Morgunblaðið - 13.01.1996, Side 9

Morgunblaðið - 13.01.1996, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 9 FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg Hæstiréttur kemur í ljós NÝBYGGING Hæstaréttar á gatnamótum Ing- ólfsstrætis og Lindargötu er komin í ljós en verið er að rífa niður girðingu sem hulið hefur húsið að mestu. Lokið er við frágang að utan og er húsið klætt með kopar, sem er forunninn með spanskgrænu, og íslensku grágrýti og gabbrói sem er sagað og skorið til. Gert er ráð fyrir að verkinu verði lokið í ágúst næstkom- andi og að kostnaður standist áætlun, sem er 480 milljónir króna. Sextán teknir í fíkniefnahúsi Hald lagt á muni sem taldir eru þýfi SEXTAN manns voru handteknir á miðvikudagskvöld, flestir í húsi í Mjölnisholti, en þar hefur lengi farið fram sala og neysla á fíkni- efnum. í síðustu viku voru ellefu handteknir í sama húsi í tengslum við fíkniefnamisferli og fundust þá einnig munir í húsinu sem tald- ir eru þýfi. Lögreglan í Reykjavík stöðvaði mann á bíl skammt frá umræddu húsi og hafði hann fíkniefni undir höndum. Gerði þá fíkniefnadeild lögreglunnar, með liðsstyrk frá almennu lögreglunni, húsleit i Mjölnisholti og handtók 16 manns. Einnig voru gerð upptæk fíkni- efni, 10 grömm af hassi, 15 grömm af amfetamíni og lítilræði af landa. Hald lagt á þýfi Rannsóknarlögreglan lagði hald á talsvert magn af munum sem talið er að séu þýfi. Mennirn- ir sextán gistu allir fangageymsl- ur lögreglunnar um nóttina. Margir þeirra sem voru handtekn- ir voru einnig handteknir í síðustu viku. Talið er að mjög margir fíkni- efnaneytendur hafi gert sér ferð í þetta hús til þess að kaupa fíkni- efnj að undanförnu. Ómar Smári Ármannsson að- stoðaryfirlögregluþjónn segir að lögreglan hafi ákveðið að gefa húsinu í Mjölnisholti meiri gaum en áður og einnig nokkrum öðrum stöðum í borginni sem sama orð fer af. Fullar fangageymslur Fangageymslur lögreglunnar voru fullnýttar aðfaranótt fímmtu- dagsins en alls gistu þar 33 menn. Auk þeirra sextán sem voru hand- teknir í tengslum við fíkniefnamál- ið gistu þar 13 manns vegna ölvun- ar og fjórir sátu af sér sektir. F Tii starfa í Tansaníu •ÓMAR Valdimarsson blaða- maður hefur verið ráðinn til starfa sem sendifulltrúiltauða kross Islands og heldur til starfa í Ngara í Tansaníu næst- komandi þriðju- dag. Ómar mun gegna starfi upp- lýsingafulltrúa fyrir Alþjóðasam- band Rauða krossins á svæð- inu næstu sex mánuði. •Þórunn Sveinbjarnardóttir hefur gegnt þessu starfi undanfar- ið hálft ár en hún er væntanleg .heim í febrúar. „Mig hefur langað til að taka þátt í svona starfi frá því ég var um tvítugt. Ég hef verið í félags- málastarfi af ýmsu tagi en langað að gera einhvern tímann eitthvað sem skiptir máli í stærra sam- hengi. Ég trúi því að Rauði kross- inn sé að gera hluti sem skipta miklu máli, bæði hér heima og víða um heim, og er ég upp með mér að fá þetta þetta fækifæri," segir Ómar. Ngara er við landamæri Tansaníu að Rúanda og Búrúndi en Tansaníumegin landamæranna er nær ein milljón flóttamanna frá þessum ríkjum. Ómar segir að hátt í 40 manna sendinefnd Al- þjóðasambands Rauða krossins annist hjálparstarfið og hann verði upplýsingafulltrúi nefndarinnar. Starfið felist í miðlun upplýsinga, jafnt út á við sem inn á við. Seg- ist hann ekki þekkja starfið í smá- atriðum en óttast ekki að það valdi sér vandræðum. „Þarna verð ég að gera það sem ég tel mig kunna best og upplýs- ingar eru alltaf upplýsingar, hvar sem maður er,“ segir hann. Ómar Valdimarsson er 45 ára. Hann hefur verið blaða- og frétta- maður við flesta helstu fjölmiðla landsins um árabil. Síðustu ár hefur hann verið framkvæmda- stjóri fjölmiðlafyrirtækisins At- hygli í Reykjavík og meðal annars unnið ýmis verkefni fyrir Rauða kross Islands. Hann gegnir starf- inu í Tansaníu í leyfi frá Athygli. Ók á skilta- brú og ábrott LÖGREGLAN í Reykjavík óskar eftir að hafa tal af ökumanni vöru- bíls, sem ók á skiltabrú við Vestur- landsveg á miðvikudagskvöld. Vörubíl með háum farmi var ekið undir skiltabrúna, sem er vestan Höfðabakkabrúar, áður en ekið er til hægri upp í Árbæjar- hverfi. Skiltabrúin skemmdist og er ökumaður, eða vitni að atvik- inu, beðinn að hafa samband við slysarannsóknadeild lögreglunnar. Lega heimkeyrslu að fyrirhugaðri ferða- mannamiðstöð á Hveravöllum og vegar i Þjófadali er leiðrétt hérfrá uppdrætti þeim sem birtist á bls. 6 í Morgunblaðinu í gær Nýrvegur i Þjófadali k \ Ve&ur- . athugunar stob ' - II i: 2 _ II Ferða- / anna-' Jiðstöð. Aðstaða "11 j " ý' ýr Ferðafélags\"V f íslands _,-i— / c < ' v - - ■ . > \ ' Aeírtjf ...-X'ír, , ' - 1 v'' - 'j 'SJf/l , - , , , ’ ' - ' y 'fifA l H;RA UN j'■■■: 2oo m V ~.V ■ Leiðrétt kort Frum eftir Simon Surke Þýðing: Haligrímur H. Helgason. Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason, Éikmynd og búningar: Vignir Jóhannsson. Seorg Magnússon. Leikstjórn: Hallmar Sigurðsson. Leikendur: Örn Árnason, Tinna Gunnlaugsdóttir, Pálmi Gestsson, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Stefán Jónsson. Randver Þorláksson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.