk-
unni. Ég hef starfað mikið við
sveitarstjómarmál allt frá árinu
1978 og-til 1994. Setið í ótal
nefndum og ráðum á vegum
Reykjavíkurborgar, sem fjölluðu
m.a. um ferða- og umhverfísmál.
Þá var ég í ferðamálanefnd
Reykjavíkurborgar í alls átta ár,
þar af fjögur sem varaformaður
hennar. Sú reynsla ásamt útgáfu-
málunum og blaðamennskunni
mun styrkja mig í nýja starfinu."
En þetta er ekki eitt starf heldur
tvö, þú verður líka upplýsingafull-
trúi?
„Já, og það er eins með það
og starf ferðamálafulltrúans, það
er ómótuð stærð í huga mínum.
Ég hef ekki starfað sem slík fyrr,
en svo segir mér hugur um að
störfín tvö séu nátengd, þannig
að ég kvíði engu. Þvert á móti.“
„Á mínu
hjartans
áhugasviði"