Morgunblaðið - 13.01.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 15
Athugasemdir við fasteignakaup
Byggðastofnunar
Kostnaður við
breytingar 157%
umfram áætlun
RÍKISENDURSKOÐUN gerir
tvenn fasteignakaup Byggðastofn-
unar á árunum 1993 og 1994 að
umtalsefni í skýrslu um endurskoð-
un ríkisreiknings 1994, en í báðum
tilvikum var lagt í verulegan kostn-
að við endurbætur og breytingar
án þess að nákvæmar áætlanir væru
lagðar fyrir stjórn stofnunarinnar.
Byggðastofnun keypti í mars
1994 húseign á Engjateigi 3 í
Reykjavík og flutti þangað aðal-
stöðvar sínar. Kaupverð var 66,2
milljónir króna. Á stjórnarfundi í
maí var kostnaðaráætlun um breyt-
ingar á húsnæðinu lögð fyrir stjórn
stofnunarinnar og hljóðaði hún upp
á 19 milljónir. í árslok var bókfærð-
ur kostnaður hins vegar orðinn 42,3
milljónir og var þá áætlað að enn
þyrfti 6,5 milljónir til að ljúka verk-
inu. Kostnaður við breytingarnar er
því 68,8 milljónir króna, eða 157%
umfram þá áætlun sem lögð var
fyrir stjóm stofnunarinnar, og heild-
arkostnaður við húsnæðið sam-
kvæmt þessu orðinn 115 milljónir
króna.
Hitt tilfellið sem um ræðir eru
kaup Byggðastofnunar á húseign
að Strandgötu 29-31 á Akureyri
undir starfsemi sína í maí 1993.
Kaupverð var 30,6 milljónir króna,
en stjóm stofnunarinnar samþykkti
kaupsamninginn í júní sama ár. Frá
þeim tíma hafa staðið yfir gagnger-
ar endurbætur á húsnæðinu og
stendur kostnaðarverð þess að
teknu tilliti til endurmats og af-
skrifta í 55 milljónum króna. Fram-
kvæmdirnar voru ekki lagðar fyrir
stjórn Byggðastofnunar til sam-
þykktar áður en hafist var handa.
Þá segir í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar að kostnaðurinn verði auk
þess að teljast hár þegar horft sé
til umfangs starfseminnar á Akur-
eyri en starfsmenn þar eru aðeins
fjórir talsins.
Ekki farið að
reglum um útboð
Ríkisendurskoðun bendir á að
telja verði mjög brýnt að vandað sé
til áætlana sem lagðar em fyrir
stjórn stofnunarinnar þannig að þær
gefi rétta mynd af kostnaði við
framkvæmdir sem standa fyrir dyr-
um. Þá gerir Ríkisendurskoðun at-
hugasemd við að í þessum tilfellum
hafi ekki verið farið að reglugerð
og lögum sem kveða á um að öllum
stofnunum og fyrirtækjum sem rík-
ið á sé skylt að bjóða út öll innkaup
og aðkeypta þjónustu yfir ákveðinni
fjárhæð, nema augljóst sé að það
þjóni ekki hagsmunum viðkomandi
stofnunar.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
STEFAN Þorleifsson afhenti bæjarstjóranum Guðmundi
Bjarnasyni lykil að íþróttahúsinu.
Nýtt íþrottahus
vígt í Neskaupstað
Neskaupstað - Nýtt, langþráð og
glæsilegt íþróttahús var vígt í Nes-
kaupstað 29. desember sl. Tvö og
hálft ár er síðan hafist var handa
við byggingu hússins.
Nýja íþróttahúsið er 1400 fm að
stærð. Þar af er íþróttasalurinn rúm-
ir 1200 fm og er kostnaður við bygg-
inguna um 120 millj. kr.
Við vígsluna lék lúðrasveit Tón-
skólans og Barnakór Nesskóla og
kirkjukórinn sungu. Þá flutti sr.
Þorgrímur Daníelsson blessunarorð
og færði húsinu að gjöf helgimynd.
Kristinn ívarsson, formaður bygg-
ingarnefndar íþróttahússins, rakti
byggingarsögu hússins og afhenti
síðan Stefáni Þorleifssyni, sem tók
fyrstu skóflustunguna að húsinu,
lykil sem hann síðan afhenti bæjar-
stjóranum Guðmundi Bjarnasyni
sem tákn þess að smíði hússins
væri lokið.
Ýmsir fleiri fluttu ávörp og koma
fram í máli flestra að öll aðstaða til
íþróttaiðkana myndu breytast mjög
til batnaðar með tilkomu þessa nýja
íþróttahúss. Að lokum fóru fram
leikir í blaki og körfubolta. Um 300
manns voru viðstaddir vígsluna.
ÍÞRÓTTAHÚSIÐ í Neskaupstað.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
ÞORSTEINN Pálsson framkvæmdastjóri ásamt konu sinni
Kristínu Árnadóttur.
Þorsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri KÁ, val-
inn Sunnlendingur ársins
Selfossi - Lesendur Dagskrárinn-
ar á Selfossi völdu Þorstein Páls-
son, framkvæmdastjóra Kaupfé-
lags Árnesinga, Sunnlending árs-
ins 1995. Dagskráin hefur staðið
fyrir slíku vali undanfarin þrjú ár.
Við afhendingu viðurkenningar
til Þorsteins kom fram hjá Erni
Grétarssyni ritstjóra Dagskrár-
innar að aðalástæða valsins á Þor-
steini væru hinar afgerandi breyt-
ingar sem hann hefur verið í for-
svari fyrir hjá KÁ og frumkvæði
sem fyrirtækið tók varðandi
verðsamkeppni við verslanir á
höfuðborgarsvæðinu.
Þorsteinn er fæddur og upp
alinn í Reykjavík og tók við fram-
kvæmdastjórastöðu KÁ 1. október
1994. Kona hans er Kristín Árna-
dóttir frá Húsey í Hróarstungu á
Héraði. „Það sem við höfum verið
að gera hjá KÁ er verk margra.
Við tókumst á við málefni fyrir-
tækisins með áhlaupi. Það er
margt framundan hjá okkur eins
og öðrum. Ég er bjartsýnn á fram-
tíðina og þakklátur því fólki sem
veitt hefur mér þessa viðurkenn-
ingu,“ sagði Þorsteinn þegar hann
tók við titlinum Sunnlendingur
ársins.
SL 085X þvotUvél:
• Tekur 5 kg af þvotti
• Tromla oq beigur úr ry&fríu stáli
• 18 þvottikerfi (sér ullarkerfi)
• Vmduhra&i 850 snún. á mín.
• Rafeindastýr&ur vindu/hleöstuskynjari
• Stiglaus hitast, still. fyrir hálfa vél o.m.fl.
• Haeö:85 BrekJd:59,5 Dýpt:53 cm
SL 012X þvottavél:
• Tekur 5 kg af þvotti
• Tromla oq belgur úr ry&fríu stáli
• 18 þvottakerfi (séf ullarkerfi)
• Vinauhra&i 1200 snún. á mín.
• Rafeindastýr&ur vindu/hle&sluskynjari
• Stiglaus hitastillir, spama&arrofi o.m.fl.
• Hæ&:85 Breidd:59,5 Dýpt53 cm
SL 012WD þvottavél og þurrkari:
• Tekur 5 kg af þvotti
• Tromla og beígur úr ry&fríu stáli
• 18 þvottakerfi (sér ullarkerfi)
gj |j_______• Vinduhra&i 1200 snún. á min.
Rafeindasiýi&ur vindu/hle&sluskynjari
Stiglaus hitastillir, spama&arrofi o.m.fl.
Hæð:85 Breidd:59,5 Dýpt:53 cm
Skipholti 19\
I' Sími: 552 9600
Vib kunnum ab meta
bilinn pinn!
í dag kl.10 - 15 eru allir viðskiptavinir okkar velkomnir á verkstæðið..
SUÐURLANDSBRAUT 14,
SÍMI: 568 1200, BEINN SÍMI: 553 9760
Komiö meö bílinn og viö metum ástand hans og stillum Ijósin,
ykkur aö kostnaöarlausu. Þessi ítarlega skoöun tekur um
45 mínútur og gefur góöa mynd
af ásigkomulagi bílsins og hverju
þurfi aö kippa í liöinn.